Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989.
11
Utlönd
Leiðtogafundur sjö helstu iðnríkja heims:
Skuldabyrði þróunar-
landa efst á baugi
Bush Bandarikjaforseti og Thatcher, forsætisráðherra Breta, eru meðal þeirra sem taka þátt í leiðtogafundi
sjö helstu iðnríkja heims sem hefst í París á föstudag. Simamynd Reuter
Gífurleg skuldabyrði þróunar-
landa mun án efa bera hæst á leið-
togafundi sjö helstu iðnríkja heims
sem hefst í París á föstudag. Frétta-
skýrendur telja að leiðtogamir
muni leita eftir pólitískri samstöðu
um nýja greiðsluáætlun þróunar-
landanna sem Nicholas Brady, ijár-
málaráðherra Bandaríkjanna, hef-
ur lagt fram.
Himinháar fjárhæðir
í greiðsluáætlun Bradys er gert
ráð fyrir nokkrum afskríftum lána
banka og annarra lánastofnana til
þróunarlanda en þau nema 1,3 bil-
ljónum dollara. Það svarar til 75
billjóna íslenskra króna, þ.e.a.s. 75
miiljóna milljóna.
í áætluninni er gert ráð fyrir að
bankar og lánastofnanir falh frá
hluta krafna sinna en í staðinn gefi
skuldaþjóðimar út skuldabréf með
tryggari veðum.
Áætlunin hefur mátt sæta nokk-
urri gagnrýni. Segja sumir banka-
menn að sú upphæð sem veija á
til hennar á næstu ámm sé allt of
lítil. Brady kveðst aftur á móti full-
viss um gildi hennar og sagði í síð-
ustu viku að flest fjölþjóðafyrir-
tæki heföu þegar veitt samþykki
sitt.
Málefni Mexíkó
Brady kynnti greiðsluáætlun
sína fyrir nokkram mánuðum og
ef því enji engin reynsla komin á
framkvæmd hennar. En nú má
búast við einhverjum breytingum
þar á og munu málefni Mexíkó
reynast fyrsta prófraunin.
Mexíkó skuldar erlendum banka-
stofnunum bæði langtíma- og
skammtímalán, rúmlega fimmtíu
milljarða dollara. Samningavið-
ræður um greiðsluáætlun hafa
staðið mánuðum saman án árang-
urs. Nú virðist sem samningar séu
í sjónmáh, samningar sem gera ráð
fyrir 35 prósent afskriftum frá
hendi bankastofnana. Náist slíkt
samkomulag fyrir fundinn í París
mun það reynast áætlun Bradys
mikill styrkur.
•
Frekari vandkvæði
Staða tveggja af skuldugustu
þjóðum heims, Brasilíu og Argent-
ínu, era ekki beint upplífgandi fyr-
ir leiðtogana sjö.
Brasilía frestaði nýverið greiðsl-
um erlendra lána og í Argentínu
lýsti hinn nýi efnahagsráðherra
landsins, Miguel Roig, því yfir á
sunnudag að landið væri í raun
gjaldþrota. Þar í landi era erlendar
skuldir upp á 3,5 milljarða dollara
þegar gjaldfallnar.
í heimalöndum leiðtoganna,
Bandaríkjunum, Japan, Vestur-
Þýskalandi, Frakklandi, Bratlandi,
ítahu og Kanada, virðist efnahags-
lifið standa nokkuð stöðugt. í
Bandaríkjunum hefur hagvöxtur
nú staðið í nokkur ár og vextir
hafa lækkað. Verðbólga er á mi-
sjöfnu stigi í löndunum sjö en allir
era leiðtogamir sammála um að
ihalda verði henni í skefjum.
En leiðtogamir munu ræða fleira
en skuldabyrði þróunarlanda. Bú-
ast má við sameiginlegri yfirlýs-
ingu þeirra um ástandið í Kína í
kjölfar fjöldamorðanna á Torgi
hins himneska friðar í síðasta mán-
uði.
Þá verða umhverfismál einnig
ofarlega á baugi. Telja fréttaský-
rendur að samningar um björgun
regnskóganna, sem nú eru í mikilli
hættu, sem og samningar um sam-
eiginlegar rannsóknir á hættum,
er steðja aö vistkerfi jarðar, náist
á fundinum.
v Reuter
Nlartröð öryggisvarðanna
Á föstudag rennur upp hápunktur
hátíðahaldanna í Frakklandi í til-
efni 200 ára afmæhs frönsku bylt-
ingarinnar. Þann dag byrjar einnig
leiðtogafundur sjö helstu iðnríkja
heims í París. Þar með hefst mar-
tröð franskra öryggisvarða sem og
lífvarða þrjátíu þjóðarleiðtoga.
Þrjátíu leiðtogar
A föstudag verða þrjátíu þjóðar-
leiðtogar saman komnir í París.
Era þeir þar ýmist til að taka þátt
í hátíðahöldunum eða leiðtoga-
fundi helstu iðnríkja heims.
Frakklandsstjóm hefur mátt þola
mikla gagnrýni vegna tímasetning-
ar þessara tveggja atburða. Segja
margir Frakkar að nú hafi hátíða-
höldunum verið breytt í martröð.
Yfirvöld hrista aftur á móti slíka
gagnrýni af sér.
Fjögur hundrað og áttatíu
franskir öryggisverðir vakta hvert
skref leiðtoganna, maka þeirra og
ráðherra, alls sextíu og sex manns.
Auk þess koma flestir leiðtoganna
með sína eigin öryggisverði. Það
verður því ekki skortur á öryggis-
vörðum í Frakklandi næstu daga.
Engir opnir bílar
Bush Bandaríkjaforseti, Thatch-
er, forsætisráðherra Breta, ásamt
leiðtogum Indlands, Pakistans,
Fihppseyja og Egyptalands munu
eiga nokkuð sameiginlegt þegar
þau koma til Parísar; af öryggisá-
stæðum verður þeim öllum bannað
að aka um í opnum bílum.
Frönsku öryggisverðirnir vona
að enginn leiðtoganna taki upp á
þvi að tölta um meðal almennings
eins og Gorbatsjov Sovétforseti tók
upp á þegar hann var í heimsókn
þar í landi eigi alls fyrir löngu.
„Gorbatsjov heföi reynst auðvelt
skotmark," sagði einn franskur
lögreglumaður. „Slíkar gönguferð-
ir eru martraðir öryggisvarða."
Gorbatsjov Sovétforseti reyndist frönskum öryggisvörðum erfiður. Hann tók nefnilega upp á því að tölta um
götur Parísar þegar hann var þar í heimsókn, öryggisvörðunum til mikillar skapraunar. Simamynd Reuter
Öryggisverðir Bush
erfiðir viðfangs
Einna erfiðastir viðfangs eru ör-
yggisverðir Bush Bandaríkjafor-
seta, segir yfirmaður frönsku ör-
yggisvarðasveitanna. „Ef maður
tæki þá á orðinu myndi Bush ferð-
ast til Parísar í jámstyrktu fiska-
búri,“ sagði hann.
Hver leiðtogi fær aðeins að hafa
með sér ákveðinn fjölda öryggis-
varða. Þjóðarleiðtogar fá að hafa
sex af sínum eigin vörðum, forsæt-
isráðherrar fjóra en ráðherrar fá
aðeins að hafa tvo af sínum eigin
lífvörðum.
Reuter
Sumar-
bústaða-
fólk!
í VÖRUHÚSIVESTUR-
LANDS fáið þið allt sem þarf
til að lagfæra og dytta að
bústaðnum, auk matvöru,
fatnaðar og til dægrastytting-
ar: spil, bækur, blöð og
videospólur.
Komið við hjá okkur í sumar.
VÖRUHÚS VESTUR-
LANDS
Birgðamiðstöð sumar-
bústaðafólks
VöruhúsMj^
Vesturlands
Borgarnesi
sími 93-71 200