Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1990, Side 24
.24
LAUGARDAGUR 3; FEBRÚAR 1990.
Einar Oddur Kristjánsson, bjargvætturinn:
Stýrir fjöreggi
Flateyringa
- og lætur sig afkomu þjóðarbúsins miklu skipta
Fyrir rúmu ári gekk hann undir
heitinu Bjargvætturinn frá'Flateyri
en þá gegndi hann formennsku í
nefnd sem fjallaði um leiðir til bjarg-
ar bágri efnahagsstöðu þjóðarbúsins.
Nú er Einar Oddur Kristjánsson for-
maður Vinnuveitendasambandsins
og aðfaranótt föstudagsins skrifaði
hann undir sína fyrstu kjarasamn-
inga fyrir hönd umbjóðenda sinna.
Þessi íjörutíu og sjö ára gamli Vest-
íirðingur er þekktur fyrir að láta
skoðanir sínar umbúðalaust í ljós en
segist sjálfur ekki sækjast eftir nein-
um vegtyllum. Hann hefur á síðasta
einu og hálfu ári viðrað hugmyndir
sínar varðandi efnahagsmál og þykja
margar hverjar nýstárlegar.
„Einar Oddur er einfaldlega Vest-
firðingur og það segir töluvert," svar-
aði Pétur Sigurðsson, formaður Al-
þýðusambands Vestfjarða, þegar
hann var spurður um manninn og
viösemjandann Einar Odd. „Sem at-
vinnurekandi er hann frekar harður
maður sem er lítið fyrir það aö ansa
þessu beth okkar, eins og hann kallar
það, og flokkar það undir smámuni.
Hann vill afgreiða aðalatriðin fljótt
og vel. Hann er ekkert ákaflega þolin-
móður þó hann hafi sýnt það núna í
samningagerðinni. ‘ ‘
Nýkominn af
frystihúsgólfinu
Einar hefur verið varaformaður
Vinnuveitendafélags Vestfjarða í
mörg ár og hefur Pétur starfað mikið
meö honum áð samningagerð. Þeir
unnu saman, ásamt öðrum, aö breyt-
ingu á vinnufyrirkomulagi í frysti-
húsunum á Vestfjörðum sem hefur
víða verið tekið upp. Kerfið kallast
hlutaskiptakerfi og vinna allir starfs-
menn frystihússins saman í bónus í
stað þess að áður kepptist hver ein-
staklingur við.
„Það er svo stutt síðan Einar Oddur
kom af frystihúsgólfmu og því skilur
hann allar aðstæður verkafólksins
mjög vel. Hann heldur mjög góðum
persónulegum tengslum við hvern
starfsmann og er ekki hinn fjarlægi
yfirmaður. Hann hefur farið með
þessa reynslu inn í forystu Vinnu-
veitendasambandsins. Hann er langt
frá því að vera pappírsdýr heldur
vill stjórna með nálægð viö hvem og
einn.“
Orðheldinn maður
Pétur segir að Einar eigi mjög gott
með að fá starfsfólkið til að vinna
saman að hag fyrirtækisins. Fisk-
vinnslufyrirtækin á Vestfjörðum geti
ekki skoðast sem séreign þó þau séu
á nafni einstaklinga heldur séu þau
hluti af hverju byggöarlagi. Því sé
afar nauðsynlegt að atvinnurekandi
og verkafólk eigi gott samstarf.
„í viðkynningu er Einar mjög
skemmtifegur maður og ákaflega létt
yfir honum. Hann er líka vel þjálfað-
ur í félagsmálum og á gott með að
koma fyrir sig orði,“ sagði Pétur.
„Maður veit líka að það sem hann
segir stendur og það er ómetanlegt
fyrir okkur. Við þurfum varla skrif-
legan samning því við vitum að orð
hans halda.“
Hugmyndaríkur
og sveigjanlegur
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ,
var í forystu fyrir launþega innan
Alþýðusambandsins í þessari samn-
ingagerð. Hann hefur því setið gegnt
Einari Oddi klukkustundum saman
síðustu daga. „Það er ekki auövelt
að segja að maður eigi gott samstarf
við einhvern hinum megin við borðið
en ég get sagt að ég hafi átt góð sam-
skipti við Einar Odd. Það er auðvitaö
Ijóst að hart hefur verið deilt og hann
kann fyrir sér í því að deila. En hann
er hugmyndaríkur og sveigjanlegur
og það eru góðir kostir í samninga-
viðræðum," sagði Ásmundur. „Ég
hugsa að í- þessari samningalotu
núna hafi hann þjálfast mjög í þolin-
mæði. Ég get ekki sagt um það hvort
hann sé í raun óþolinmóður því
kynni okkar eru fremur stutt en áður
en sest var aö samningaborði lét
hann hafa eftir sér í fjölmiðlum að
samningagerð ætti að drífa af sem
fyrst. í samningum sitja ekki tveir
menn við borð og semja sín á milli
heldur eru þetta stórir hópar báöum
megin og því geta samningaviðræður
tekið langan tíma.“
Málefnalegur
andstæðingur
í samningalotum sitja menn ekki
allan tímann hver gegnt öðrum og
þrátta um kaup og kjör. í hléum er
gjaman fitjað upp á öðrum umræðu-
efnum og jafnvel reynt að slá á létta
strengi.
„Einar Oddur er léttur og hress í
viðmóti þegar staðið er upp frá samm
ingaborðinu. Það er auðvelt að sitja
við hliðina á honum og rabba við
hann um óviðkomandi hluti,“ sagði
Ásmundur og bætti við að sem and-
stæðingur væri hann málefnalegur.
Hann taldi einnig að við þessa samn-
ingagerð hefði Einar Oddur öðlast
reynslu sem kæmi honum til góða
síðar meir.
„Til þess að samskipti geti gengið
vel milli samningsaðila þurfa þeir
sem eru í forystu að hafa traust sinna
umbjóðenda. Ég er nokkuð sann-
færður um það að Einar Oddur nýtur
þess trausts og hefur í þessari samn-
ingagerð styrkt stöðu sína innan
yinnuveitendasambandsins,“ sagði
Ásmundur Stefánsson.
Skemmtilegur
gestgjafi
Eiríkur Guðmundsson, húsasmið-
ur á Flateyri, á lítið fyrirtæki sem
vinnur mikið íyrir frystihúsið Hjálm.
Auk þess eru þeir góöir kunningjar,
hafa starfað saman innan Sjálfstæð-
isflokksfélagsins á Flateyri og börn
þeirra eru félagar.
„Samstarf okkar hefur veriö með
miklum ágætum, aldrei nein vand-
ræði og allt staðiö eins og stafur á
bók. Hann er höfðingi heim að sækja
og er skemmtilegur gestgjafl," sagði
Eiríkur. Margir félagar Einars Odds
í flokknum á Vestflörðúm hafa mik-
inn augastað á honum sem þing-
manni og tók Eiríkur undir þá skoð-
un. „Þó aö hann hafi margoft lýst því
yfir að hann vilji ekki fara á þing þá
er ég, og margir fleiri, þeirrar skoð-
unar að hann eigi að sækjast eftir
þingsæti þegar Þorvaldur Garðar og
Matthías ákveða að setjast í helgan
stein. Hann er að mínu mati okkar
frambærilegasti maður innan flokks-
ins í Vestflarðakjördæmi og mikill
og sterkur persónuleiki. Hann starf-
aði vel í hreppsnefndinni á sínum
tíma og fáir þekkja þau málefnijafn-
vel og hann,“ sagði Eiríkur. „Eg er
sannfærður um að hann myndi starfa
mjög vel í sölum Alþingis. Hann er
að vinna að góöum málum sem for-
maður Vinnuveitendasambandsins
og ekki veitir af að taka á verðbólg-
unni. Helsti ókosturinn við starf hans
þarna fyrir sunnan er að hann stýrir
flöregginu okkar hér og við sjáum
hann alltof sjaldan," sagði Eiríkur
Guðmundsson.
Góður yfirmaður
„Einar Oddur er minn yfirmaður
en hann hefur verið svo lítið heima
að ég hef lítið haft af honum að segja
frá því ég byijaði fyrir einu og hálfu
ári,“ sagði Kristín Gunnlaugsdóttir,
skrifstofustúlka hjá Hjálmi á Flat-
eyri. „Það er mjög erfitt fyrir Einar
Odd að vera í samningamálum fyrir
sunnan og stjórna fyrirtækinu hér
fyrir vestan. Svo kemur fyrir að ófært
er á milh þegar hann hefur tækifæri
til að koma hingað vestur. Við vinn-
um flögur á skrifstofunni og reynum
að gera okkar besta í að reka fyrir-
tækið meðan Einar Oddur er í
burtu,“ sagði Kristín.
„Faðir minn rekur fyrirtækið með
Einari Oddi þannig að ég hef fylgst
með honum í gegnum tíðina. Einar
Oddur er mjög góður maður. Hann
vill gera öllum gott og það er alveg
sama hver það er. Eiginlega er hann
bjargvættur ‘eyrarinnar því það leita
allir til hans hér á Flateyri. Menn
hér, sem eru með aðra útgerð, leita
oft ráða hjá Einari Oddi þó að mörg-
um finnist skrýtið að samkeppnisað-
ilarnir leiti ráða hjá honum. Ég hef
sjálf leitað til hans áður en ég fór að
vinna hér á skrifstofunni og hann
hefur hjálpað mér bæði í persónuleg-
um málum og öðru. Einar Oddur vill
gera gott úr öllu og er alls ekki fyrir
illindi eða deilur. Ég held að fólkið,
sem vinnur fyrir hann, treysti hon-
um og sé ánægt með hann. Ekki veit
ég hins vegar hvort starfsfólkið er
ánægt með kjarasamningana því að
þetta er engin launahækkun. Ef hins
vegar vextir af lánum, sem eru
reyndar alla að drepa, lækka þá er
þetta ágætt," segir Kristín. „Yfirleitt
er Einar Oddur með í öllu ef eitthvað
er um að vera. Hann fer í trimmgall-
ann ef það er jgöngudagur og fer oft
í sund. Það eru allir jafningjar hér á
Flateyri og Einar Oddur er þar ekki
undanskilinn."
Lítið tímaskyn
Eiríkur Finnur Greipsson er hægri
hönd Einars Odds í fyrirtækinu og
rekur það meðan hann er flarver-
andi. „Ég er búinn að þekkja Einar
Odd frá því ég fæddist fyrir þrjátíu
og sex árum og hef ekkert nema gott
um hann að segja. Einar Oddur sagði
nú einhvern tíma við mig, þegar ég
var að hæla honum, að oflof væri háð
og með tilliti til þess er kannski rétt
aö hæla honum ekki of mikiö. Hann
hefur verið indæll yfirmaður og fe-
lagi. Hann er fylginn sér og ejr vel
liðinn hér. Auðvitað er hann með
sína galla eins og aðrir og vitaskuld
hafa menn eitthvað út á hann að setja
eins og aðra yfirmenn. Hann er ekki
algóður, t.d. hefur hann lítið tíma-
skyn að mínu áliti. Það lýsir sér
þannig að hann tekur sér þann tíma
sem hann þarf til að gera hlutina,
burtséð frá því hvað aðrir þurfa. Ein-
ar Oddur er breyskur eins og aðrir
menn. En ég held að hann sé mjög
hæfur yfirmaður. Það verður ekki
sagt að hann stjómi með harðneskju.
Hann er mjög samningalipur og lík-
legast er það hans sterkasta hlið.
Því er ekki að neita að það er erfitt
hversu oft hann er fyrirsunnan. Þeg-
ar allt um þrýtur þá tökum við
ákvarðanir sem hann ætti að taka en
við höfum ekki leyfi til að skuldbinda
fyrirtækið. Við reynum þess vegna
að redda öllu nema flármálum. Það
er stöðugt símasamband milli okkar
þegar hann er fyrir sunnan," segir
Eiríkur Finnur. Hann telur af og frá
að Einar Oddur flytji frá Flateyri. „Ég
held ég geti gengið í sjóinn upp á það
að Einar Oddur fer hvergi. Það eru
hreinar línur að hann verður hér
áfram. Einar Oddur hefur lengi gælt
við þá hugmynd að hægt væri að
reyna aðrar leiðir í samningamálum
eins og kom í ljós þegar hann var í
forstjóranefndinni. í framhaldi af því
held ég að menn hafi farið að skoða
hugmyndir hans. Þó var þetta aldrei
planað af hans hálfu. Hann fór ekki
með neinum ákafa í þessa forstjóra-
nefnd á sínum tíma. Eins og hann
hefur orðað það þá hefur hann gert
það sem flokkurinn hefur beðið hann
um en ekki sóst eftir neinum vegtyll-
um á vegum hans.“
Ætti að vera á þingi
Gunnar Benediktsson, útgerðar-
maður í Þorlákshöfn, þekkir Einar
Odd mjög vel. Þeir ólust upp saman
á Flateyri og Gunnar vann lengi fyrir
hann. Gunnar flutti suður fyrir flór-
um árum. „Einar Oddur var eðlilegur
strákur og mjög greindur. Hann gat
að vísu ekki verið í öllum sömu leikj-
um og við þar sem hann stakk við
en það lagaðist nú með aldrinum.
Aðaláhugamál hans var að lesa, hann,
var mikill bókamaður. Fræðibækur
aOs kyns voru í miklu uppáhaldi hjá
honum. Hann las hagfræði og las sig
til um alls kyns hluti. Einar Oddur
hætti í þriðja bekk í menntaskóla en
ég held að hann hafi menntast vel í
gegnum allar þær bækur sem hann
las,“ segir Gunnar.
„Einar Oddur var viö leik á bryggj-
unni, eins og strákar gera í sjávar-
plássum, og síðan fór hann á sjó og
var lengi á togurum. Foreldrar hans
bjuggu á Símstöðinni og ég bjó þar
hjá Einari Oddi um tíma. Einar Odd-
ur er ákveðinn en mjög dagfarsprúð-
ur og yfirvegaður. Hann segir aldrei
meira en hann getur staöið við. Yfir-
leitt hefur hann menn með sér og það
er gott að vinna með honum. Einar
Oddur getur verið mjög skemmtileg-
ur. Hann hefur lengi haft sínar skoö-
anir á þessum samningamálum og
hefur verið í vissri andstöðu við sína
samflokksmenn. Hann hefur viljað
fá breytingar á gjaldeyrislögunum og
eins hefur hann hamrað mikið á
þeirri skoðun sinni og sannfæringu
að það sem aflað er verði að vera í
takt við það sem eytt er.
Einar Oddur var oddviti í nokkuð
Einar Oddur hefur skrifað undir sína fyrstu samninga sem formaður VSÍ.