Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1990, Síða 38
50
LÁUGARDAÖUR 18. AöUST 1990. '
Afmæli dv
Halldóra Gunnarsdóttir
HaUdóra Gunnarsdóttir, Brunn-
um, Suðursveit, Austur-Skaftafells-
sýslu, er sextug í dag.
Halldóra er fædd á Vagnsstöðum
í Suðursveit og ólst þar upp. Hún
gekk í farskóla og unglingaskóla á
heimaslóðum. Hún lauk prófí í Hús-
mæðraskóla Þingeyinga á Laugum
1952. Halldóra var matráðskona við
Hrollaugsstaðaskóla í 14 vetur og
við matreiðslustörf hjá Vegagerð
ríkisins flest sumur 1953-1961. Hún
var búsett á Kálfafelh í Suðursveit
1956-1980 en síðan á Brunnum í
sömu sveit. Hún var ein af stofnend-
um kvenfélagsins Óskar í Suður-
sveit 1946 og var í stjóm þess félags
í áratugi. Einnig var hún í stjóm
Ungmennafélgasins Vísis í tæp þrjá-
tíu ár og í stjórn Menningarsam-
bands Austur-Skaftafellssýslu og
slysavamadeildar Suðursveitar um
tíma. í mörg ér var Halldóra í sókn-
arnefnd Kálfafellssóknar og í eftir-
töldum nefndum á vegum Borgar-
hafnarhrepps í mörg ár: Skólanefnd,
heUbrigðisnefpd, barnavamar-
nefnd, bókasafnsstjóm og kjör-
stjóm. Fyrr á ámm tók hún þátt í
leikstarfsemi í Suðursveit.
Halldóra giftist 21. apríl 1957
Bjama Bjamasyni, f. 14. maí 1889,
d. 16. apríl 1980, verkstjóra hjá Vega-
gerð ríkisins. Foreldrar Bjama vora
Bjami Jónsson frá Bfldsey í Snæ-
fellsnessýslu og kona hans, Herdís
Dagsdóttir.
Sonur HaUdóra og Bjama er:
Bjami Skarphéöinn Gunnar, f. 9.
maí 1955, verkamaöur á Höfn,
kvæntur Jónu Ingólfsdóttur frá
Grænahrauni, skrifstofustjóra í úti-
búi Landsbanka íslands á Höfn,
dóttir þeirra er Bjarney, f. 28. janúar
1989.
HaUdóra á tvö systkini. Bróðir
hennar er Þórarinn Guöjón, f. 5. fe-
brúar 1932, b. á Vagnsstöðum,
kvæntur Ingunni Jónsdóttur frá
Smyrlabjörgum. Dóttir þeirra er
Sigríður Lúcia og sambýlismaöur
hennar er Einar Hjalti Steinþórs-
son. Systir Halldóru er Guðný Val-
gerður, f. 24. október 1935, gift Sig-
urði Sigurbergssyni, b. á Stapa í
Nesjum, börn þeirra era: Sigurbjörg
meinatæknir, gift doktor Hjörleifi
Einarssyni; Sigríður Gunnþóra
skrifstofustjóri, gift Ingimar Birgi
Bjömssyni húsasmíðameistara;
Hallur sjómaöur; Sigurlaug Jóna
læknafulltrúi, gift Guðna Olgeirs-
syni námstjóra; Hulda Steinunn
verkakona, gift Jóni Ágúst Sigur-
jónssyni verkamanni; og Gísli
Skarphéðinn verkamaður.
Foreldrar Halldóru eru Gunnar
Jens Gíslason, f. 28. nóvember 1904,
b. á Vagnsstöðum, og kona hans,
Sigríður Þórarinsdóttir, f. 28. febrú-
ar 1893, d. 16. júlí 1969. Gunnar Jens
er sonur Gísla, b. á Vagnsstöðum,
Sigurðssonar. Móðir Gísla á Vagns-
stöðum var Rannveig Jónsdóttir, b.
í Borgarhöfn, Þorsteinssonar og
konu hans, Katrínar Jónsdóttur, b.
í Borgarhöfn, Þorleifssonar, b. Hól
í Landeyjum, Sigurðssonar, sýslu-
manns á Smyrlabjörgum, Stefáns-
sonar.
Móðir Gunnars, föður HaUdóra,
var Halldóra Skarphéðinsdóttir, b.
í Borgarhöfn, Pálssonar, b. í Amar-
drangi, Jónssonar, prests á Kálfa-
felU, Jónssonar. Móðir Páls í Amar-
drangi var Guðný Jónsdóttir, próf-
asts á Prestsbakka, Steingrímsson-
ar og konu hans, Þórunnar Hannes-
dóttur Schevings, sýslumanns á
Munkaþverá.
Móðir Skarphéðins Pálssonar var
Guðlaug Jónsdóttir, b. í Holti á Síðu,
Pálssonar og konu hans, Ragnhildar
Jónsdóttur, b. í SvínafelU, Ás-
mundssonar, b. í SvínafelU, Sveins-
sonar. Móðir Jóns var Ragnhildur
Jónsdóttir b. í SkaftafelU, Einars-
sonar.
Móðir Halldóru Skarpéðinsdóttur
var Þórann Gísladóttir, b. á Fagur-
hólsmýri, Gíslasonar. Móðir Gísla á
Fagurhólsmýri var Sigríður Lýðs-
dóttir, sýslmnanns í Vík, Guð-
mundssonar. Móðir Þórunnar
Gísladóttur var Jórunn Þorvarðs-
dóttir, b. Hofsnesi Pálssonar, b. Hofi,
Eiríkssonar, Jónssonar, b. á
HnappavöUum, Einarssonar.
Sigríður móðir Halldóra var dóttir
Þórarins, b. í Borgarhöfn, Gíslason-
ar, b. Breiðabólsstað, Þórarinsson-
ar, b. Breiðabólsstað, Jónssonar, b.
Uppsölum Þórarinssonar, b. Leiti,
Pálssonar. Móðir Jóns á Uppsölum
var Sigríður Brynjólfsdóttir, prests
á KálfafeUsstað, Guðmundssonar.
Kona Jóns Þórarinssonar var Krist-
ín Vigfúsdóttir, prests á Kálfafells-
stað, Benediktssonar. Móðir Gísla
Þórarinssonar á Breiðabólsstaö var
Þorbjörg Snjólfsdóttir, b. í Stóralág,
Eyjólfssonar og konu hans, Álf-
heiöar Hannesdóttir, b. MeðalfeUi,
Jónssonar. Móðir Þórarins í Borg-
arhöfn, afa Halldóru, var Guðný
Jónsdóttir, b. í Flögu á Mýrum,
Jónssonar. Móöir Jóns í Flögu var
Sigríður Steingrímsdóttir, b. á Núpi
á Berufjarðarströnd, Eiríkssonar.
Móðir Sigríðar Þórarinsdóttur,
móður Halldóru, var Guðríður
Jónsdóttir, b. á Kálfafelli, Þórðar-
sonar, b. á KálfafeUi, Steinssonar.
Móðir Jóns Þórðarsonar var Stein-
unn Jónsdóttir, b. í Borgarhöfn,
Bjömssonar, b. Reynivöllum,
Halldóra Gunnarsdóttir.
Brynjólfssonar, bróður Sigríðar í
Leiti. KonaBjörn Brynjólfssonar
var Bergljót Sigurðardóttir, systir
Þorleifs á HóU. Móðir Guðríðar í
Borgarhöfn var Sigríður Sigurðar-
dóttir, b. ReynivöUum, Arasonar,
b. SkálafelU, Sigurðssonar. Móðir
Sigríðar var Guðný Þorsteinsdóttir,
b. á FeUi, Vigfússonar og konu hans,
Ingunnar Guðmundsdóttur, b. á
KálfafeUi, Brynjólfssonar, bróöur
Björns á Reynivöllum.
Eyjólfur Einarsson
Eyjólfur Einarsson listmálari,
Framnesvegi 2, Reykjavík, varð
fimmtugur í gær, 17. ágúst.
Eyjólfur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk landsprófi
1956 og var tvo vetur í menntaskóla
eftir það. Á ungUngsárum stundaði
Eyjólfur nám í leirmótun hjá Ás-
mundi Sveinssyni og einnig í módel-
teikningu í Handíða- og myndhsta-
skólanum. Eyjólfur var við nám á
Listaakademíunni í Kaupmanna-
höfn 1962-1966. Hann var um árabil
sjómaður á togurum Bæjarút'gerðar
Reykjavíkur. Eyjólfur var í stjóm
Félags íslenskra myndUstarmanna
1984-1989.
Eyjólfur giftist 1978 Sigríði Jónu
Þorvaldsdóttur, f. 17. nóvember
1940, teiknikennara. Foreldrar Sig-
ríðar era Þorvaldur Guðjónsson,
netagerðarmaður á Akureyri, og
kona hans, Helga Sigmjónsdóttir.
Sonur Eyjólfs af fyrra hjónabandi
er Einar, f. 26. nóvember 1958, frí-
kirkjuprestur í Hafnarfirði, kvænt-
ur Eddu MöUer, f. 1. ágúst 1959,
skrifstofumanni og eiga þau tvö
börn.
Systkini Eyjólfs era Elsa, f. 16.
júlí 1935, gift Ólafi Ólafssyni lög-
fræðingi; Ámi, f. 13. júU 1943, fram-
kvæmdastjóri; Hflmar, f. 31. maí
1949, forvörður í Morkinskinnu,
kvæntur Kristínu Finnsdóttur
kennara; og systir Eyjólfs samfeðra
er Unnur, gift Ólafí Magnússyni
húsasmið.
Foreldrar Eyjólfs vora Einar Ey-
jólfsson, f. 1897, d. 1959, kaupmaður
í Reykjavík, og kona hans, Gyða
Ámadóttir, f. 1915, d. 1964. Einar var
sonur Eyjólfs „landshöföingja" odd-
vita í Hvammi á Landi, Guðmunds-
sonar, afa Eyjólfs Ágústsonar í
Hvammi og langafa Guðlaugs Berg-
manns, forstjóra Kamabæjar, Egils
Gr. Thorarensens, forstjóra Síldar-
rétta í Kópavogi, Guðlaugs Ægis
Magnússonar, forstjóri MM á Sel-
fossi, og Guðlaugs Tryggva Karls-
sonar hagfræöings; afkomandi
Markúsar Bergssonar sýslumanns
á Ögri, forföður Jóns Baldvins
Hannibalssonar og Jóhannesar
Nordals. Móðir Eyjólfs var Guðríð-
ur Jónsdóttir, b. í Gunnarsholti,
Jónssonar. Móðir Jóns var Guðríð-
ur Ámadóttir, prests í Steinsholti,
Högnásonar „prestafööur“ Sigurðs-
sonar, forföður Vigdísar Finnboga-
dóttur, Þorsteins Erlingssonar,
Tómasar Sæmundssonar og Jó-
hanns Hafsteins. Móðir Guöríðar
var Guðbjörg, systir Guðna, afa
Guðna Kristinssonar í Skarði. Guð-
björg var dóttir Jóns b. í Skarði á
Landi, Árnasonar, b. á Galtafelli,
Finnbogasonar, föðurbróður Jó-
hanns, langafa Ingólfs Margeirsson-
ar ritstjóra. Móðir Einars var Guð-
rún Kolbeinsdóttir, b. á Hlemmi-
skeiði á Skeiðum, Eiríkssonar, b. og
dbrm. á Reykjum, Vigfússonar, ætt-
föður Reykjaættar, langafa Sigur-
geirs Sigurðssonar biskups, föður
Péturs biskups. Móðir Guðrúnar
var Solveig Vigfúsdóttir, b. á Fjalli
á Skeiðum, Ófeigssonar, föður
Ófeigs ríka á Fjalli, afa Grétars Fells
og Tryggva Ófeigssonar útgerðar-
manns.
Gyða var dóttir Áma, prófasts á
Stóra-Hrauni, Þórarinssonar, jarð-
yrkjumanns á Stórahrauni á Eyrar-
bakka, Árnasonar, b. á Klasbarða í
Vestur-Landeyjum, Jónssonar.
Móöir Þórarins var Jórann, systir
Tómasar Fjölnismanns, afa Jóns
Helgasonar biskups og langafa
Helga Tómassonar yfirlæknis, föður
Ragnhildar alþingismanns. Jórunn
var dóttir Sæmundar, b. í Eyvindar-
holti undir Eyjafjöllum, Ögmunds-
sonar, prests í Krossi í Landeyjum
Högnasonar, „prestaföður" prests á
Breiðabólstað í Fljótshlíð, Sigurðs-
sonar, föður Böövars, langafa Þor-
valdar, afa Vigdísar Finnbogadótt-
ur. Móðir Sæmundar var Salvör
Eyjólfur Einarsson.
Sigurðardóttir, systir Jóns, afa Jóns
forseta. Móðir Árna á Stóra-Hrauni
var Ingunn, systir Helga, afa Ás-
mundar Guðmundssonar biskups
og langafa Ólafs Skúlasonar bisk-
ups. Ingunn var dóttir Magnúsar,
alþingismanns í Syðra Langholti,
Andréssonar og konu hans, Katrin-
ar Eiríksdóttur, systur Kolbeins á
Hlemmiskeiði
Móðir Gyðu var Elísabet, dóttir
Sigurðar, b. í Syðra-Skógarnesi,
Kristjánssonar, b. í Ytra-Skógar-
nesi, Gíslasonar. Móðir Kristjáns
var Katrín Bárðardóttir, systir
Halldóra, langömmu Daða, föður
Sigfúsar Daðasonar skálds. Móðir
Elísabetar var Guöríður Magnús-
dóttir, b. í Skógamesi, Jónssonar.
Móðir Magnúsar var Guðríður
Jónsdóttir Hólaráðsmanns Jóns-
sonar og konu hans, Guðrúnar
Benediktsdóttur, skálds á Stóra-
Þverá í Fljótum, Sigurðssonar. Móð-
ir Benedikts var Guðrún Þorsteins-
dóttir, b. í Stóru-Brekku í Fljótum,
Eirikssonar, ættföður Stóra-
Brekkuættarinnar, langafa Gunn-
laugs, afa Jóns Thoroddsens skálds.
Móðir Guöríöar var Kristín Sigurð-
ardóttir, b. í Skógamesi, Guð-
brandssonar, bróður Þorleifs, fóöur
Þorleifs, læknis í Bjarnarhöfn. Móð-
ir Sigurðar var Kristín Pétursdóttir,
prests í Miklaholti, Einarssonar,
langafa Péturs Eggerz, afa Kristjáns
Thorlaciusar, fyrrv. formanns
BSRB.
95 ára
Eggert V. Briem,
Suðurgötu 16, Reykjavík.
85ára
Rósa Halldórsdóttir,
Tjörnum, Saurbæjarhreppi,Eyja-
flarðarsýslu.
80 ára
Guðrún Guömundsdóttir,
Hraunteigi 12, Reykjavflc.
Ágúst Bjarnason,
Hringbraut 50, Reykjavík.
75 ára
Sigurlaug Valdemarsdóttir,
Blöndubyggð 6B, Blöndósi.
Jakob Ólafsson,
Háteigsvegi 8, Reykjavík.
Guðrún Þórðardóttir,
Grundargarði, 5 Húsavík.
70ára
Gunnar Jóhannsson,
Blikabraut 10, Kefiavik.
Oddný Þorkelsdóttir,
Skúlagötu 15, Borgamesi.
Rósalinda Magnúsdóttir,
Bakkastíg 17, Eskifirði.
Benedikt Sigfússon,
Beinárgerði, Vallahreppi, S-Múla-
sýslu.
Sessejj a Guðmundsdóttir,
Kleppsvegi6, Reykjavík.
Arahólum 6, Reykjavík.
Sigríður Hansdóttir,.
Sólheimum 27, Reykjavik.
Una Einarsdóttir,
Hafnarbyggð 15, Vopnafiröi.
50 ára
Grétar Jón Magnússon,
Bylgjubyggð22, Ölafsfirði.
Unnur Ragnarsdóttir,
Hamraborg 28, Kópavogi.
Hildur Sigursteinsdóttir,
Hafnarbraut 15, Hafiiarhreppi, A-
Skaftafellssýslu.
Þór Ingi Erlingsson,
Réttarbakka 21, Reykjavik.
Guðný Sigriður Elísdóttir,
Hrísalundi 10E, Akureyri.
40ára_______________
Ágústa S. Gunnlaugsdóttir,
Álftalandi 13, Reykjavík
Hrönn Rikharðsdóttir,
Lyngbarði 9, Hafnarfirði.
Lýður Guðmundsson,
Hraunbæ 63, Reykjavík.
Helgi Magnússon,
Álftahólum 6, Reykjavlk.
Helgi Ragnar Guðmundsson,
Vogagerði 17, Vatnsleysustrandar-
hreppi, Gullbringusýslu.
Gunnar Jónsson,
Sólgarði, Saurbæjarhreppi, Eyja-
Qarðarsýslu.
Guðjón Gunnlaugsson,
Miöstræti 23, Neskaupstað.
Sigurmann Rafn Stefánsson,
Fagrahvammi 11, Hafnarfirði.
Sævar Sigursteinsson,
Setbergi 11, Ölfushreppi.
Sigurður Jarlsson,
Stórholti25,ísafirði.
Andlát
Friðrós S. Jóbannsdóttir,
Ellert Gary Magnússon
Látinn er í Bandaríkjunum Ellert
Gary Magnússon, fæddur 30. aprfl
1919. Ellert var sonur Eiríks Magn-
ússonar, hálibróður séra Eiríks J.
Eiríkssonar, fyrrum þjóðgarðsvarð-
arogskólastjóra.
Ellert stundaði lengst af land-
búnaðarstörf í Minnesota en var
áður atvinnuhermaður og hðsfor-
ingi í Bandaríkjaher. Hann lætur
eftir sig eiginkonu, Rúnu, sem er af
íslensku bergi brotin, og tvær dæt-
ur, Kristínu og Jan. Eftirlifandi
systkini Ellerts eru Magnús Al, Al-
dís og Jakobína sem öll era búsett
í San Diego í Bandaríkjunum.
Leiðréttingar
I afmæhsgrein um Pál Pálsson var
ranglega farið með nafn móð-
urömmu hans. Hið rétta er að hún
hétKristín.
Ranglega var farið með föðumafn
afa Magnúsar Guðmundssonar í af-
mælisgrein. Afi Magnúsar hét
Kristján og var Sveinsson.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.