Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1990, Page 8
8
FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 1990.
Útlönd
Frá jarðskjálftanum mikla { San Francisco i október sfðastliðnum.
Simamynd Reuter
Svo virðist sem Kalifomíubúar hali ekki einvörðungu hjúfrað sig sam-
an í myrkrinu er rafmagnið fór af í San Francisco í kjöifar jarðskjálílans
mikia í október siðastliðnum. Eins og allir muna greip um sig mikil skelf-
ing er jarðskjálftinn mikli reið yíir og hús tóku að hrynja. Rafmagns-
iaust var um nokkum tíma í borginní og nærliggjandi svæðum.
Læknir í San Francisco telur rafmagnsleysið og myrkrið því samfara
hafi haft áhrif á mannfjölgun í borginni. Nú sé svo komið, rúmum niu
mánuöum síðar, aö bamsí'æðingar em i algjöra hámarki. Um 25 prósent
fleiri fæöingar eru um þessar mundir en nokkum tíma áður. Og enga
aðra skýringu finnur læknirinn á þessari fjölgun fæöinga en myrkriö í
kjðlfar jarðskjálftans.
Simamynd Reuter
Heimsókn framkvæmdastjóra NATO, Atlantshafsbandalagsins, Man-
freds Wörner, tii Sovétrikianna um helgina er söguleg stund en það verð-
ur í fyrsta sinn sem framkvæmdastjórí hins vestræna hemaöarbandalags
fer þangað í opinbera heimsókn. Wörner hefur í farteskinu friðaryfirlýs-
ingu frá nýafstöðnum leiötogafundi NATO og mun reyna að fullvissa
Gorbatsjov Sovétforseta um friðarvijja vestrænna ríkja.
Á fundum sínum með sovéskum ráöamönnum mun Wömer einnig
leggja áherslu á aö aöild sameinaðs Þýskalands aö Atlantshafsbandalag-
inu ógni ekki öryggishagsmunum Sovétríkjanna.
„Pílumadurinn(í fundinn
Lögreglan í New York telur sig haía haft hendur i hári „pílumanns-
ins" svokallaöa sem gengið hefur um götur Manhattan og blásið örvum
í afturenda ungra kvenna.
Maðurinn, sem grunaður er um verknaðina, er 33 ára sendisveinn og
er hann sagður hafa gefið sig sjálfur fram við lögregiuna. Hann hefur
ónáðað 52 konur með fyrrgreindum hætti á siðustu vikum.
Lögreglan segist ekki hafa neínar skýringar á athæfinu.
Pólskar fjölskyldur fá aðstoð
Búist er við að þriöja hver fjöl-
skylda I Póliandi muni fá eínahags-
aðstoð frá ríkisstjórn landsins á
næstunni en aðstoðin er liður í að
reyna að rainnka erfiðleika þegn-
anna eftir að mikið spamaðartíma-
bil og skömmtunarkerfi hefur ríkt.
Ráðgert er aö um þrir milljaröar
íslcnskra króna verði settir í þetta
verkefni á þessu ári.
Samkvæmt opinberam tölum
hefur afkoma Pólverja versnaö um
30 prósent á síðasta hálfa ári í kjöl-
far efnahagsaðgerða stjórnvalda
sem einkum hafa beinst aö því að
minnka verðbólguna. Aðgerðirnar
fólust meöal annars í því að gas,
hitunarkostnaður og leiga var
hækkuö um 50-100 prósent.
á
Pólskar fjölskyldur eiga von
efnahagsaðstoð á næstunní.
Símamynd Reuter
Jarðskjátftinn 09 fæðingar
Boris Jeltsin, til vinstri, og Mikhail Gorbatsjov, leiötogi sovéska kommúnistaflokksins. Símamynd Reuter
Sögulegur dagur á þingi sovéskra kommúnista:
Flokkurinn klofinn
- róttækir hyggjast stofna eigin flokk og Jeltsin kveður
Sovéski kommúnistaflokkurinn
klofnaði í gær í fyrsta sinn í meira
en sjötíu ár. Róttækir umbótasinnar,
félagar í Bandalagi lýöræöissinna,
sögðu sig úr flokknum og segjast
munu setja á laggimar eigin stjóm-
málaflokk. Þá tilkynnti Boris Jeltsin,
forseti rússneska lýðveldisins, áform
sín um aö segja sig úr flokknum.
Nokkrir fulltrúa á yfirstandandi
þingi flokksins í Moskvu spáöu því
aö brottfor Jeltsins myndi leiða til
þess aö fjöldi umbótasinna myndi
feta í fótspor Jeltsins og segja sig úr
flokknum.
Klofningurinn í gær er áfall fyrir
Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna og
leiðtoga sovéskra kommúnista, sem
fréttaskýrendur sögðu í gær að hefði
tekist að snúa yfirstandandi flokks-
þingi sér í hag. Þetta áfall kom aðeins
örfáum klukkustundum eftir að
hann hrósaði sigri í baráttunni viö
harðlínumenn og fékk kjörinn á
flokksþinginu umbótasinna og
stuðningsmann sinn í næstvalda-
mesta embætti flokksins, embætti
varaframkvæmdastjóra. Viðbrögð
forsetans vora mild. „Þetta er rök-
rétt framvinda mála,“ sagði hann.
Yfirlýsing Jeltsins um úrsögn úr
flokknum kom mörgum hinna tæp-
lega fimm þúsund þingfulltrúa á
óvart þrátt fyrir að hann hefði sagst
vera aö íhuga úrsögn fyrir nokkrum
vikum. Hann kvaðst ætla að einbeita
sér að því að vera forseti rússneska
lýðveldisins, stærsta og jafnframt
áhrifamesta allra fimmtán lýðvelda
landsins. „Ég verö að láta að vilja
fólksins," sagði Jeltsin sem verið
hefur félagi í sovéska kommúnista-
flokknum í tuttugu og niu ár. Þessi
ákvörðun er hápunktur tveggja ára
baráttu hans við flokksræðið eða allt
frá því Gorbatsjov rak hann úr
stjórnmálaráðinu vegna róttækra
skoðana.
Viðbrögð þingfulltrúa við tilkynn-
ingu Jeltsin vora í fyrstu alger þögn.
Nokkrir hristu höfuöið, síðan mátti
heyra bæði lófatak og margir hróp-
uðu „hneyksli". Jeltsin sýn'di engin
svipbrigði heldur snerist á hæli og
gekk út úr fundarsalnum.
Klukkustundu síðar reis einn for-
ystumanna Bandalags lýðræðisafla,
hóps umbótasinna sem starfað hefur
innan sovéska kommúnistaflokks-
ins, á fætur og hvaddi sér hljóðs á
þinginu. Vyacheslav Shostakovsky
tilkynnti íírsögn félaga í Bandalagi
lýðræðisafla úr flokknum og áform
þeirra að stofna nýjan stjórnmála-
flokk. Shostakovsky sagði að vonir
félaga í Bandalaginu um að þingið
samþykkti róttækar breytingar á
markmiðum og starfi flokksins hefðu
því miður ekki ræst. Bandalagið
hafði hótað klofningi ef þingið sam-
þykkti ekki kröfur þess um breyting-
ar.
Ekki eiga nema um eitt hundraö
af fjögur þúsund og sjö hundruð full-
trúum á þinginu aðild að Bandalag-
inu en forystusveit þess segist njóta
stuðnings stórs hluta félagsmanna
kommúnistaflokksins. Þaö lá þó ekki
ljóst fyrir þegar í stað hvort úrsögnin
úr flokknum nyti stuðnings allra fé-
laga í Bandalaginu.
Klofningurinn í gær kom um það
leyti er flokksfélagar voru að íhuga
tilnefningar til setu í miðstjórn
flokksins, æðstu samkundu hans.
Brátt líður að lokum þessa sögulega
þings sovéska kommúnistaflokksins.
Reuter
Stjómmál á Haiti:
Spenna fer vaxandi
Ráðgjafanefnd Haiti kom saman til
fundar í gær til að ræða vaxandi
spennu í stjórnmálum landsins.
Þetta er í fyrsta sinn sem nefndin
kemur saman eftir að skotið var á
fulltrúa hennar í síðasta mánuði.
Ráðgjafanefndin krefst þess að Ertha
Pascal Trouillot, sem er forseti lands-
ins til bráðabirgða, láti handtaka tvo
fyrrverandi ráðherra landsins sem
sneru til baka úr sjálfskipaðri útlegð
í síðustu viku. Þeir vora báðir mjög
tengdir fyrram einræðisherra Haiti
Jean-Claude Duvaher
Einnig er þess krafist -aö forsetinn
fari eftir samkomulagi frá því í mars
er ný ríkisstjóm var sett á laggirnar
en hennar verkefni var aö leiöa Ha-
iti í átt til lýðræðis. Samkvæmt sam-
komulaginu átti ráögjafanefndin,
sem skipuö er fulltrúum fylkjanna
og efnhagslifsins, og forsetinn að fara
saman með völdin í landinu. En strax
skapaðist mikil spenna þar í milli og
hefur ástandið farið síversnandi.
í yfirlýsingu frá ráðgjafanefndinni
segir að ef forsetinn fari ekki aö þess-
um kröfum fyrir hádegi á mánudag
muni þjóðin krefjast þess aö hún láti
af völdum.
Herta Trouillot er gagnrýnd fyrir
að vera handbendi stuðningsmanna
einræðisherrans fyrrverandi sem
reyna að koma í veg fyrir lýöræðis-
þróun í landinu.
Reuter
Herta Trouillot, sem var sett forseti Haiti til bráðabirgða, sætir nú mikilli
gagnrýni. Símamynd Reuter