Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Qupperneq 16
16
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989.
Spumingin
Hefurðu ferðast með
Herjólfi?
Hákon Sigþórsson: Nei, ég man alla-
vega ekki eftir því.
Valborg Baldvinsdóttir: Já, það eru
nokkur ár síðan ég fór með Herjólfi
og það var bara nokkuð skemmtileg
sjóferð.
Teitur Guðmundsson: Nei, en ég á
örugglega eftir að ferðast með hon-
um.
Höskuldur Arason: Já, ég fór með
Herjólfl hvitasunnuhelgina ’86. Mjög
ánægjuleg ferð.
öm Torfason: Nei, en ég ætla með
honum nú um verslunarmannahelg-
ina.
Lesendur
Kranabflar í miðbænum
en ekki í Krinqlunni
Sönnum miðbæjarvini finnst allt of mikið um kranabíla í miðbænum.
Sannur miðbæjarvinur hringdi:
Hvemig stendur á því að kranabíl-
amir em daginn út og inn niðri í
miðbæ en láta aldrei sjá sig í Kringl-
unni?
í miðbænum verður fólk að borga
50 krónur í stöðumælana, og ef það
er svo óheppið að vera fimm mínút-
um lengur í burtu en tíminn leyfir á
það á hættu að búið sé að fjarlægja
farartækið þegar það kemur aftur.
Það sama gildir ef bílnum er á ein-
hvern hátt illa lagt.
Annað er uppi á teningnum í
Kringlunni. Kranabílamir láta aldr-
ei sjá sig á þeim slóðum og hreyfa
ekki við bílum þar þó þeim sé svo
illa lagt að hætta stafar af. Einnig
láta þeir bifreiðir, sem er ólöglega
lagt við Suðurlandsbrautina, alveg
eiga sig.
Mergur málsins er sá að kranabíl-
arnir eru ekki jöfnum höndum í
Kringlunni og . miöbænum. Það
mætti ætla að það væm samantekin
ráð hjá lögreglunni að láta Kringluna
alveg eiga sig. Aftur á móti flæma
svona ofsóknir fólk úr miðbænum.
Það verður skilyrðislaust að komast
á jafnrétti í þessu máli. Eitt skal yfir
aúa ganga.
Ómerktir plast-
pokar seldir
Svana hringdi:
Dóttir mín fór um daginn og versl-
aði hjá Sveini bakara í Hamraborg
14 héma í Kópavoginum. Það væri
ekki í frásögur færandi ef hún hefði
ekki þurft að borga fyrir plastpokann
sem hún fékk undir vömmar en
hann var ekki með merki Land-
vemdar á hankanum.
Mér finnst það ekki ná nokkurri
átt að kaupmenn skuii komast upp
með að taka fimm krónur fyrir plast-
poka sem em ómerktir og veit ég
ekki betur en að slíkt sé með öllu
óleyfilegt.
Svar Sveins bakara
DV hafði samband við Svein bak-
ara og spurðist fyrir um hvort það
væri rétt að hann seldi í verslunum
sínum poka er væm ekki merktir
Landvemd.
Kvað Sveinn það vera rétt að hann
seldi plastpoka sem væm merktir sér
en eldd Landvernd. í byijun, þegar
sala pokanna hófst, hefði hann ekki
selt þá og hefði það leitt til þess að
fólk hefði hamstrað pokana í versl-
unum hans, sérstaklega þar sem
matvörabúðir vom í grennd. Runnu
pokamir svo hratt út að ekki hefði
verið annað að gera en byrja aö selja
þá til að stöðva hamstrið.
Sveinn sagði að þeir peningar, er
kæmu í kassann vegna pokasöluxm-
ar, rynnu í sjóð og væri hann ákveð-
inn í að láta upphæöirnar ganga til
einhvers góðgerðarfélags á höfuð-
borgarsvæðinu. Hvaða félag þaö yrði
væri ekki ákveðið enn.
Að lokum sagði Sveinn að í versl-
unum sínum væru til skijáfplast-
pokar sem væm alveg jafnstórir og
hinir og stæðu þeir viðskiptavinun-
um til boða án gjalds.
Svar Landverndar
Á skrifstofu Landvemdar fengust
þær upplýsingar að eitthvaö væri um
það að kaupmenn seldu poka sem
ekki bæru Landvemdarmerkið.
Rynnu peningamir því beint í þeirra
eigin vasa. í slíkum tilfellum hefði
Landvemd samband við Kaup-
mannasamtökin sem síðan hringdu
í viðkomandi kaupmann.
Lagalega séð geta kaupmenn selt
ómerkta poka en helst ekki á sama
verði og Landvemdarpokamir era
vseldir á, þ.e.a.s. á fjórar eða flmm
krónur.
Siðferðislega væri ekki gaman að
vita af svona háttalagi og gæti Land-
vemd líflð gert í málinu. Hefur þó
fólk verið mjög duglegt við að láta
vita um ómerkta poka sem eru seldir.
Annars hefur söfnunin gengiö
ipjög vel, betur en búist var viö, og
hafa 97% verslana verið skilvísar er
kemur aö innheimtu.
Ein sem vinnur í míöbænum vill láta opna bílastæði Alþingis.
Fyrirspurn til
bæjarstjórnar
Settjarnarness
Þriggja barna móðir skrifar: að leyfa því að róla og moka. Við
Ég bý á Seltjamamesinu og mig fáum ekki að fara með þau inn á
langar til að fá svör bæjarsfjómar gæsluvellina og vera með þeim.
Seltjamarness við nokkmm Hvemig væri að nota peningana,
spumingum. sem viö borgum í gatnagerðargjöld
Hvar eiga böm, sem búa hér, aö af lóðum héma, til aö útbúa leik-
leika sér? Þau sem eru ekki á leik- svæði? Það er nýtt hverfi að byggj-
skólum og dagheimilum geta ast í Bollagörðum fyrir einbýlis-
hvergi veriö. Það er ekkert opiö hús, en ekki gert ráð fyrir leik-
leiksvæði norðan megin og eitt lítiö svæði þar.
vestan megin sem bömin, sem búa Ég vildi fá að vita hvort það væri
lengra firá, geta ekki farið á vegna á döfinni að breyta þessu svo að
umferðargötu sem þarf að fara yfir. manni finnist þess virði að byggja
Það er greinilega ekki gert ráö fyr- héma og búa með böm á Nesinu.
ir að böm séu heima hjá sér á dag- Þeir sem bjóða sig fram i næstu
inn. kosningum ættu aö huga að þessu
í Lambastaðahverfi er gæsluvöll- máli. Það myndu margir gefa þeim,
ur en ekkert opiö leiksvæöi. Ég get sem lofiiðu aö bæta úr þessu, at-
ekkert farið með eins árs barn tfl kvæði sitt.
Hvað varð um tímaritið
Líkamsrækt og næring?
Hulda hringdi:
í september 1988 gerðist ég áskrif-
andi að tímariti er nefndist Líkams-
rækt og næring. Ég hef þó aldrei
fengið eitt einasta eintak af því.
Þegar ég gerðist áskrifandi borgaði
ég 1.745 krónur sem var ársáskrift.
Var mér lofað að mér myndu berast
sex eintök af tímaritinu en þrjú tölu-
blöð höíðu þegar komið út.
Ég hef ítrekað reynt að hringja í
þau símanúmer sem gefin vora upp
á kvittuninni en enginn svarar. Ég
hef heldur ekki haft spurnir af því
að blaðið hafi dagað uppi og því lang-
ar mig nú til að vita hvað hafi orðið
um tímaritið.
Bílastæði Alþingis
Ein sem vinnur í miðbænum hringdi:
Ég vinn niðri í miðbæ og er með
þá fyrirspurn hvort ekki sé hægt að
hafa bílastæði Alþingis opin.
Eins og allir vita sárvantar bíla-
stæði í miðbænum og það ergir mann
mjög að sjá bílastæði Alþingis standa
svo tfl ónotuð í tvo eða þijá mánuði.
í gær voru fjórar eða fimm bifreiðir
á stæðinu en í morgun, þegar ég
mætti í vinnuna, hafði aðeins einum
einmana bíl verið lagt þarna.
Á bílastæðinu væri sjálfsagt hægt
að leggja um 30 bílum. Margra vandi
væri leystur ef stæðið yrði opnaö
almenningi á þeim tíma sem þing-
menn okkar hafa ekki þörf fyrir það.