Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Page 10
M.®VIKUDAGURr12,,J^.^§9,
10
Útlönd
North áfrýjar
„Er óhætt að faka með sér aðstoðarmann?“. Túlkun Luries á dómnum
yfir North.
Fyrrum embættismaður þjóöaröryggisráðs Bandaríkjanna. Oliver
North, kvaðst í gær ætla að áfrýja dómnum sem hann hlaut vegna aðild-
ar aö Iran-kontra hneykslinu.
Orörómur haíði veriö á kreiki um aö North myndi ef til vill ekki láta
veröa af hótun sinni um að áfrýja eftir að hann í síðustu viku slapp við
fangelsisdóm. North hlaut skilorðsbundinn dóm, sekt upp á 150 þúsund
dollara auk þess sem honum var gert að vinna tólf hundruö klukkustund-
ir 1 þegnskylduvinnu.
North var fundinn sekur um aö hafa eyðilagt leynileg skjöl, reynt að
hylma yfir vopnasölu til írans og fiutningi ágóðans til kontraskæruliða
í Nicaragua.
Palestínskt nýra í gyðing
Fjölskylda palestínsks drengs af Gazasvæðinu, sem lést þegar bygging
hnmdi yfir hann, hefur gefið gyöing og araba nýru hans. Skýrt var frá þvi
í dagblaöi í gær aö faðir drengsins hefði heimilað nýrnaflutninginn eför
að reynt haföi verið í þrjá daga en án árangurs að halda lífi í drengnum.
Rollunum sleppt
Kaupmenn i Paris reyna aö græða á öllu sem tengja má byltingaraf-
mælinu. Þessi Parisardama kynnir hér byltingarsmokka. Simamynd Reuter
Stiórnendur hátíðahaldanna vegna byltingaraftnælisins í París hafa
ákveðið aö hætta við skrúðgöngu þúsund kinda eftir breiðgötunni
Champs-Blysées á fóstudaginn. Hugmyndin ura að hafa með rollur var
ein af mörgura skringilegum sem litið hafa dagsins ljós við skipulagningu
hátíðahaldanna.
Búist er við að ein milfjón manns muni koma til að horfa á skrúð-
gönguna eftir írægustu breiðgötu Parisar á föstudagskvöid.
Áhyggjur vegna stjórnarkreppu
Bandaríkjastjórn hefur tjáð sljórnmálaleiðtogum í ísrael að hun vonist
til að Verkamannaflokkurinn segi sig ekki úr samsteypustjórninni. Þetta
kom fram í dagblaöinu New York Times í morgun.
Haft var eftir ónafttgreindura bandarískum embættismönnum að banda-
risk yfirvöld óttuöust að ef Verkamannaflokkurinn færi úr stjóminni
myndi það grafa undan tilraunum til að koma á kosningum meöal Palest-
ínumanna á herteknu svæðunum. Bandarísk yfirvöld álíta að kosning
fulltrúa Palestínumanna sé besta leiðin til að koma á samningaviðræðum
milliþeirraogísraela. Keuter
Heppinn ökumaður
vörubil sem reyndi aö komast undir brú en mistókst. simamynd Reuter
höfninni í Leeds í gær þar sem öll starfsemi lá niðri eftir aö verkfall hafnarverkamanna skall á.
Stmamynd Reuter
. 1 I rí ..
I -•■v, / j L Ak. | , T , I J
1 ' 1 h KJ., - * - J
í A Jl A 1
Hafnarverkfall
í Bretlandi
Verkfall breskra hafnarverka-
manna skall á í gær og vöruðu leið-
togar þeirra við að það gæti staðið
yfir í sex mánuði. Embættismenn
segja að það myndi ekki hafa áhrif á
efnahag landsins.
Boðað hafði verið til verkfalls í sex-
tíu höfnum þar sem ekki er lengur í
gildi samningur við yfirvöld um ævi-
langa ráðningu rúnúega níu þúsund
hafnarverkamanna.
Gerðar voru ráðstafanir til að
beina flutningum um fjöratíu hafnir
þar sem ekki hafði verið boðað til
verkfalls.
Viðræður milh talsmanna ríkis-
reknu járnbrautanna og félags járn-
brautarstarfsmanna fóra út um þúf-
ur í gær og því búist við að sólar-
hringsverkfall starfsmanna myndi
lama samgöngur um Bretland í dag
í fjóröa skiptið á einum mánuði.
Reuter
Skæruliðar hafna vopnahléi
Afganskir skæruliðar höfnuðu í
gær fiögurra daga einhliða vopnahléi
stjómarinnar í Kabúl samtímis því
sem þeir tfikynntu um gagnárás á
bækistöð sem þeir misstu í hendur
stjómarhermanna í síðustu viku.
Najibullah forseti hafði boðað til
vopnahlésins frá og með miðnætti
síðastliðna nótt í tilefni pílagríma-
ferðarinnar til Mekka. Sögðu tals-
menn skæraliða að þeirra hátíðahöld
myndu fara fram þegar stjórn múha-
meðstrúarmanna væri tekin viö af
Najibullah.
Talsmaður stjórnarinnar í Kabúl
sagði að afganskir hermenn hefðu
rétt til að verjast árásum á meðan á
vopnahlé stendur.
Heimildarmenn úr röðum skæra-
liða sögðu að stjórnarhermenn hefðu
á mánudagskvöld gert árásir til aö
ofna aftur þjóðveginn milh Kabúl og
Jalalabad sem skæruliðar hafa haft
á valdi sínu frá 4. júlí.
í gær neituðu skæruhðar ábyrgð á
dauðsföllum óbreyttra borgara í eld-
flaugaárásum skæruliða á Kabúl á
mánudag. Yfirvöld segja að þrjátíu
manns hafi látið lífið og hundrað
sextíu og sjö særst. í yfirlýsingu frá
skæraUðum segir að þeir hafi ein-
ungis skotið á vopnageymslu. Eld-
flaugarnar, sem hæft heföu íbúðar-
hverfi, hefðu verið frá hemum.
Reuter
Sir Laurence Olivier lést í gær, 82 ára að aldri
Símamynd Reuter
Sir Olivier
látinn
Breski leikarinn Sir Laurence
Olivier lést í gærdag, áttatíu og
tveggja ára að aldri. Sir OUvier hafði
háð harða og langa baráttu við
krabbamein og hjartveiki. Að sögn
umboðsmanns hans lést Sir OUvier
í svefni.
Sir Olivier var einn þekktasti leik-
ari Breta. Á sextíu ára ferU lék hann
hvort sem var á sviði eða á hvíta
tjaldinu. Hann tók þátt í uppfærslum
á 121 leikhúsverki og lék í 58 kvik-
myndum. Fyrir kvikmyndaleik sinn
hlaut hann tvenn óskarsverðlaun.
Yngri kynslóðin man hann best í
kvikmyndum eins og Marathon Man
frá árinu 1975 eða Jazz Singer frá
árinu 1980.
Olivier var án efa best þekktur fyr-
ir túlkun sína á Shakespeare. Segja
margir gagnrýnendur að túlkun
hans á verkum meistarans hafi verið
hápunktur leikferUs hans og að eng-
inn, hvorki fyrr né síðar, geti leikið
slíkt eftir.
Eftir því sem heUsu hans hrakaði
dró Sir Olivier sig æ meir í hlé frá
leikhúsinu en hélt þó áfram að leika
í kvikmyndum. Reuter