Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1990, Blaðsíða 32
40
LífsstOl
Sitt litið
af hverju
5000 sumarhús
Fyrirtækið Dancenter í Freð-
riksberg gaf nýlega út sumarbækl-
ing sinn og er það í 33. skiptið sem
hann kemur út. í bæklingnum er
að finna upplýsingar um 5000 sum-
arhús í Danmörku sem standa
ferðamönnum til boða. Auk þess
sem í bæklingnum er hægt að fá
greinargóðar upplýsingar um verð
og gæði húsanna.
SunnyTours
; Danska ferðaskrifstofan Sunny
Tours sérhæfir sig í ódýrum sum-
arleyfisferðum. Ferðalangarnir
ferðast á eins ódýran hátt og unnt
er til áfangastaðarins og þar gista
þeír svo í tjöldum. Nýlega upplýsti
forstöðumaöur ferðaskrifstofunn-
. ar að hún hefði fjárfest í tjöldum
fyrir 15 milijónir króna fyrir sum-
arið 1990. Auk þess yrðu margir
nýir og spennandi ferðamöguleikar
í boði. Staðir sem nethdir voru í
; því sambandi eru Suður-Evrópa,
1 Rhodos, Costa Brava á Spáni, Ung-
verjaland, Grikkland og Suöur-
Frakkland.
Concord til Kanada
Breska flugfélagið British Air-
ways hefur ákveðið að Concord
vélar félagsins fljúgi til Toronto í
Kanada í sumar. Flogið verður einu
sinni í viku frá London og samdæg-
urs til baka aftur. Farmiði fyrir
manninn kostar 160 þúsund krón-
ur. Það sparast 3 tímar og 10 minút-
ur miðaöað við meðal flugtíma að
fljúga meö Concord til Toronto.
Byggja 25 hótel
Ein af stærstu hótelkeöjum
heims, Quality International, hefur
ákveðið að byggja 25 hótel í Skand-
inavíu, Pólandi og Eistrasaltslönd-
unum á næstu fimm árum.
Fimm hótel verða byggö í Dan-
mörku, fimm í Noregi, sjö í Svíþjóð
og fjögur í Finnlandi og í eftirtöld-
um löndum ætlar Quality að reisa
eitt hótel, Eistlandi, Lettlandi, Lit-
háen og Póllandi.
Veðrið í útlöndum
HITASTIG IGRÁÐUM
-10 •&• lagra
ill O 111 - 5 1111* 611119 11 tll 16 1611120 20 tll 26
Byggt á veöurtréttum Veöurstotu Islands kl. 12 á hádegl, töstudag
Þrándheimur 2'
Bergen 5
Reykjavík 2'
Þórshöfn 5'
Heisinki 2°
Stokkhólmur 6°
ipmannahöfn 5°
Hamborg 8
London9°(^ .
Luxemborg 7°
/ 7
Mallorca 17'
Algarve _
17° ^/lalaga 17°
Winnipeg -2'
LéttskýjaÖ
ÖfiÍ||go-l0
Alakýjaö
Los Angeies 12°
Atlanta 15'
\ • Orlando
Rigning V Skúrir *.* Snjókoma Þrumuveöur
= Þoka
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1990.
Búdapest þykir ein fegursta borg Evrópu.
Búdapest
París austursins
í félagslegu tilliti má segja að böðin þjóni sama tilgangi í Búdapest og
sundlaugarnar gera hér í Reykjavík.
Ungverjar eru upp til hópa lífsglatt og vingjarnlegt fólk.
Búdapest, höfuðborg Ungverja-
lands, hefur oft verið kölluð París
austursins, enda þykir hún líflegri
og fjörlegri en nokkur önnur borg
Austur-Evrópu. Það er sama hvaða
árstími er valinn til að heimsækja
Búdapest, allir árstímar hafa sína
töfra austur þar. Borgin er staösett
í hjarta Evrópu og til hennar er ekki
nema steinsnar frá mörgum borgum
álfunnar. Þangað er ekki nema hálfs
dags akstur frá Múnchen, 2 'A tíma
flug frá París og Róm og þangað er
rúmlega tveggja stunda akstur frá
Vín. Það er því sem best hægt að
borða morgunverðinn í Vín og há-
degisverðinn í Búdapest.
Verðlag í Búdapest þykir um þess-
ar mundir mun lægra en í mörgum
borgum á meginlandi Evrópu. Að
Ferðir
sögn sérfróðra er það um það bil
helmingi lægra en í borgunum í ná-
grenninu.
íbúar borgarinnar þykja vingjarn-
legir heim að sækja og þeir bjóða
ferðamenn hjartanlega velkomna.
Þeir eru stoltir af borginni sinni sem
þeir telja þá fegurstu í Evrópu.
Aldagömul borg
Það búa 10,6 milljónir manna í
Ungverjalandi, þar af búa um 2,2
milljónir manna í Búdapest. Saga
borgarinnar teygir sig mörg hundruð
ár afur í tímann. Rómverjar settust
að á hægri bakka Dónar fyrir 2000
árum og byggðu þar borg sem þeir
nefndu Vatnaborgina. Þar sem hún
stóð er nú vestari hluti Búdapest.
Rómverjarnir fundu heitar laugar
sem þeir nýttu til að baðast í og má
enn má sjá menjar um þær.
Magyjar náðu völdum í landinu á
þrettándu öld og lögðu í leiöinni
Vatnaborgina í rúst en endurreistu
hana skammt frá þar sem hún stóð
áður. Sígaunar voru næstir til að
ráðast til atlögu og enn var Vatna-
bogin lögð í rúst á þrettándu öld. Hún
var ekki endurbyggð fyrr en seint á
fjórtándu öld.
Tyrkneskböð
Tyrkir voru næstir til að herja á
borgina og enn einu sinni var hún
rústuð. Enn þann dag í dag má sá
menjar eftir Tyrkina, þeir byggðu
mörg baðhús í borginni og þau eru
enn ipjög vinsæl. I félagslegu tilliti
má segja að böðin þjóni sama til-
gangi í Búdapest og sundlaugarnar
gera hér í Reykjavík. Á síðari hluta
19. aldar sameinaðist Búda endan-
lega borginni Pest, hinum megin
Dónar.
Kaffihús og veðreiðar
Á nítjándu öld fóru hlutimir fyrst
að gerast fyrir alvöru í Búda. Há-
skóli var settur á laggirnar, kaffihús
spruttu upp, fyrsta leikhúsið sem
eingöngu setti upp verk á ungversku
var opnað, fyrsta verksmiðjan var
byggð í útjaðri borgarinnar. Brýr
voru byggöar yfir Dóná sem aðskilur
Búda og Pest og að útlendum sið fóru
borgarbúar að þyrpast á hestaveð-
reiðar, þá var upphaf jámbrautars-
amgangna í landinu. Þróunin var
hafin og hún hefur haldist óslitið til
dagsins í dag þó svo að borgin hafi
farið illa út úr seinni heimsstyrjöld-
inni. Rússar og Þjóðverjar börðust
um hana samfleytt í þrjá mánuði, eða
frá því í nóvember 1944 og fram í
febrúar 1945 er Rússar náðu fullnað-
arsigri. Þegar Evrópu var svo skipt
upp í áhrifasvæði Vesturlanda og
Sovétríkjanna hafnaði Ungverjaland
sökum legu sinnar undir kommún-
ískri stjórn og hefur verið allar götur
síðan.
Áhæðinni
Búda varð höfuðstaður Ungverja-
lands 1361. Hún stendur á hæðum
vestan Dónár en hinum megin stend-
ur Pest á flatlendi. í dag eru borgim-
ar tengdar með átta brúm sem þykja
mjög fagrar.
Þama er stór og mikil höfn enda
Dóná skipgeng allt að Svartahafi og
það getur verið gaman að taka sér
göngu niður að ánni og horfa á skip-
in sigla eða hreinlega að fara í útsýn-
issiglingu á ánni. Hjarta borgarinnar
er innborgin í Pest. Þar skiptast á
fagrir trjástígar og breiðstræti. Þar
er Margrétarbrú, Elísarbetarbrú og
Stefánskirkjan fræga. Corsa hverfið,
sem þykir sérlega rómantískt, er á
milli Elísarbetarbrúar og Keðjubrú-
ar. Þar er sömuleiðis að finna marga
góða matsölustaði og kaffihús.
í nágrenninu eru listasöfn, fleiri
veitingahús og Astoria hótelið sem
margir sækja heim að lokinni leik-
húsferð og dansa og fá sér hressingu.