Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1989, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1989, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 1989. 11 Útlönd Bush Bandaríkjaforseti hlaut koss frá pólskri blómarós við komuna til Varsjár í gær. Forsetinn er í opinberri heim- SÓkn í Póllandi. Símamynd Reuter Bandaríkjaforseti í Póllandi: Lofar póli- tískar umbætur Bush Bandaríkjaforseti lofaði pól- itískar umbætur sem átt hafa sér stað í Póllandi síðustu vikur og mánuði í ræðu er hann hélt við komu sína til Varsjár í gær en forsetinn er í opin- berri heimsókn í Póllandi. En Bush reyndi heldur að draga úr væntingum Pólverja um víðtæka efnhagslega aðstoð Bandaríkjanna og sagði í samtali við fréttamenn að hann vildi ekki lofa of miklu. Marlin Fitzwater, talsmaður forsetans, sagði að Bandaríkjastjóm vildi hvetja til áframhaldandi umbóta. „En við verðum að vera raimsæ. Við höfum ekki kistu fullri af peningum á að skipa.“ Fréttaskýrendur telja að efnahags- aðstoð Bandaríkjanna til Póllands verði eitthvað rýrari en pólskir ráða- menn vonuðust til en Bandaríkja- stjóm mun leggja bæði Póllandi og Ungverjalandi lið. Bæði eiga löndin við mikla efnahagslega örðugleika að etja. Erlendar skuldir Póllands nema tæpum 40 milljörðum dollara en Ungveijalands tæpum 20 milljörð- um dollara. Efnahagsaðstoð Bandaríkjanna til Póllands er bundin þeim skilyrðum að pólitískar umbætur síðustu vikna haldi áfram þar í landi. Margt hefur breyst í Póllandi síðan Bush kom þangað síðast. Þegar forsetinn sótti Pólverja heim síðast, árið 1987, þá sem varaforseti, var Samstaða ólög- leg. Nú hafa samtökin verið lögleidd og em viðurkennd stjómarandstaða í landinu. Frelsi fjölmiðla hefur og aukist mikið á þessu ári sem liðið er. Hringborðsumræður stjómvalda og Samstöðu í apríl síðastliðnum leiddu til samninga um pólitískar og efna- hagslegar umbætur og þingkosning- ar sem haldnar vora nýverið leiddu til stórsigurs stjómarandstöðunnar. Bush mun í dag ávarpa pólska þingið, fyrstur forseta Bandaríkj- anna, og mun þá kynna nánar tillög- ur Bandaríkjanna um efnahagsaðstoð til Póllands. Þá er líklegt að hann muni eiga viðræður við Jarazelski, hershöfðingja og formann pólskra kommúnista, í dag en við Lech Wa- lesa, leiðtoga Samstöðu, á morgun. Hann mun og skoða skipasmíðastöð- ina í Gdansk en þar varð Samstaða tíl. Á þriðjudag fer Bush í opinbera heimsókn til Ungverjalands en það land er tahð ganga Póliandi næst hvað varðar póUtískar umbætur. Heimsókn Bush til PóUands og Ungveijalands er kjörið tækifæri fyrir hann að kynna hugmyndir sín- ar um fijálsa og samheldna Evrópu. Reuter g KAUPMEm ATHUQIÐ! HAFIÐ ÞIÐ OPIÐ Á LAUGARDÖGUM í SUMAR? HELQARMARKAÐUR DV verður birtur á fimmtudögum í sumar. í HELQARMAKAÐI DV eru upplýsingar um afgreiðsiutíma verslana á fimmtudögum, föstudögum og laugardögum, sértilboð og annað það sem kaupmenn þurfa að koma á framfæri. Þeir aðilar, sem áhuga hafa á að auglýsa í HELGARMARKAÐL vinsamlega hafi sam- band við auglýsingadeild DV fyrir kl. 16 á þriðjudögum. AUQLÝSIHQADEILD Sími 27022 Mótmæli í París Um hundrað þúsund manns söfn-' uðust saman í París á laugardaginn til að mótmæla opinberum hátíða- höldum í tilefni tvö himdrað ára af- mæUs ffönsku stjómarbyltingarinn- ar. Mannfjöldinn mótmælti einnig toppfúndi sjö helstu iðnríkja heims sem hefst í París 14.júU á BastiUudag- inn. Var ráðist á BastiUuna á ný til að mótmæla því að ríkustu þjóðir henns hittast á meðan þriðji heimurinn sveltur. Var Mitterrand forseti sak- aður um hafa framiö „söguleg mistök með því að láta drottnara heimsins taka þátt í hátíðahöldunum en ekki þá sem skortir mat og vinnu.“ TT Draumavagninn: Áfast Fortjald Stórir Hjólbarðar Tvö Svefntjöld Stór og Rúmgóður Áföst Eldhúseining Auðveld Tjöldun Sterkur en Léttur Ákaflega Meðfærilegur Lúxus á aðeins kr. 245.000 Það má öruggt telja að Camp-let tjaldvagninn sé sá heppilegasti fyrir íslenskar aðstæður, — það sannar ánægjuleg reynsla fjölda Camp-let eigenda. Talaðu fyrst við þá áður en þú heyrir í sölumönnunum. Þá sérðu best hversu góður Camp-let er. Camp-let, sá besti fyrir íslenskar aðstæður. Gjsii jonsson & Co. Sundaborg 11 Sími 91-686644

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.