Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Side 10
10
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
Myndbönd
Efstu myndirnar tvær hafa
hreiðrað vel um sig og situr
svarta rigningin í 1. sæti aðra
vikuna í röð. Félagarnir Turner
& Hooch ná ekki að rífa 1. sætið
aftur til sín.
í þriðja sæti er mættur hinn ít-
urvaxni John Candy með enn
eina spaugmyndina og neöar á
listanum eru þrjár efnilegar
myndir sem án efa eiga eftir að
hefja sig upp.
1. (1) Black Rain
2. (2) Turner & Hooch
3. (-) Uncle Buck
4. (6) Next of Kin
5. (4) Leviathan
6. (3) Parenthood
7. (-) Perfect Witness
8. (5) Road House
9. (-) Weekend at Bernies
10. (-) Tango and Cash
Þrjárhressarstelpur
MYSTIC PIZZA A
Útgefandi: Laugarásbíó.
Leikstjóri: Donald Petrie.
Aðalhlutverk: Annabeth Gish, Julia Ro-
berts og Lili Taylor.
Bandarisk, 1988- sýningartimi 104 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Þótt Mystic Pizza sé hin sæmileg-
asta afþreying þá vekur hún
kannski fyrst athygli fyrir að vera
fyrsta kvikmyndin sem skærasta
kvenstjarnan í kvikmyndaheimin-
um í dag, Julia Roberts, lék í. Og
hún veldur ekki aðdáendum sínum
vonbrigðum.
Aðalpersónur myndarinnar eru
þrjár ungar stúlkur sem vinna all-
ar á pizzastaðnum Mystic. Eins og
gefur að skilja eru karlmenn aðalá-
hugamálið og aðalvandamálið um
leið. Ein þeirra verður ástfangin
af giftum manni sem hún er
barnapía hjá, systir hennar, sem
Julia Roberts leikur, verður ást-
fangin af spilltum milljónerasyni
og sú þriðja vill lifa í synd með elsk-
huga sínum en sá tekur þaö ekki í
mál en heimtar að hún giftist sér
áður en hann fer að sofa hjá henni.
Stúlkurnar hafa sem sagt sín
vandamál sem þær glíma við sam-
an og sín í hvoru lagi. Það er ekki
aðeins Julia Roberts sem er ágæt í
Rokkað í gröfinni
ROCKULA
Útgefandi: Skífan
Leikstjóri og handritshöfundur: Luca
Bercovici. Framleiðandi: Jerry Levy.
Aðalhlutverk: Dean Cameron, Bo Didd-
ley, Thomas Dolby og Toni Basil.
Bandarisk 1989. 90 mín.
Öllum leyfð.
Vitlausar myndir eru því miður
ekki bannaðar en þessi hefði svo
sannarlega átt það skilið. Fyrir
hvem í ósköpunum er þessi mynd
eiginlega? Hrollvekjuaðdáendur?
Rokkaðdáendur? Venjulegt fólk?
Óvenjulegt fólk? Ætli svarið við
þessu öllu sé ekki eitt stórt nei -
þetta er ein af þeim myndum sem
ullar framan í áhorfendur.
Myndin inniheldur frásögn af 400
ára gamali ástfanginni blóðsugu
sem stofnar rokkhljómsveit til að
ná ástum ungrar stúlku. Er þetta
ekkialltsemsegjaþarf? -SMJ
sínu hlutverki, Annabeth Gish og
Lili Taylor em einnig góðar og
saman mynda þessar þrjár
skemmtilegt tríó sem gefur mynd-
inni nokkurt gildi.
Annars er Mystic Pizza kannski
fyrst og fremst stelpumynd, strák-
arnir eru allir í aukahlutverkum
og ekki mjög spennandi persónur.
-HK
Líkið í kæliskápnum
OUT COLD
Útgefandl: Skífan
Leikstjóri: Malcolm Mowbray. Handrit:
Leonard Glasser og George Malko.
Framleiðendur: George G. Braunstein
og Ron Hamady. Aðalhlutverk: John
Lithgow, Teri Garr, Randy Quaid og
Bruce McGill.
Bresk/bandarísk 1988. 92 min. Bönnuð
yngri en 12 ára.
í síðustu viku var skrifað um
aðra mynd þar sem lík var í aðal-
hlutverki (Weekend at Bernies).
Þessi hugmynd á sjálfsagt eftir að
birtast aftur án þess þó að því sé
haldið fram að Malcolm Mowbray
(skólabróðir Ágústs Guðmunds-
sonar leikstjóra) sé hugmynda-
snauður í umfjöllun sinni.
Myndin segir frá tveim kjötkaup-
mönnum sem eru jafnólíkir og dag-
ur og nótt. Ernie hugsar aðallega
um konur og peninga en Dave er
il'*: "'..i-i. ■< Kiíí'aS-.itOtó'.. -(Wíí»i.««.
i/íSjúí ftsíij' s£í;ss>
, o?m,.mm m • ■smam ■■.-■im
___ZxSZ&i___Bttið___..................-..._______
samviskusamur og sér um starfið.
Kona Ernie er ekki allt of sæl með
manninn og endar á því að loka
hann inni í frystigeymslunni yfir
nótt. Ernie lifir það ekki af og þá
hefjast vandkvæðin við að koma
líkinu undan.
Myndin er á mörkum farsa og
gamanmyndar en helst er hægt að
fmna henni til foráttu að hún kitlar
ekki hláturtaugamar nógu hressi-
lega. Mowbray er mjög snyrtilegur
í uppsetningu sinni og persónurnar
vinna vel saman. Þá hefur hann
skemmtilegt auga fyrir mynd-
rænni frásögn en er stundum að
nostra of mikið við það eins og leik-
þátturinn meö hurðina fyrir fryst-
inum sýnir.
Leikaraliðið vinnur vel saman og
Lithgow nær skemmtilegum tök-
um á hinum óframfærna kjötkaup-
manni sem lendir í því að þurfa að
koma líki undan og þá verður fars-
inn að farsi! -SMJ
★★Í4
í innsta hring
HOMEBOY
Útgefandi: Skifan
Leikstjóri: Michael Seresin. Framleiö-
endur: Elliott Kastner og Alan Marshall.
Tónlist: Eric Clapton. Aðalhlutverk: Mic-
key Rourke, Christopher Walken, Debra
Feuer.
Bandarísk 1988. 111 mín. Bönnuð yngri
en 12 ára.
Rourke virðist hafa mikla þörf
fyrir að leika andhetju og er ekki
annað hægt en að dást að kjarki
hans við verkefnaval. Einhvern
veginn hefði maður haldið aö hann
gæti valið úr hlutverkum en eigi
að síður tekur hann að sér þetta
and-Rocky hlutverk sem byggir á
dálítið þokukenndu handriti.
Maður fellur að mörgu leyti fyrir
persónunni og er það ekki síst Ro-
urke að þakka. Maður veit nánast
ekkert um þennan sundurbarða
kúreka þegar hann birtist í rign-
ingunni og hverfur inn á svert-
ingjabar þar sem hann drekkur sig
útúrfullan þar til hann er sóttur
og settur í hringinn þar sem hann
lemur einhvem slána í gólfið. Per-
sónan hggur fyrir: Einstæðingur
sem kann ekkert annað en slags-
mál til að koma sér áfram. Hann
segir fátt en í sinni lengstu tölu
segist hann ekki kunna aö vera
með „góðri“ stúlku. Til þessa hafi
hann verið með feitum, gömlum
og ljótum en aldrei góðri.
Eins og áður segir er það hin
ýkjukennda túlkun Rourke sem
heldur uppi frásögninni. Walken
hefur verið að gera það sem hann
gerir hér oft áður og nær ekki tök-
um á manni í hlutverki sölumanns
dauðans.
Handritið er ágætt en varla nógu
safaríkt til að styöja frekar ófram-
færinn leikstjóra. r -SMJ
Kröftugur miðill
SECOND SIGHT
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Joel Zwlck.
Aðalhlutverk: John Larroquette, Bron-
son Pinchot og Bess Armstrong.
Bandarisk 1989 - sýningartími 81 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Áhorfendur Stöðvar tvö ættu ör-
ugglega að kannast við aðalleikar-
ana í Second Sight, John Larroqu-
ette og Bronson Pinchot, en þeir
leika í gamanþáttum sem hafa ver-
ið sýndir þar í nokkurn tíma. Ekki
verður Second Sight til að auka
hróður þeirra því þótt þetta eigi að
vera gamanmynd þá stekkur
manni varla bros alla myndina og
það er kannski enn pínlegra vegna
þess að í raun er hér um farsa áð
ræða.
Fjallar myndin um leynilögrelu-
fyrirtækið Second Sight. Aðal-
tromp þess er miðillinn Murray
sem dettur í trans í tíma og ótíma.
Málið sem þeir fá til meðferðar í
myndinni er rán á kardínála og
eins og við var að búast komast
þeir félagar til botns í málinu en
ekki fyrr en mikið hefur gengið á
sem erfitt er að finna útskýringar á.
Það mæðir mest á Bronson Pinc-
het en hann leikur miðilinn. Hann
er ekkert sérlega skemmtilegur í
þáttaröðinni Perfect Stranger en
hér fer hann heldur betur yfir
strikið og er greinilegt að hann
hefur einhverjar aðrar hugmyndir
um hvernig' góður leikur er en
flestir aðrir. Þaö er mjög fátt sem
hægt er að segja Second Sight til
hróss, vitleysan er slík að maður
er þeirri stundu fegnastur þegar
myndinni lýkur.
-HK
Vitni óskast
PERFECT WITNESS
Útgefandi: Sfeinar hf.
Leikstjóri: Robert Mandel.
Aðalhlutverk: Brian Dennehy, Stockard
Channing og Aidan Quinn.
Bandarisk, 1989-sýningartimi 97 min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Það er ekkert sældarlíf að vera
vitni gegn stórum og voldugum
glæpahóp, eins og veitingahúseig-
andinn Paxton kemst að í Perfect
Wittness. Hann er í sakleysi sínu á
bar kvöld eitt þegar hann ásamt
öllum sem eru á barnum sér mann
myrtan með köldu blóði.
Állir neita að hafa séð hver morð-
inginn er nema Paxton, sem segist
muni þekkja hann. Um leið er líf
hans og fjölskyldu hans oröið lítils
virði. Saksóknarinn, sem er hiö
mesta hörkutól, heitir Paxton
vernd en hún er ekki öflugri en svo
aö sonur Paxtons, níu ára gamall,
fellur í klær glæpahópsins og er
pyntaður.
Þessi atburður veröur til þess að
Paxton dregur vitnisburð sinn til
baka. Saksóknarinn lætur þá fang-
elsa hann og lætur hann dúsa í
fangelsinu í nokkra mánuði. Hefst
nú mikið taugastríð milli þessara
tveggja manna, saksóknarinn læt-
ur sig htlu varða persónulegar að-
stæður Paxtons, það eina sem
kemst að hjá honum er að negla
glæpalýðinn en Paxton veit að hans
besta vörn er að steinþegja...
Söguþráðurinn er ábyggilega
ekkert langt frá raunveruleikanum
í stórborgum þar sem mafían ræð-
ur lögum og lofum í vissum hverf-
um. Samt sem áður vantar einhvað
í handrittið til að gera söguþráðinn
trúverðugan. Þá eru persónur frek-
ar óskýrar, sérstakjega saksóknar-
inn og aðstoöarkona hans.
Paxton er aftur á móti sú persóna
sem áhorfandinn fær tilfmningu
fyrir, enda, eins og hann segir var
það hans óheppni að vera staddur
á bamum kvöldið sem morðið var
framiö. Það eru nokkur góð atriði
í Perfect Witness en í heild er jafn-
vægið htið.
-HK