Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Page 18
18
LAUGARÐAGUR 29. SEPTEMBBR 1990.
Veiðivon
Veiðidellan er ótrúleg:
Það sá ekki út úr
augum fyrir hríð
Tíöarfariö undir það síðasta í veiö-
inni var ekki gott en veiðimenn létu
sig hafa það víða um land. Sums stað-
ar var snjókoma og leiðinlegt veður.
Við fréttum af þremur sem veiddu
áfram, þrátt fyrir snjókomu og rok.
Það voru vaktaskipti í veiðinni hjá
þeim, einn var úti að veiða og á með-
an fengu hinir sér kafíi í kuldanum.
Þrátt fyrir mikin kulda, stundum
ágang veðurs meira en góðu hófi
gegndi, veiddust íiskar. Þaö komu
tveir laxar á land og fimm fallegar
bleikjur. Samt sá ekki út úr augum
stundum fyrir hríð. Engum datt samt
í hug að hætta veiðum.
Á öðrum stað á landinu vöknuðu
veiðimenn við hrímaða glugga á
veiöihúsinu sama daginn og veitt var
í ánni fyrir vestan. Frostið var fjögur
stig. Það var kalt í veðri en enginn
fór heim fyrr en um kvöldmat, þrátt
fyrir fiskleysi. Möguleikinn var alltaf
fyrir hendi að fá „einn“ fisk.
Bleikjurnarjafn
váenar og laxinn
Veiðin í Hvolsá og Staðarhólsá var
góð í sumar og veiddust 326 laxar og
1000 bleikjur. Holl, sem veiddi í ánni
undir það síðasta, veiddi 30 laxa og
fimm bleikjur. Veiðimenn, sem
renndu síðustu dagana, sáu mikið
af bleikju efst í Hvolsánni og héldu
sumt vera laxa. En annað kom í ljós
er málið var kannað, rígvænar
þriggja til fjögurra punda bleikjur.
Veiðimaður renndi ofarlega í
Hvolsá á tveggja punda bleikju er
- en samt var veitt áfram
Anna Björg, kona Ólafs veiðivarðar
í Laxá í Kjós, með 16 punda flugulax
úr Laxá en þetta var síðasti laxinn
úránni ísumar. DV-myndÓÓ
einn fjögura punda renndi sér fram-
hjá veiðimanninum.
Hvers vegna er ekki
leyfð sjóbirtingsveiði
í Laxá í Leirársveit?
Mörgum finnst einkennilegt að
ekki sé leyfð sjóbirtinsgveiði í veiöiá
eins og Laxá í Leirársveit. Hellingur
af fallegum sjóbirtingi gengur í ána
og þessi fiskur tekur engan smátoll
af laxaseiðum. Það væri nær að leyfa
sjóbirtingsveiði í ánni eitthvað leng-
ur en laxveiðina, þar sem sjóbirting-
ur er fyrir hendi.
-G.Bender
Þó veturinn sé að koma er alltaf hægt að heyra veiðisögurnar frá sumr-
inu, hvort sem þær eru úr Haukadalsá, Laxá í Dölum eða bara úr Eiliðaán-
um. Þær eru aldrei eins hvort eð er. DV-mynd TÁ
m-T ■< -i i
>*.'• ...
mmi
Hér halda þeir Símon Sigurpálsson og Sigurpáll ísfjörð á tveimur af síð-
ustu löxunum úr Hvolsá og Staðarhólsá t Döium. DV-mynd G.Bender
Langur bolti
Gamall maður, sem ekki hafði
ýkja mikið vit á boltaleikjum,
settist eitt sinn við hlið sonarson-
ar síns þegar sá yngri var að
hlusta á knattspyrnulýsingu af
landsleik íslendinga og Tyrkja.
Er sá gamli hafði hlustað á lýs-
inguna góða stund sneri hann sér
að bamabaminu og spurði:
„Er ekki ennþá notaður kringl-
óttur bolti í knattspymu?“
„Jú, af hverju spyrðu, afi?“
„Æ, íþróttafréttamaðurinn var
að segja að Ásgeir heföi gefið
langan bolta fram á Pétur,“
Kona ein á Akureyri hótaði að
yfirgefa eiginmann sinn sökum
þess að hann héldi framhj á henni.
Er hún var á leið út úr dyrunum
áleiðis til móður sinnar varpaði
framhjáhaldarinn þessari visu á
eftir henni
Viljir þú mér fara frá,
Qandakorn því sinni.
Eg hengi mig - um hálsinn á,
hinni kærustunni.
Tíð skipti
„Hann er ekki lengi að skipta
áttum hér í sveitinni,“ sagði
skagfirsk bóndakona. „Vindur-
inn var beint í rassinn þegar ég
fór út í fjós en í fangið þegar ég
kom út úr því aftur."
Til eignar
Knattspyrnukappi í Reykjavik
eignaðist tvíbura fyrir nokkrum
árum. Daginn eftir fæðinguna
var hann of seinn í „pabbatím-
ann“ vegna knattspyrnuleiks en
gaf sér þó tíma til að koma við í
blómaverslun. Er hann staulaðist
inn á fæðingardeildina, alltof
seinn, og rétti konu sinni blóm-
vöndinn spurði hún reiðilega:
„Er hann til eignar eða þarf ég
að vinna hann þrjú ár í roð.“
Finnur þú finim breytingai? 74
- Jensen bókhaldari? ...ég vildi bara aðvara þig; maðurinn minn er far-
inn á skrifstofuna en gleymdi að taka með róandi pillurnar...!
Nafn:..........
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1) Hitateppi fyrir bak og
hnakka, kr. 3.900,-
2) Svissneska heilsupannan,
kr. 2.990,-
Vinningarnir koma frá Póst-
versluninni Príma, Hafnar-
firði.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 74
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Sigurvegarar fyrir sjötu-
gustu og aðra getraun
reyndust vera:
I.Sigríður Jónsdóttir,
Hrauntungu 101,
200 Kópavogur.
2. Erla Ásmundsdóttir,
Kringlumýri 10,
600 Akureyri,
Vinningarnir verða
sendir heim.