Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Side 4
4
.068 í H38M3TI38 .eS HUOAOHftO J/^
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
Fréttir
Grænlandsfálki um
borð í Gissuri hvíta
„Við vorum á veiðum í Húnaflóa-
dýpinu í fyrrakvöld þegar við sáum
stóran fugl, sem við héldum að væri
ugla, flögrandi yfir bátnum í myrkr-
inu. Fuglinn virtist gjörsamlega upp-
gefinn og tyllti sér á bátinn.
Þegar við reyndum að handsama
hann flögraði hann út fyrir borð-
stokkinn en settist alltaf á bátinn
aftur. Hann flaug svo efst upp í topp
á frammastrinu og sat þar lengi. Við
náðum að handsama fuglinn í gær-
morgun og síðar kom í ljós að við
vorum með Grænlandsfálka í hönd-
unum,“ sagði Ómar Jakobsson skip-
stjóri á Gissuri hvíta HU 35, í sam-
tali viö DV.
„í birtingu í gærmorgun sat fálkinn
uppi í gálga og var að éta ritu sem
hann hafði veitt. Hann virist ósköp
rólegur og það var enginn æsingur í
honum. Hann ílaug svo yfir á stýris-
húsið með rituna og settist þar og
hélt áfram að éta. Einn skipverjanna
khfraði upp á húsið og kastaði úlpu
yfir fuglinn og þannig gátum við
handsamað hann. Við fórum með
hann niður í klefa fram með hvalbak
þar sem við geymum hann.
Fálkinn er ósköp rólegur, hann
gargaði þegar við fönguðum hann og
reyndi aöeins að bíta okkur, en ann-
ars virtist hann aðallega hræddur.
Við tókum svo rituhræið og fórum
með það niður til fálkans og hann
hélt áfram að éta það.
Við vitum ekki almennilega hvað
við eigum að gefa fuglinum að éta
en við látum hann þó örugglega ekki
svelta meðan hann er um borð. Ætl-
unin er að við tökum hann með okk-
ur í land ef ske kynni að forstöðu-
menn Húsdýragarðsins vildu fá
hann í safnið," segir Ómar
Að sögn Ævars Petersens fugla-
fræðings er Grænlandsfálki sjald-
gæfur hér á landi. „Á hverju ári fáum
yið þó örfáar tilkynningar um að
þessir fuglar hafi -sést hér. Á þeim
12 árum, sem ég hef unnið á Náttúru-
fræðistofnun, hef ég fjórum sinnum
fengið Grænlandsfálka í hendurnar.
Einkenni Grænlandsfálkans eru
þau að hann er miklu ljósari en ís-
landsfálkinn og aðeins minni. Hann
er miklum mun gæfari en sá íslenski
og því auðveldara að handsama
hann,“ sagði Ævar.
J.Mar
Forræðismálið:
Móðirin vill
farbann
f yrir f und
með föður
Það var líf og fjör þegar réttað var í annað sinn í Undirfellsrétt í Vatnsdal í síðustu viku. DV-mynd Magnús
Fjöldi fjár úr annarri leit
Hildur Ólafsdóttir hefur óskað að
koma á framfæri eftirfarandi at-
hugasemd í tilefni af ummmælum
sem voru höfð eftir Stefáni Guð-
bjartssyni í DV á fimmtudag:
„Undanfarið hefur prestur haft
milligöngu um sáttatilraunir í for-
sjárdeilu minni og Stefáns Guð-
bjartssonar. Hefur Stefán lagt fram
þá tillögu að stúlkan verði vistuð á
heimili elstu dóttur okkar til þess að
honum gefist kostur á að hitta hana
þar. Til þess að tryggja aö Stefán
tæki ekki barnið og færi með það af
landi brott, eins og lögmaöur hans
hefur ítrekaö reynt, taldi ég nauð-
synlegt að dómsmálaráðuneytið setti
farbann á stúlkuna.
Ekkert virtist því til fyrirstöðu í
fyrstu en síðastliðinn miðvikudag
sögðust ráðuneytismenn telja að
lagaleg vandkvæði stæðu því í vegi.
Áður hafði ég boðiö Stefáni aö hitta
dóttur sína í viöurvist barnageð-
læknis. Hann hafnaði því. Ég tel
þetta nauðsynlegt þar sem í áliti fag-
manna kemur skýrt fram að barnið
óttast föður sinn. Að uppfylltum
þessum skilyrðum tel ég ekkert því
til fyrirstöðu að barnið hitti hann.
Síðastliðinn laugardag talaði barnið
við fööur sinn í síma.
Ég vil taka fram að ég hef fyrir því
áreiðanlegar heimildir aö dómsmála-
ráðyuneytið standi straum af lög-
fræðikostnaði Stefáns í þessu máli.
Mér er ekki kunnugt um að nokkur
heimild sé til þess, ekki síst þar sem
ráðuneytið á að vera hlutlaus úr-
skurðaraðili í málinu".
Magnús Ólalsson, DV, Húnaþingi:
Á annað þúsund fjár kom úr öðrum
göngum á Grímstungu- og Haukag-
Usheiðum í byrjun vikunnar og var
féð réttað í Undirfellsrétt í Vatnsdal
á þriðjudaginn. Elstu menn muna
ekki að svo margt fé hafi komið úr
seinni leit. Ástæða þessa var sú að
gangnamenn hrepptu mjög slæmt
veður síðasta dag fyrri gangna og
einnig rann stór fjárhópur inn á
Grímstunguheiði af Auðkúluheiði.
Annað einsdæmi við þessa leit var
það að gangnamenn urðu að vera
tveimur dögum lengur á heiðinni en
ráðgert var vegna þess aö þar var
niðaþoka á laugardag og sunnudag.
Töldu þeir ekki skynsamlegt að
reyna að smala í svo mikilli þoku þar
sem slíkt hefði aðeins orðið kák eitt
og fjöldi fjár orðið eftir á heiðinni. Á
mánudag var gott veður og vonast
menn til að leitin hafi tekist vel. Á
næstu dögum verður hugað að því
úr flugvél hvað sé eftir af fé á heið-
inni.
Magnús Sigurðsson, stjómarmaður í Búnaðarfélaginu:
Erum ekki að hrifsa til
okkar útflutning hrossa
„Þaö var aldrei samkomulag milli
Búnaðarfélagsins og Félags hrossa-
bænda um annað en upprunastimpil-
inn. Á sínum tíma gerðist Gunnar
Bjarnason, sem verið hafði ráðu-
nautur Búnaöarfélagsins, ráðunaut-
ur hjá Félagi hrossabænda og fékk
umboð til aö stimpla upprunavott-
orðin. Nú skilst okkur að komið sé
að því að Gunnar hætti þar störfum
eða muni vera hættur að sinna starf-
inu þannig að starfsstúlka þarna,
Hallveig Fróöadóttir, er með stimpil-
inn. Þaö er eðlilegt að sá aðili sem
sér um búfjárræktina í landinu, Bún-
aðarfélagið, hafi þennan stimpil með
höndum. FrS sjónarhóli framleið-
enda hlýtur það að vera aðalatriði
varðandi sölu hrossa að hlutlaus að-
ili gefi þessi vottorð út, að það sé
ekki seljandinn sjálfur sem sé að
stimpla þau,“ sagði Magnús Sigurðs-
son, bóndi á Gilsbakka og stjórnar-
maður í Búnaðarfélaginu, í samtali
við DV um þá ákvörðun Búnaðarfé-
lagsins að segja einhliða upp samn-
ingi við Félag hrossabænda um að
síðarnefndi aðilinn sæi um útgáfu
upprunavottorða fyrir íslensk hross.
„Það hefur alltaf verið gert ráð fyr-
ir því að þegar Búnaðarfélagiö hefði
tvo ráðunauta í Reykjavík á sínum
snærum tæki það til sín stimpilinn
aftur. Annar ráðunautanna, sá sem
hefur meira meö ræktunarbókhaldið
að gera, hefði þá stimpilinn. Það er
eimitt Kristinn Hugason sem nú er
að flytja suður frá Akureyri."
- Er Búnaðarfélagið að hrifsa út-
flutninginn úr höndum Félags
hrossabænda?
„Þaö er alger fjarstæða. Verslun er
ekki á verksviði þess. Það er ekki um
annað að ræða en þennan stimpil
sem er stimpill Búnaöarfélagsins og
segir að þetta og þetta hross sé svona
og svona ættað.“
-hlh
„Við vonumst til að fólk um
land allt taki sig saman um að
reisa vörður. Klukkan þrjú á
sunnudaginn mun okkar hópur
vígja eina shka með krossi við
Kúagerði til minningar um þá
sem þar hafa látist í umferðar-
slysum,“ sagði Edda Björgvins-
dóttir, forsvarsmaður um bætta
umferðarmenningu í samtali við
DV.
í dag, laugardag, mun hópurinn
helga sig ýmsum áróðri gegn ölv-
unarakstri og er vettvangurinn
Aðalstöðin: „Við viijum minna á
þann hrylling sem hefur gerst í
kríngum okkur og hvetjum
landsmenn til að standa vörð um
lífið. Það má segja að takmarkið
sé að gera alla ökumenn að
„óvirkum ökuníðingum“,“ sagði
Edda.
Hún segir að kostnaður við
vörðuna í Kúagerði sé um 250
þúsund krónur. „Fyrirtæki hafa
styrkt okkur en það vantar enn
talsvert upp á,“ sagði Edda. Tekið
er við framlögum á gírónúmeri
243000. -ÓTT
Skolpið við ströndina:
„Menn
spekúlera
mest í
fuglinum“
„Menn verða ekki neitt sérlega
varir við þetta og eru heldur ekki
aö stara sérstaklega á þessa
mengun. Menn spekúlera mest í
fuglinum sem er i þessu og hvert
hann beri nú þá sýkla sem þarna
kunna að vera. Fólk segir
kannski að hörmung sé að sjá
þetta en svo ekki söguna meir,“
sagði Erling Aspelund, starfs-
mannastjóri Sambandsins, i sam-
tali viö DV en mikill skolpblettur
er í sjónum undan Kirkjusandi
þar sem aðalskrifstofur Sam-
bandsins eru til húsa.
„Fuglinn er sérlega mikið í
þessu, sérstaklega í logninu, og
ef eitthvað er þá er það fuglinn
sem vekur ótta hjá mönnum.“
- í norðanroki eru bílar starfs-
manna og gluggarúðurnar lík-
lega þaktar öðru en einungis salt-
inu úr sjónum?
„Menn spá ekki mikið í það.
Þeir hafa meiri áhyggjur af að
saltiðskemmibílana.“ -hlh
Gúmmíbát
rak yf ir
Mannlaus gúmmíbátur með ut-
anborðsmótor af Zodiac gerð
fannst við bæinn Auðshaug á
Hjarðarnesi við Barðaströnd í
fyrrakvöld. Lögreglu og björgun-
arsveit var gert víðvart.
Þegar farið var að rannsaka
málið kom í Ijós að bátinn haföi
rekið alla leið frá Rifshöfn á Snæ-
fellsnesi. Báturinn er nýlegur og
tilheyrir dýpkunarskipinu Orion
sem hífði Armann SH af hafs-
botni fyrir utan Hellissand í vik-
unni. Hafði hann siðan veriö
bundinn við pramma i Rifshöfn á
miðvikudagskvöldið og þaðan
losnaði hann upp þegar hvessti
um nóttina. Bátinn rak síðan yfir
Breiðaljörð, um fimmtíu sjómílna
leiö, þar sem hann fannst síðan
óskemmdur við Auðshaug á
Hjaröarnesi. -ÓTT