Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1990, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 1990.
Fréttir____________________________________________________________________________dv
Biðin eftir hjarta- og lungnaígræðslu að styttast:
„Hlýhugur vina og vanda-
manna ómetanlegur í biðinni“
Attreð Böðvarsson, DV, London;
„Ég er nokkuð máttfarin eftir hjarta-
þræðinguna en er hress að öðru
leyti. Ég bíð bara þohnmóð eftir aö
vera keyrð í skyndingu inn á skurð-
stofuna þegar rétt líffæri fmnast,"
sagði Svala Auðbjörnsdóttir, hús-
móðir frá Akranesi, þar sem hún
hggur á Bromton-sjúkrahúsinu í
London.
Svala hefur nú beöið í níu vikur á
Bromton-sjúkrahúsinu eftir því að
handa henni finnist hjarta og lungu.
Hún er með sjaldgæfan lungnasjúk-
dóm sem gerir það að verkum að
lungun vinna ekki nægilegt súrefni.
Því verður hjartað að slá hraðar sem
aftur veldur þvi að það stækkar.
Svala fór í hjartaþræðingu á
fimmtudaginn í síðustu viku og þá
kom í ljós að allar aðstæður fyrir
væntanlega hjarta- og lungnaaðgerð
eru mjög góðar. Svala er mjög fram-
arlega í forgangsröðinni og útlit fyrir
að biðin fari að styttast.
Snorri Ólafsson, maður Svölu, er
henni til halds og trausts í London.
Sagði hann að öll fjölskyldan biði
eftir að aðgerðinni lyki og að Svala
kæmist heim á ný.
„Ég vil þakka sérstaklega öll bréfin
og kortin sem ég hef fengið frá vinum
og vandamönnum. Þessi hlýhugur
er ómetanlegur í þessari erfiðu bið-
stöðu. Þá vil ég skila sérstökum
kveðjum til barna og bamabarna.
Ég hlakka til að sjá þau sem allra
fyrst.“
Svala ásamt dóttur sinni, Þorbjörgu, á Bromton-sjúkrahúsinu í London í
júní. Snorri, maður Svölu, er nú hjá henni á sjúkrahúsinu. DV-mynd AB
Sveitarstjóri ráðinn í Skútustaðahrepp:
Lögreglan I Reykjavik hefur skorið upp herör gegn bílstjórum sem aka ytir á rauðu Ijósi. Ómerktum lögreglubilum
hefur verið komið fyrir við nokkur gatnamót borgarinnar og í þeim sitja lögreglumenn og fylgjast með því hvort
menn aka yfir á rauðu. í nokkurri fjarlægö bíður svo lögreglubill sem stoppar þá sem eru svo bíræfnir að aka yfir
á rauða Ijósinu. Vörubíllinn á myndinni slapp þvi ekki eins auðveldlega og hann hélt, hann var stoppaður nokkru
siðar og ökumanninum verður gert að greiða sekt fyrir brot sitt. -S
Þetta er allt skrípaleikur
- segir irdnirihlutafulltrm
„Það er mikill hiti í mönnum vegna
þessa. Hann sótti ekki um eins og
hinir. Þetta er allt skrípaleikur og
óhæfa gagnvart þeim sem sóttu um
starf sveitarstjóra," sagði Ólöf Hall-
grímsdóttir, en hún á sæti í sveitar-
stjóm Skútustaðahrepps. Oddviti
hreppsins, Sigurður Rúnar Ragnars-
son, hefur verið ráðinn sveitarstjóri.
í sveitarstjórn Skútustaðahrepps
eru fimm fulltrúar. Þrír af F-hsta,
einn af K-lista og einn af H-lista. Sjö
sóttu um starf sveitarstjóra, einn dró
umsókn sína til baka. Sigurður
Rúnar var ekki meðal umsækjenda.
Á fundinum þegar Sigurður Rúnar
var ráðinn sveitarstjóri gengu
minnihlutafulltrúarnir af fundi.
„Við gerðum það vegna þess aö
upphaflega tillaga F-hstans var að
auglýst yrði eftir sveitarstjóra. Um-
sækjendumir voru ágætisfólk. Á
fundinum voru þau kynnt htihega,
þeim var ekki hafnað. Síðan var lesin
upp tihaga, frá F-listanum, um að
Sigurður Rúnar Ragnarsson yrði
ráðinn sveitarstjóri. í fundarsköpum
fyrir Skútustaðahrepp segir að öh
gögn og tillögur, sem skipta máh,
skuh send með fundarboðum. Vegna
þess hvernig staðið var að þessu
gengum við af fundi þegar umræðum
um þetta mál var lokið,“ sagði Ólöf
Hallgrímsdóttir.
„Ég er hissa á þessari ákvörðun og
tel að það hafl ekki verið efni th
hennar. Mér líst ekki á framhaldið
ef minnihlutinn ætlar að ganga af
fundum ef hann fær ekki vilja sínum
framgengt. Þó auglýst sé eftir sveit-
arstjóra fylgir því ekki skuldbinding
um að einhver umsækjenda verði
ráðinn. Það var ákvörðun meirihlut-
ans að ráða mig í starfið. Það er al-
gengt að þetta form sé haft á - það
er að hafa póhtískan sveitarstjóra.
Það hefur gefist vel, tíl dæmis í
Reykjavík. Þrátt fyrir að samstarfið
hafi farið svona af stað vonast ég eft-
ir góðu samstarfi við minnihlutann.
Við þurfum frekar samvinnu en
sundrung í þessu sveitarfélagi,"
sagði Sigurður Rúnar Ragnarsson,
oddviti og sveitarstjóri í Skútustaða-
hreppi.
-sme/FB
Landsvirkjun heimiluð lántaka?
Ákvörðunin
óháð staðarvali
- segir JónSigurðssoniðnaðarráðherra
„Þessi ákvörðun er alveg óháð
staðarvali," sagði Jón Sigurðsson
iðnaðarráðherra í morgun. Stjórn
Landsvirkjunar hefur óskað eftir að
ríkisstjórnin gefi formlegt svar um
hvort Landsvirkjun fá að taka erlend
lán til að hefia undirbúning virkjana-
framkvæmda vegna álvers.
Framsóknarflokkurinn fundaði í
gær og samþykkti að heimila Lands-
virkjun að taka 100 mihjóna króna
lán vegna undirbúningsfram-
kvæmda næstu tvo mánuðina. Stein-
grímur Hermannsson sagði að þing-
menn flokksins væru þeirrar skoð-
unar aö álverið skyldi staðsett utan
höfuðborgarsvæðisins vegna
byggðasjónarmiða.
Tahö er að Alþýðubandalagið geri
svipaða krofu en ljóst er að andstað-
an þar er meiri. Alþýðuflokkurinn
lýsti fullum stuðningi við stefnu iðn-
aðarráðherra og Borgaraflokkurinn
mun funda um máhð í dag.
Samkvæmt forkönnun er talið að
Keilisnes sé hagkvæmasti kosturinn
varðandi staðsetningu álvers. Talað
er um að þar geti munað 120 til 240
milljónum króna. Ef þessar kostnað-
aráætlanir reynast réttar er ljóst að
erfitt verður að koma til móts við
byggðasjónarmið nema stjórnvöld
grípi þar inn í. Endanlegt staðarval
er háð samningum milli ríkisstjórn-
arinnar og Atlantal-hópsins.-pj
Rikisstjóm:
Glímt við vísitöluna
Ríkisstjómin tók ekki ákvörðun
um aðgerðir til lækkunar fram-
færsluvísitölunnar í gær. Á mánudag
verður fundur með Alþýðusamband-
inu og vinnuveitendum og búist er
við ákvöröun fljótlega upp úr því.
Eins og DV hefur skýrt frá er einkum
rætt um að flýta afnámi virðisauka-
skatts á bókum, frestun á hækkun
bensíngjalds og lækkun jöfnunar-
gjalds á innflutningi. Hugmyndir um
hækkun gengis hafa fengið mjög lít-
inn hljómgrunn.
-gse
Hálendisvedur í útvarpi
Veðurstofan hefur tekiö upp sér-
staka þjónustu við ferðamenn yfir
sumartímann. Hún er fólgin í því að
tvær nýjar veðurstöðvar senda Veð-
urstofunni skeyti og veðurhorfur
fyrir hálendið. Verða þær lesnar í
útvarpi og munu heyrast í símsvara
Veðurstofunnar.
Nýju veðurstöðvarnar eru á
Sprengisandsleið, við suðurenda
Stóravers, og við Snæfehsskála, milli
Snæfells og Sauðahnúka.
Veðurhorfur fyrir hálendiö verða
lesnar með útvarpsfréttum klukkan
8 og 9 á morgnana og í enskum frétta-
tíma klukkan 7.30. Þá má hringja í
símsvara í síma 99 06 01, fyrir skífu-
síma, og 99 06 001, fyrir takkasíma.
-hlh
Krossanes verksmiðj an:
Niðurstöðu að vænta í dag
Vogar á Vatnsleysuströnd:
Kona ráðin sveitarstjóri
Eigendur Krossanesverksmiðj-
unnar á Akureyri funduðu um fram-
tíö hennar í gærdag en án þess að
niðurstaða fengist. Annar fundur er
boðaður eftir hádegi í dag og er þá
að vænta endanlegrar niðurstöðu.
Tvö sjónarmið eru ríkjandi í um-
ræðunni: Annaðhvort að leggja fiár-
magn í verksmiðjuna til framtíðar
og taka áhættuna af því eða að hverfa
frá enduruppbyggingu hennar, selja
hluta eignanna og breyta verksmiðj-
unni í fiskimjölsverksmiðju.
Krossanesverksmiðjan eyðilagðist
í miklum bruna um áramót. Endur-
uppbygging hefur átt sér stað síðan
en kostnaðaráætlanir hafa farið úr
böndunum. Akureyrarbær er lang-
stærsti hluthafinn.
-hlh
Jóhanna Reynisdóttir hefur verið
ráðin sveitarstjóri Vatnsleysu-
strandarhrepps. Umsækjendur voru
átján. Jóhanna hefur tekið til starfa.
Jóhanna var útibússtjóri Verslun-
arbankans og síðar íslandsbanka í
Keflavík. Hún er 32 ára gömul og
gift Ólafi Ólasyni múrarameistara.
Á síðasta kjörtímabili voru aðeins
þrjár konur sveitarstjórar, á Raufar-
höfn, Grenivík og Súðavík. Engin
kona var bæjarsfióri og engin kona
hefur verið ráðin bæjarstjóri á þessu
kjörtímabili. -sme