Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1989, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1989, Blaðsíða 25
24 MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 1989. —j- Iþróttir Æösö drauraur margra hesta- manna er að vera valinn 1 lands- Ilð hestaíþróttamanna. Hesta- íþróttanienn fara í vlking annað hvert ár, á Evrópumót elgenda íslenskra hesta, og herja á er- lenda knapa. Næsta Evrópumót verður hald- ið í Viihelrasborg í Danmörku, dagana 1S. til 20. ágóst. íslenska landshðið var valið á sérstakri Evrópuúrtöku, á velli hesta- mannafélagsins Harðar í Mos- fellsbæ föstudaginn 7. júlí og laugardaginn 8. júli síðastiiöinn. Mikill áhugi er fyrir Evrópu- mótunum, jafnt meðal knapa sem áhorfenda. Að þessu sinni mættu til keppni 24 knapar með 27 hesta. Fiest allir þekktustu knapar landsins tóku þátt í úrtökunni og voru með hesta sem hafa verið í verðlaunasætum á hestamótum í vor og sumar. Fyrri keppnisdag var keppt í ijórgangi, tölti og fimmgangi, auk fyrri umferða í 250 metra skeiði. Einnig átti að keppa í víðavangs- hlaupi, en þegar til kom var eng- inn áhugi fyrir því. Siðari dagirm var keppt í gæð- ingaskeiði, hlýðnikeppni og síð- ari umferðum í 250 metra skeiöi. Fjórir knapar náðu landsliðssæti fýrri daginn, en þrir knapar síð- ari daginn. Spennan á Evrópuúrtökum er geysileg Knapar og hestar eru það góðir að hvergi má slaka á. Refsað er fyrir hin minnstu mis- tök. Nú var í fyrsta skipti dæmt eft- ir Evrópumótsreglum sem voru settar í vetur. Vægi hæga töltsins er ekki lengur tvöfalt í töltkeppn- inni á Evrópumótum, heldur ein- fait, eins og vægi hraðabreytinga og greiða töitsins. Knapar ráða nú röð gangtegundanna eins og í gæðingakeppni. Eínkuraiagiöf var einnig breytt. Nú fá knapar einkunnir frá 0-10 ístað 0-15. Áhorfendur áttu erfitt með að venjast þessarí einkunnagjöf. -EJ OPNUNARTÍMAR MAÍ-SEPT. ALLA VIRKA DAGA KL. 13-19 ALLAR HELGAR OG FRÍDAGA KL. 12-20 Landsliðssveit íslendinga i hestaíþróttum tilbúin til keppni á Evrópumótinu í Danmörku í ágúst næstkomandi. Kynslóðaskipti urðu í úrtökunni. DV-mynd EJ Hestaíþróttir - úrtaka á Evrópumótið: Kynslóðaskiptm - fimm nýliðar í landsliði hestaíþróttamanna SKynslóðaskipti urðu í estaíþróttum er fimm ngir knapar náðu lands- nðssæti á kostnað reyndari knapa, í úrtöku fyrir Evrópumótið í Danmörku. Landsliðsknaparnir eru þó ekki alveg reynslulausir, því þeir Sigurbjöm Bárðarson og Aðalsteinn Aðalsteinsson tryggðu sér einnig sæti, en þeir hafa hvor um sig keppt á fimm Evrópumótum til þessa. Þrátt fyrir sviptingamar og um- skiptin er landsliðssveitin talin vera mjög sterk því hinir ungu knapar hafa verið að kveða sér hljóðs í hesta- mennskunni undanfarin ár og em allir margverðlaunaðir. Nýliðamir em: Atii Guðmundsson, Baldvin Ari Guðlaugsson, Einar Öder Magnús- son, Hinrik Bragsson og Jón Pétur Ólafsson, en auk þeirra fara, sem fyrr er sagt þeir: Aðalsteinn Aðal- steinsson og Sigurbjöm Bárðarson. Aðalsteinn Aðalsteinsson er 37 ára atvinnuhestamaður. Hann keppir á Snjaili frá Gerðum, 11 vetra bleikál- óttum fjórgangshesti. Aðalsteinn tók þátt í Evrópumótum árin: 1975 í Austurríki, 1977 í Danmörku, 1979 í Hollandi, 1983 í Þýskalandi og 1985 í Svíþjóð. í Þýskalandi árið 1983 varð hann Evrópumeistari í fimmgangi og gæðingaskeiði á Baldri frá Sand- hólum. í Danmörku, árið 1977, varð hann í 2. sæti í tölti og í 5. sæti í fimm- gangi á Hrafni frá Kröggólfsstöðum. Aðalsteinn hefur tekið þátt í fjölda hestamóta á íslandi og setið margan verðlaunahestinn. Aðalsteinn hóf feril sinn sem knapi á stökkhestum, en færði sig yfir á skeiðhesta. Hann er einna þekktastur fyrir hæfileika til að fá hesta til að grípa í skeið og var til dæmis lengi með skeiðhestinn Fannar, sem var svo til ósigrandi á skeiðbrautinni í áratug. Atli Guðmundsson er 24 ára blikk- smiður og atvinnuhestamaður. Hann keppir á Fjalari frá FossvöUum, 8 vetra jörpum fimmgangshesti. Atli státar af mörgum sigrum á heima- slóðunum í Hafnarfirði, en einnig hefur hann lagt land undir fót og herjað á ókunnum slóðum. Atli hefur verið ósigrandi á Fjalari í sumar, kom honum í efsta sæti í A flokki hjá Fáki í vor og sigraði í fimmgangi hjá Sörla. Á síðasta Norðurlanda- móti í hestaíþróttum keppti Atli á Þyt frá Hraunbæ og komst í úrslit í fjórgangi og tölti. Atli er vaxandi knapi. Baldvin Ari Guðlaugsson er 23 ára nemandi á haffræðibraut í Verk- menntaskólanum á Akureyri. Hann keppir á Trygg frá Vallanesi sem er bleikur níu vetra fjórgangshestur. Þrátt fyrir að Baldvin sé ungur að árum hefur hann tekið þátt í fjölda móta á íslandi og unnið til verðlauna víða. Hann varð í 3. sæti í fjórgangi á íslandsmótinu í hestaíþróttum árið 1985 á Senjor en þeim hesti reið hann til margra verðlauna áður en hann seldi hann til Noregs. í sumar var hann með Trygg í efsta sæti í B flokki, í gæðingakeppni á Akureyri og einn- ig sigraði hann í þessari sterku úr- töku í gjórgangi og tölti og skaut þar .aftur fyrir sig reyndum knöpum og sterkum gæðingum. Baldin hefur einnig tekið þátt í sýningum ís- lenskra knapa á Madison Square Garden í New York og víðar í Banda- ríkjunum og Kanada. Balvin hefur einu sinni áður reynt að komast á Evrópumót, árið 1985, en þá var hann með Senjor. Ekki komst Senjor á Evrópumót það árið, en þess má geta til gamans að norski knapinn Mette Haugslien hefur keypt Senjor og mun keppa á honum á EM í Danmörku, þannig að leiðir Baldvins og Senjors liggja saman á ný. Einar Öder Magnússon er 27 ára nemandi, tamningamaður og reið- kennari. Hann keppir á stóðhestin- um Fjalari frá Hafsteinsstöðum, sem er sex vetra gamall steingrár alhliða- hestur. Einar Öder hefur ekki áður keppt á Evrópumóti, en á langan fer- il að baki sem knapi á flestum helstu hestamótum á íslandi. Hann kom alhliðahestinum Júní í efsta sætið í A flokki á landsmótinu á Hellu 1986, varð íslandsmeistari í tölti á hryss- unni Tinnu árið 1984. Einnig er hann Norðurlandameistari í fimmgangi og samanlögðum fimmgangsgreinun- um á stóðhestinum Darra frá Kamp- holti, hálfbróður Fjalars frá Haf- steinsstöðum. Einar hefur sýnt mörg glæsileg kynbótahross svo sem Glað, Otur og Kjarval frá Sauðárkróki, Flosa frá Brunnum og Drottningu frá Stykkishólmi. Einar hefur tekið þátt í tveimur sýningum í Madison Squ- are Garden og hefur sýnt íslenska hesta víða í Evrópu. Hinrik Bragason er yngstin- lands- liðamannanna, 20 ára. Hann er at- vinnuhestamaður og keppir á Vafa frá Hvassafelli í sem er 10 vetra gam- all, leirljós fimmgangshestur. Þrátt fyrir að Hinrik sé yngstur lands- liðsknapanna hefur hann þegar getið sér gott orð sem skeiðknapi og sigrað í mörgum 150 metra og 250 metra skeiðsprettunum. Hann hóf feril sinn ungur og var jafnan sigursæll. Á ís- landsmótinu í hestaíþróttum árið 1988 vann hann skeiðtvíkeppnina og varð í þriðja sæti í töltkeppninni. A Suðurlandsmótinu sama ár varð hann sigurvegari í Ðmmgangi. Þann- ig mætti lengi telja upp afrek hans. Jón Pétur Ólafsson er 32 ára múrarameistari. Þess má geta að múrari hefur ekki tekið þátt í Evr- ópukeppni fyrir íslands hönd síðan árið 1985 er Lárus Sigmundsson keppti í Svíþjóð. Jón Pétur keppir á Glaumi frá Sauðárkróki, ellefu vetra gömlum rauðblesóttum skeiðhesti. Jón Pétur vann lengi vel við tamn- ingar á Flugumýri í Skagafirði og víðar á Norðurlandi. Hann hefur oft tekið þátt í skeiðkeppni og á bestan tíma 22,6 sekúndur á Glaumi í 250 metra skeiðinu. Eins hefur Jón Pétur sýnt mörg kynbótahross og komið mörgum hryssum í 1. verðlaun. Jón Pétur mun sennilega eingöngu keppa í 250 metra skeiði, en mögulega gæð- ingaskeiði. Sigurbjöm Bárðarson er 37 ára at- vinnuhestamaður. Hann keppir á Skelmi sem er átta vetra rauðblesótt- ur fjórgangshestur. Sigurbjöm er einn reyndasti knapi landsins. Hann hefur tekið þátt í flestmn hestamót- um íslenskra knapa undanfarin tutt- ugu ár. Verðlaunapeningar og bikar- ar sem hann hefur unnið skipta þús- undum. Hæst bar stjörnu Sigur- bjöms er hann varð heimsmeistari í tölti árið 1987 í Austurríki á Brjáni frá Hólum. Sigurbjöm hefur einnig unnið til flestra þeirra verðlauna sem hægt er að fá á íslandi. Sem dæmi hefur hann orðið íslandsmeist- ari í tölti tvisvar sinnum, árið 1979 á Bijáni frá Sleitustöðum og árið 1987 á Brjáni frá Hólum. Hann hreinsaði borðið á íslandsmótunum: árið 1979 á Þingvöllum er hann vann gullverð- laun í sex greinum og árið 1987 í Svarfaðardal er hann vann allar greinamar nema gæðingaskeið, en þar varð hann í öðm sæti. Sigurbjöm á einnig íslandsmet í 250 metra skeiði, 22,4 sekúndur, en það met setti hann á Leisti frá Keldudal. -EJ MÁNUDAGUR 10. JÚLl 1989. Iþróttir i ■■ Baldvin Ari var stjama mótsins Fyrstur til aö tryggja sér sæti á Evrópumót- inu á dögunum var Baldvin Ari Guölaugs- son á Trygg frá Vallanesi fyrir samanlagöan árangur í fjór- gangi, Baldvin var stjama móts- ins því hann sigraði einnig í tölt- keppninni á Ti-ygg og komst fyir 100 stiga imirinn i töltkeppninni. Koppendur í íjórgangi voru l2. Annar inn var Einar Öder Magnússon á stóðhestinum Fjal- ari frá Hafsteinsstöðum fyrir samanlagðan árangur í fimm- gangi. Keppendur í fimmgangi voru 15. Aðalsteinn Aðalsteins- son á Snjaili frá Gerðum og Sig- urbjöm Bárðarson á Skelmi frá Krossanesi tryggðu sig sameig- inlega á Evrópumótið. Þeir fengu nákværalega sömu einkumi í'yrir tvær umferðir i töltkeppninni og fóra inn fyrir tölt og hlutfallslega bestan árangur í tölti. Keppend- ur í tölti voru 24. Hafi spemian verið mikil fyrri daginn má segja að loft hafi verið lævi blandið síðari daginn. Knöp- um hafði fækkað mjög. Þeir sem höföu tryggt sér sæti í landsliöinu þurftu ekki aö keppa meir og aðrir drógu sig úr keppni er Jjóst var aö möguieikar þeirra voru orðnir litl- ir. Það jók á ringlulreiðina aö áhugamenn um hestaíþróttir voru ekki allir með reglur um úrtökuna á hreinu og því vorú knapar reikn- aðir inn og út ur landsliðinu á víxl. Þaö tók nokkurn tíma að fá úr því skoriö hverjir næðu þeim þremur sætum sem voru laus og reyndar þurfti að kiára allar greinamar: gæðingaskeið, hlýðnikeppni og 250 metra skeið áöur en úr þvi var skoriö hvaða knapar næðu lands- liössæti. Himik Bragason var íljótlega tal- inn öruggur meö sæti. Hann keppti á Vafa frá Hvassafelli, eftir ágætan árangur í gæðingaskeiöi. Hann fer fyi-ir bestan árangur samanlagt í fimmgangi og gæðingaskeiöi. Jón Pétur Ólafsson tryggði sér sæti fyrir glæsilegan 250 metra skeiðsprett er Glaumur frá Sauðár- króki rann skeiðið raeð hann á 23,5 sekúndum. Atli Guðraundsson er sjöundi landsliðsknapinn á Fjalari frá Fossvöllura. Fimm nýliðar era í landsliðinu að þessu sinni en aö auki tveir gamlir refir: Aðalsteinn Aðal- steinsson og Sigurbjörn Bárðarson, sem hafa keppt á mörpm Evrópu- raótura. Sveitin er talin rajög sterk og rikir mikil ánægja með hópimi. Ef einhver hestur forfallast, eins og í síðustu tveimur Ewópumót- um, era þrír knapar í vxðbragðs- stöðu' Þeir eru: Haíliði Halldórsson á Flosa frá Hjaltastöðum, sera tek- ur sæti knapa sem keppa i fjór- gangsgreinunura, Guðni Jónsson á Atlasi frá Geröum, sera tekur sæti knapa í fimmgangsgreinum og Þórðm* Þorgeirsson á Berki frá Vallanesi, en hann er reiðubúinn ef Atli Guðmundsson verður að hætta við að fara á Evrópumótið með Fjaiar. Evrópunefnd Landssambands hestamannafélaga sá um fram- kvæmd mótsins í Mosfellsbæ. Nefndarinnar bíður töluvert verk viö skipulagningu undirbúnings og þjálfunar fyrir Evrópumótið. Uðs- stjóri verður Sigurður Sæmunds- son en honum til aðstoðar Guð- mundur Jónsson og Hafliði Stefán Gíslason. Fyrir ísland dæma þeir Pétur Jökull Hákonarson og Pjetur N. Pjetursson. , -EJ VILTU FA AÐ VITA HVERNIG J.R. í DALLAS LÍÐUR í RÚMINU? /Vmerísku „Sealy” rúmin eru alveg ómótstæðileg. Þau eru hönnuð í sam- ráði við færustu beinasérfræðinga Bandaríkjanna. Tvær þykkar dýnur, undir- og yfirdýna, sem fjaðra saman og ná þannig að gefa þér góðan nætursvefn án bakverkja að morgni. Alveg „týpísk" amerisk rúm í yfirstærðum. Twin size Full size Queeri size 96,5 x 203 cm 137,2x203 cm 152,4 x 203 cm 193,0 x 203 cm 49.500,- 63.000,- 68.625,- 92.250,- Marco hf., Langholtsvegi 111, sími 680690. HÚSBYGGJENDUR * VERKTAKAR * HONNUDIR NÝJUNG Á ÍSLENSKUM BYGGINGAMARKAÐI SEMKÍS S100 VATNSFÆLIN STEYPUHÚÐ SEMKÍS P100 ALKALÍÞOLIN PLASTÞEYTA SEMKIS S100 SEMKÍS S100 SEMKÍS S100 Er ætlaö til húöunar á steypufleti til verndunar, holufyllingar og jöfnunar á áferð. Er ákjósanleg á undirstöður húsa (sökkla), einkum þar sem hætta er á aö steypan sé nokkuð vatnsdræg. Efniö er auövelt aö hræra út og með réttu magni af vökva gefur þaö velling, sem er þjáll að bera á. Efnið fest- ist vel við hreinan steypuflöt og gefur sterkt og þétt yfirborð. Er árangur langs þróunarstarfs Er prófað af opinberum rannsóknastofnunum Er framleitt undir ströngu gæðaeftirliti Er merk íslensk nýjung, þróuð og framleidd fyrir íslenskar aðstæður GERIÐ VERÐ- OG GÆÐASAMANBURÐ HEILDSÖLUDREYFING: Sementsverksmiðja ríkisins Afgreiðsla Sævarhöfða ® 91-83400 Afgreiðsla Akranesi S 93-11555 Fæst í öllum helstu byggingavöruverslunum ISLENSKA JARNBLENDIFELAGIÐ HF. I SEMENTSVERKSMIÐJA RIKISINS KALMANSVELLIR 3 AKRANESI S 93-13355

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.