Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
11
Sjötugur
unglingur
syntitvo
kílómetra
„Ég vil sérstaklega tileinka þetta
sund mínum gamla og góða íþrótta-
kennara, Viggó Nathanaelssyni, sem
nú aðstoðar mig líkt og við sundið
yfir fjöröinn forðurn," sagði Ólafur
Gunnarsson, 71 árs gamall málm-
steypumaður á eftirlaunum, sem á
dögunum synti tvo kílómetra í sund-
laug Seltjamamess til þess að minn-
ast þess að fyrir 51 ári synti hann
þessa sömu vegalengd þvert yfir
Dýrafjörð frá Gemlufalli yfir að Þing-
eyri. Viggó kennari hans og aðstoð-
armaður er 86 ára og'vel hress þrátt
fyrir háan aldur.
Ólafur kvaðst í samtali við DV fara
í sund nær daglega. „Ég syndi guði
mínum til dýröar og sjálfum mér til
gleði. Guð hefur gefið mér það dýr-
mætasta sem nokkuri manneskju
getur hlotnast, góða heilsu," sagði
Ólafur sem syndir að jafnaði 500
metra í hvert sinn sem hann fer í
sund. Hann er fyrir nokkru kominn
á eftirlaun en varö fyrir áfalli fyrir
tveimur árum þegar hann fékk væg-
an blóðtappa í heilann en hefur náð
sér vel síðan og þakkar það heil-
brigðu líferni og reglulegum ferðum
í sundlaugarnar.
„Viggó Nathanaelsson kom mér í
kynni við sundíþróttina. Það var
áhrifamikil stund fyrir mig, óharðn-
aðan sveitadreng, ellefu ára gamlan,
að horfa á Viggó sýna dýfingar og
björgunarsund á íjölmennri útisam-
komu sem haldin var á Framnesodda
við Dýraíjörð árið 1930. Þetta hafði
ég aldrei séð áður og í hrifningu
minni held ég að sú hugsun hafi
hvarflað að mér að gaman væri að
geta gert einhvern tímann eitthvað
þessu líkt,“ sagði Ólafur í spjalli við
DV.
Tækifæri til þess fékk hann sumar-
iö eftir þegar Viggó hélt sundnám-
skeið fyrir unglinga á Þingeyri. Að-
stæðurnar þættu eflaust ekki beysn-
ar í dag en búningsklefmn var tjald
uppi á íjörukambinum. Kennslan fór
síöan fram í ísköldum sjónum. Sund-
kennarinn stóð sjálfur í litlum
pramma og hélt á langri stöng með
gjörð í bandi á endanum. Fyrstu
sundtökin tóku nemendurnir hggj-
andi í gjörðinni en Viggó slakaði
þeim niður í sjóinn. Ekki þótti vog-
andi að bjóða fíngerðum stúlkum
upp á sundkennslu við þessar að-
stæður og voru því eingöngu piltar
sem nutu þess. Þrátt fyrir harðræðið
gekk Ólafur 5 kílómetra á dag frá
Hvammi í Dýrafirði til að njóta
kennslunnar. Síðar fékk hann
kennslu í átta metra langri sundlaug
að Núpi í Dýrafirði. Eftir þá kennslu
var hann tilbúinn í Dýrafjarðarsund-
ið.
Ólafur fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Hvammi í Dýrafirði hjá afa sín-
um og ömmu. Hann lærði málm-
steypu í smiðju Guðmundar Sigurðs-
sonar á Þingeyri og starfaði við þá
iðn í tvo áratugi bæði í Járnsteyp-
unni og vélsmiðjunni Hellu.
„Þetta var óhollt starf og ég þoldi
það illa,“ segir Ólafur. „Það voru eit-
urgufur upp af þessu sem engum
manni varð gott af.“
Því var það að hann venti sínu
kvæði í kross og fór til sjós þar sem
hann var í önnur 20 ár, síðast bryti
á rannsóknarskipinu Árna Friðriks-.
syni.
„Nú er ég orðinn löggilt gamal-
menni eins og sagt er,“ segir Ölafur,
„sundiö er samt mitt líf og yndi og
mér líður betur í hvert skipti sem ég
fer í laugarnar."
-Pá
Ólafur Gunnarsson, sjötugur unglingur j toppformi.
DV-mynd GVA
Ólafur ásamt Viggó Nathanaelssyni i Sundlaug Seltjarnarness að loknu 2.000 metra sundi.
HÓPFERÐIR TIL BORGA
í NÓVEMBER '
STARFSMAÐUR SÖGU FER MEÐ HVERJUM
HÓP TIL AÐSTOÐAR
1 /11-4/11 LONDON
HÓTEL ST. GILES
VERÐ Á MANN ( TVÍBÝLI KR. 35.300,-
VERÐ Á MANN í EINBÝLI KR. 38.650,-
8/11-11/11 TRIER
HÓTEL ALTSTADT
VERÐ Á MANN í TVÍBÝLI KR. 32.930,-
VERÐ Á MANN í EINBÝLI KR. 36.230,-
15/11-18/11 LONDON
HÓTEL ONSLOW
VERÐ Á MANN í TVÍBÝLI KR. 35.300,-
VERÐ Á MANN í EINBÝLI KR. 39.100,-
22/11-25/11 FRANKFURT
HÖTELARCADE
VERÐ Á MANN í TVÍBÝLI KR. 32.900,-
VERÐ Á MANN í EINBÝLI KR. 36.550,-
29/11-2/12 PARÍS
HÓTEL GRAND ÐE MALTE
VERÐ Á MANN í TVÍBÝLI KR. 32.950,-
VERÐ Á MANN í EINBÝLI KR. 35.230,-
30/11-3/12
KAUPMANNAHÖFN
HÓTEL COSMOPOLE
VERÐ Á MANN í TVÍBÝLI KR. 34.300,-
VERÐ Á MANN í EINBÝLI KR. 36.500,-
INNIFALIÐ: FLUGFAR, AKSTUR TIL OG FRÁ
FLUGVELLI ERLENDIS. GISTING MEÐ MORG-
UNMAT. AÐSTOÐ STARFSMANNS SÖGU Á
MEÐAN Á FERÐ STENDUR.
Á GENGI 26.09.90 OG FLUG 01.10.90.
FERÐASKRIFSTOFAN