Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Page 28
MtMl
i iii■!■■■!■■■iiiww irninniiiiin—iim ■ iii ni— ■wmí—nm 11 mii■ n iinwnfniiwnii¥iiinrnmríiiriirB»iiw»ii' nnii'i i■ irn i t
te&ϒ&MS*
KKttSMZ
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989.
Erlend myndsjá
Bandarísku forsetahjónin tóku þátt i minningarathöfn um þá þrjú hundruð þúsund gyðinga sem létu iífið í
gasklefum nasista. Það var Menachem Jaskawiz rabbíni sem leiddi athöfnina. Símamynd Reuter
Bush ræddi við fleiri en pólska ráðamenn og fulltrúa stjórnarandstöðunn-
ar á meðan á dvöl hans í Póllandi stóð. Hér sést hann á tali við pólsk-
an almenning áður en hann hélt til fundar við Jaruzelski, hershöfðingja
og leiðtoga pólskra kommúnista. Simamynd Reuter
Bush í
Póllandi
í-.i''
iriwiiiAiiiiiiiii
Fjöldi manns safnaðist saman á leið Bandaríkjaforseta frá flugvellinum
í Varsjá þegar forsetinn kom í opinbera heimsókn til Póllands. Nokkrir
áhorfenda veifuðu bandaríska fánanum er forsetavagninn ók hjá og
létu það ekkert á sig fá þó komið væri kvöld. Simamynd Reuter
,a\; „
Það er engu líkara en þessi pólska kona sé að heilsa Bush Bandaríkjaforseta að hermannasið en trúlegt er
að hún hafi bara verið að skýla augunum fyrir sólinni. Koma Bush til Póllands fór víst ekki fram hjá þeim
Varsjárbúum sem leið áttu hjá bandaríska sendiráðinu í borginni þar sem þessi mynd af forsetanum hékk.
Símamvnd Reuter
Barbara Bush, bandaríska forsetafrúin, fór i heimsókn í Laski-skólann fyrir blinda og heyrnarlausa í Varsjá
á meðan á heimsókn þeirra hjóna í Póllandi stóð. Ungur tölvufræðingur, Grzegorz Kozlowski, veitti forsetaf-
rúnni stutta leiðsögn í táknmáli. Símamynd Reuter
Nokkrir ungir Samstöðu-félagar notuðu tækifærið á meðan Bush var í
Póllandi til að efna til mótmæla. Símamynd Reuter