Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Page 9
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
9
13 V
Heimuriim og ég
USl.AK
í//-vS'/).-VS>
ÍÍiJi
BUSWtSS
*00 **\' ’lyHO'P \
l 300.**• wv«0»«
EINSTAKT Á ÍSLANDI
TÍMARIT FYRIR ALA
Momson
Minnismerkið
Mennimir
JIM stendur skrifað rauðum stöf-
um á legstein annars manns og rauð
ör neðanvið sem vísar í eina átt, auð-
vitað á miðpunkt alheimsins ein-
hvers staðar í Pere la Chaise, kirkju-
garðinum í París, þar sem Jim Morri-
son hvílir innan um að minnsta kosti
þúsund og eina beinagrind, þúsund
og eina minningu um menn og kon-
ur, meðal annars Moliére, sem dó
þremur öldum og tveimur árum áður
en Ligth My Fire komst í fyrsta sæti
bandaríska vinsældalistans, Moliére
og Morrison, sem áttu ekkert sameig-
Umsjón:
Þorsteinn J. Vilhjálmsson
inlegt utan orð sem þeir röðuðu upp,
hvor um sig, samkvæmt eigin geð-
þótta og óskráðum reglum skáld-
skaparins.
Lítill heimur.
Blóm. Bjórflaska
Skrifað stendur: Jim Morrison,
1943-1971,
Sem ég horfi á Minnismerkið í
miðju alheimsins hugsa ég:
Það er í minna lagi.
Sem ég horfi á Minnismerkið í
miðju alheimsins sé ég:
Að ofan á fábrotnum steinum er
bjórflaska, í henni rós, sitt hvorum
megin kerti og þar hjá menn á miðj-
um aldri.
Hátíðleikinn í miðju alheimsins er
viðlíka og í guðsþjónustu sem væri
heddin á skemmtistað.
Sögurnar
Mennirnir súpa bjór.
Þeir segja sögur.
Þeir hafa gengið um gólf í Grace-
land í Ameríku.
Þeir hafa yfir hendingar úr Ligth
My Fire.
Þeir elska Jim Morrison.
Ekkertgerist
Ekkert gerist, ekki einu sinni í
miðju alheimsins í París og þegar
dagurinn er farinn að tvístíga, þegar
meira að segja fuglarnir hafa stimpl-
að sig út og útséð að nokkur heimil-
isfastur í Pere la Chaise muni feta í
fótspor frelsarans og sigra dauðann
þá sitja mennirnir ennþá á rúm-
stokknum hjá Jim Morrison sem er
ekkert framar nema dægurlagatext-
ar og bein og nafn á steini með ekk-
ert hjarta og hafa yfir hendingar úr
Ligth My Fire.
Ekkert gerist.
96
BLAÐSIÐUR
FYRIR
36S
KRONUR
BÝÐUR NOKKUR BEÍUR?
Úrval
Hjá okkur er ótrúlegt úrval myndbanda fyrir alla
fjölskyldumeölimi, og þú getur valiö myndir úr 4
veröflokkum.
Komdu í heimsókn því sjón er sögu ríkari.
f m -■
• •
VIDEOHOLUN
I ipím bandi!