Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Blaðsíða 17
oíior 'i -itr. Qt annAmTVinmf
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989.
Lesendur
Þórsmörk:
Náttúrufegurð fyrir
alla að njóta
Islendingar eiga Þórsniörk sameiginlega, ekki fáir útvaldir.
Konráð Friðfmnsson skrifar:
Margur ku geyma í huga sér
skemmtilegar minningar tengdar
Þórsmerkurferðum. Yfir þeim stað
hvílir enda ljómi og svo hefur lengi
verið. í minni vitund tengist nefnt
svæði aðeins ærlegum fylliríum
ungra sem aldinna en það er annað
mál.
Ég tek fram að hlettinn hef ég eigi
séö né stigið niður fæti á. En hugðist
gera á þessu bragarbót ásamt fleirum
á dögunum. Ætluðum samt ekki
lengra en að Krossá og skoða herleg-
heitin þaðan sem mér skilst að sé
unnt. Þjóðvegur númer eitt var því
ekinn þar til kom að skilti sem merkt
var Þórsmörk þar sem beygt var.
Áttu menn nú von á að gatan væri
greið framundan. Því var aldeilis
ekki að heilsa og eftir hálfan kíló-
metra í akstri, í mesta lagi, þótti
ófært annað en að snúa við. Vildum
nefnilega ei eiga á hættu að hreinsa
púströr eða þviumlíkt undan far-
kostinum.
Sannleikurinn er sá að vegur þessi
er ófær venjulegum bifreiðum. Ekk-
ert nema urð og grjót mætti okkur.
Aðeins sérbúin farartæki fara þar
um, virðist mér.
Ég rita þessar línur af þeim sökum
að menn eru sífellt að grobba sig af
hvað búið sé að framkvæma í Mörk-
inni. Tyrfa hér, gróðursetja tré þar,
gyrða o.s.frv. Já, lyfta Grettistaki.
En hvað sem því verki öllu hður er
brautin þangað hreinasta hörmung.
Og það mjög sennilega viljandi gert
svo Jón og Gunna villist ekki á stað-
inn í óbreyttri Lödulús. Taki þar með
aura frá sérleyfishöfum er bera
einkaleyfi upp á vasann. Stimplað í
bak og fyrir.
Auðvitað eiga íslendingar Þórs-
mörk sameiginlega, ekki fáir útvald-
ir. Þess vegna ber að gera vegstæðið
fært venjulegum fjölskylduvögnum
er vilja njóta náttúrufegurðarinnar.
Einnig ætti að brúa vatnsfalhð þar
vegna of margra dauðsfalla í gegnum
tíðina.
Og að endingu þetta: Það hentar
ekki öllum að ferðast með rútu.
KYNNINGARVERÐ
Tamura 5.16
SÍMKERFI
Reglur seiri við skömm
umst okkar
fyrir
Daglaunamaður skrifar:
Ég varð mjög hissa þegar ég las það
í blöðunum að Jóhann Karl Spánar-
konungur hefði komið með spænska
fjallaskinku og spánska pulsu með
sér til landsins. Ekki vegna þess að
mér þyki þessi matur fyrir neðan
virðingu konunga heldur fyrir að ég
hef staðið í þeirri trú að innflutning-
ur á hráu kjöti væri bannaður.
Ekki ahs fyrir löngu las ég einmitt
lesendabréf í einhveiju blaðanna þar
sem öldruð kona lýsti raunum sínum
vegna ástar sinnar á pulsum. Á leið
sinni til Þýskalands spurði hún toll-
vörð hvort henni væri ekki heimilt
að kaupa þýska pulsu og koma með
heim. Tollvörðurinn hvað svo vera
en þó með þeim skilyröum og pulsan
væri soðin og henni fylgdi heilbrigð-
isvottorð. Síðan lýsti konan raunum
sínum. Bæði eru flestar góðpulsur
borðaðar hráar og eins er erfitt að
fá heilbrigðisvottorð með pulsum í
matvöruverslunum erlendis. Reynd-
ar veit ég ekki th þess að það sé auð-
velt hérlendis þrátt fyrir þessar ský-
lausu reglur. Konunni tókst á endan-
um á fá vottorð fyrir ómerkilegri
soðinni lifrarpulsu og flutti hana
með sér heim.
Ég hef ekki nokkra trú á að pulsan
hans Jóhanns Karls hafi verið soðin
og enn síður trúi ég að hann hafi
farið að sjóða fjallaskinkuna sína.
Þjóð hans tæki hann aldrei í sátt fyr-
ir slíkan verknað. Ég furða mig hins
vegar á því að hér skuli vera í gildi
reglur sem okkur sjálfum þykja svo
bjánalegar að við getum ekki horft
framan í erlend stórmenni og sagt frá
þeim. Það meira að segja mönnum
sem hafa atvinnu sína af því að heim-
sækja alls kyns skrítnar þjóðir og
sem hafa það fyrir ófrávíkjanlega
reglu að bijóta ekki venjur og siði
þessara þjóða hversu annkanalegar
sem þær kunna að vera.
Getum nú boöið ódýr gæðasímkerfi frá
Tamura í Japan sem henta bæði stórum
sem smáum fyrirtækjum.
Gerum föst tilboó í kerfi og uppsetning-
ar.
Nánari upplýsingar í síma 652505
ÍRANSIT
Trönuhrauni 8, Hafnarfirði
Ekki eru þessar pylsur af spænskum ættum en daglaunamaður hefði ekkert
á móti því að fá að gæða sér á erlendum pylsum.
MUNDU EFTIR
EERÐAGETRAUIi
Viö viljum minna á að skilafrestur í
Ferðagetraun DV II, sem birtist i
Ferðablaði DV 28. júní, er til 15. júlí.
Misstu ekki af glæstum vinningi.
í tilefrii 5 ára afmælis sins gefúr Framköllun sf.,
Lækjargötu 2 og Ármúla 30, fimmtán
vinningshöfúm í Ferðagetraun DV II
Wizensa alsjálfvirka 35 mm myndavél að
verðgildi 3.500 kr.
Framköllun sf. hefúr einnig í tilefni afmælisins
tekið upp nýja þjónustu: Stækkanir á litfilmum í
plakatstærð á 6 mínútum.