Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Síða 32
52
Jarðarfarir
Þorbjörn Jóhannesson, kaupmaöur í
Borg, lést 4. júlí. Hann fæddist 10.
mars 1912 í Reykjavík. Foreldrar
hans voru hjónin Jóhannes Jónsson
og Helga Vigfúsdóttir. Þorbjörn
stofnaði kjötbúöina Borg áriö 1931
og rak hana alla tíð síðan. Eftirlif-
andi eiginkona hans er Sigríður H.
Einarsdóttir. Þau hjónin eignuðust
þrjú börn. Útfór Þorbjörns verður
gerð frá Háteigskirkju i dag kl. 13.30.
Gerhard Olsen flugvélstjóri lést 4.
júli sl. Hann fæddist á Þormóðsstöð-
um við Skeijafjörð 16. janúar 1922,
sonur hjónanna Jentofts Gerhards
Olsen og Ingiríðar Lýðsdóttur. Ger-
hard réðst til Loftleiða 1944 og starf-
aði óslitið hjá því og síðar Flugleiöum
til 15. janúar sl. Eftirlifandi eigin-
kona hans er Hulda Sæmundsdóttir.
Þau hjónin eignuðust íjóra syni. Út-
fór Gerhards verður gerð frá Breið-
holtskirkju í Mjódd í dag kl. 13.30.
Ingimar K. Jónasson, Hrauntungu
113, Kópavogi, verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni í Reykjavík
íimmtudaginn 13. júlí kl. 10.30.
Gunnar Leó Þorsteinsson málara-
meistari, sem lést 6. júlí, verður jarð-
sunginn frá Breiðholtskirkju í
Mjóddinni fimmtudaginn 13. júlí kl.
13.30.
Andlát
Guðmundur M. Einarsson, Ásheim-
um, Eyrarbakka, andaðist að morgni
10. júlí í Sjúkrahúsi Suðurlands, Sel-
fossi.
Eiríkur Ólafsson loftskeytamaður
varð bráðkvaddur þann 10. júlí 1989.
Hermann Árnason frá Látrum, Aðal-
vík, Drekavogi 20, Reykjavík, andað-
ist að morgni mánudagsins 10. júlí á
hjartadeild Landspítalans.
Þorsteinn Guðlaugur Pálsson vél-
virkjameistari, Vesturgötu 57a, lést í
Borgarspítalanum 10. júlí.
Ferðalög
Útivistarferðir
Miðvikudagur 12. júlí
kl. 20 kvöldsigling aö Lundey. Brottför
frá Viðeyjarbryggju, Sundahöfn. Þótt
ótrúlegt sé er þama stór lundabyggð
sem fáir hafa kynnst. Verð 500 kr„
frítt f. böm 12 ára og yngri. Munið
miðvikudagsferðirnar i Þórsmörk.
Brottfor kl. 8 að morgni. Dagsferð og fyr-
ir sumardvalargesti. Munið tilboðsverð.
Pantið tímanlega. í Lundeyjarferðina
þarf ekki að panta. Sjáumst.
MIÐVIKUDÁGUR 12. JÚLÍ 1989.
Námskeið
Námskeið hjá Hundaræktar-
félagi íslands
Dagana 18.-21. júlí efnir Hundaræktarfé-
lag íslands til námskeiðs þar sem Roger
Abrantes, atferlisfræðingur og 'sérfræð-
ingur í þjálfun hunda með sérstök vanda-
mál, heldur fyrirlestra og er með sýni-
kennslu. Abrantes rekur svonefnda
hundaþjálfunarstöð (Kynologisk Center)
í Slagelse í Danmörku en þar er lögð sér-
stök áhersla á að skilja atferli og hegðan
hunda og leysa úr vandamálum sem
skapast hafa hjá hundum vegna rangrar
meðferðar eða rangs uppeldis. Einkunn-
arorð Abrantes eru: Sálfræði fremur en
valdbeiting. Námskeiðið verður haldið í
félagsheimili Hundaræktarfélags ísiands
í Súðarvogi 7. Það hefst 18. júli kl. 18 og
stendur til kl. 22. Þá mun Abrantes fjalla
um tjáningarmáta hundsins. Á miðviku-
dag er námskeið frá kl. 20-22 og verður
tekið fyrir afbrigðilegt atferli hunda. Á
funmtudag milli kl. 20 og 22 sýnir Abrant-
es hvemig hann beitir sálffaeði við þjálf-
un hunda og verður þá sýnikennsla með
fjórum hundum. Síðasti fyrirlesturinn er
fóstudaginn 21. júli frá kl. 20-22 og ræðir
hann þá um vandamálaþjálfun og fyrir-
byggjandi aðgerðir. Öllum er heimil þátt-
taka í námskeiðinu. Námskeiðsgjald er
2000 kr. Þátttöku ber að tilkynna á skrif-
stofu Hundaræktarfélags íslands, sem er
opin mánudaga til fóstudaga kl. 16-19,
sími 31529, en einnig má tilkynna.þátt-
töku í síma 37107.
Happdrætti
Happdrætti heyrnarlausra
Dregið var í happdrætti heymarlausra
þann 5. júlí sl. Vinningsnúmer em þessi:
1. 3619, 2. 14901, 3. 4544, 4. 5414, 5. 13571,
6. 3617, 7. 2996, 8. 6762, 9. 6681, 10. 499, 11.
11692, 12. 5102, 13. 4798, 14. 872, 15. 4267,
16. 6457, 17. 4318, 18. 6904, 19. 33, 20. 4676,
21. 6395, 22. 3347. Vinninga má vitja á
skrifstofu Félags heymarlausra, Klapp-
arstíg 28, alla virka daga, sími 91-13560.
TiXkyniiingar
Safnaðarferð Fríkirkjunnar
í Reykjavík
verður farin 15. og 16. júli nk. á Snæfells-
nes og í Breiðafjarðareyjar. Gist verður
í Stykkishólmi. Lagt af stað frá Fríkirkj-
unni laugardagimi 15. júlí kl. 9. Miðar
seldir í versluninni Brynju, Laugavegi
29. Upplýsingar um ferðina veita Eygló
Viktorsdóttir í s. 32564, safnaðarprestur
í viðtalstima í s. 14579 og Berta Kristins-
dóttir í símum 82933 og 29188.
ísboltar hf.
í Hafnarfirði
1. júní sl. var formlega opnað nýtt fyrir-
tæki, ísboltar hf. að Strandgötu 75, Hafn-
arfirði. Fyrirtækið, sem er í eigu ís-
lenskra aðila með eignaraðild hollenska
fyrirtækisins Borstlap b.v., sérhæfir sig
í innflutningi og sölu allra tegunda bolta
og festinga. Að auki er boðið upp á gæða-
verkfæri frá vestur-þýska fyrirtækinu
Gedore og úrval rafmagnsverkfæra, bora
snittverkfæra o.fl. Þegar frá upphafi
verður á boðstólum landsins mesta úrval
festinga þar sem strax verða yfir 15.000
vörunúmer á lager. Allar festingar verða
frá Borstlap í Hollandi. ísboltar hf. selja
bæði í heUdsölu og smásölu og gefm hef-
ur verið út ítariegur vörulisti á íslensku
sem þegar hefur verið sendur út í 2000
eintökum. Fullkomið tölvuvætt birgða-
bókhald og vikulegar vömsendingar
munu tryggja viöskiptavinunum fyrsta
flokks þjónustu.
Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins fær tölvubúnað
Lionsklúbbiuiim Týr í Reykjavík færði
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins ný-
verið að gjöf fullkomna tölvu af gerðinni
Apple Macintosh ásamt prentara og öðr-
um fylgibúnaði. Tölva þessi er ætluð til
nota fyrir starfsfólk stofnunarinnar,
einkum við gerð meðferðar- og þjálfun-
aráætlana fyrir fötluð böm. Meginhlut-
verk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar rík-
isins er athugun, rannsókn og greining á
fötluðum, sem og ráðgjöf, t.d. við svæðis-
stjómir um málefni fatlaðra. Lionsklúbb-
urinn Týr hefur stutt ötullega viö starf-
semi Greiningarstöðvarinnar. Hefur
klúbburinn margsinnis fært stofnuninni
gjafir, svo sem hjálpartæki fyrir fatlaða
og búnað til myndbandagerðar, auk þess
sem klúbbfélagar hafa lagt af mörkum
vinnu við snyrtingu umhverfis og útileik-
tæki.
Tapað fundið
Síamsköttur týndur
Síamsfressköttur (bluepoint) hvarf frá
Sjafnargötu 4. Hann er ómerktur en svar-
ar nafninu Felix. Ef einhveijir hafa orðiö
varir við hann eða vita hvar hann er nið-
urkominn þá vinsamlegast látiö vita í
síma 16142.
Menning
Robyn Koh semballeikari.
Einar K. Einarsson gítarleikari.
Hugnæm
hljóðblanda
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar þriðjudg
11. júlf kl. 20.30.
Einar K. Einarsson gitarleikari og Robyn
Koh semballeikari léku verk eftir Ponce,
Þorkel Sigurbjörnsson, Áskel Másson
og Boccherini.
Semball og gítar eru hugnæm
hljóðblanda. Erfitt er að ímynda
sér nokkuö gróft veröa úr samsöng
þeirra. Þau haía þó sjaldan átt sam-
leið í sögunni: Um það leyti sem
farið var að semja tónlist fyrir gítar
varð semballinn hvarvetna að
vikja fyrir fortepíanóinu. Það er
naumast fyrr en á þessari öld að
eitthvað er samið sérstaklega fyrir
svona dúett. Úr því verður oftar en
ekki ííngerð og hæversk tónlist.
Þessi hljóðfæraskipan hæfir ekki
tónlist andstæðna og átaka. Enda
hét síðasti kaflinn í sónötu Ponces
„Allegro non troppo e piacevole",
Hratt, en ekki um of, og geðþekkt.
Leikur þeirra Einars og Robynar
var þægilegur. Það þýðir auðvitað
að hann var öruggur og músíkalsk-
ur. Þau hófu tónleika á Prelude
Tórúist
Atli Ingólfsson
eftir fyrmefndan Manuel Ponce
sem var Mexíkani. Verkið var að
vissu leyti eins og Bach gamli, les-
inn úr nokkurri fjarlægð og gegn-
um steint gler. Flutningurinn var
góður en í seinna verki Ponces,
Sónötu, vantaði kannski áræði til
að gera eitthvað við þessa tónlist
þegar hún hefur hneigð til að
grána.
í fiori (blómum) veltir Þorkell
Sigurbjörnsson fyrir sér hvað þessi
hljóðfæri geta spunnið í samein-
ingu. Kemur í ljós að það er marg-
víslegt svo frásögnin af því tekur
engan enda. Það var ágætt að heyra
verkið tvisvar og sýndu Einar og
Robyn tilþrif í leiknum og góðan
skilning á innihaldi þess.
Kansóna Áskels Mássonar er
ljúflingslag og bíðum við eftir kvik-
myndinni sem verðskuldar það að
titillagi. Flutningur þess var helsti
alvarlegur. Svona lag er ekki hægt
að spila með sama hugarfari og
Bach prelúdíu.
Síðast fengum við að heyra
Introduction and Fandango eftir
Boccherini. Þetta er umskrift á
kafla úr einum gítarkvintetta hans,
og hljómar mætavel í þessari gerð.
Þama var leikið af ánægju svo birt-
an flóði um salinn. Slíkt hljómar
vel í þessum sal.
Þetta var sumarleg efnisskrá.
Megi sumur Einars K. Einarssonar
og Robynar Koh verða mörg.
Atli Ingólfsson
Kynvilltur klæðskiptingur
Arnold (Torch Song Trilogy)
Aðalhlutverk: Harvey Fierstein, Matt-
hew Broderick
Leikstjóri: Paul Bogart
Handrit: Harvey Fierstein
Sýnd i Laugarásbiói
Hverjar era drottningar nætur-
innar? í augum klúbbgestanna er
það ekki spurning. Þeir eru kynnt-
ir hver á fætur öðrum og gestimir
klappa þeim lof í lófa. Já, þeir era
klæðskiptingar og kynvilltir að
auki. Einn þeirra kallast Virginia
Ham en er í raun Arnold Beckoff
(Harvey Fierstein). Hann er frá-
brugðinn vinum sínum að því leyti
að hann' vill eingöngu fast sam-
band, en honum hefur ekki gengið
vel í þeim efnum hingað til. Eftir
•eina sýninguna fer hann ásamt
einni „drottningunni" á bar fyrir
kynvillta. Þar hittir Amold kenn-
arann Ed (Brian Kerwin). Ed er
fyrir bæði kynin, en það aftrar því
ekki að ástarsamband myndast á
milli þeirra. Arnold og Ed eiga
margar ánægjulegar stundir sam-
an, en Ed á erfitt með að viður-
kenna kynvillu sína fyrir öðrum.
Þetta veldur því að hann slítur
sambandinu við Amold og giftist
vinkonu sinni. Amold á virkilega
erfitt fyrst eftir samvistarslitin.
Nokkrum áram seinna kynnist
Arnold Alan (Matthew Broderick),
en minnugur sambandsins við Ed,
þá vill Amold ekkert með Alan
hafa í fyrstu. Þegar hann hefur
sannfærst um ást Alans þá hefja
þeir sambúð. Pabbi Amolds deyr
Kvikmyndir
Hjalti Þór Kristjánsson
og Arnold og Alan fara í jarðarför-
ina. Móðir Arnolds (Anne Banc-
roft) er ekki mjúkmál við son sinn,
enda hefur hún aldrei sætt sig við
líferni hans. Lífið heldur áfram
með gleði- og sorgarstundum. Arn-
old og Alan fá kynvilltan ungling í
fóstur, en áður en það verður, þá
er Alan myrtur. Arnold er drengn-
um sem móðir og reynir að ala
hann sómasamlega upp. Mamma
Arnolds er að koma í heimsókn, en
hún veit ekki um uppeldissoninn.
Arnold og móðir hans rífast enn
og aftur yfir háttalagi og lífemi
Arnolds, og komast að einhvers
konar málamiðlun.
Kynvilla er og hefur verið við-
kvæmt mál í allri umfjöllun, enda
átti Harvey Fierstein í mesta basli
með að fá fjármagn til að koma
þríleiknum (sem myndin byggir á)
á svið. Það haföist fyrir rest árið
1978 og 1982 komst „Toich song
trilogy" loks á Broadway. Kvik-
myndatilboðin streymdu til hans
en allir vildu breyta handritinu á
einn eða annan hátt. Loks fann
Fierstein aðila sem voru tilbúnir
að gera mynd eftir handritinu.
Handritið tekur á kynvillu á mjög
jákvæðan hátt. Það reynir ekki á
neinn hátt að útskýra hvers vegna
fólk er kynvillt, heldur tekur á bar-
áttu kynvillings fyrir því að vera
viðurkenndur og virtur eins og
hann er. Efnið er alvarlegt en með-
ferðin á því er laus við alla væmni
og vellu og handritið er einnig fullt
af gamansemi sem gerir myndina
að hinni bestu skemmtan. Leikur
er með afbrigðum góður, svo og
leikstjórn, og leggja leikaramir allt
í hlutverkin. „Arnold" er eftirtekt-
arverð kvikmynd sem kvik-
myndaáhugamenn ættu ekki að
láta fram hjá sér fara.
Stjörnugjöf: ***
Hjalti Þór Kristjánsson