Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Side 13
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
13
Helgarpopp
Bob Dylan hefðbundinn en alls ekki svo slæmur.
Stefnan
stefnuleysi
- Bob Dylan með nýja plötu
í þá. Gallinn er ófrumleg framsetn-
ing. Miöað viö fyrra þor og fersk-
leika hefur Under the red Sky yfir-
bragð ílatneskju. Það þarf meira til
en stjörnufans til að auka víddir
tónlistarinnar en gestalistinn telur
m.a. Elton John, David Crosby,
Bruce Hornsby, George Harrison,
Slash úr Guns and Roses og bræð-
urna Jimmie og Stevie Ray Vaug-
han. Vissulega er hljóðfæraleikur-
inn pottþéttur og gítarleikurinn þá
sérstaklega. Þar kemur slide-gítar-
leikarinn David Lindley sterkastur
út. Þó mörgum kunni að þykja það
argasta smámunasemi og hártogun
að vera fárast út í útsetningar er
ekki hægt að neita því að frumleika
og nýjungagirni setur talsvert nið-
ur á hinni nýju plötu. Þó er rétt að
hafa í huga að í þeim efnum er sam-
anburður við Oh Mercy flestunv
plötum óhagstæður.
Sem fyrr segir er margt gott að
finna á Under the red Sky og alls
ekki hægt að tala um slaka plötu.
Gamlir Dylan aðdáendur verða
ábyggilega ekki fyrir vonbrigðum
með Under the red Sky því hér er
Dylan eins og flestir þekkja hann,
hefðbundinn. Eftir viku kynni
koma lögin T.V. Talking song,
10.000 men og Handy Dandy best
út hvað svo sem síðar verður.
Skömmu áður en Bob Dylan kom
hingað til lands í júní sl. lauk hann
við gerð nýrrar hljómplötu. Under
the red Sky nefnist hún og er ný-
lega komin út. Guð má vita númer
hvað þessi nýjasta afurð er í röð
hljómplatna Dylans, og gildir einu
því listamaðurinn er kominn í hóp
hálfguða og er illt að setja mæli-
stiku á afrek slíkra.
Mistök?
Fyrir réttu ári sendi Dylan frá sér
plötuna Oh Mercy sem hampað var
af gagnrýnendum um víða veröld
og fyrir suma var platan túlkuð
sem upprisa. Gamla goöið rak af
sér slyðruorðið með reglulegu
sköpunarverki, sköpunarverki þar
sem Dylan fetaði nýjar brautir í
tónlist sinni og sýndi á sér áöur
ókunnar hliðar. Sá aöili sem átti
stærstan þátt í að virkja Dylan til
nýrra afreka á Oh Mercy var
Kanadamaðurinn Daniel Lanois.
Sá er einhver fremsti útsetjari
rokksins í dag og hefur m.a. starfað
með U2, Peter Gabriel og Robbie
Robertson. í ljósi fyrri afreka Lano-
is vakti það nokkra gremju þegar
fréttist að Dylan ætlaði ekki að
halda samstarfmu áfram, heldur
ráða Don Was sér til fulltingis en
Was þessi hefur m.a. starfað tals-
vert með Elton John upp á síðkast-
ið. Reyndar þurfti þessi ákvörðun
Dylans ekki að koma á óvart því
hann hefur haft það fyrir sið að
skipta um útsetjara milli platna.
Vel má vera að þessi siður Dylans
sé virðingarverð leið til að foröast
klisjur og staðnað sánd, en á þessu
Umsjón:
Snorri Már Skúlason
stigi málsins er undirritaður sann-
færðUr um að skiptin á Lanois og
Was hafi veriö afleikur. Gaman
hefði verið að sjá samstarfið frá í
fyrra þróast því lengi getur gott
batnað.
Þar sólin sest
Framangreindar hugleiðingar
eru sprottnar af þeirri staðreynd
að Under the red sky hefur upp á
ýmislegt gott að bjóða sem fær ekki
notið sín sem skyldi. Óslípaða dem-
anta. Lagasmíöarnar eru flestar
hinar dægilegustu, grípandi og
krefjandi í senn. Um texta Dylans
þarf ekki að fjölyrða, þeir auka
gildi tónlistarinnar fyrir þá sem á
annaö borð nenna að setja sig inn
Cure og ljósvakinn
Fyrsta dag þess mánaðar er
rennur skeið sitt á enda á morgun
tóku þeir Robert Smith og félagar
í Cure upp á því að gerast sjóræn-
ingjar á öldum ljósvakans. Forsag-
an er sú að hljómsveitarmeðlimir
fengu skyndilega þörf fyrir að leika
gömul uppáhaldslög fyrir Lund-
únabúa og í því skyni hófu þeir að
útvarpa frá leynilegum stað í mið-
borginni. Heldur gekk treglega að
hemja sendinn sem átti að útbreiða
fagnaðarorð og söngva The Cure,
áöur en yfir lauk hafði hann farið
með herra sína í óvinsælt ferðalag
um FM skalann og meðal viðkomu-
staða var BBC 2 þar sem hljóm-
sveitarmeðlimir í Cure trufluðu
m.a. flutning á tónverki eftir Moz-
art. Um síðir tókst að koma lagi á
sendinn og þá ómuðu gömul og ný
Cure lög í bland við aðra tónlist
sem er í uppáhaldi hjá sveitarmeð-
Umum.
Meðal laga sem heyrðust var nýj-
asta smáskífulag Cure, Never Eno-
ugh sem kom á markað fyrir
nokkrum dögum. Never Enough er
undanfari nýrrar Lp-plötu frá Ro-
bert Smith og félögum sem mun
kallast Mixed Up og ku væntanleg
í byrjun nóvember.
Nýtt frá Paul Simon
Fjögur ár eru nú liðin frá útgáfu
Graceland plötu Paul Simon en
skífan sú skaut skapara sínum upp
á stjörnuhimininn eftir nokkur
mögur ár.
Nú líður að endurnýjuðum kynn-
um af tónlist Paul Simon því eftir
vendiiega könnun á heimstónlist
síðustu ára er kappinn loks tilbúinn
að opna smiðju sína almenningi.
Nýtt smáskífulag, The Obvious
Child, kom út fyrir nokkrum dögum
og stór plata er ekki langt undan.
Ný hljómsveit
Það hefur ekki farið mikið fyrir
Dave Stewart úr tvíeykinu Euryth-
mics síðustu misseri. í samstarfinu
við Annie Lennox var Stewart
þeirri gáfu gæddur að geta hrist
metnaðarfulla smelli fram úr erm-
inni þegar honum hentaði og nú
hefur Dave Stewart fundið sér nýj-
an vettvang fyrir sköpunargleðina.
Hann setti nefnilega nýja hljóm-
sveit á laggirnar fyrir stuttu sem
hann kallar The Spiritual Cow-
boys. Ekki hefur heyrst af plötu frá
þessari nýfæddu sveit en það þýðir
ekki að Dave Stewart hafi látiö
hljóðverin eiga sig. Hann er nefni-
lega nýkominn út úr einu slíku eft-
ir samvinnu við gamla Byrds
söngvarann Roger McGuinn en sá
vinnur nú að gerð sólóplötu. Auk
Stewarts aöstoöa Elvis Costello og'
Tom Petty fuglinn fyrrverandi á
plötunni sem væntanleg er i byrjun
nýs árs.
\ KYUDO
Japönsk
bogfími
Kennsla hefst 2. okt. nk.
Getum bætt við takmörk-
uðum fjölda byrjenda.
Upplýsingar og skráning í
símum 33431 og 38111.
Leiðbeinandi: Tryggvi
Sigurðsson, 5. dan ZNKR
(japanska kyudosam-
bandið).
Aldurstakmark 18 ár.
Lausafjáruppboð
Eftir kröfu gjaldþrotabús Bergsplans hf. á Reyðarfirði fer fram
nauðungaruppboð á lausafjármunum í eigu búsins, sem staðsett-
ir eru á fasteigninni Stuðlabergi, Reyðarfirði, en þar fer uppboðið
fram þann 6. október 1990 kl. 14.00.
Seldir verða eftirgreindir munir.
1. Barkar-frystiklefi ásamt frystipressu og búnaði, síldarflökunar-
vél, síldarsöltunarband, færibönd af ýmsum gerðum, fiskkör, Is-
hida MS 5300 vog, bindivél, fiskrennur, pækiltankar, handlyftar-
ar, logsuðutæki, jeppakerra, frystipönnur ca 700 stk. Desta díiillyft-
ari, húsbúnaður, ca 200 sildartunnuro.fi. viðkomandi síldarverkun.,
Munirnir eru seldir f því ástandi sem þeir eru á uppboðsdegi.
Greiðsla með ávísun er ekki tekin gild nema með samþykki upp-
boðshaldara. Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn í Suður-Múlasýslu.
25. september 1990.
Sigurður Eiríksson
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
ÍBÚAR SELJAHVERFIS, ATHUGIÐ:
Hér með er íbúum í Seljahverfi boðið að kynna sér
hugmyndir að staðsetningu á nýrri skíðalyftu norðan
Jakasels.
Uppdráttur verður til sýnis á Borgarskipulagi Reykja-
víkur að Borgartúni 3 (3. hæð) frá 2.-12. okt. 1990
alla virka daga frá kl. 9-16.
Athugasemdum eða ábendingum, ef einhverjar eru,
skal skila skriflega á sama stað eigi seinna en 12.
okt. 1990.
%/ 1.-4. nóvember
Fluf; og gisting í Trier, tvíbýli ú
Scandic Crown hótelinu:
1.-4. nóvemher kr. 32.680.
14.-19. nóvember kr. 38.440.
20.-25. nóvember kr. 38.440.
Flug, bíll og íbúó í Hostenberg, 20 mínútna akst-
ur frá Trier, mióaó vió 2 i hí! og íhúó:
1.-4. nóvember kr. 29.980.
14.-19. nóvemher kr. 33.380.
_________20.-25. nóvember kr. 33.380.______
Flug, bíll og lúxushús í Hostenberg, mióaó vió 4
í húsi og bíl:
1.-4. nóvember kr. 28.580.
14.-19. nóvember kr. 30.770.
20.-25. nóvember kr. 30.770.
Ofangreint veró er án jlugvallarskatts,
kr. 1.150. Takmarkaóur sætafjöldi.
Ath. Allar verslanir í Trier eru opnar \
allan laugardaginn 3. nóvember.
Ilnfimrstrxú 2 - Sími 62-30-20s