Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
3
Fréttir
Krafa Faxalax vegna regnbogasilungsins sem hvarf úr kvíunum um helgina:
Tryggingar bæti silunginn
„Viö munum aö sjálfsögöu fara
þess á leit við Reykvíska endur-
tryggingu hf. að tjónið fáist bætt,“
sagöi Ingi H. Sigurðsson, annar
tveggja bústjóra þrotabús Faxalax,
í samtali við DV. 80 tonn af regn-
bogasilungi eru talin hafa sloppið
úr kvíum þrotabúsins um síðustu
helgi. Síðan um helgi hefur nokkuð
eignir fyrir meira en 35 milljónir hafa synt í burtu
af dauðum regnbogasilungi rekiö á
flörur í nágrenni Voga.
„Nótin átti að vera í topplagi.
Veður um helgina var hinsvegar
mjög óhagstætt," sagði Ingi. Fyrir-
tækið Faxalax var lýst gjaldþrota í
lok apríl í vor. Nokkrum dögum
síðar sluppu tæplega 100 tonn af
laxi úr sjókvíum fyrirtækisins.
Þegar bústjórar þrotabúsins fóru á
vettvang og rannsökuðu máhð
nánar kom í ljós að kvíarnar voru
afar lélegar og var því ráöist í að
kaupa nýupþgerða nót sem regn-
bogasilungurinn var fluttur í. Sú
átti aö halda. Allur fiskurinn, bæði
lax og silungur var veðsettur fyrir
upphæðir sem skipta tugmiUjónum
króna. Laxinn var metinn á 25-30
milljónir en silungurinn á að
minnsta kosti 10 .milljónir. Þegar
hefur verið send bótakrafa fyrir
laxinn.’
Samtais komu fram kröfur í
þrotabúið að upphæð 166 milljónir
króna. Eignir búsins, aðrar en fisk-
ur í kvíum og á lager og kvíarnar
sjálfar, voru einn fóðurbátur. Það
virðist því vera að bróðurpartur
eignanna sé tapaður.
„Þetta er vissulega ekki björgu-
legt,“ sagði Ingi H. Sigurðsson. „En
endanlegt uppgjör stendur og fellur
með því hvort eitthvað fé fæst úr
tryggingum.“
-Pá
Akranes:
Moka upp
ungi í höf ninni
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Starfsmenn Sementsverksmiðju
ríkisins komust heldur betur í feitt á
þriðjudag er vart varð við talsvert
af regnbogasilungi innan uppfylling-
arinnar austan við sementsbryggj-
una.
Heimildum DV um magn aflans ber
ekki saman en nærri lætur að um
40 fiskar hafi komið á land. Fiskur-
inn var veiddur í net og reyndist að
jafnaði mjög vænn.
Ekki er vitað hvaðan þessi fiskur
kemur en ljóst má vera að hann hef-
ur sloppið úr einhverri eldisstöðinni
við Faxaflóann og rambað í net SR-
manna.
{Bauknecht
ÞÝSK GÆÐATÆKIÁ GÓÐU VERÐI
BÆJL
0SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VIÐ MIKLAGARÐ
& KAUPFÉLÖGIN
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSISANKA
VILT ÞÚ STYRKJA SAMKEPPNISSTÖÐU ÞÍNA?
Glitnir gerír þér það kleift!
Þegar valið stendur um fjármögnun býður Glitnir fyrirtæki þínu möguleika sem
geta skipt sköpum. Möguleika sem auðvelda þér fjárfestingu í tækjum og búnaði,
á afgerandi hátt.
Kostir fjármögnunar hjá Glitni:
• Þú nýtir staðgreiðsluafslátt með fullri fjármögnun.
Þú færð fjármögnun á samkeppnishæfum kjörum.
Þú átt kost á lánstíma sem hentar fjárfestingunni.
Þú endurgreiðir i takt við væntanlegar tekjur af fjárfestingunni.
■ Þú skerðir ekki lausafjárstöðu fyrirtækisins.
Glitnír býður eftirtalda fjármögnunarkosti:
Fjármögnunarleigu: Tveggja til sjö ára samningur þar sem
fjárfestingin er afskrifuð á samningstímanum.
Kaupleigu: Tveggja til sjö ára samningur, hliðstæður fjárfestingarláni.
Greiðslusamning: Stuttur samningur í 6 til 18 mánuði-með
óverðtryggðum greiðslum. Hentar vel við smærri fjárfestingar.
* Erlend lán: Lánstími eftir vali, til allt að 7 ára.
Þú getur náð forskoti í samkeppni með hagkvæmri fjárfestingu. Ræddu
málin við okkur - með réttri fjármögnun geturðu náð árangri sem um munar.
Gefur þínu fyrirtæki forskot