Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1990, Blaðsíða 12
12
Sælkerinn
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1990.
DV
Vika í sumri, sól og sælu
Nú eru líklegast margir aö skipu-
leggja sumarfríið og flestir líklegást
búnir að ákveða hvert á að fara.
Sumarið er besti árstíminn hér á ís-
landi og það er virkilega vel þess
virði að ferðast um okkar fagra land.
En, það er nú alltaf dásamlegt að
skreppa út fyrir pollinn.
Það er því tilvalið að skreppa í viku
vorferð út og eyða svo afganginum
af fríinu hér líeima. Fyrir áhugafólk
um mat og vín er tilvalið að fljúga
til Lúxemborgar og leigja þar bfl og
aka til Elsasshéraðs í Frakklandi,
sem er aðeins 2-3 klukkustunda
akstur.
Frá Elsass koma hin rómuðu Els-
assvín sem margir kannast við.
Mætti þar nefna Riesling „Hugel" og
Gewurztraminer.
Eisassbúar eru miklir sælkerar og
er sagt um Elsasseldhúsið að matur-
inn sé franskur en skammtanir þýsk-
ir. Hvergi er hægt að fá betri gæsalif-
ur en í Elsass og þeir hafa mikið
úrval af villibráð og vatnafiski í hér-
aðinu.
Elsasshérað er 8.300 ferkílómetrar
að flatarmáli og þar búa rúmlega 1,5
milljónir manna. Velflestir íbúanna
tala þýsku og mjög margir ensku.
Höfuðborgin er Strassborg og hefur
hún flesta kosti franskrar stór'oorg-
ar. Þaðan er örstutt út í sveitirnar
tilhinna fallegu og fornu smáþorpa.
í Strassborg eru marjgir frægir veit-
ingastaðir. Einn sá frægasti er Le
Crocodile á 10, rue de l’Outre. Þeir
sem vilja kynnast matarhefðum Els-
asabúa ættu að snæða á Brasserie
Restaurant de l’Ancienne Douane á
bæra veitingastaö með nokkurra
daga fyrirvara. Síminn er 89.71.83.23
og telefaxnúmerið er 87.12.89. Of
langt mál yrði að nefna öfl þau
skemmtilegu þorp sem vert er að
heimsækja.
Eitt fallegasta þorpið er Riquewihr.
Bærinn var að mestu byggður upp
úr 1200 en flest húsanna eru frá 15.
og 16. öld. Riquewihr er því einn best
varðveitti miðaldabær í Evrópu. í
Riquewhir er eitt besta tjaldstæði í
Frakklandi og franska Ferðamála-
ráðið gefur því 4 stjörnur.
Víða í Elsass er hægt að fá leigð
herbergi í‘ Heimahúsum. Þessi her-
bergi eru yfirleitt bæði rúmgóð og
Umsjón
Sigmar B. Hauksson
hrein og allur viðurgjörningur eins
og best verður á kosið.
í bænum Colmar er ákaflega róm-
antískt og fallegt hótel sem heitir
Hostellerie „La Marcéhal" við 4-6,
place des Six Montagnes Noires sími
89.41.60.32. Hóteliö er staðsett við ána
sem rennur í gegnum Colmar og
kallast þetta svæði „Htlu Feneyjar”.
Skemmtilegast er auðvitað að aka
á milli þorpana og uppgvöta
skemmtileg veitingahús og hótel. Frá
Lúxemborg til Elsass eru um 220 km
eða um 3ja tíma akstur. Vart er hægt
að hugsa sér skemmtilegra svæði til
að eyða einni viku en Elsasshérað.
6, rue de la Douane. í sveitaþorpun-
um eru margir frábærir og ódýrir
veitingastaðir og hótel. í Elsasshér-
aði er einnig einn frægasti veitinga-
staður í Frakklandi.
Þessi veitingastaöur heitir Auberg
de I’Ill í þorpinu Illhaeusern. Þar
ráða ríkjum Haeberlin bræður sém
eiga og reka staðinn og einn sonanna
stendur með fóður sínum í eldhús-
inu. Veitingahúsiö er í ákaflega fall-
egu húsi við bakka árinnar 111 og
umhverfis húsið er fallegur garður
þar sem einnig er hægt að borða úti.
Panta verður borð á þessum frá-
Elsass er eitt af fallegustu héruðum Frakklands og er varla hægt að hugsa sér skemmtilegra hérað fyrir sælkera
að heimsækja.
Reykjavík:
Okmverð á svartfugli
á veitingahúsum
Verðlagning á matvælum er
stundum einkennileg á reykvísk-
um veitingahúsum. I hádeginu er
boðiö upp á ódýra rétti en á kvöld-
in hækkar verið um 200-300 pró-
sent á svo að segja sömu réttunum.
Nú er svartfugl í tísku á reykvíks-
um veitingahúsum.
í fiðrinu kostar svartfuglinn vun
þaö bil 60 kr. stykkið og hamflettur
kostar hann frá 80-110 kr. Þegar
siðan búið er aö matreiða fuglinn
og setja á disk er hann kominn upp
i 1200-1500 kr. Þetta er vægast sagt
hressileg álagning.
Samkvæmt þessu ætti t.d.
skammturinn af aliönd að kosta
um það bil 5-6000 kr. Að selja
skammtinn af svartfugli á 12-1500
kr. er ekkert nema okur. Við þessu
er ekki nema eitt svar. Kaupiö ekki
svartfugl á þessu verði.
Kaupið hann í Fiskbúð Hafliða
við Hlemm eða annars staðar og
matreiðið hann heima.
Nú er svartfugl í tísku á reyk vlskum
veitingahúsum og er hann seldur
á okurverði. Hugmyndaflugið virð-
ist ekki vera rikjandi í vali á hrá-
efni um þessar mundir, heldur
frekar ákvarðanir á verðlagningu
réttanna.
Veðurstofa íslands
Veðursjár á Miðnesheiði
Tilboð óskast í byggingu veðursjár á Miðnesheiði.
Um er að ræða að smíða og fullgera 45 m2 radarhús. Smíða og
reisa 8 m háa stálgrind og pall fyrir veðursjá. Jafna lóð umhverf-
is hús og setja upp 87 m langa girðingu með hliði.
Verkinu skal vera að fullu lokið 10. ágúst 1990, þó er ekki hægt
að Ijúka að fullu vinnu við girðingu fyrr en í lok september.
Lagður verður vegur að byggingarsvæðinu.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík frá föstudegi 18. maí til og með
miðvikudags 23. maí gegn 5.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 29. maí 1990 kl.
11.30.
INNKAUPASTOFNUIM RÍKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
Matur og vín
Það á að drekka hvítvín með fiski
og rauövín með kjöti, svo einfalt
er það. Allir kannast við þessa ein-
fóldu reglu. Staðreyndin er hins
vegar sú aö þetta er ekki nein regla.
Það fer eftir smekk hvers og eins
hvaða vín hann vill drekka.
Gott vín gerir góða máltíð enn
betri.
Gott Beaujolais rauðvín er mjög
gott með soðnum eða steiktum laxi.
Einnig er hið ítalska Chianti vín
mjög gott með laxi og nýveiddri
bleikju.
Það er tilvalið að heilsteikja
skötusel í ofni eins og lambalæri.
Skötuselurinn er kryddaður með
svörtum pipar, íslensku blóðbergi
eða timian og hvítlauk. Með skötu-
selnum er höfð rauðvínssósa og
með þessum rétti er upplagt að
drekka svalt Beaujolais. Það er
mjög gott aö sjóða krækling eða
bláskel í rauövíni og krydda með
timian og lárviöarlaufi.
Spánveijar og Portúgalir drekka
gjaman rauðvín með saltfiskrétt-
um. Með nýjum laxi eða skötusel
er ljómandi að hafa rauðvíns-
smjörsósu eða „Beurre rouge“ eins
og Frakkar segja.
í rauðvínssmjörsósu
fyrirfjóraþarf:
1 dl rauðvín
1 dl rauðvínsedik
1/2 dl fínt saxaðan skalottulauk
200 g mjúkt smjör
1 tsk sítrónusafa
salt og hvítan pipar
Sjóðið saman í potti rauðvínið,
rauðvínsedikið og laukinn. Þegar
nær allur vökvinn er horfmn er
smjörið sett í pottinn, ein matskeið
í einu. Þegar smjörið er bráðnað
er það kryddaö með sítrónusafa,
salti og pipar.
Ekkert er að því að drekka hvít-
vín með kjöti. Gott Moselvín á mjög
vel við glóðarsteiktan eöa steiktan
kjúkling. Með soðnu saltkjöti og
Nýr skötuselur og glas af góðu hvitvini er tilvalin veislumáltið til að
fagna vorinu.
grænmeti er upplagt aö drekka hið
kryddaða og góða Elsassvín Gew-
urztraminer. Gewurztrarminer
passar annars vel með reyktum
laxi og graflaxi.
Einnig er tilvaliö aö drekka þurrt
sherrí með reyktum laxi. Vitaskuld
passar rauðvín frábærlega vel meö
kjöti og hvítvín með fiski. Gott
Bordeaux rauðvín er sérlega gott
rneð lambakjöti. Sacerre hvítvín er
sérlega gott með nýrri smálúðu og
Chablis með glóðarsteiktum hum-
ar og svona má lengi telja. Enda
þótt rauðvín sé gott með laxi og
skötusel þá er gott hvítvin ekki
síðra.
Nú er humarvertíðin að heíjast
og þá kemur góður skötuselur í
fiskbúðirnar. Vorið er komið og því
, er upplagt að taka fram grillið.
Létt-glóðarsteiktur skötuselur er
veislumatur. Blandið saman sítr-
ónusafa og ólívuolíu, skerið skötu-
selinn í 3ja cm þykkar sneiðar og
látið þær liggja í þessum legi í 2-3
klukkutíma. Skötuselurinn er síð-
an glóðarsteiktur. Hann er krydd-
aður með góöu jurtasalti þegar
búið er að glóðarsteikja hann.
Með skötuselnum má hafa hrís-
grjón, kryddsmjör með örlitlum
hvítlauk og gott brauð. Þá er nýr
gufusoðinn skötuselur eða skötu-
selur léttsoðinn í fisk- eða græn-
metissoði kóngafæða. Glas af Po-
ully Fuisse gerir svo mátíðina full-
komna.