Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Blaðsíða 30
.oæj litn, ,si HUO/.«rj/C-v-3'fM
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Karólína
prinsessa
neitar statt og stöðugt að brestir
séu komnir í hjónabandið. Illar
tungur segja að hún sjáist æ oftar
í félagsskap gamals vinar frá Par-
ísarárunum, glaumgosans
Patrick Neuhaus. Patrick þessi
er nægilega gamall til að vera
pabbi hennar og segir sjálfur að
sögur um náið samband þeirra
séu út í hött. Ástæðan fyrir því
að þau sjáist svona oft saman sé
bara sú að Karólina heimsæki
París oft. Rainier fursti tekur
undir þetta og bendir á að Patrick
sé einfaldlega hinn fullkomni
leiðsögumaður.
Lafði Díana
hefur helgað sig mjög mörgum
málefnum og hefur brennandi
áhuga á ýmsum framfaramálum.
En hún vinnur alveg rosalega
mikið og mun meira en aðrir í
kóngafjölskyldunni, segja þeir
sem til þekkja. Faðir hennar hef-
ur miklar áhyggjur af heilsufari
hennar og segir að hún geti vart
haldiö þessu áfram mikið lengur.
Hún er líka alltof horuð, segir
pabbi og sjáanlegt að allt þetta
höfðingjastúss gengur mjög
nærri henni, líkamlega og and-
lega. Svo halda allir að það sé
bara dans á rósum að vera prins-
essa.
Marlon Brando
er aftur á móti vel haldinn likam-
lega og ekkert lát á kílóasöfnun
hans. Þetta fyrrum kyntákn horf-
ist í augu við kílóin 155 og segist
líða mjög vel. Hann lék nýverið í
kvikmynd og sagði, þegar um-
framþungi hans barst í tal, að
leikarar væru bara eins og annað
fólk - feitir og mjóir og allt þar á
milli. Fregnir herma að áhyggjur.
hans af dótturinni, Petru, 18 ára,
séu aðalástæðan fyrir þessari
holdasöfnun. Þegar leiðindin
sækja á hann leggst hann bók-
staílega í át og hættir ekki fyrr
en birtir á ný.
Þorbjörg Grímsdóttir átti 8 börn en þrjú eru enn á lífi. Þau eru, talið
f.v., Aðalbjörn, Guðrún og Stefán.
Elsti Reyk-
yíkingur-
inn 100 ára
Laugardaginn 8. júlí varð elsti
innfæddi Reykvíkingurinn, Þor-
björg Grímsdóttir, hundrað ára.
Þorbjörg fæddist að Litla-Seli, þar
sem nú heitir Vesturgata 59. Árið
1915 giftist Þorbjörg Aðalbirni Stef-
ánssyni prentara og hófu þau bú-
skap að Skólavörðustíg 24b. Öll
börn þeirra, átta talsins, fæddust á
Skólavörðustígnum en af þeim eru
þrjú enn á lífi. Afkomendur Þor-
bjargar og Aðalbjarnar eru í dag
86 talsins. Aðalbjörn lést árið 1938.
Seinni maður Þorbjargar var Þor-
steinn Jónsson sjómaður en hann
lést 1958. Þorbjörg og afkomendur
héldu vinum og vandamönnum
veglega veislu á Hótel Sögu á af-
mælisdaginn.
Innanmein Madonnu
Madonna er moldrík en getur ekki
, kastað upp.
Þessar stórkostlegu fréttir koma
fram í nýlegri bók í Ameríku sem
hefur að geyma viðtöl við fjölda
frægra manna og kvenna.
„Þegar ég var barn var maginn í
mér óttalega viðkvæmur og ég kast-
aði upp af minnsta tilefni, einkum
ef ég var hrædd,“ segir þokkadísin.
Og hún heldur áfram: „Nú er hins
vegar svo komið fyrir mér að ég get
alls ekki kastað upp. Einu sinni borð-
aði ég fullan poka af flögum og það
stoðaði ekki einu sinni að reka putt-
ana ofan í kok.“
Þau eru fleiri gullkornin sem
hrjóta af vörum Madonnu í viðtals-
bókinni. Til dæmis segist hún dást
að sjálfri sér í spegli hvenær sem
færi gefist og þar fram eftir götunum.
Fombílar á ferð
Um helgina fóru félagar i Fornbílaklúbbnum i ökuferð um höfuðborgina á
btlum sínum. Þessi gljáfægða glæsikerra er komin á fimmtugsaldur og
ekki annað að sjá en að hún beri aldurinn vel. Billinn er stolt eiganda síns
og þykir jafnvel fallegri en þegar hann kom fyrst á göturnar.
DV-mynd Brynjar Gauti
Þau er að hætta hjá kaupfélaginu. Frá vinstri Siggi Magg, Kiddi Sölva,
Fjóla og Sölvi Sölva. DV-mynd Þórhallur
ÞórhaJlur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
Nýlega lauk starfsdeginum hjá
átta gamalgrónum starfsmönnum
Kaupfélags Skagfirðinga og af því
tilefni var þeim haldið hóf í síðdegi-
skaffinu einn daginn og afhentar
bókagjafir fyrir heilladrjúg störf.
Elstur þessara starfsmanna er
Jóhann Sólberg Þorsteinsson, fyrr-
verandi samlagsstjóri, 79 ára og
hefur starfaö hjá KS í 44 ár. Sigurð-
ur Magnússon er aðeins yngri í
árinu og hann hefur unnið hjá
kaupfélaginu af og til í 45 ár. Bræð-
urnir Kristján og Stefán Sölvi
Sölvasynir, eru vélstjórar í Fiskiðj-
unni, Kristján 77 ára og hefur unn-
ið hjá KS í 42 ár en Sölvi, 74 ára, í
39 ár. Þeir hafa þó ekki alveg hætt
störfum, ætla að leysa vélstjórana
af eftir þörfum.
Guttormur Óskarsson gjaldkeri
er á 73. aldursári og hefur starfað
hjá KS í 43 ár, Valgarð Björnsson,
starfsmaður á rafmagnsverkstæði,
á að baki 34ja ára starfsferil en
skemur hafa starfað Helgi Sigurðs-
son, starfsmaður í fóðurblöndu, og
Fjóla Kristjánsdóttir.
Ástæðan fyrir því að þessir
starfsmenn láta nú af störfum er
stjórnarsamþykkt, sem gerð var
fyrir rúmu ári, þess efnis að aldurs-
mörk starfsmanna kaupfélagsins
verði framvegis 70 ár.