Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989.
7
Fréttir
Umsóknir Vestfirðinga í almenna húsnæðislánakerfinu:
Þriðjungur sækir um til að
kaupa eða byggja í Reykjavík
Ef umsóknir manna til kaupa eða
nýbygginga í almenna húsnæðis-
lánakerfinu eru skoðaöar sést að
aðeins 65,3% þeirra Vestfirðinga,
sem sækja um lán í þessu kerfi,
ætla' í raun og veru að byggja eða
kaupa á Vestfjörðum. Því sem næst
allir hinir sækja um lán til að
byggja eða kaupa húsnæði í
Reykjavík. Þessar tölur eru unnar
upp úr skrám Húsnæðisstofnunar
ríkisins um umsóknir frá 1. sept-
ember 1986 til 31. desember 1987.
Nýrri tölur hafa ekki verið unnar.
Þessa sömu tilhneigingu má
einnig greina í öðrum landshlutum
og er næsta algengt að um þriðj-
ungur umsókna landsbyggðar-
manna sé til kaupa eða byggingar
á húsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Norðurland eystra sker sig þó úr.
Þá má geta þess að í húsnæðis-
könnun, sem gerð var á síðasta ári
fyrir Húsnæðisstofnun, kom í ljós
að 5% landsbyggðarbúa eiga íbúð
á höfuðborgarsvæðinu en 3% höf-
uðborgarbúa eiga íbúð á lands-
byggðinni. í sömu könnun kom í
ljós að 75% höfuðborgarbúa telja
of lítið framboð vera á verka-
mannabústöðum og öðru félagsleg-
um húsnæði í sínu byggðarlagi. Á
landsbyggðinni telja um 60% íbúa
slíkan skort vera í sínu byggðarlagi
eða nokkru færri en í höfuðborg-
inni.
Ástæðan fyrir því að sérstaklega
er litið á Vestfirðinga hér er sú að
þeir hafa mjög kvartað yfir að bera
skarðan hlut frá borði við úthlutun
úr félagslega kerfinu. Þegar hins
vegar er skoðaður hugur þeirra
sjálfra til húsakaupa og húsbygg-
inga á Vestfjörðum kemur í ljós að
þriðjungur þeirra kýs að fjárfesta
á höfuðborgarsvæðinu frekar en í
heimabyggðinni.
Af þeim Vestfirðingum sem ætl-
uðu að kaupa húsnæði, og er þá
áfram vísað til umsókna frá áður-
greindu tímabili, ætluðu 33,1% að
kaupa í Reykjavík eða á Reykja-
nesi. Umsóknir tii nýbygginga voru
færri en 24,2% Vestfirðinga ætluðu
að byggja í Reykjavík eða á Reykja-
nesi.
-SMJ
Félagslegar íbúðir:
Hlutfallslega
f lestar eru á
Vestfjörðum
- fæstar á Suðurlandi og Reykjanesi
Samkvæmt tölum, sem koma fram
í skýrslu vinnuhóps um félagslega
húsnæðisláncikerfið, sem skilaði nið-
urstöðu á fyrri hluta árs, þá eru fé-
lagslegar íbúðir flestar á Vestfjörð-
um.
Sem hlutfall af heildaríbúðafjölda
á Vestfjörðum eru þessar íbúðir
9,48%. Tekur nefndin reyndar fram
að þetta hlutfall sé jafnvel enn hærra
vegna þess að skráningu félagslegra
íbúða sé ábótavant á ísafirði.
Að undanfómu hafa heyrst kvart-
anir út af úthlutun Húsnæðisstofn-
unar í síðustu viku og hafa sveitar-
stjómarmenn á Vestfjörðum talið
óréttlæti felast í úthlutuninni. Sam-
kvæmt þessum tölum virðist hlut-
deild Vestfirðinga vera bærileg þegar
á heildina er litið. Meðaitalshlutfall
félagslegra íbúða fyrir landið allt er
5,94%.
Fæstar em félagslegar íbúðir sem
hlutfall af heildaríbúðafjölda á Suð-
urlandi, 2,94% af öllu íbúðarhús-
' næði, og á Reykjanesi 3,07%. Ef mið-
að er við félagslegar íbúðir á hveija
þúsund íbúa þá er þetta hlutfall lægst
á Reykjanesi, 9,39%.
Hlutfali félagslegra íbúða er næst-
hæst á Norðurlandi vestra, 8,09%. í
3. sæti er Austurland með 8,03%.
Reykjavík er í 4. sæti með 7,34%. í
5. sæti er Norðurland eystra með
6,26%. Á Vesturlandi er þetta hlut-
fall 4,15%.
Samkvæmt nýlegri tilkynningu
Húsnæðisstofnunar hafa verið
byggðar um 6.500 félagslegar íbúðir
síðan lög um Byggingasjóð verka-
manna voru samþykkt fyrir 60 árum
síðan. Á árunum 1965 til 1987 vom
byggðar 42.000 íbúðir hér á landi. Þar
af voru byggðar um 6.000 félagslegar
íbúðir eða rúm 14% íbúðabygginga.
-SMJ
Flugvélin utan brautar á Fagurhólsmýri,
DV-mynd Einar Rúnar Sigurðsson
Flugvél ráðherranna
fór út af brautinni
Flugvél Landhelgisgæslunnar
lenti á flugvelhnum á Fagurhólsinýri
í Öræfum um kl. 14 sl. föstudag til
að ná í sjávarútvegsráðherra íslands
og Vestur-Þýskalands, Halldór Ás-
grímsson og Wolfgang von Geldem,
en þegar snúa átti vélinni við á braut-
inni lenti hún út í lausum kanti og
fór út af flugbrautinni. Ekki urðu
slys á fólki eða skemmdir á flugvél-
inni.
Það þurfti að fá dráttarvél til að
draga véhna aftur upp á brautina og
tók þetta tilstand um tvær klukku-
stundir. Einnig var jeppi með í drætt-
inum. Rignt hafði fyrr um daginn og
var jarðvegur gljúpur í kantinum þar
semvélinfórútaf. -hsím
Sauðárkrókur:
Prestvlgsla á Hólum:
Kosið um húsvörð í bæjarstjórninni
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkráki:
Á fundi bæjarstjórnar Sauðár-
króks nýlega var kosið leynilegri
kosningu á milli umsækjenda um
starf húsvarðar við gagnfræðaskól-
ann. Venjulega liggja úrslit í shkum
málum fyrir áður en til afgreiðslu
bæjarstjórnar kemur en svo var þó
ekki að þessu sinni.
Umsækjendur um starfið voru sex
og taldi skólanefnd þá aha hæfa tU
starfans en lýsti sig fylgjandi því að
trésmiður yrði ráðinn. Bæjarráð tók
tiUit til ábendingar skólanefndar og
trésmiðirnir Hreinn Jónsson og
Sverrir Valgarðsson fengu hvor sitt
atkvæðið í bæjarráði, einn bæjar-
ráðsmanna sat hjá. í kosningunni í
bæjarstjórn hlaut Sverrir síðan sex
atkvæði á móti þremur og var því
rétt kjörinn til starfsins.
Á mettíma til Gjögurs
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
Gott veður hefur verið hér undan-
farna daga, 9-11 stiga hiti og sól. Ég
kom hingað tU Gjögurs 5. júlí ásamt
tíu ára kaupamanni mínum í nýju
Arnarflugsvéhnni sem er alveg dá-
samlegt farartæki. Beingul að innan
í lofti og á hhðum með rauðum sæt-
um, svo hlýleg. GreinUegt að far-
þegum leið vel í flugvéhnni og voru
montnir að fljúga með henni. Þor-
steinn Jónsson var flugstjóri, traust-
vekjandi eins og allir flugmenn Arn-
arflugs.
Flugtíminn frá Reykjavík til
Hólmavíkur tók 37 mínútur og eftir
stuttan stans var flogið frá Hólmavík
til Gjögurs á sjö og hálfri mínútu.
Það er fljótasta ferð sem ég hef farið
til Gjögurs en undanfarin 10 ár hef
ég alltaf flogið þangað og þá með
Arnarflugi.
Fimmta vigslan
á þessari öld
Séra Kristján Björnsson, sóknar- og séra Guðni Þór Áraason, pró-
prestur í Breiðabólstaðarpre- fastur á Melstað í Miðfirði.
stakalh í Ilúnavatnsprófastsdæini, Séra Kristján Björnsson mun
var vígður í Hóladómkirkju í þjóna í fjórum kirkjum. Þær eru á
Hjaltadal á sunnudag. Séra Sigurð- Breiðabólstað, Víðidal, Vesturhópi
ur Guðmundsson vígslubiskup og Vatnsnesi.
vígði Kristján. Séra Einar Sigur- Séra Kristján mun vera fimmti
björasson lýsti vígslunni. Vígslu- guðfræðingurinn og sá þriðji núlif-
vottar voru séra Svavar Jónsson, andi sem vígður er í Hóladóm-
sóknarprestur á Ólafsfirði, en hann kirkju á þessar öld. Hinir núlifandi
þjónaði fyrir altari, séra Ágúst Sig- prestarnir era séra Svavar Jónssbn
urðsson, sóknarprestur á Prest- en hann var vígöur 1986 og séra
bakka í Hrútafirði, séra fiöálmar Ágúst Sigurðsson sem var vígður
Jónsson, prófastur á Sauðárkróki, 1965. -sme