Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Blaðsíða 10
LAUGARDAGUR 8. JT&IJ 1-989. IOí1 Svipmyndir frá konunglegri heimsókn Jóhann Karl Spánarkonungur og valla. Heimsóknin hefur verið anna- ur dögum og hér á síðunum má sjá Soffia drottning hafa nú kvatt ísland söm en um leið hafa konungshjónin afrakstur þess. eftir þriggja daga opinbera heim- kynnst merkilegum stöðum á stutt- -ELA sókn. Leið þeirra hefur m.a. legiö til um tíma. Ljósmyndarar DV hafa DV-myndir GVA/BG/JAK Vestmannaeyja, Nesjavalla og Þing- haft í nógu að snúast á þessum þrem- Sigurður Sigmundsson, bóndi í Hvítárholti í Hruna- mannahreppi, var aufúsugestur í kóngaveislunni en Sigurður færði konungshjónunum spænsk-íslenska orðabók að gjöf sem hann hefur sjálfur búið til. Sigurð- ur eyddi þrjátíu árum í sjálfsnám í spænsku. Islendingar hafa selt Spánverjum saltfisk í áratugi, auk þess sem ferðamenn hafa stundum laumað með sér flökum í sólarlandaferðir. íslenski saltfiskurinn er alltaf kærkominn á Spáni enda sýndi konungurinn vinnslunni mikinn áhuga. Konungshjónin spænsku héldu gestgjöfum sínum veislu að Hótel Loftleiðum á fimmtudagskvöld þar sem borðin svignuðu undan kræsingum. Hér biöa konungshjónin gesta sinna ásamt forseta íslands Vigdisi Finnbogadóttur og Ástríði Magnúsdóttur. Vestmannaeyjaferð konungshjónanna var í alla staði vel heppnuð. Konung- urinn kom oft á óvart og Vestmannaeyingar voru hissa á hversu alþýðleg- ur og vingjarnlegur hann er. Hér er útsýni yfir eyjarnar skoðað og ekki er annað að sjá en menn séu glaðir í bragði. Stórveisla var haldin á Hótel Sögu fyrsta kvöld konungsheimsóknarinnar. Það var forseti íslands og litla „prinsessan" Ástríður sem voru gestgjafar. Gestir skörtuðu sinum fegurstu klæðum og orðurnar héngu á jökkum hátt- settra embættismanna. Hér tekur forseti á móti Brynhildi Jóhannsdóttur og Aibert Guðmundssyni sendiherra. Davið Oddsson borgarstjóri bauð í hádegisverð að Kjarvalsstöðum þar sem konungshjónin skoðuðu listaverk eftir Jóhannes Kjarval. Árnastofnun er alltaf skoðuð þegar erlendir þjóðhöfðingjar koma til lands- ins. Jónas Kristjánsson sýnir hér hin merku handrit og segir sögu þeirra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.