Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1990, Side 31
I
4-
LAUGAWÍAGÖR 35 PEBRTsAU 1990. 5
í
I
>
>
)
I
í vesturviking
- Smekkleysa ræður kynningarstjóra í Bandaríkjunum
I nýliönum mánuði var stödd hér
á landi Jo nokkur Cavanaugh,
kvensnift af keltnesku bergi brotin
sem Smekkleysa hefur ráðið til aö
sinna sínum málum í Vesturheimi.
Jo var ráðin nú um áramótin en
áður starfaði hún sem fram-
kvæmdarstjóri Alternative
Tentatíles Records (Dead Kennedys
og fl.) í San Fransisco og á þeim
fróma stað mun hún halda sig í
framtíðinni því aðalstöðvar
Smekkleysu í Bandaríkjunum
verða settar niður þar. Poppsíðan
spjallaði við Jo Cavanaugh á dög-
unum og innti hana fyrst eftir til-
komu samstarfs hennar og Smekk-
leysu. „Ég var stödd á New Music
Seminar í New York sl. sumar og
sá þá nokkur af Smekkleysubönd-
unum á sviði. Kraftur þeirra og
ferskleiki hreif mig svo ég setti mig
í samband og síðan hafa mál þróast
á þennan veg.“
I hveiju verður starf þitt fólgið?
„Það má segja að þetta verði
nokkuð skylt því sem ég var að
gera hjá Alternative Tentacles, þó
má segja að aðaláherslan hjá
Smekkleysu verði til að byrja með
á kynningarstarf. Reyna að und-
irbúa jarðveginn fyrir væntanlega
markaðssetningu á hljómsveitun-
um Bless, Risaeðlunni, Bootlegs og
Ham. í því sambandi er mikilvægt
að reyna að fá þessar hljómsveitir
utan til tónleikahalds því Banda-
ríkjamenn vilja helst ekkert kaupa
fyrr en eftir að hafa séð og heyrt
viðkomandi."
Ekki var Jo viss um að Ham ætti
greiða leið að hjörtum Bandaríkja-
manna, væri meira á bresku hn-
unni, en hún fór ekki leynt með
aðdáun sína á Bless og Risaeðlunni
sem hún taldi hafa alla burði til að
„meika“ það vestra.
„Á New Music Seminar fékk ég
slatta af plötu Risaeðlunnar til að
dreifa í popp-pressuna á vestur-
strönd Bandaríkjanna. Þar féllu
menn í stafi og lá við slagsmálum
um þau eintök sem til vorú. Þetta
gefur ástæðu til bjartsýni. Þessa
dagana er veriö að hljóðblanda
nýja plötu Risaeðlunnar sem vænt-
anleg er í útgáfu í vor og þar heyr-
ist mér frábært efni á ferðinni. Það
sem Bless er að gera lofar einnig
góðu en stór plata með þeim er
væntanleg næsta haust.“ Um
möguleika Bootlegs sagði Jo að þar
væri á ferð tónlist sem gæti selst
vel án þess að til kæmi mikil kynn-
ing, markaðurinn fyrir Speed Met-
al í Bandaríkjunum væri gríðar-
lega stór.
Af orðum Jo Cavanaugh að
dæma virðist bjart framundan hjá
Smekkleysu, þar er vaxtabroddur-
inn í íslenska rokkinu. Tækifærin
til að gera rósir virðast fyrir hendi
hjá fyrrtöldum hljómsveitum, ef
þær hafa áhuga og þrek til. Að lok-
um má geta þess að það verður
Rough Trade í Bandaríkjunum sem
kemur til með að verða dreifmgar-
aðili fyrir Smekkleysu vestra.
í faðmlög-
um við
þögnina
- Depeche Mode hugsar sér til hreyfings
Það hefur vakiö furðu margra sú
tryggð sem hljómsveitin Depeche
Mode hefur haldið við óháða útgáfu-
fyrirtækið Mute í Bretlandi.
í 9 ár hefur hljómsveitin dælt á
markað átta breiðskífum sem allar
hafa farið inn á topp 10 í Bretlandi
og tuttugu smáskífum sem allar fóru
inn á topp 20. Þannig hefur Depeche
Mode skapað sér nafn sem sem eitt
vinsælasta óháða bandið í sögunni.
Hljómsveitarmeðlimir senda gylli-
boð risafyrirtækjanna til foðurhú-
sanna með þeim orðum að sköpunar-
frelsið sé þeim dýrmætara en svo að
þeir selji sig kaupsýslumönnum á
vald.
Nú eru hðin tvö og hálft ár síðan
síðasta breiðskífa Depeche Mode
kom á markað, platan „Music for the
Masses". Reyndar sendi hljómsveitin
frá sér tónleikaplötuna „101“ í fyrra
en samhhöa henni var frumsýnd
samnefnd bíómynd sem sýnir hljóm-
sveitina í leik og starfi.
Það ríkir því talsverð eftirvænting
nú þegar væntanleg er ný plata með
Umsjón:
Snorri Már Skúlason
Depeche Mode. „Vialator" ku hún
kallast og kemur á markað 19. mars.
Mánudaginn 5. febrúar fá aðdáend-
ur hljómsveitarinnar þó htilræði tíl
að orna sér við, en þá verður útgefið
smáskífulagið „Enjoy the Silence".
Þar er á ferð hinn dægilegasti bragur
sem sýnir hljómsveitina í sínu fin-
asta formi.
Sunnudagur til sælu
Fyrst nýjar plötur eru til umræðu
er rétt að geta frammistöðu bresku
hljómsveitarinnar The Sunday’s en
hún sendi frumburð sinn „Reading,
Writing and Arithmetic” frá sér um
miðjan janúar og fór platan beint í
4. sæti vinsældahstans. Árangur sem
Rough Trade-menn hafa ekki átt aö
ina bera með sér ferska strauma. stjörnu í heimi rokktónhstar, en
Poppsíðan ætlar að freista þess að meira um það eftir hálfan mánuð.
ná einkaviðtali við þessa rísandi
fagna síðan The Smiths var og hét.
Breska popp-pressan ber The Sunda-
y’s á höndum sér og segir hljómsveit-
Hljómsveitín Lush skilur eftír ör.
- það verður fleira gott til í eldhúsum en matur
Hljómsveitin Lush frá' Lundúnum er tvær Miki og Emma hófu afskipti sín um að enginn heyrði til þeirra, nefni- þeirra. í dag eru þær heilinn í einni
ágætt dæmi um þetta, en fraukurnar af tónhst þar sem þær voru fullvissar lega í eldhúsinu heima hjá annarri af efnilegri hljómsveitum Bretlands.
Lush sendi seint á síðasta ári frá sér
plötuna „Scar“ sem opinberar 6 hug-
arsmíðar þeirra vinkvenna.
Tónhst hljómsveitarinnar er hæfi-
lega tyrfin nýbylgja í ætt við Throw-
ing Muses og My Bloody Valentine.
Smekkleg laglína leynist á bak við
vegg af hljóðum. Eftir því sem kynn-
in verða nánari hrynja múrarnir og
eftir stendur góður vinur.
Ekki er þessi lýsing alghd þegar
Lush á í hlut því sumar lagasmíð-
anna verða beinlínis ágengar við
fyrstu kynni. Það sem einkum gefur
tónlist Lush karakter er hugguleg
meðhöndlun á kvenröddum, sér-
staklega í rólegri lögunum en þar eru
' þær látnar fljóta líkt og dulúðug
dalalæða.
Hhómsveitarmeðhmir sem eru
fjórir eru lítið fyrir aö lýsa eða skil-
greina tónhst sína, segja hana lýsa
sér best sjálfa. Textagreining Emmu
og Miki ristir ekki djúpt.
Miki segist yrkja um fólk í víðasta
skilningi þess orðs á meðan Emma
er upptekin af sjálfri sér, semur um
það sem hún þekkir best, eigin hug-
arheim.
Þó verður að ætla að stórskáld for-
tíðarinnar hafi einhver áhrif því %
hljómsveitarinnar lesa bókmenntir
við ónefndan skóla í Lundúnum.
Hvað sem því hður þá standa tón-
hst og texti sem sterk heild, áherslur
í flutningi aldrei of né van og fyrir
vikið stendur platan Scar sem dá-
indi.