Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1989, Blaðsíða 42
42
,öíí<!i l.íCrt,.')! íiUuAöljWÁ.M
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 1989.
Afmæli
Guðmundur Haukur Jónsson
Guðmundur Haukur Jónsson,
kennari og tónlistarmaður, til heim-
ilis aö Hagaseli 15, Reykjavík, er
feitugurídag.
Guðmundur fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp, í Samtúninu. hann
lauk landsprófi frá Gagnfræðaskóla
Vpnarstrætis 1965, kennaraprófi frá
KÍ1969 og stúdentsprófi frá KÍ1970.
Þá stundaði Guðmundur kennara-
nám við Yamaha tónlistarstofnun-
ina í Svíþjóð 1979-82. Hann var
kennari við Víghólaskóla í Kópavogi
frá 1971 og skólastjóri og kennari
við Orgelskóla Yamaha frá 1978.
Guðmundur er vel þekktur tón-
listarmaður en hann spilaði með
fjölda þekktra dans- og dægurlaga-
hljómsveita um árabil. Þann feril
hóf hann sextán ára að aldri með
Tónatríóinu en spilaði síðan með
hljómsveitinni Nightingales. Þá
söng hann um skeið með Dúmbó-
sextett. Guðmundur gekk til liðs viö
hljómsveitina Roof Tops 1970 og
starfaði með henni til ársloka 1973.
Þá stofnaði hann ásamt öðrum
hljómsveitina Alfa Beta og starfaði
með henni í níu ár, lengst af með
Ágústi Atlasyni og Haildóri Olgeirs-
syni. Guðmundur gaf út plötu 1972.
Guðmundur kvæntist20.7.1974
Jóhönnu Benediktsdóttur húsmóð-
ur, f. 21.3.1956. Foreldrar Jóhönnu:
Benedikt Guðmundsson, stýrimað-
ur í Keflavík, sem nú er látinn, og
eftirlifandi kona hans, Vaidís Sig-
ríður Siguröardóttir húsmóðir.
Guðmundur og Jóhanna eiga þijú
böm. Þau eru Valdís, f. 2.3.1978,
Hanna, f. 12.1.1982 og Tryggvi, f.
15.7.1988.
Guðmundur á þijú alsystkin. Þau
eru Þröstur Jónsson, f. 15.1.1945,
bókbindari í Reykjavík, kvæntur
Ellý Kratsch, húsmóður og verslun-
armanni, og eiga þau þijú böm,
Þóm, fyrrv. fegurðardrottningu
Reykjavíkur, Guðrúnu Svövu og
Reyni Öm; Kristján Öm Jónsson,
f. 6.2.1946, plötu- og ketilsmiður og
verkstjóri hjá Hitaveitu Reykjavík-
ur, kvæntur Þómnni Júlíusdóttur,
húsmóður og ritara, og eiga þau
þijú böm, Jón Inga, Rannveigu og
Hildi Björk; Guðrún, f. 18.12.1952,
skrifstofumaður á bæjarskrifstof-
imum í Njarðvík, og á hún þrjá syni,
Guðmund Georg, Hilmi Inga og
Reyni Þór. Hálfsystkini Guðmund-
ar, samfeðra, em Hafdís, f. 22.7.1930,
ogLúther, f. 18.1.1936.
Foreldrar Guðmundar Hauks: Jón
Ingi Guðmundsson, kennari og mál-
arameistari, f. 16.9.1909, d. 5.5.1989,
og Svava Kristjánsdóttir húsmóðir,
f. 19.6.1922.
Jón Ingi var sonur Guðmundar,
jámsmiðs í Hafnarfirði, Jónssonar,
b. í Dufþaksholti í Hvolhreppi, Jóns-
sonar, b. á Efra-Hvoli í Hvolhreppi,
Einarssonar, b. á Amarhóli í Land-
eyjum, Guömundssonar, b. á Álf-
hólum, Gíslasonar. Móðir Jóns á
Efra-Hvoli var Gróa Jónsdóttir, b. á
Vestri-Garðsauka, Atlasonar. Móðir
Jóns í Dufþaksholti var Guðrún Sig-
urðardóttir, b. á Ægissíðu, Jónsson-
ar, b. á Bjólu, ísólfssonar, b. á Selár-
læk, Loftssonar. Móðir Guðmundar
var Ingibjörg Einarsdóttir, b. á Mið-
krika, Einarssonar, bróður Jóns á
Efra-Hvoli.
Móðir Jóns Inga var Guðrún, syst-
ir Jóns, b. á Þóroddsstöðum, langafa
Héðins Steingrímssonar, heims-
meistara í skák, tólf ára og yngri,
og Hannesar Jónssonar sendiherra.
Systir Guðrúnar var Ingibjörg,
amma Karls Guðjónssonar alþingis-
manns. Ingibjörg var dóttir Jóns,
b. á Þorgrímsstöðum í Ölfusi, Jóns-
Guðmundur Haukur Jónsson.
sonar, b. á Króki í Ölfusi, Jónsson-
ar. Móðir Jóns á Þorgrímsstöðum
var Ingibjörg Amgrímsdóttir, b. í
Bakkarholti í Ölfusi, Bjamasonar.
Móöir Guðrúnar var Guðrún Gam-
alíelsdóttir, Egilssonar, og konu
hans, Vilborgar Þórðardóttur.
Svava er dóttir Kristjáns, útvegsb.
á Stöðvarfirði, Magnússonar, og
konu hans, Þóm Þorvarðardóttur.
Ástríður Helga Sigmjónsdóttir
Ástríður Helga Siguijónsdóttir,
Grænumörk 3, Selfossi, er áttræð í
dag. Ástríður Helga er fædd á Tind-
um í Svínavatnshreppi og ólst þar
upp. Hún var í námi í Kvennaskól-
anum á Blönduósi og lærði og vann
við fatasaum hjá Sæmundi, klæð-
skera á Blönduósi. Ástríður var
húsfreyja í Þórormstungu í Vatns-
dal 1943-1959 en flutti þá til Selfoss
og hefur búið þar síðan. Ástríður
giftist 17. janúar 1939 Skúla Jóns-
syni, f. 3. ágúst 1901, b. í Þórormst-
ungu. Foreldrar Skúla vom Jón
Hannesson, b. í Þórormstungu, og
kona hans, Ásta Margrét Bjama-
dóttir. Sonur Ástríðar og Skúla er
Siguijón, f. 16. maí 1940, kvæntur
Amþrúði Ingvadóttur, börn þeirra
era Bryndís, gift Eðvarði Ingólfs-
syni rithöfundi, Skúli og Ingvi Am-
ar. Systkini Ástríðar em Erlendur,
er látinn, Kristín, Þorlákur, Sigrún,
er látin, Ingibjörg, er látin og Guð-
rún.
Foreldrar Ástríðar vom Sigurjón
Þorláksson, b. og húsasmiður á
Tindum, og kona hans, Guðrún Er-
lendsdóttir. Siguijón var sonur Þor-
láks, b. í Heiðarseli í Gönguskörð-
um, Ásmundssonar, b. í Þúfum í
Óslandshlíð, Ásmundssonar, b. á
Hverhóli í Skíðadal, Þorleifssonar.
Móöir Þorláks var Ingibjörg Þor-
láksdóttir, b. á Syðri-Brekkum,
Finnbogasonar og konu hans, Val-
geröar Jónsdóttur, b. á Sauðá, Jóns-
sonar. Móðir Siguijóns var Kristín
Helgadóttir, b. í Hólkoti í Staðar-
hreppi, Jónssonar, b. í Kálfárdal á
Skörðum, Ólafssonar, b. í Valadal á
Skörðum, Andréssonar. Móðir Jóns
var Björg Jónsdóttir, b. á Skeggs-
stöðum í Svartárdal, Jónssonar,
ættföður Skeggsstaðaættarinnar.
Móðir Helga var Oddný Ámadóttir,
b. áFjallií Sæmundarhlíð, Helga-
sonar, og konu hans, Margrétar
Bjömsóttur, b. í Mjóadal í Laxárdal
Fremri, Arasonar. Móðir Kristínar
var Ingiríður, systir Jóns rektors.
Ingiríður var dóttir Þorkels, b. á
Sólheimum, Jónssonar. Móðir Þor-
kels var Ingiríöur eldri Jónsdóttir,
systir Bjargar. Móðir Ingiríðar var
Sigþrúður Ámadóttir, systir
Oddnýjar.
Guðrún var dóttir Erlends, b. á
Ástríöur Helga Sigurjónsdóttir.
Stóm-Giljá, bróður Bjöms í Gríms-
tungu, afa prófessoranna Bjöms
Þorsteinssonar og Þorbjarnar Sig-
urgeirssonar. SystirErlends var
Ingibjörg, langamma Friðriks Sop-
hussonar. Erlendur var sonur Ey-
steins, b. á Orrastöðum, Jónssonar
og konu hans, Guðrúnar Erlends-
dóttur. Móöir Guðrúnar frá Stóm-
Giljá var Ástríður Sigurðardóttir,
b. í Hindisvík, Jónssonar, afa Sig-
urðar Norlands, prests í Hindisvík,
og Jóns Norlands læknis. Þau híón
verða að heiman í dag.
Pétur S. Sigurðsson
Pétur S. Sigurösson kokkur, Stór-
holti 3, Akureyri, er fertugur í dag.
Pétur fæddist í Keflavík og ólst
upp í Vogum á Vatnsleysuströnd.
Kona Péturs er Filippía J. Sigur-
jónsdóttir, húsmóðir og afgreiðslu-
stúlka, f. 4.4.1954, dóttir Ingibjargar
O. Sveinsdóttur og Siguijóns Á.
Jónssonar.
Böm Péturs og Filippíu em Sig-
urður Jóhann og Ingbjörg Ósk.
Albróðir Péturs er Þórður Krist-
inn. Uppeldissystkini Péturs em
Þorbjöm Eiríksson, Gunnhildur
Ágústa Eiríksdóttir, Guðný Kristj-
ana Eiríksdóttir, Dagbjört Jóna
Guðmundsdóttir og María Guðbjörg
Kristjánsdóttir.
Foreldrar Péturs: Sigurður Þórð-
arsonbifreiðastjóri, f. 28.9.1895, d.
21.3.1951, og Jóhanna Kristjáns-
dóttir húsmóðir, f. 1.9.1905, d. 17.7.
1953. Bjuggu þau lengst af á Kirkju-
vegiíKeflavík.
Fósturforeldar Péturs: Eiríkur
Kristjánsson, f. 25.12.1904, d. 29.4.
1979, og Dagmar Hulda Þorbjöms-
dóttir.f. 14.3.1910.
Tilmæli til
afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur
þeirra til að senda því myndir og upplýsingar
um frændgarð og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta
lagi þremur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir.
Sigfríður Jónsdóttir,
Hvammi, Húsavík.
Ásta Jónasdóttir,
Grettisgötu 55C, Reykjavik.
80 ára
Ástríður Sigurjónsdóttir,
Grænumörk 3, Selfossi.
Kristrún Kristjánsdóttir,
Unufelli 35, Reykjavik.
Guðrún Ágústsdóttir,
Stóra-Vatnshomi, Haukadals-
hreppL
Ingibjörg Halldórsdóttir,
Freyjugötu 1, Sauöárkróki.
Þorkell Traustason,
Amartanga 2, Mosfellsbæ.
40 ára
Sigurður Einarsson,
Greniteigi 9, Keflavík.
Gísli J. Halldórsson,
Birkiteigi 6, Keflavík.
70 ára
Anna Ólöf Eliasson,
Ljósheimum 12A, Reykjavík,
Hlif Svava Hjálmtýsdóttir,
írabakka 12, Reykjavík.
Steinunn Bergsteinsdóttir,
Vogaseli 7, Reykjavík.
Gerður Matthiasdóttir,
Lambhaga 22, Selfossi.
Pálína Kristinsdóttir,
Þinghólsbraut 37, KópavogL
Kristin Helga Zalewski,
Fífuseli 35, Reykjavik.
SMÁAUGLÝSINGAR
s: 27022
veginn!
Brýr og ræsi krefjast sérstakrar varkárni.
Draga verður úr hraða og fylgjast vel með
umferð á móti.
Tökum aldrei áhættu!
|JUMFERÐAR
• ráo