Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Side 29
í FJI ri HITO/ rTJXIVm
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989.
49
Á skaganum tzu i Japan fyrir sunnan Tokýo hafa orðið átján þúsund
jarðskjálftar frá júnílokum. Slys verða á fólki öðru hverju og þykir þvi
þörf á að vera undir jarðskjálftana búinn ef því verður við komið. Þessi
japönsku dagheimiiisbörn eru látin æfa sig í setja upp hlífðarhettur sér
til vemdar. Símamynd Reuter
Kælingar þörf
Heitt hefur verið í miðvesturhluta Bandaríkjanna að undanförnu og hafa
heilbrigðisyfirvöld hvatt veikburða og aldraða til að fara varlega. Ungling-
arnir í St. Louis í Missouri kunna ráð til að flýja hitann, sem að undanförnu
hefur farið yfir 30 gráður, og verða sér úti um kærkomna kælingu í vatni
frá brunahana. Simamynd Reuter
Erlend myndsjá
Engin aldurstakmörk
Þessi aldraði Spánverji sýndi það á dögunum að hann getur tekið dansspor eins og margur sem yngri er. Hann
gerði sér dagamun eins og allir aðrir ibúar Pamplona i hátíðahöldunum þar og tók greinilega þátt í þeim af lífi og sál.
Simamynd Reuter
Raddirnar
þagnaðar
Mel Blanc, þúsund radda maður-
inn, er nú látinn, 81 árs að aldri.
Blanc skapaði raddir fjögur
hundruð teiknimyndafigúra og
gat hermt eftir sex hundruð öðr-
um, svo sem ýmsum dýrum,
manneskjum og jafnvel bíl.
Það var fyrir rúmlega hálfri öld
eða 1937 að Bianc, sem var túbu-
leikari, var spurður að því hvort
hann gæti hermt eftir drukknu
nauti og svaraði hann þvf ját-
andi. Þar með var lifsstarfið ráð-
iö. Símamynd Reuter
Gripið í spil
Umferð er nú aftur leyfð milli austurhluta Beirúts þar sem kristnir búa og
vesturhlutans þar sem múhameðstrúarmenn ráða ríkjum. Biðin getur þó
oröið löng áður en menn komast á áfangastað og þá getur verið gott að
taka upp spilin eins og þessir vörubílstjórar og fjölskyldur þeirra gera í
skugganum af bílunum. Simamynd Reuter