Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1989, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1989, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 1989. 15 efnahagsstefna Á aðalfundi Vinnuveitendasam- bands íslands voru fluttar margar athyglisverðar ræður. Mörgum ræðumanna varð tíðrætt um áriö 1987. Talað var um slysaárið 1987. Árið 1987, ár hinna mörgu mistaka. Kjarni málsins var sá að röng efna- hagsstefna 1987 leiddi af sér vanda- mál sem torvelt er að leysa. Einn virtasti endurskoðandi landsins taldi eignatilfærsluna í þjóðfélaginu vegna „fastgengis- sfefnunnar" shka að ekki væri unnt að leiðrétta hana. Svo alvar- legt er máhð þegar ársreikningar eru skoðaðir. Eigið fé útflutnings- og samkeppnisgreina hefur brunn- ið upp. Brennt á altari verðbólg- unnar. Verðbólgan var greidd niður og lífskjörum haldið uppi með eigin fé útflutningsatvinnuveganna. Svo langt var gengið að eigið fé er kom- ið niður fyrir hættumörk. Þingmaður Framsóknarflokks- ins á Vestfjörðum, Ólafur Þ. Þórð- arson, lýsti því yfir að hann styddi ekki ríkisstjóm Þorsteins Pálsson- ar vegna þessarar stefnu. Sjálfur lýsti ég því yfir ítrekað í fjölmiðlum að ég teldi efnahags- stefnu ríkisstjómar Þorsteins Páls- sonar þá hættulegustu sem ég hefði séð í framkvæmd á íslandi. Nú em fræðimenn að rannsaka afleiðingarnar sem raun ber vitni. Nauðvörn Ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar greip þegar til nauð- varnar. Atvinnutryggingasjóður var stofnaður til þess að skuld- Kjallarinn Guðmundur G. Þórarinsson, alþingismaður breyta hjá iha stöddum fyrirtækj- um og Hlutafjársjóður var stofnað- ur til að auka eigið fé fyrirtækja er væru burðarásar atvinnulífs í sínum byggðarlögum, það er að segja þeirra fyrirtækja sem svo illa vom farin að auknar lánveitingar gætu ekki hjálpað. í fljótu bragði var ekki um nær- tækari lausnir að ræða. En gallinn er sá að fyrirtækin fara þá í aukn- um mæli í eigu banka, fjárfestinga- sjóða, ríkis. Þjóðnýting segja sumir en það er rangt orð. Th þess aö snúa rekstrargrund- velhnum við þurfti svo mikið að menn treystu sér ekki til að gera það nema á lengri tíma. Hækkun raungengis gat átt rétt á sér 1987. Ekki er unnt og ekki æskilegt að reyna að bjarga öhum fyrirtækjum. En það eru mörk. Það var farið langt yfir þau. Máhð er einfalt. Þegar sjávarút- vegur á íslandi með óvenjulegar náttúrulegar aðstæður, mikla veiði og hátt fiskverð er nær allur rekinn með tapi er stjórnarstefnan röng. Atkvæðagreiðsla ráðherra um gengisskráningu er úrelt. Við verð- um að nálgast markaðsgengi ís- lensku krónunnar. Seðlabankinn hefur ekki valdið þessu hlutverki. Afleiðingar fastgengisstefnunnar eru hroðalegar. Eins og endurskoðandinn sagði eftir rannsókn ársreikninga 138 fyrirtækja úr ýmsum greinum. Þær er ekki unnt að leiðrétta. Ný efnahagsstefna Nú er nauðvörninni að ljúka, hún má ekki taka lengri tíma. Ríkis- stjórnin þarf að móta nýja efna- hagsstefnu, hefja endurbyggingu atvinnulífsins. Meðal aðalatriða þar eru: 1. Að auðvelda fyrirtækjum að auka eigið fé. 2. Að breyta rekstrargrundvelh útflutnings- og samkeppnis- greina með því að nálgast mark- aðsgengi íslensku krónunnar. 3. Að opna lánamarkaðinn þannig að innlend fjármögnunarfyrir- tæki verði að keppa við.erlend og útflutningsgreinar geti fengið lán á svipuðum kjörum og sam- keppnisgreinar erlendis. 4. Að lækka verð á matvælum með lækkun skatts á matvæh. Eigiðfé fyrirtækja Ríkisvaldiö og Alþingi geta með lagabreytingum og reglugerðum auðveldað fyrirtækjum að auka eigiö fé. Það þarf að veita fé sem lagt er í fyrirtækin svipaða skatta- meðferð og öðru sparifé. Nú er skattlagning mun meiri af hlutabréfum en skuldabréfum. Skuldabréf geta skilað 8-12% arði eða meiru og eru án skattlagningar nema eignaskatts sem þó er ekki lagður á ríkisskuldabréf. Hlutabréf njóta skattfrjáls arðs miðað við nafnverð sem oftast er ahtof lágt, auk þess sem fyrirtækin verða að skha hagnaði svo að um arð sé að ræða. Hlutabréfin eru því áhættusam- ari en skuldabréf. Almenningur vih því heldur lána fyrirtækjum í' formi skuldabréfa keyptum á fjármagnsmarkaði en eiga í þeim í formi hlutabréfa. Lánsfé er svo dýrt að þetta veldur fyrirtækjunum erfiðleikum. í þeirri efnahagsstöðu sem við erum nú er því mjög mikilvægt að breyta skattalögum þannig að hvatning verði til hlutabréfakaupa. Auka þarf skattfrelsi fjár sem lagt er th hlutabréfakaupa og lækka mörkin sem hlutafélag þarf að upp- fylla til að skattafsláttar sé notið. Lækka hluthafatöluna, lækka lág- markshlutafé. Einnig þarf að heimila tap hluta- fjár til skattfrádráttar eins og tap annarra eigna, s.s. bíla og fast- eigna. Hlutafiármarkaður er öflugt tæki th að auka eigið fé góðra fyrirtækja. Því þarf að leita ráöa til að örva viðskipti með hlutafé og e.t.v. koma upp á hlutafiármarkaði viðskipta- vaka (market maker) eins og talað er um varðandi húsbréfin. Þannig mætti auka þátttöku almennings í atvinnulífinu. Staöan á lánsfiármarkaði bein- línis kallar á aðgerðir th að auka eigið fé útflutningsfyrirtækja. Ný efnahagsstefna verður að taka við af nauðvöminni. Uppbygging sem afmáir afleiðingarnar af efna- hagsstefnu ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar. Guðmundur G. Þórarinsson „I þeirri efnahagsstöðu sem við erum nú er því mjög mikilvægt að breyta skattalögunum þannig að hvatning verði til hlutabréfakaupa. ‘ ‘ Gagnrýnin fjöl- miðlakennsla örva þarf gagnrýna hugsun um efni fjölmiöla. Við kennarar þurfum að ganga út frá reynslu okkar sjálfra og nem- enda okkar en ekki kenna einhver sérstök fræði og kenningar. Áherslan þarf að hggja á því að lesa gagnrýnið. Þá á ég ekki við áð lesa gagnrýnið fyrir nemendur heldur með þeim og að örva th gagnrýninnar hugsunar um efni og umgjörð fiölmiðla. það er þýð- ingarmeira að kanna fiölmiðlapól- itík og hvernig við notum fiölmiðla en að geta sett samband okkar og fiölmiðla inn í þrönga fyrirfram- sniðna ramma. Við, þ.e. kennarar og nemendur, þurfum að kanna okkur sjálf og okkar viðbrögð. Eigendur og yfir- ráðafólk fiölmiðla geta aldrei ákveðið endanlega hvemig við not- um fiölmiðil. Við erum virk, við höfum gaman af fiölmiðlum, við höfum nautn af því að sjá, heyra og lesa margvíslegt efni, jafnvel efni sem við vitum vel að okkur þykir „ómerkilegt", jafnvel efni sem við vitum að er „forheimsk- andi“. Fjölmiðlanotkun tekur líka stöð- ugum breytingum. Það eru ekki síst börn og unglingar sem eru mótendur nýrra neysluforma, t.d. með hlustun á tónhstarútvarps- stöðvar. Með því að viðurkenna hversu stóran þátt fiölmiðlar skipa í lífi unglinga geta skólar átt þátt í opinni þróun fiölmiðla og sam- bands okkar við þá. Fjölmiðla- fræðsla er ekki bara aðferð - fiöl- miðlafræðsla er sérstakt viöhorf til sköpunar og lýðræðis. Kjallariim Ingólfur Á. Jóhannesson landvörður í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum Fjölmiðlapólitík Fjölmiðlanám er haldhtið ef ekki er athugað aht samhengið. Við þurf- um að kanna sambönd eigenda, við þurfum að athuga þátt fiölmiðla í thurð og sköpun neysluþjóðfélags, við þurfum að athuga tengsl við al- þjóðlega fiölmiðla, o.s.frv. Við þurfum líka að athuga dag- skrámar sjálfar. Einstakir þættir eða greinar eru e.t.v. ekki svo mik- hvæg, heldur tengsl á milli sjón- varpsþátta, textathvísanir, tákna- kerfi, alþjóðlegar/íslenskar útgáfur myndmáls. Við þurfum að athuga póhtíkina í því sem fer inn. Við þurfum að athuga hvað verður útundan og hvers vegna. Ég hefi haldið því fram að í íslenskum fiölmiðlum verði umhverfismálapóhtík og hagsmunir bama og unghnga skipulega útundan. Umhverfismálapóhtík er leiðin- leg samnborið við t.d. umijöhun um sjónvarpsstjörnur og aðrar fiöl- miðlafigúrur. Við gætum t.d. núna kannað þátt íslenskra fiölmiðla í að auðvelda ríkisstjóminni og Hval hf. að halda uppi hvalveiðum undir hulu „visinda" í trássi viö alþjóð- lega samþykkt. Hvaða upplýsingar fá inni í fiölmiðlunum? Hvaða sjón- armið er lögð áhersla á? Hvaða spumingum neitar sjávarútvegs- ráðherra að svara? Af hveiju streit- ast íslensk stjómvöld við? Tæknihyggjuhætta Við getum með gagnrýnum fiöl- miðlalestri og thbúningi eigin efnis í skólum haft áhrif á hvernig fiöl- miðlar fiaha um menn og málefni. En að gefa út skólablað, að búa th video, að útvarpa, er ekki bara tækni. Þetta er erfitt frá vitrænu sjónarhomi. Það krefst skipulagn- ingar, það krefst snjahrar hugs- unar. Æfingin skapar meistarann, skyldum við ætla, en einungis þó að við föhum ekki í þá gryfiu að ætla okkur um of. Þegar ég var unghngur voru það aðahega skólablöð sem við stóðum fyrir, sum fiölrituð á fmmstæðan hátt, en einnig höfðum við um tíma aðgang að gamahi útsendingarstöð fyrir útvarp. Segja má að ég hafi verið fiölmiðlafrík, ekki síður sem skapandi en neytandi, en það var ekki tæknin sem heihaði, a.m.k. ekki tæknin ein. Það var gaman, gaman að skapa efni, að hugsa um póhtíkina, að hugsa um sköpunina. Jafnvel þótt það væri aðeins póhtík í htlum skóla var af nógu að taka. Að hafa miðihnn, blaðið, örvaði hugsunina um að hlutimir þyrftu ekki að vera eins og þeir vom. Enn er þetta gaman. (Hvati að gerð þessa greinaflokks var lestur minn á bók Bretans Lens Mastermans, Teaching the Media, sem gefin var út af Comedia í Lon- don 1985.) Ingólfur Á. Jóhannesson „Meö því að viðurkenna hversu stóran þátt fjölmiðlar skipa í lífi unglinga geta skólar átt þátt í opinni þróun fjölmiðla og sambands okkar við þá.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.