Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1990, Blaðsíða 25
LAUGARÐAGUR 3. FEBRÚAR 1990.
33
mörg ár og það má segja að hann
hafi stjórnað Sjálfstæðisflokknum á
staðnum og einnig í kjördæminu.
Hann hefur verið formaður uppstill-
ingarnefndar í kjördæmaráði. Það er
margbúið að reyna að fá hann í fram-
boð og ég reikna ekki með að hann
gefi kost á sér. Þegar Einar Oddur fær
hugmyndir, sem honum finnast rétt-
ar, hamrar hann á þeim þangað til
einhver hlustar. Hann er mjög sterk-
ur persónuleiki. Einar Oddur vill
leysa allra manna vanda og hefur
leyst vanda margra. Ef hann sér að
hann getur látið gott af sér leiða ger-
ir hann það. Eini vandi hans er að
það hefur verið of mikið legið á hon-
um.
Við fundum aldrei fyrir einangrun
á Flateyri í gamla daga. Þá var að
vísu ekkert sjónvarp og útvarp var
lélegt þannig að við fundum okkur
upp ýmislegt að gera. Á sumrin
dvöldu á Flateyri mörg borgarbörn
og það var mjög skemmtilegt. Það
þótti á þeim tíma alveg sjálfsagt að
komast ekki til ísafjarðar frá því í
september og fram í apríl eða mai.
Það hefur oft komið fyrir að Flateyri
hafi farið á kaf í snjó - það þykir
ekkert nýtt á þeim slóðum. Ég veit
að Einar Oddur hefur sterkar taugar
til Flateyrar en mér flnnst alveg synd
að hann skuh ekki fara á þing. Ég er
ekki í nokkrum vafa um að hann
getur gert góða hluti. Það góða við
hann Einar er að hann hlustar á öll
rök, hversu vitlaus sem þau eru,“
segir Gunnar Benediktsson.
Góður tengdasonur
Tengdamóðir Einars Odds, Bryn-
hildur Pálsdóttir, er ánægð með
tengdasoninn. „Ég meina það sem ég
segi; hann er ágætismaður. Hann er
vinnusamur og lætur ekki mikið á
sér bera. Hann veit hvað hann er að
gera. Ég hef alltaf vitað að Einar
Oddur er skynsamur maður en þess-
ir samningar sýna að hann hættir
ekki við það sem hann byrjar á fyrr
en því er lokið. Það hefur verið erfitt
undanfama daga hjá Einari, vitandi
af fjölskyldunni fyrir vestan í þeirri
ófærð sem þar hefur verið. Ég veit
að honum hefur liðið illa aö geta ekki
verið með fjölskyldunni í þessum
þrengingum. En gleðin yfir að þeir
skyldu ná þessu markmiði verður til
þess að allir gleyma þeim erfiðleikum
sem verið hafa.“
Brynhildur segist hafa vitað það
þegar dóttir hennar, borgarbarnið,
fiutti vestur að hún væri ekki að gera
neina vitleysu. „Hún hætti starfi sem
hjúkrunarkona í bili þegar hún flutti
þama á hjara veraldar. En fyrir vest-
an hefur hún hjálpað gamla fólkinu
og hefur gert mikið í að ferðast með
það. Ég vona að þau geti verið meira
heima. Einar Oddur er góður faðir.
Hann hefur náttúrlega mikið að gera
í fiskinum og öllu þessu stússi. Það
kom mér ekki á óvart að Einar Oddur
skyldi fara út í samningamál því ég
hef lengi tekið eftir að það sem hann
hefur áhuga á sýnir hann í verki,“
segir Brynhildur Pálsdóttir.
Bjó til leikrit
Jóhanna Guörún, skólastjóri
Öskjuhlíðarskóla, er systir Einars
Odds. Þau eru tvö, systkinin, og fædd
sitt á hvoru árinu. „Ég var náttúrlega
stóra systirin. Það var mjög margt í
okkar uppvexti sem tengdi okkur
saman. Einar var mjög skemmtilegur
í leik og fann upp á ótrúlega mörgum
sniðugum leikjum. Hann hafði gam-
an af að leika og hafði leiklistar-
hæfileika. Einar bjó oft til leikrit.
Móðir okkar vann á Símstöðinni, þar
sem við bjuggum, og við vorum mik-
ið í innileikjum. Móðir okkar var
mjög umburðarlynd gagnvart því að
við værum með heilan hóp af krökk-
um inni hjá okkur.
Auk þess hafði Einar mikinn áhuga
á lestri og er stálminnugur á það sem
hann les. Hin síðari ár hefur hann
verið í mjög nánu sambandi við at-
Einar Oddur Kristjánsson getur nú lagt spilin á borðið og verið ánægður með að samningar eru komnir i höfn.
vinnulífið eins og það er í þorpinu.
Ég held aö hann hafi mjög sterka til-
finningu og trú á að það sé hægt að
lifa sæmilega góðu lífi í þessu landi
með ákveðnum skilyrðum. Mér
finnst hann samt aldrei trana sér
fram og er frekar hógvær. Hann á
mjög gott með að umgangast alla og
á auðvelt með að sameina fólk. Einar
er maður sem sýnir fólki mikiö traust
en hann gerir Mka kröfur á móti.
Ég veit að Einar hefur ekki óskað
eftir að vera í stjómmálum en mér
finnst eins og hann vilji ekki bregð-
ast þeim sem sýna honum traust. Ég
held að hann sé ekki að vinna fyrst
og fremst fyrir atvinnurekendur - ég
leyfi mér að trúa því að hann sé að
hugsa um okkur öM. í mínum huga
er hann ekki atvinnurekendafulltrúi.
Ég hugsa að við systkinin séum mjög
ólík en ég met bróður minn mikMs
og finnst hann hafa verið mjög sann-
ur og trúr í því sem hann hefur tekið
sér fyrir hendur. í gamla daga var
hann stundum svolítMl böðull og ég
var stundum ergileg út í hann. Ég
hafði ábyrgð heima fyrir og fannst
hann fá að komast upp með ýmislegt
en þá voru hlutverkaskiptin ennþá
greinilegri en nú. Það kom mér nú á
óvart síðar hve hann er Mðtækur
heima hjá sér, bæði í sambandi við
börnin og heimMið," sagði Jóhanna.
„Við höfum nú ekki alltaf verið
sammála, systkinin, í landsmálapóli-
tík en ég verð að viðurkenna að í
umræðum okkar í gegnum árin
finnst mér hann rökstyðja sitt mál
mjög vel. Hann grundvaMar skoðanir
DV-myndir KAE
sínar raunverulega á því að hann
hafi kynnt sér máMn mjög vel. Einar
les mikið, er minnugur og á auðvelt
með að setja hlutina fram á einfaldan
hátt. Hann er mjög glöggur á tölur
. og hefur þótt mjög góður stærðfræð-
ingur.“
-JJ/-ELA