Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Side 19
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
19
Vísnaþáttur
Huganum
engin halda
bönd
Laugardaginn 19. maí sl. birtist í
Mbl. grein meö fyrirsögninni Aö
eiga sér hugsjón. Höfundur var
Snorri Bjarnason, ökukennari og
húsasmíðameistari á Blönduósi.
Ræddi hann þar um hugsjónir
aldamótakynslóöarinnar um betra
mannlíf á íslandi og eldmóð þann
sem hún var haldin til að vinna
landi og þjóð allt sem hún mátti.
En nú væri slokknað á kyndlinum
og það væri okkar að tendra logann
á ný svo ísland gæti verið „Vitinn
í norðri“, hreint og fagurt land,
ómengað og vímuefnalaust, öðrum
þjóðum fyrirmynd. Framhald
greinarinnar birtíst í DV nú fyrir
skömmu og mun þvi lesendum þess
kunnugt.
En fyrri greinin varð Rúnari
Kristjánssyni á Skagaströnd
kveikja að ljóði sem hánn nefnir
Eyjan hvíta:
Eyjan hvíta ein og sér
yst á reginhafi,
fijáls og tígin fegurð ber,
fóðurlandið besta er,
á því enginn vafl.
Þessi eyja enn í dag
á sér hreina lití,
megi hún fyrir heimsins hag
helga lífsins bræðralag,
lýsa líkt og viti.
Lýsa bjart um lönd og höf,
leiöa frið til valda,
verða þjóðum gleðigjöf,
geisla senda að ystu nöf,
stöðva stríðið kalda.
Eyjan hvíta - eyjan mín,
auðlegð máttu bjóða.
Við þér helgað hlutverk skín,
háleit verður framtíð þín,
bundin blessun þjóða.
Efldu trú á andans mátt,
eygðu markið þráða,
svo að alhr elski sátt,
örvi lífsins hjartaslátt,
hefji heim til dáða.
Vertu í norðri viti sá
von sem alla styrkir,
fylltu hjörtun friðarþrá,
frá þér stafl birtu á
vegi er voru myrkir.
Vertu í norðri virki um hag -
vöxt í anda og siðum.
Sýndu mannlegt samfélag,
sýndu öllum nú í dag
líf sem lýtur griðum.
Þá mun vitans ljós um land
lýðsins gæfu magna.
Þá mun heilagt hjónaband
hætta aö renna út í sand,
fjölskyldurnar fagna.
Eyjan hvíta - eyjan mín,
- á þig forlög kalla.
Sé ég fagra friðarsýn
fyrir blessuð áhrif þín
vaxa um veröld alla.
Margt er nú öðruvísi en þegar
Andrés H. Valberg gekk til kinda
norður í Skagafirði endur fyrir
löngu, sem hann minnist svo:
Man ég eyjar, man ég flörð,
man ég flöll og dali,
gleggst ég man þó Gönguskörð,
þar gekk ég svangur smah.
En Guðmundi E. Geirdal, kennara
á ísafirði, nægir ekkert minna en
landið allt, er hann kveður:
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
Tign og fegurð enginn á
upp á meiri að bjóða.
Þér ég yndi um eilífð hjá
ættarlandið góða.
Fjarlægðin gerir flöllin blá, ekki
síst ef höf ber í milli. fngólfur Dav-
íðsson grasafræðingur nam í Kaup-
mannahöfn og ortí:
Til íslands lágu örlög mín,
- ég uni í faðmi þínum,
þegar foss og flallasýn
fléttast draumum mínum.
En margt hefur breyst frá því sem
áður var „Þeir sem báru eitt sinn
borða og spjöld/brosa nú fyrir yfir-
völd“. Og nú tala menn opinskátt
um það í flölmiðlum að þeir séu að
reyna að „selja ísland", að vísu
aðeins afnot af því til ferðalanga,
en orðalagið er þeim sem við hafa
tíl vansa. Helgi Baldursson frá
Syðra-Hóli:
Fyrir glópagullið bjóða
grónar heiðar fóðurlandsins.
Skal þér blæða blíðust fljóða
bara fyrir ágirnd mannsins.
Jakob Ó. Pétursson,
lendings á Akureyri,
árinni:
ritstjóri ís-
tók dýpra í
Þeir sem óska erlends valds
yfir fólksins sálum,
hvetja æ til undanhalds
í þess frelsismálum.
Ásgrímur Kristínsson frá Ás-
brekku hefur hug á flallaferðum:
Ennþá seiða sólarlönd
sýn til blárra flalla.
Huganum engin halda bönd,
heiðin er að kalla.
Og þangað kominrígæti hann tekið
undir með Kristjáni Helgasyni sem
orti við mæðiveikisgirðingu á flöll-
um uppi:
Gleði og allan unað finn,
urðir og hjallar brosa
ef ég halla aðeins kinn
upp að fiallamosa.
Torfi Jónsson
NI5SAN
MICRA
EKKI BARA. FALLEGUR OG ÞÆGILEGUR
HELDUR EINNIG NÍÐSTERKUR OG ÖRUGGUR
Rúmgóður og bjartur og auðvelt að
íeggja í stæðí. Ingvar
Fjögurra strokka vél, sparneytin, i|'-^ 1 4 HClQSSOn
hflóðlát og aflgóð. y 8 1 Sævarhöfóa 2
Þnggja ara abyrgð. sími 91-674000
ER SMÁAUGLÝSINGA
BLAÐIÐ
SÍMINNER
QIMHrD
M 1 il %J E Mm.
Melodie d OO
Módel 5910
Melodie 100 saumavélarnar hafa upp
áað bjóða 10 gerðiraf fallegum
nytjasaumum og teygjusaumum
auk nokkurra skrautsauma og svo
auðvitað loksaum.
Þær eru með sjálfvirkan
hnappagatasaum sem saumar
hnappagöt af öllum stærðum.
★ Beinn saumur
★ zig-zag
★ Blindfalds saumur
★ Fjölspora zig-zag
★ M-saumur
★ Hálfmáni
★ Loksaumur
★ Fuglaspor
★ Styrktur beinn saumur
★ Tvöfalt zig-zag
0
SAMBANDSINS
VIÐ MIKLAGARÐ SIMAR 68 55 50 - 6812 66
Þú hefur e.t.v. gaman af að vita að rúmlega
2,5 milljón SINGER saumavélar eru nú
framleiddar ár hvert - hinar fyrstu fyrir
rúmum 135 árum. i þessu liggur skýringin
á gæðum vélanna og sanngjörnu verði.