Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1990, Page 47
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1990.
59
Afmæli
Anna Guðmundsdóttir
Anna Guðmundsdóttir, fyrrv. bóka-
vörður Austurbrún 2, Reykjavík er
sjötíu og fimm ára í dag. Anna er
fædd á Patreksfirði og ólst upp í
Borgarnesi. Hún fór í námsferðir til
Danmerkur 1946-1947 og til Norður-
landa 1956. Anna starfaði við bók-
safn Hafnarfjarðar frá 1941 ásamt
Magnúsi manni sínum sem var
bókavörður þar. Hún var yfirbóka-
vörður við Bókasafn Hafnarfjarðar
1955-1971 og kenndi við Iðnskólann
í Hafnaríirði í nokkur ár. Anna var
yfirbókavörður við Bókasafn Ár-
nessýslu 1971-1978. Hún var í stjórn
Norræna félagsins í Hafnarfirði um
nokkura áræskeið og var einn af
aðalhvatamönnum að stofnun
Bókavarðarfélags íslands og í stjórn
þess fyrstu árin og er nú heiðurs-
félagi þess. Fyrri maður Önnu var
Guðmundur Sigurðsson, f. 1912,
bankamaður. Þau skildu. Sonur
Önnu og Guðmundar er: Guðrnund-
ur, f. 6. ágúst 1935, læknir í Rvík,
fyrri kona hans var Hrefna Björns-
dóttir, d. 1973, hjúkrunarfræðingur,
börn þeirra eru: Anna, Guðrún
Hulda, Þórvör Embla og Ragna Sól-
veig. Seinni kona Guðmundar er:
Sigríður Jónsdóttir, fóstra, börn
Guðmundar og Sigríðar eru: Snorri
og Guðný Ása. Seinni maður Önnu
var Magnús Ásgeirsson, f. 9. nóv-
ember 1901, d. 1955, skáld. Foreldrar
Magnúsar voru: Ásgeir Sigurösson,
b. á Reykjum í Lundarreykjadal og
kona hans Ingunn Daníelsdóttir.
Dóttir Önnu og Magnúsar er: Ing-
unn Þóra, f. 24. nóvember 1944,
kennari á Selfossi, var gift Sigurði
Sveinssyni, lögfræðingi, þau skildu,
börn þeirra eru: Berglind Anna,
Magnús Sveinn og Sölvi Björn.
Systkini Önnu eru: Ingibjörg, fyrrv.
fulltrúi í Rvík; Júlíus, verkfræðing-
ur í Rvík; Björn, fyrrv. forstjóri í
Rvík; Þuríður Jenný, f. 13. janúar
1907,húsmóðir í Kópavogi; Karl Leó,
sýsluskrifari í Borgarnesi; Jórunn,
húsmóðir í Borgarnesi og Margrét,
húsmóöir í Rvík. Bróðir Önnu sam-
feðra, er Ingólfur Theódor, fyrrv.
deildarstjóri í Rvík.
Foreldrar Önnu voru Guðmundur
Björnsson, sýslumaöur í Borgar-
nesi, og kona hans, Þóra Júlíus-
dóttir. Föðurbróður Júlíusar er
Kristján, faðir Þuríðar, prófessors í
KHÍ. Guðmundur var sonur Björns,
b. á Svarfhóli, Asmundssonar, b. á
Laxfossi, Þórðarsonar, prests í
Hvammi í Norðurárdal, Þorsteins-
sonar. Móðir Björns var Margrét
Björnsdóttir, prests í Hítarnesþing-
um, Sigurðssonar og konu hans,
Valgerðar Bjarnadóttur, prests á
Mælifelli, Jónssonar. Móðir Guð-
mundar var Þuríður ljósmóðir, syst-
ir Málfríðar ljósmóður. móður Mál-
fríðar Einarsdóttur rithöfundar.
Þuríður var dóttir Jóns, b. á Ás-
bjarnarstöðum í Stafholtstungum,
Halldórssonar, b. og fræðimanns á
Ásbjarnarstöðum, Pálssonar. Móðir
Jóns var Þórdís Einarsdóttir, Svein-
bjarnarsonar, bróður Sveinbjarnar,
afa Þórðar Sveinbjarnarsonar dóm-
stjóra. Móðir Þuríðar var Helga
Oddsdóttir, systir Guðrúnar,
langömmu Odds, föður Jóns hrl.
Móðurbróðir Önnu er Halldór
sýslumaður, afi Halldórs Júlíusson-
ar, forstöðumanns á Sólheimum, og
Láru Valgerðar Júlíusdóttur, lög-
fræðings ASÍ. Þóra var dóttir Júl-
íusar, læknis á Blönduósi, Halldórs-
sonar, yfirkennara í Rvík, bróður
Ólínu, langömmu Snæbjarnar Jón-
assonar vegamálastjóra. Halldór
var sonur Friðriks, verslunarstjóra
á Eyri í Skutulsfirði, Eyjólfssonar,
prests á Eyri, Kolbeinssonar, prests
og skálds í Miðdal, Þorsteinssonar.
Móðir Halldórs var Sigríður Ólafs-
dóttir, b. á Stakkanesi, bróður
Hjalta Thorbergs, ættfóður Thor-
bergsættarinnar, afa Bergs Thor-
-bergs landshöfðingja. Ólafur var
sonur Þorbergs prests á Eyri, Ein-
arssonar, föður Guðrúnar, móður
Marrethe Hölter, ættmóður
Knudsenættarinnar.
Móðir Þóru var Ingibjörg, systir
Björns, afa Björns Sigfússonar há-
skólabókavarðar. Ingibjörg var
dóttir Magnúsar, prests og læknis á
Grenjaðarstað, Jónssonar, bróður
Guðnýjar, ömmu Haraldar Níels-
sonar prófessors. Önnur systir
Magnúsar var Margrét, amma Ólafs
Friðrikssonar. Móðir Ingibjargar
var Þórvör Skúladóttir, prests í
Múla, Tómassonar, bróður Einars,
föður Hálfdánar, langafa Helga
Hálfdanarsonar þýðanda og Helga,
fóður Ragnhildar alþingismanns.
Móðir Þórvarar var Þórvör Sigfús-
dóttir, prófasts og skálds á Höfða,
Jónssonar, og konu hans, Guðrúnar
Anna Guðmundsdóttir.
Ketilsdóttur, prests í Húsavík, Jóns-
sonar. Móðir Guðrúnar var Guðrún
Magnúsdóttir, systir Skúla land-
fógeta. Afmælisbarnið verður að
heiman í dag
Kirstín Guðríður Lárusdóttir
Kirstín Guðríður Lárusdóttir, fram-
kvæmdastjóri, Logalandi 6, Reykja-
vík verður fimmtug á morgun.
Kirstín er fædd í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún lauk landsprófi og var
í 1. bekk í menntaskóla. Kirstín hóf
störf á lögfræðstofu Jóns N. Sig-
urðssonar hrl. og vann síðan hjá
Lögreglustjóranum í Rvík. Hún
vann hjá Bifreiðaeftirliti ríksins í
17 ár og einnig vann hún í Árbæjar-
safni frá stofnun þess til 1968. Kirst-
ín var ein af fyrstu kvenökukennur-
unum og var í stjórn fræðslumið-
stöðvar Ökukennarafélags íslands
1979-1989. Hún og maður hennar
stofnuðu heildverslunina Hannes
Wöhler og Co, árið 1981 og hefur hún
unnið þar síðan. Kirstín giftist 20.
júlí 1985 Hannesi Wöhler, f. 2. nóv-
ember 1939, heildsala. Foreldrar
Hannesar eru: Heinrich Wöhler,
konfektgerðarmaður í Þýskalandi
og kona hans Sigríður Árnadóttir,
verslunarmaður. Heinrich var átt-
ræður 15. maí og eru Kirstín og
Hannes hjá honum í Þýskalandi þar
sem hann býr. Börn Kirstínar og
Hannesar eru: Sigríður Wöhler, f.
19. janúar 1963, kennaranemi; Lárus
Árni Wöhler, f. 30. maí 1966, versl-
unarmaður; Herdís Wöhler, f. 29.
desember 1968, verslunarmaður og
Ásdís Wöhler, f. 21. júní 1970, nemi.
Systkini Kirstínar eru: Guðrún
Helga, f. 29. ágúst 1933, útgerðar-
kona, gift Ágústi Sigurðssyni, og
eiga þau þrjár dætur; Ólafla Lára,
f. 9. febrúar 1959 gift Guðmundi
Axelssyni og eiga þau þrjú börn;
Valgerður, f. 6. júlí 1944 hjúkrunar-
fræðingur, gift Jóni Þór Hannessyni
framkvæmdastjóra og eiga þau tvo
syni ogÁrni Ólafur, f. 12:desember
1946 viðskiptafræðingur, kvæntur
Sólveigu Hannam, skrifstofumanni
og eiga þau einn son.
Foreldrar Kirstínar eru: Lárus
Sigurbjörnsson, f. 22. maí 1903, d.
5. maí 1974, rithöfundur og borgar-
skjalavörður og kona hans Sigríður
Árnadóttir, f. 20. júlí 1911, d. 7. ágúst
1988. Lárus var sonur Sigurbjörns,
prets á Elliheimilinu Grund, Gísla-
sonar b. á Neðraási Sigurðssonar
b. á Miðgrund Gíslasonar b. á Kálfs-
stöðum Ásgrímssonar b. á Ásgeirs-
brekku Þorlákssonar b. á Ásgeirs-
brekku Jónssonar, ættföður Ás-
geirsbrekkuættarinnar. Móðir Gísla
á Neðraási var Sigríður Þorláks-
dóttir, systir Þorbjargar ömmu Stef-
áns Stefánssonar skólameistara,
fóður Valtýs, ritstjóra. Móðir Sigur-
bjarnar var Kristín Björnsdóttir b.
á Syðri-Brekkum Ingimundarsonar.
Móðir Björns var Sesselja Gísladótt-
ir b. á Miklahóli Hannéssonar prests
á Staðarbakka Þorlákssonar sýslu-
manns á ísafirði Guðbrandssonar
sýslumanns á Lækjarási Arngríms-
sonar lærða vígslubiskups á Mel-
stað Jónssonar.
Móðir Lárusar Sigurbjörnssonar
var Guðrún, rithöfundur og alþing-
ismaður í Rvík Lárusdóttir prófasts
og alþingismanns á Valþjófsstað
Halldórssonar prófasts og alþingis-
manns á Hofl í Vopnafirði Jónsson-
ar, bróður Guðrúnar, ömmu Sveins
Björnssonar forseta. Móðir Guðrún-
ar var Kirstín Pétursdóttir organ-
leikara og alþingismanns í Rvík
Guðjohnsens og konu hans Guðrún-
ar Lauritzdóttur Knudsens kaup-
manns í Rvík, ættföður Knudsens-
ættarinnar. r
Sigríður var dóttir Árna, b. í Hlíð-
arendakoti í Fljótshlíð Ólafssonar
b. í Hlíðarendakoti, bróður Erlings,
föður Þorsteins skálds. Ólafur var
sonur Páls b. á Kvoslæk Ólafssonar
b. á Kvoslæk Arnbjarnarsonarb. á
Kvoslæk Eyjólfssonar, ættföður
Kvoslækjarættarinnar. Móðir Sig-
ríðar var Guðríður Jónsdóttir b. á
Kirstín Guðríður Lárusdóttir.
Hofakri í Hvammssveit Jónssonar
og konu hans Sigríðar Gísladóttur.
Kirstín er erlendis en tekur á móti
géstum 30. maí á Logalandi 6, kl.
17-20.
Gunnar Öm Ólafsson
Gunnar Örn Ólafsson fulltrúi, Hlé-
gerði 4, Kópavogi, verður fimmtug-
ur á morgun. Gunnar Örn er fæddur
í Reykjavík og lauk prófl frá Versl-
unarskóla íslands 1960. Hann var í
námi í The London School of For-
eign Trade 1962 og starfsmanna-
stjóri Jöklahf. 1962-1968. Gunnar
var fulltrúi hjá Loftleiðum hf. 1968-
1970 og forstöðumaður Lífeyrissjóðs
Málm- og skipasmiða 1970-1985.
Hann hefur verið fulltrúi hjá ríkis-
skattstjóra frá 1985. Gunnar kvænt-
ist 10. desember 1965 Soffíu Péturs-
dóttur, f. 13. apríl 1941, verslunar-
manni. Foreldrar Soffíu eru Pétur
Ólafsson, forstjóri ísafoldar, og
konu hans, Þórunn Magnúsdóttur
Kjaran. Börn Gunnars og Soffíu eru
Þórunn, f. 25. nóvember 1963, bókari
í Kópavogi, gift Jóhanni F. Helga-
syni vélfræðingi; María, f. 12. nóv-
ember 1967, tónlistakennari, sam-
býlismaður hennar er Eiríkur
Stephensen tónlistarnemi, ogPétur
Örn, f. 1. október 1970, nemi. Systk-
ini Gunnars eru Jón Karl, f. 19. sept-
ember 1932, hrl. í Rvík, kvæntur
Ólöfu Björnsdóttur; Guðjón, f. 24.
október 1936, aðalbókari í Rvík,
kvæntur Áslaugu Sigurgrímsdóttur
húsmæðrakennara og Ólafur Helgi,
f. 20. júní 1945, viðskiptafræðingur
í Rvík, kvæntur Margréti Thorlaci-
us.
Foreldrar Gunnars eru Ólafur
Helgi Jónsson, lögfræðingur og
framkvæmdastjóri Alliance hf., og
kona hans, Sigþrúður Guðjónsdótt-
ir. Föðursystkini Gunnars eru Unn-
ur, gift Finnboga Kjartanssyni,
kaupmanni í Rvík, Ásta Lára, gift
Othari Ellingsen, kaupmanni í Rvík;
Ágústa, gift Friðþjófi Johnson,
verslunarmanni í Rvík, og Ólafía,
gift Thor Hallgrímsson, verslunar-
manni í Rvík. Ólafur var sonur
Jóns, bankastjóra í Rvík, Ólafsson-
ar, b. í Sumarliðabæ í Holium, Þórð-
arsonar. Móðir Jóns var Guðlaug
Þórðardóttir, b. í Sumarliðabæ,
Jónssonar, og konu hans, Helgu
Gunnarsdóttur, b. í Hvammi á
Landi, Einarssonar. Móðir Helgu
var Kristín Jónsdöttir, b. á Vindási,
Bjarnasonar, b. og hreppstjóra á
Víkingslæk, Halldórssonar, ætt-
fóöur Víkingslækjarættarinnar.
Móðir Ólafs Helga var Þóra Hall-
dórsdóttir, b. á Miðhrauni í Mikla-
holtshreppi, Guðmundssonar, b. í
Gröf, Þórðarsonar, b. á Hjarðarfelli,
Jónssonar, ættföður Hjarðarfells-
ættarinnar. Móðir Þóru var Elín
Bárðardóttir, b. á Flesjustööum, Sig-
urðssonar. Móðurbræður Gunnars
eru dr. Oddur, fyrrv. sendiherra, og
Guðmundur, arkitekt. Sigþrúður
var dóttir Guðjóns, múrarameistara
í Rvík, bróður Guðmundar bóksala.
Guðjón var sonur Gamalíels, b. í
Hækingsdal í Kjós, Oddssonar, b. á
Indriðastöðum, Helgasonar. Móðir
Gamalíels var Vilborg, systir Sig-
urðar, hreppstjóra á Bakka, föður
Þórðar á Fiskilæk, föður Matthíasar
Þjóðminjavarðar, og Runólfs,
langafa Ragnars Arnalds alþingsim-
anns. Vilborg var dóttir Þórðar, b. "
oghreppstjóra á Súlunesi, Jónsson-
ar, og konu hans, Sigríðar Gísladótt-
ur. Móðir Sigþrúðar var María Guð-
mundsdóttir, b. og næturvarðar á
Bergsstöðum í Rvík, bróður ísaks,
afa Sigurðar Þórðarsonar tón-
skálds. Guðmundur var sonur Ingi-
mundar, b. á Seli í Grímsnesi, Stur-
laugssonar, og konu hans, Katrínar
Guðmundsdóttur. Móðir Maríu var
Guðrún Magnúsdóttir, b. á Norður-
koti í Hraunsgerðishreppi, Egils-
sonar, og konu hans, Ragnheiðar
Jónsdóttur, b. í Núpstúni, Björns-
sonar, b. í Vorsabæ, Högnasonar,
lögréttumanns á Laugarvatni,
Björnssonar, bróður Sigríöar, móð-
Gunnar Örn Ólafsson.
ur Finns Jónssonar, biskups í Skál-
holti. Móðir Ragnheiöar var Guðrún
Guðmundsdóttir, prests á Kálfat-
jörn, Magnússonar, prests á Þing-
völlum, Sæmundssonar, prests í
Miklabæ, Magnússonar. Móðir Sæ-
mundar var Þórdís (Snæfríður ís-
landssól), Jónsdóttir, biskups á Hól-
um, Vigfússonar. Gunnar dvelur nú
erlendis.
Studioblóm
Þönglabakka 6, Mjódd,
norðan við Kaupstað,
simi 670760
Blómaskreytingar
við öll
tækifæri.
Sendingarþjónusta.
/ Bifhjólamenn \
hafa enga heimild
til að aka hraðar
en aðrir!