Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Page 6
6
Úúönd
LAUGARDAGUR 39. SERTKMBER .1990. 4.
George Bush hughreystir hinn útlæga emír af Kúvæt:
Lof ar öllum ráðum
til að frelsa Kúvæt
George Bush Bandaríkjaforseti lof-
aöi í gær al-Sabah, emír af Kúvæt,
að Bandaríkjamenn létu einskis ó-
freistaö til aö frelsa land hans aftur
úr höndum íraka. Emrírinn ræddi i
gær við Bush um framtíð lands síns
og stöðuna í Persaflóadeilunni.
Bush sagði að stjórn hans mundi
ekki láta undan í deilunni og engin
takmörk væru fyrir til hvaða ráða
yrði gripið til að koma heijum Sadd-
ams frá Kúvæt. Emírinn lét ekki í
ljós hugmyndir um hvaða ráð hann
vildi að beitt yrði en sagöist vilja frið-
samlega lausn öðru fremur.
Hann lét í ljós mikið þakklæti til
þjóða heims fyrir skjót viðbrögð við
innrásinni og lofaði að á móti yrðu
lán Kúvæta til þróunarlanda gefín
eftir.
Á sama tíma og Bush og al-Sabah
ræddust við bárust enn frekari hót-
anir frá hryðjuverkamönnum tengd-
um stjórninni í Bagdad um að ráðist
yrði gegn Bandaríkjamönnum ef þeir
réðust á írak.
í Bagdad voru Bandaríkjamenn
varaðir við aö vera með stríðsæsing-
ar og hótað að barist yrði á fleiri víg-
stöðvum en einum ef ófriður brytist
út. Þar var skrifað í dagblöðum í gær
að ófriður voföi yfir.
Hryöjuverkamaðurinn Abu Abbas,
sem frægur varð fyrir ránið á
skemmtiferðaskipinu Achille Lauro,
sagði aö ráðist yrði á flugvélar frá
Bandaríkjamönnum eða bandalags-
ríkjum þeirra ef flugumferð til íraks
yrði stöðvuö með vopnavaldi.
Breska stjórnin varaði .stjórnina í
írak við að útiloka útlendinga frá að
kaupa mat frá og með mánudeginum.
Var sagt aö slíkt væri ábyrgðarlaust
og óréttlætanlegt.
Ákvörðun íraksstjórnar um að
setja útlendinga i eins konar svelti
leiddi til þess að flóttamönnum við
landamæri íraks og Jórdaníu fjölgaði
ört í gær enda er búist við að hung-
ursneyð verði hlutskipti útlendinga
í landinu.
Óvissa hefur ríkt á olíumörkuðun-
um eftir að verðið lækkaði lítillega á
fimmtudag. Sala Bandaríkjastjórnar
á hluta af varaolíubirgðum sínum
virtist ætla að hafa tilætluð áhrif en
eftir að bandarísk freigáta notaði við-
vörunarskot til að stöðva írakst olíu-
skip hækkaði verðið á ný. Það hefur
þó ekki farið yflr fjörutíu Banda-
ríkjadali á tunnuna en því verði var
náð fyrr í vikunni.
Alþjóðaorkumálastofnunin í París
mæltist í gær til þess við aðildarríkin
seldu meira af varaolíubirgðum sín-
um í von um að verðið lækkaði á ný.
Þó eru aðildarríkin vöruð við að selja
án þess að samræma söluna sín í
milli og velja þann tíma þegar aukið
framboð á olíu er líklegast til að hafa
mest áhrif á verðið.
Reuter
Astralskur auökýfingur:
Tapaði 100
milUörðum
króna á ári
Nú hefur veriö upplýst að tap
ástralska auðkýfingsins Alans
Bond á síðasta ári nam um 2,25
milljörðum Ástralíudala en það
svarar til 100 milljarða íslenskra
króna. Þetta er mesta tap sem
nokkur ástraiskur maður hefur
orðíð fyrir á einu ári.
Bond rak mikla fyrirtækjasam-
steypu sem átti fjölmörg brugg-
hús, auk fjölmiðlafyrirtækja og
mikílla auðæfa í landi. Alan Bond
er sonur námamanns og vann
sjálfur við að mála skilti þegar
upphefð hans i viöskiptaheimin-
um hófst.
Þegar auður hans var mestur
var tahð að hann ætti eignir upp
á fast að 500 milljörðum króna.
Veldí Bonds reyndist þó risí á
brauðfótum og rétt eins og hjá
kollega hans, Donaid Trump,
voru skuidirnar ekki minni en
eignirnar. Keuter
Konica
Nýtt einkaumboð fyrir
Ijósritunarvélarog telefaxtæki.
UBIX
Síöumúla 23- 108 Reykjavík - S. 679494 - Fax 6794$
Magnús Ægir Karlsson Páll Vignir Héðinsson Sigurður B. Lúðvíksson Sverrir Gíslason
Hjá okkurfáið þið allar rekstrarvörur og varahluti.
Fullkomin viðgerðar- og viðhaldsþjónusta fyrir allar
Konica U-BIX Ijósritunarvélar og telefaxtæki.
I þjónustudeildinni vinna eingöngu menn með áralanga
reynslu í viðhaldi og viðgerðum. Sem sagt: Gamla góða
tækniliðið. Verið velkomin á nýjan stað méð léttum anda.
Breskiherinn:
Skriðdrekar
til
Saudi-Arabíu
í dag ætla Bretar að hefja flutninga
á Challenger-skriðdrekum til Saudi-
Arabíu. Skriðdrekarnir verða sóttir
í vopnabúr breska hersins í Þýska-
landi og fluttir sjóleiðina frá Bremer-
haven til Flóans.
Þetta eru mestu herflutningar sem
Bretar hafa lagt í frá lokum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Skriðdrek-
arnir verða fegnir í hendur svoköll-
uðum „eyðimerkurrottum". Það er
herdeild sem á rætur sínar að rekja
til eyðimerkurstríðsins í Norður-
Afríku í heimsstyijöldinni þegar
Bretar áttu þar í höggi við Þjóðveija.
í fyrstu verða sendir 120 skriðdrek-
ar og með þeim fara um 6000 her-
menn. Þá hefur verið ákveðið að rífa
nokkra af þeim skriðdrekum sem
eftir eru vegna þess að Breta skortir
varahluti til að halda sveitinni úti
ef til hernaðar kemur.
Nokkuð hik var á Bretum að senda
skriödrekana vegna þess að þeir
þykja gallaðir þrátt fyrir fullkominn
tæknibúnað. Verst er þó að grunur
leikur á að fallbyssurnar séu bognar.
Reuter
Grænland:
Kosningar
verða í vor
Talið er vist að kosningar verði
ekki haldnar á Grænlandi fyrr en í
vor þrátt fyrir háværar kröfur á
landsþinginu að ijúfa þing sem fyrst
og boða til kosninga. Hafa menn
nefnt 4. desember sem heppilegan
kjördag en Jónathan Motzfelt, for-
maður landsstjórnarinnar, fullviss-
aði menn um það í gær að þetta þing
sæti til vors.
Það sem veldur kröfum um þing-
sht er fjárlagagerðin fyrir næsta ár.
Landsþingið var sett í gær og á að
standa til 24. október. Á þeim tíma
er ætlast til að umræðum um fjár-
lagafrumvarpið ljúki. Þingið kemur
saman á ný eftir áramótin og situr
þá fram í mars.
Það eru einkum launamál sem
valda óvissu í grænlenskum stjóm-
málum. í fjarlagafrumvarpinu er
aðeins gert ráð fyrir launahækkun-
um upp á eitt til tvö prósent þrátt
fyrir vaxandi verðbólgu. Stjónarand-
staðan telur fyrirætlanir lands-
stjómarinnar í launamálum óraun-
hæfar og segja að launþegar muni
aldrei sætta sig við svo litlar hækk-
anir. Ritzau
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 3,0 Allir
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-4 lb,Sp
6mán. uppsögn 4-5 Ib.Sb
12mán. uppsögn 5-5,5 Ib
18mán. uppsögn 11 ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema ib
Sértékkareikningar 3,0 Allir
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5 Allir
6mán.uppsögn 2,5-3,0 Allir nema Ib
Innlánmeðsérkjörum 3-3,25 lb,Bb
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 6,6-7 4Þ
Sterlingspund 13 13,6 Sp
Vestur-þýsk mörk 6,75-7,1 Sp ■
Danskarkrónur 8,5-9,2 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 13,75 Allir'
Viöskiptavixlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 12,25-14,25 lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17,5 Bb
Utlan verðtryggð
. Skuldabréf 6,5-8,75 Ib
Utlántilframleiðslu
isl.krónur 14-14,25 Sp
SDR 11-11,25 Íb
Bandarikjadalir 9,75-10 ib
Sterlingspund 16,5-16,7 Sp
Vestur-þýsk mörk 10-10,2 Sp
Húsnæðislán 4,0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. ágúst 90 14,2
Verðtr. ágúst 90 8,2
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala sept. 2932 stig
Lánskjaravisitala okt. 2934 stig
Byggingavisitala sept. 551 stig
Byggingavísitala sept. 172,2 stig
Framfærsluvísitala júlí 146,8 stig
Húsaleiguvisitala hækkaði 1,5% l.júli.
VERÐBRÉFASJÖÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,091
Einingabréf 2 2,767
Einingabréf 3 3,351
Skammtímabréf 1,716
Lifeyrisbréf
Kjarabréf 5,038
Markbréf 2,682
Tekjubréf 2,027
Skyndibréf 1,503
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóösbréf 1 2.445
Sjóðsbréf 2 1,771
Sjóðsbréf 3 • 1,704
Sjóðsbréf 4 1,457
Sjóðsbréf 5 1,026
Vaxtarbréf 1,7250
Valbréf 1,6215
Islandsbréf 1,056
Fjórðungsbréf 1,056
Þingbréf 1,054
Öndvegisbréf 1,051
Sýslubréf 1,060
Reiðubréf 1,041
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 544 kr.
Flugleiðir 213 kr.
Hampiðjan 173 kr.
Hlutabréfasjóöur 170 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 171 kr.
Eignfél. Alþýðub. 131 kr.
Skagstrendingur hf. 410 kr.
Islandsbanki hf. 171 kr.
Eignfél. Verslunarb. 140 kr.
Olíufélagið hf. ' 557 kr.
Grandi hf. 188 kr.
Tollvörugeymslan hf. 110 kr.
Skeljungur hf. 593 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.