Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
Fréttir
Bankaráðsformaður Búnaðarbankans um skuldir Ólafs Laufdals við bankann:
Við fylgjumst með Ólaf i
„Þetta er til skoðunar í bankanum.
Við reynum að hafa öruggar trygg-
ingar fyrir þessum lánum. Við fylgj-
umst með Ólafi," sagði Guðni
Ágústsson, alþingismaður og for-
maður bankaráðs Búnaðarbankans,
þegar hann var spurður hvort
bankaráðið hefði áhyggjur af nærri
700 milljón króna skuldum Ólafs
Laufdals veitingamanns við Búnað-
arbankann. Skuldirnar eru ýmist við
bankann sjálfan eða erlend lán sem
bankinn er í ábyrgð fyrir. Aðrar
skuldir Ólafs, samkvæmt veðbókar-
vottoröum á eignum hans, eru um
125 miUjónir óframreiknað.
Guðni sagði að bankinn væri, í
samstarfi við Ólaf, að leita að kaup-
anda að Hótel íslandi. Guðni vildi
ekki segja til um hvort kaupandi
væri fundinn að hótelinu. „Eg vil
ekkert um þetta segja,“ sagði Guðni
Ágústsson. Bankaráðsfundur var í
Búnaðarbankanum á fimmtudag.
Þetta mál var ekki rætt á fundinum.
„Ólafur veltir miklu og er dugleg-
ur. Ég vona að þetta fari allt vel,“
sagði Guðni Ágústsson. Hann sagði
einnig að skuldir Ólafs stæðu í stað
við bankann. Þær aukast ekki og
greiöast heldur ekki niður.
Guðni sagöi að Ólafur Laufdal hefði
selt Hollywood í skiptum fyrir hótel
á Fáskrúðsfirði og væri meö því að
bæta lausafjárstöðuna.
Hótel ísland er stærsta fasteign
Ólafs. Á húsinu hvíla, óframreiknaö,
636 milljónir. Þar af eru skuldir við
Búnaðarbankann rétt tæpar 600
milljónir króna. Brunabótamat á
húsinu er rúmar 1100 milljónir
króna. Á Aðalstræti 14 til 16 hvíla 68
milljónir. Þar af eru skuldir viö Bún-
aöarbankann 59 milljónir. Bruna-
bótamat eignarinnar er rúmar 27
milljónir. Skuldirnar eru því meira
en tvöfalt hærri en brunabótamatið.
Á íbúðarhúsi Ólafs hvíla rúmar 23
milljónir. Þar af eru skuldir við Bún-
aðarbankann 18 milljónir. Bruna-
bótamatið er rúmar 44 milljónir. Á
Sjallanum á Akureyri hvíla um 65
milljónir. Það eru allt skuldir við
Iönaðarbankann, eða íslandsbanka.
-sme
Borgaraflokkurinn:
Ásgeir Hannes
hótaði
aðhætta
Mikil átök urðu á kjördæmis-
ráðsfundi Borgaraílokksins i
Reykjavík sem fór fram í Holliday
Inn á fimmtudagskvöldið. Ætlun-
in var að bera fram tillögu um
að þeir sem my ndu bjóða sig fram
á öðrum framboðslistum yrðu
reknir úr Ilokknum. Mun Guð-
mundur Ágústsson þingflokks-
formaður meðal annars hafa
staöið að þessari tillögu.
Þingmaður flokksins, Ásgeir
Hannes Eiriksson, sem meðal
annars átti sæti á lista Nýs vett-
vangs við síðustu sveitastjórnar-
kosningar, sagðist ekki geta sætt
sig við þetta og sagði að hér væri
um að ræða beina árás á sig.
Hótaði hann að segja sig úr
flokknum og endaði deilan á þvi
að tillagan var dregin til baka.
Þá urðu mikil átök viö kjör for-
manns kjördæmaráðsins. Var
kosið á núlli Arnars Egilssonar
og Önnu Gunnarsdóttur og sigr-
aöi Anna. Þá var Gylfi Þór Sig-
urðsson kosinn varaformaður.
-SMJ
Sorphaugar á Álfsnesi:
Alltvatnverð-
ur hreinsað
„Það liggja allar okkar áætlanir
fyrir Hollustuvernd og þaö hefur
verið fyrir löngu ákveðið vegna
frágangs á þessu svæði aö öllu
vatni verður safnaö saman og það
hreinsað áður en þaö fer út í sjó.
Umræðan undanfarið um þessa
sorphauga hefur orðið vegna
ummæla útlendings sem hingaö
kom og fenginn var til að segja
eitthvað um þessi mál án þess að
hafa í höndunum nokkrar for-
sendur. Umræðan ræðst síðan af
því sem þessi útlendmgur segir
og er satt að segja út í hött. Víð
ætlum að hreinsa þama vatnið
eins og best verður á kosið og
best þekkist í heíminum í dag,“
sagði Ögmundur Einarsson,
framkvæmdastjóri Sorpeyðingar
höfuðborgarsvæðisins vegna um-
ræðunnar um mengað vatn frá
sorphaugunum á Álfsnesi.
„Þama er mjög þétt berglag
undir, eitt þéttasta botnlag sem
þekkist á Reykjavíkursvæöinu,
og vatnið rennur þar ofan á.
Vatnið rennur ofan á berginu og
verður safnað saman í sérstakar
hreinslþrær. Þar verður það
hreinsað og rannsakað áöur en
það verður látiö renna í sjóinn."
-hlh
Dagsbrúnaðvarar
Stjóm Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar hefur sent ríkis-
stjóminni aðvörunarbréf. Þar er
sijómin vörað við þvi að halda
tí.1 streitu áformum sinum um
skattlagningu á olíuvömr.
-SMJ
Athugasemd frá Ólafi Laufdal
Herbergi í „neyðarhús-
næði“ þaðeina sem býðst
- heilbrigðisfulltrúi ræður henni frá því að flytja inn
„Ég flutti suður fyrir ári síðan og
leitaði fljótlega aðstoðar hjá félags-
málastofnun í Hafnarfirði og á al-
mennum leigumárkaði. Leiguíbúð
hefur mér ekki tekist að fá, leigusalar
hafa greinilega lítinn áhuga á að
leigja einstæðum mæörum. Nú er
svo komið aö foreldrar mínir, sem
ég hef búið hjá, eru að flytja í minni
íbúð þar sem ekki er pláss fyrir mig
og börnin. Þetta er búið að standa til
lengi. Ég verð að vera í Hafnarfirði,
því ef ég flyt annað missi ég dag-
heimilispláss. Það eina sem félags-
málastofnun getur boðið mér og
börnunum upp á núna er neyðar-
húsnæði í pínulitlu herbergi. í sama
húsi eru þrjár aðrar mæður með fjög-
ur börn,“ sagöi Sigríður Þóra Gabrí-
elsdóttir einstæð móðir með tvö
börn.
„Börnin eru astmaveik og það er
engin leið að ég geti verið með þau
bæði inni í þessu herbergi. Heilbrigö-
isfulltrúi hefur skoðað herbergið
sem mér var boðið. Hann sagði að
ég ætti alls ekki að fara þarna inn
meö börnin,“ sagði Sigríður.
Hún segir að rætt hafi verið við
helstu forsvarsmenn bæjarmála í
Hafnarfirði. „Það segjast allir vera
boönir og búnir til að hjálpa en það
hefur ekkert gerst," sagði Sigríður.
-ÓTT
Einstæð móðir leitaði hjálpar félagsmálastofnunar:
Sigríður Þóra Gabríelsdóttir í herberginu í „neyðarhúsnæðinu" sem félagsmálastofnun hefur útvegað henni. Börn-
in eru bæði astmaveik. DV-mynd GVA
Norðurland eystra:
Allaballarekki
meðprófkjör?
Gylfi Knstjánason, DV, Akureyri:
Tilhögtm varðandi skipan
framboðslista Alþýðubandalags-
ins í Norðurlandskjördæmi
eystra mun verða ákveðin á kjör-
dæmisþingi sem haldið verður á
Akureyri í næsta mánuöi.
Angantýr Einarsson kennari á
Raufarhöfn sem á sæti í stjórn
kjördæmissambandsins sagði i
samtali viö DV að lítið hefði veriö
rætt um það með hvaða hætti
framboöslisti flokksins yrði
ákveðinn. Hans skoðun er sú að
ekki sé mikill áhugi fyrir próf-
kjöri, hann segist ekki hafa fund-
ið fyrir áhuga á slíku enda væri
þaö staöreynd að prófkjör gætu
Ieitt af sér vandamál sem ekki
hefðu verið fyrir hendi áður en í
það var farið.
Steingrímur J. Sigfússon land-
búnaðar- og samgönguráðherra
er eini þingmaður Alþýðubanda-
lagsins í kjördæminu. Hann mun
ætla fram að nýju, en lítið hefur
verið rætt um aðra „kandidata“
á listann.
Kjördæmisþing
kýsefstu menn
hjá Framsókn
Gylfi Kristjánsaon, DV, Akureyri:
Framsóknarmenn í Norður-
landskjördæmi eystra ætla að
hafa sama háttinn á og fyrir sið-
ustu alþingiskosningar varðandi
val í efstu sæti framboðslista síns.
Kjördæmisþing verður haldið á
Húsavík snemma í næsta mánuði
og þar munu fulltrúar kjósa i sex
efstu sæti listans eftir að félögin
innan kiördæmisins hafa gert til-
lögur um menn iþau sæti. Kjör-
nefhd mun síðan gera tillögur um
þá sem koma til meö aö skipa
önnur sæti listans.
Ritstjóra DV barst í gær eftirfar-
andi athugasemd frá Ólafi Laufdal
vegna fréttar í föstudagsblaðinu:
„Ég hef talið mig seinþreyttan til
vandræða og alltaf látiö kyrrt liggja
að svara öllum þeim fáránlegu sögu-
sögnum, sem birst hafa um mig og
fyrirtæki mín í blaði þinu undanfarin
misseri. Hins vegar er nú svo komiö,
aö skrifm gerast rætnari með hverj-
um degi sem líður og verður ekki
annaö séð, en að blað þitt telji sér á
einhvem hátt til framdráttar að ata
mig og fyrirtæki min auri. Blaöa-
maðurinn „sme“ fer þar fyrir flokki
og hefur í blaði þínu í dag enn á ný
upp raustina, án þess, - eins og alltaf
þegar þitt blað á í hlut, - að hafa fyr-
ir því að bera „fréttirnar" undir mig.
Með frétt á baksíðu blaðsins i dag
undir fyrirsögninni „Borgaði kjöt
með Benzinum" er enn eina ferðina
fullyrt, að ég eigi í stórfelldum við-
skiptalegum örðugleikum og þurfi
að fara um sem beiningamaður og
selja alls kyns persónulegar eignir
til þess að freista þess að standa í
skilum.
Það er fullyrt í fréttinni, aö ég hafi
greitt skuld mína við viðskiptamann
minn vegna kjötkaupa með bifreið
sem var í minni eigu, en þó ekki fyrr
en ég hafi boöið nokkrum öðrum
kjötkaupmönnum bílinn með sama
hætti. Þessi frétt er röng. Ég seldi
bílinn aöila sem á engan hátt tengd-
ist viðskiptum mínum vegna kjöts.
Ég á aðeins viðskipti við einn aðila
vegna kjöts og er í fullum skilum við
hann.
„Viðmælendur DV“ „eru á því“ í
frétt blaðs þíns, að „mjög erfitt" sé
hjá mér. Hvað á svona blaðamennska
að þýða? Ég hef hvergi dregið dul á
að byggingin á Hótel Islandi er fjár-
frek framkvæmd og telst núna vera
komin langt á annan milljarð króna.
Búnaðarbankinn hefur staðið þétt
við bak mitt í þessum framkvæmd-
um og hefur trygg veð fyrir sínum
lánum til mín í byggingunni, sem
rétt er að benda þér og blaðamönnum
þínum á, að mun að líkindum eiga
eftir að standa þar sem hún er og
veröa miðstöð hótelrekstrar næstu
eitt hundraö árin. Búnaðarbankinn
er því ekki í neinni hættu með fjár-
magn sitt, síður en svo.
Þaö er líka rétt að benda þér og
blaðamönnum þínum á, að allir, sem
eiga eins umfangsmikil viðskipti við
ÁTVR og ég verða að reiöa fram
haldgóðar fasteignatryggingar fyrir
úttektum sínum. Þar endurtek ég
ALLIR, ekki bara ég, eins og látið er
í veðri vaka.
Að lokum er svo hnýtt aftan við
þessi dæmalausu skrif hugleiðingum
um fjárhagsstöðu Aðalstöðvarinnar,
svona eins og til aö koma á mig einu
höggi til viðbótar. Þar er enn einu
sinni haft eftir „einum viðmælanda
DV“, að tap á rekstri stöövarinnar
sé verulegt. Enn einu sinni er farið
með sögusagnir af stað. Stofnun Að-
alstöðvarinnar fyrir ellefu mánuðum
kostaði sitt og nú erum við langt
komin að greiða þær skuldir og
sjáum fram á blómlegan rekstur á
næstu mánuðum. Aðalstöðin nýtur
mikilla vinsælda og hefur nú á að
skipa mjög hæfu starfsfólki. Ég full-
yrði hér til upplýsingar fyrir þig og
þína blaðamenn, að ég er ekki að leita
eftir meöeigendum í Aðalstööina og
ætla e'kki að gera þaö.
Af framansögðu hlýtur þér að vera
ljóst, að ég get ekki setið þegjandi
undir fréttaflutningi af þessu tagi.
Lágmarkskrafa mín er, aö blaða-
menn þínir hafi samband viö mig
þegar þeir hyggjast birta fréttir af
mér og minni starfsemi. Það er einn-
ig lágmarkskrafa af minni hálfu, aö
bréf þetta verði birt á áberandi stað
i blaði þínu strax. Ólafur LaufdaT*