Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Qupperneq 9
8 9 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989. Geir segir að mjög fáir starfsmenn knnni formúlu kók. „Coca Cola er 85% af viðskiptum fyrirtækisins aUt annað er 15%. Aftur á móti eru starfsmenn annarra deilda 85% en örfáir í kókdeildinni. Kókinu verður ekki breytt - það er alltaf eins.“ Þegar Geir er spurður hvort hann- finni fyrir samkeppninni á gos- drykkjamarkaðnum segir hann það ekki vera beint. „Samkeppnin er mjög upp og niður en Coca Cola selur alltaf aðeins meira en Pepsí og þann- ig hefur þetta verið langa lengi.“ Heimsækir Kók á íslandi Geir segist hafa kynnst lítiUega rekstri Coca Cola á íslandi í gegnum Pétur Bjömsson en þeir þekkjast síð- an þeir voru samskipa frá íslandi til Bandaríkjanna er Geir fór fyrst í nám 1953. „Pétur var þá í einhverri Coca Cola viðskiptaferð en ekki datt mér í hug þá að ég ætti eftir að starfa við það fyrirtæki. Við Pétur sáumst ekki árum saman en kynntumst aft- ur fyrir fimmtán árum. Þegar ég kem við á íslandi í Evrópuferðum mínum heimsæki ég aUtaf Pétur í VífilfelU og skoða hjá honum. En það er ekk- ert viðskiptalegt heldur bara kunn- ingsskapur." Geir segir að honum hafi flogið í hug að flytjast heim tU íslands aftur en það sé ekki raunverulegt. „Það er ekki hægt að sleppa því sem ég hef hérsegir hann. „Ég hef góðar tekjur, öryggi í starfi og svo er veðr- ið hér í Atlanta svo gott. Veðrið heima á íslandi er ekki að mínu skapi," segir hann. Samband við ísland Geir kynntist Ásbjörgu árið 1955 en þá skrapp hann til Islands í frí. „Hún kom nokkrum mánuðum síðar til mín út, við giftum okkur í Troy í New York og síðan höfum við verið saman,“ segir Geir. Hann segir að böm þeirra tvö taU ekki íslensku. „Þau halda stundum að þau skUji íslensku þegar við hjónin erum að ræða saman en það er bara vegna þess að við tölum íslensku með mikl- um enskuslettum." Geir segir að þau hjónin reyni að halda sambandi við ísland. Ásbjörg var í Verslunarskólanum áður en hún hélt utan og heldur góðu sam- bandi við skólafélaga sína. „Hún hef- ur oft farið tíl íslands á þessum árum. Ég hef haldið sambandi við skólafé- laga mína úr menntaskólanum en ættingjar okkar eru ekki margir. Ég á reyndar marga ættingja í Vest- mannaeyjum en þekki þá ekki. Við reynum að fylgjast með því sem ger- ist heima og ég er áskrifandi að News from Iceland." Geir viU ekki viðurkenna að hann sé meiri Ameríkani en íslendingur. „Þar sem ég er fæddur á íslandi og ólst þar upp mótaðist ég af því. Mað- ur verður aUtaf íslendingur. Hins vegar hef ég aUtaf kunnað vel við mig í Bandaríkjunum og ekki fundið fyrir því að vera útlendingur.", Vinnan númer eitt Geir á einn bróður á íslandi, Sigurð Fannar, en Geir var nítján ára og á leið út í heim þegar bróðir hans fæddist. Móðir hans, Þorbjörg Sig- urðardóttir, er á lífi, 84 ára, en faðir hans, Guðni Guðnason, lést árið 1966. Geir ólst upp á Rauðarárstíg 13 en flutti síðar í Hlíðamar. „Reykjavík var UtiU bær þegar ég flutti burt,“ segir hann. „Stundum velti ég því fyrir mér að þegar ég hætti að vinna eftir sjö, átta ár og fer á eftirlaun, sem em betri en þau laun sem ég hef núna, að skreppa heim í einhvem tíma. En ég gæti ekki hugsað mér að búa á ís- landi yfir vetrartíma.“ Geir segjr að þau hjónin hafi aUa tíð verið sam- mála um að setjast að í Bandaríkjun- um. Ásbjörg hefur verið heima og séð um heimihð og Geir segir að hún hafi aUtaf nóg að gera. Geir segist ekki hafa nein sérstök áhugamál þeg- ar hann kemur úr vinnu. „Vinnan er mitt áhugamál en þegar ég kem heim finnst mér gott að slappa af fyrir framan sjónvarpið. Við spUum stundum bridge," segir hann. „Bjöm Sigurbjörnsson sagði við mig fyrir löngu að ef maður væri of lengi í útlöndum myndi maður hvergi eiga heima í raun og veru. Það hefur komið í ljós að þetta er rétt. Maður er eins og hálfur útlendingur á íslandi og hálfur útlendingur hér í Bandaríkjunum. En það skiptir ekki máU dags daglega. Ef ég hefði ekki snúið út aftur eftir námið hefði ég aUa tíð séð eftir því og væri þá lík- lega kvartandi og kveinandi uppi á íslandi núna,“ segir Geir Valberg Guðnason. -ELA Aðalstöðvar Coca Cola í Atlanta þar sem Geir Guðnason starfar. Eins og sjá má er það engin smábygging enda fyrirtækið stórveldi. sykurhreinsum í mörgum löndum. „í Suður-Ameríku er ekki nógu hreinn sykur til að nota í Coca Cola. Það þarf að hreinsa sykurinn áður en hann er notaður í þennan vinsæla drykk. Frá 1977 til 1983 starfaði ég mikið við sykurhreinsun og fór í þrettán ferðir fil S-Ameríku. Yfirleitt vom þetta tvær tU þrjár vikur í einu,“ segir Geir. Það var árið 1983 sem Geir loks fór að vinna við gosið, aðaUega Fanta. „í gegnum það hef ég farið í allnokkr- ar ferðir til Evrópu og tU Buenos Aires, Santiago í ChUe, Equador, Perú og fleiri staða. Yfirleitt er ég með vegabréfið niöri í skúffu hjá mér,“ segir Geir. Þó að Geir hafi snúið sér að gosinu er hann ennþá ráðgjafi í sykrinum og teinu og oft er leitað ráða hjá hon- um. Hann hefur yfirumsjón með Minute Maid orange, sem er gos- drykkur, Mello YeUow, Fresca og Fanta. Geir segir að það sé mjög erf- itt að lýsa starfi hans. Hver dagur er eins og nýr og hann segist aldrei vita hvað bíður hans. „Ég er með fimm manns í vinnu hjá mér og við emm alltaf að formúlera einhverja hluti.“ Átján formúlur af Fanta „Ég get nefnt sem dæmi að í Evr- ópu em til átján mismunandi Fanta- formúlur. í sumum löndum er mikið selt en í öðmm minna. Það getur því verið mjög dýrt að framleiða svo margar tegundir af sama drykknum. Nú eram við að reyna að fmna eina formúlu sem getur verið notuð í allri Evrópu eins og kók sem enginn getur breytt. Þetta er verið að prófa á ítal- íu, Frakklandi, Spáni, Þýskalandi, Belgíu, Hollandi, Englandi, írlandi, Noregi og Svíþjóð. Til að fylgjast með hvemig gangi er ég oft í símanum fyrstu tvo tímana á morgnana og ræði við fyrirtæki í Evrópu. Einnig kemur fyrir að breyta þurfi um Ut á gosdrykk í einhveriu landi vegna lagabreytinga. Þá þarf að setja nýtt í formúluna eða taka úr henni því það em aUtaf einhverjir í heiminum að finna upp eitthvað sem má ekki gera. Þá vinnum við að því að gera hlutina öðruvísi og þannig heldur þetta áfram ár eftir ár. Ég er oft spurður hvað ég sé að gera frá degi til dags én starfið er svo víðtækt að ég á erfitt með að svara því. Það gerir starf mitt einmitt bæði spennandi og skemmtUegt. Einnig er það ástæða þess að ég mæti í vinnu fyrir klukkan átta á morgnana og fer ekki heim fyrr en sjö að kvöldi. Það er gaman að gera gagn. í þessu fyrir- tæki starfa þrjú þúsund og fimm hundmð manns og aUtaf mikið um að vera.“ Fáir vinna við kók Geir segir að það séu margar rann- sóknardeUdir í Coca Cola fyrirtæk- inu og hann sér um eina þeirra. Ein deUd sér um kók og diet kók, önnur sér um Sprite og svo framvegis. „í minni deild erum við að endurbæta eða breyta einhverium formúlum sem þegar em á markaðnum, gera þær t.d. ódýrari eða betri. Auk þess sé ég um Fanta um allan heim,“ seg- ir Geir og viðurkennir að hann kunni leyndarmáhð fullkomlega á bak við Fanta. JP Innihurðir Fyrir þá sem sætta sig ekki við neitt nema það besta. Vandaðar hurðir úr eik, beyki, mahóní og hvítlakkaðar. inniéttingar Skeifan 7 - Reykjavik - Símar 83913 31113

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.