Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1990, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1990, Page 35
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1990. 47 Yflrbygging Laugavegar: Byrjað á fram- kvæmdum í sumar - kaupmenn fjármagna sjálfir „Þessi hugmynd mín kom í fyrst- unni upp þegar borgarstjórn fór aö ræöa um yfirbyggingu í Austur- stræti. Við sáum fyrir okkur langa biö með Laugaveginn, settumst því niður og fórum aö spá,“ segir Jón Sigurjónsson gullsmiður sem rekur verslunina Jón og Óskar við Lauga- veginn. Jón fékk Örn Sigurðsson arkitekt til að hanna fyrir sig yfirbyggingu. Þegar hún lá Ijós fyrir fór Jón á fund kaupmanna við götuna og fékk mun betri viðtökur en hann átti von á. „Þegar menn sáu teikninguna urðu þeir mjög spenntir yfir að þetta gæti oröið að raunveruleika," segir Jón. „Þetta er hins vegar mjög dýrt og þar sem við munum fjármagna þetta sjálfir kom sú hugmynd upp að koma upp smekklegum auglýsingabogum á fjórum stöðum sem gætu greitt yfirbygginguna. Eftir helgina munum við leggja þessar teikningar fyrir rétta aðila og fá samþykki til að reisa auglýsinga- bogana. Við höfum sýnt borgar- skipulagi og frambjóðendum til borg- arstjórnarkosninganna teikningar og alls staðar fengið mjög jákvæð Fyrst í stað verður þó gerð tilraun með að yfirbyggja einungis gangstéttirn- ar og er reiknað með að sú framkvæmd geti hafist áður en langt um líður. Jón Sigurjónsson gullsmiður átti hugmyndina af yfirbyggingunni eins og hún lítir út nú. Hann byrjaði á að fá arkitekt til að teikna glerþak yfir gang- stéttina fyrir framan verslun sina. Aðrir kaupmenn á Laugaveginum fengu mikinn áhuga á málinu er teikningarnar lágu fyrir. r ■\ Útboð Suðurlandsvegur um Múlakvísl 1990 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboóum í ofan- greint verk. Lengd kafla 3,8 km, fyllingar 24.000 rúmmetrar og burðarlag 4.000 rúm- metrar. Verki skal lokið 10. september 1990. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rikisins á Selfossi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 21. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þriðjudaginn 5. júní 1990. Vegamálastjóri. J Þannig kemur Laugavegurinn á horni Snorrabrautar til með að líta út i sumar. Auglýsingabogi sem þessi mun koma upp á fjórum stöðum og auglýsingar sem fást á skiltið (í þessu tilviki er það OV) greiða kostnað við yfir- byggingu Laugavegar. viðbrögð. Við eigum því ekki von á öðru en að úr þessu veröi. Ætlunin er að auglýsingabogarnir rísi upp í sumar og auk þess munum við byrja á aö yfirbyggja gangstéttina. Fyrst um sinn yfirbyggjum við aðeins lít- inn hluta gangstéttarinnar en það er gert til að sjá hver reynslan veröur. Ef hún verður góð er ekkert því til fyrirstöðu að byggja yfir gangstéttina báðum megin götunnar og síðan verður farið í að byggja yfir göt- una,“ sagði Jón. Gangstéttaryfirbyggingin er í raun bogalagað glerþak. Glerið er fengið í gegnum Sindra en það er sérstaklega styrkt og skothelt. Fyrst um sinn geta því vegfarendur gengið undir þaki er þeir ganga eftir Laugavegin- um en gatan sjálf verður opin. Ef af yfirbyggingu götunnar verður er sú hugmynd uppi að hafa aðra hvora einingu opna til lofts en með því móti er hægt aö hafa akandi umferð um Laugaveg áfram. Ekki hefur þó endanlega verið ákveðið hvort gatan verði þannig eða lokuð alveg og gerð að göngugötu. Hver eining yfirbyggingarinnar er átta metrar á lengd. í sumar er reikn- að með að allt frá tveimur og upp í átta einingar komist upp en hver þeirra kostar fjögur hundruð þús- und. Kaupmenn við Laugaveginn fjármagna yfirbygginguna og að sögn Jóns veltur allt á hve miklu auglýs- ingabogarnir skila af sér hversu mik- ið verður unnið í sumar. „Þetta er framtíðin," segir Jón „og við höfum^ trú á henni." -ELA - Umhverfi og mengun - Reykjavík framtíðarinnar Guðrún Ágústsdóttir Stefán Thors Auður Sveinsdóttir Magnús Skúlason Sigurbjörg Gísladóttir A ^^lþýöubandalagið í gengst fyrir umræðufundi um umhverfismálin í Reykjavík að Hverfisgötu 105 næstkomandi sunnudag kl. 15.00. ^^eykjavík Frummælendur: Sigurbjörg Gísladóttir efnafræðingur sem fjallar um loftmengun. Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt sem m.a. mun segja fréttir af nýafstaðinni umhverfisráðstefnu í Björgvin. Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins, sem fjallar um umhverfismat og mengun. Magnús Skúlason arkitekt sem fjallar um umferðarmálin í Reykjavík. Fundarstjóri verður Guðrún Ágústsdóttir borg- arfulltrúi. . Kaffiveitingar Allir velkomnir. Alþýðubandalagið í Reykjavík. G-listinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.