Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Page 3
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1990.
3
DV
Mývatnssveit:
Dimmuborgir liggja
undir skemmdum
Fréttir
- segirFriðrikDagur Amarson landvöröur
„Margir vinsælustu feröamanna-
staðimir við Mývatn hafa látið mjög
á sjá á síðustu árum, svo sem
Dimmuborgimar, Skútustaðagíg-
amir, Höfðinn og fleiri staðir. í sum-
ar er búist við að hingað komi á milli
120 og 140 þúsund ferðamenn. Hins
vegar er lítið sem ekkert gert til að
byggja svæðið upp svo það geti tekið
við öllum þessum flölda ferða-
manna," segir Friðrik Dagur Arnar-
sons, iandvörður við Mývatn.
„Skútustaðagígamir em einn þess-
ara staða. Þar vom farnir að mynd-
ast djúpar brautir utan í gígunum
og valda útlitslýtum á þeim. Það
þurfti því að grípa til róttækra að-
gerða til að spoma við þeirri þróun.
Það var því sótt um styrk til Plast-
pokasjóðs Landverndar og nú er búið
að byggja tröppu upp á einn gíginn
og búið að setja trépall til að varna
því að gjallið vaðist niður. Það er
hins vegar ljóst að það þarf að gera
eitthvaö meira til að spoma við frek-
ari eyðileggingu þarna. Það er lélegt
efni í gígbörmunum sem molnar auð-
veldlega niður og fer þá í dust sem
fýkur í burtu. Sumir gigbarmarnir
hafa af þessum sökum lækkað um
10 sm á nokkrum árum.
í Dimmuborgum hafa verið af-
markaðir göngustigar með köðlum
og þar hefur verið komið fyrir korti
sem sýnir gönguleiðir. Á því er og
að finna útskýringar á því hvernig
Borgirnar mynduðust og hvernig
beri að umgangast landið. Það em
flestir ferðamenn sem virða þær
umgengnisreglur sem settar hafa
verið en það eru alltaf til undantekn-
ingartilvik og alltaf einhverjir sem
þurfa endilega að ganga utan
merktra göngubrauta.
En átroðningurinn í Borgirnar hef-
ur verið slíkur undanfarin ár aö það
er ekki hægt að neita því að þær
liggja undir skemmdum.
Afmörkuðu göngustígarnir eru
stöðugt að breikka sem stafar af því
að ofan á þeim er ekki nema um 10
til 15 sm moldarlag. Það hvérfur svo
smátt og smátt og loks er fólk farið
að ganga á ósléttu hrauni. Þegar svo
er komið fer fólk að ganga fyrir utan
göngubrautimar og þær breikka á
kostnað þess gróðurs sem þarna er.
Það hefur yerið talað um að selja
inn í Dimmuborgirnar og láta hvern
og einn borga 50 til 100 krónur í að-
gang og nota þá peninga til að byggja
upp aðstöðu í Borgunum. Þær hug-
myndir hafa hins vegar falliö í grýtt-
an jarðveg.
Stjom SVR:
Síðustu ferðir verða f arnar
„Við höfum ákveðið að samþykkja
að fjarskiptakerfi vagnanna verði
tengt við fjarskiptakerfi lögreglunn-
ar,“ sagði Sveinn Andri Sveinsson,
formaður stjórnar Strætisvagna
Reykjavíkur, eftir stjórnarfund sem
haldinn var í gær.
Sveinn Andri sagði að með þessu
væri ákveðið að vagnamir ækju
samkvæmt áætlun í Breiðholtshverfi
um helgar.
Þessi ákvörðun stjórnar Strætis-
vagna Reykjavíkur er gerð í kjölfar
átaka strætisvagnabílstjóra og ung-
menna í Breiðholti um síðustu helgi.
Hér eftir verður fjarskiptakerfi
strætisvagnanna tengt beint til lög-
reglu. Þá verður unnið að því fá bein-
an síma milli stjómstöðvar SVR og
lögreglu. -sme
FALLEGAR
OG
j STÍLHREINAR
1 BAÐINNRETTENGAR
FRÁCSGÖfe
rae BÆJARHRAUNI 8
SÍMI 651499 OPIÐ LAUGARD. 10-16
Eg hef verið því meðmæltur að
malbika göngustíga á svæðinu en
það em margir sem eru á móti því
og telja það ekki fallegt en ég hef oft
spurt: Er fallegra að láta landið troð-
ast út? Það er ljóst aö landið þolir
ekki alla þessa umferð og það verður
að grípa til einhverra aögerða. Fyrir
það fyrsta þyrfti að skipuleggja
hvemig á að nota Mývatnssvæðið,
hvar eigi að vera gönguleiðir, hvar
megi aka og hvar eigi að vera alger
friðlönd og svo framvegis. Svo þarf
að koma upp upplýsingamiðstöð fyr-
ir ferðamenn þar sem þeir geta leitað
sér upplýsinga um Mývatnssvæðið.
Meðan hér er engin almennileg upp-
lýsingamiðstöð er langt í land með
að ferðaþjónusta hér sé með ein-
hverjum menningarbrag. Það er
sorglegt að mönnum virðist standa
allt of mikið á sama um landvernd á
þessu svæði. Það eina sem menn
hugsa um er að fá hingað fleiri og
fleiri ferðamenn án þess að gera
nokkurn skapaðan hlut til að byggja
landið upp á þann hátt að það geti
tekið við öllu þessu flæði fólks,“ seg-
ir Friðrik Dagur.
-J.Mar
VINSÆLIR VINNUÞJARKAR
sendibíll
Verð kr. 723.000,- stgr. m/VSK
Verð kr. 580.000,- stgr. án/VSK
NISSAN King Cab
Vél 2,4 lítra, bensín, 5 gíra - aflstýri -
vönduð innrétting
Verð kr. 1.386.000,- stgr. m/VSK
Verð kr. 1.114.000,- stgr. án/VSK
Einnig fáanlegur með 2,5 lítra dísilvél. Verð
kr. 1.507.000,- stgr. m/VSK
Verð kr. 1.210.000,- stgr. án/VSK
Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 14-17
- réttur bíll
á réttum stað
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2, sími 67-4000