Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Page 20
20
LAUGARDAOUR 29. SEPTEMBER 1990.
Kvikmyndir
Nýlega var frumsýnd myndin
Air America sem er heiti á flugfé-
lagi sem CIA kom á legg til að flytja
hergögn og vistir til Laos á tímum
Víetnamstríðsins
Enginn getur neitað því að kvik-
myndin er sterkt áróðurtæki þegar
koma þarf ákveðnum boðskap á
framfæri. Sérstaklega er áróður
áberandi þegar um stríðsmyndir
er að ræða, eins og sést vel þegar
gamlar myndir gerðar í seinni
heimsstyrjöldinni eru skoðaðar.
Þar var alltaf dregin upp einföld
mynd af hinu góða og slæma og
reynt að nota kvikmyndina til að
efla sem mest þjóðernistilflnningu
meðal þjóðarinnar.
En síðan kom sjónvarpið og
breytti öllu eins og hest mátti sjá
hvað varðar Víetnamstríðið. Aukin
samkeppni milli sjónvarpsstööva,
handhægar myndbandaupptöku-
vélar og aukin tækni gerði sjón-
varpsstöðvum kleift að færa fréttir
af Víetnamstríðinu beint inn í hi-
býh manna. Það sem birtist á
skjánum var oft á tíðum í miklu
ósamræmi við það sem sumir kvik-
myndaframleiðendur voru aö bera
á borð fyrir áhorfendur, eins og t.d
áróðursmyndin The Green Berets
þar sem hin mikla þjóðemishetja
Bandaríkjanna, sjálfur John
Wayne, fór með aðalhlutverkið.
Raunsæi
Kvikmyndaframleiðendur sáu
sér einnig leik á borði og því fór
að koma fram á sjónarsviðið nýtt
raunsæistímabil með myndum
eins og The Deer Hunter, sem fjall-
aði um hvað það merkir í raun og
veru aö vera kallaður í herinn, og
Coming Home sem tók fyrir vanda-
málin sem fylgja því að aðlagast
aftur þjóðfélaginu og sjálfum sér
eftir að hafa gengið í gegnum þær
hörmungar sem alltaf fylgja stríði.
Það má segja að flestar stríðs-
myndir, sem gerðar hafa verið í
Bandaríkjunum sl. áratug, hafi
fjallað um Víetnamstríðið á einn
eða annan hátt, eins og t.d óskars-
verðlaunamyndin Platoon.
Þær fjalla um atburði sem eru
enn í fersku minni flestra og skapa
því oft harðar umræður og deilur
eins og eðlilegt er. í ágústmánuði
-
...
Mel Gibson fer með aðalhlutverkið i Air America.
handritið í hendurnar og lýsti yfir
áhuga sínum á að leika í mynd-
inni. Einnig voru þeir Bill Murray,
Jim Belushi og Kevin Costner
nefndir sem líklegir meðleikarar
Connery. Lorimar hafði síðan sam-
band við Carolco vegna fjármögn-
unar og allt var tilbúið til kvik-
myndatöku. En þá kom enn eitt
vandamálið upp á yfirborðið.
Hinn nýi fjármagnsaðili myndar-
innar vildi ekki starfa með Rush
og enn á ný var fenginn leikstjóri
(Bob Rafelson) sem þegar fékk til
liðs við sig rithöfund (John Eskow)
til að skrifa nýtt haridrit. Mörgum
fannst valið á Eskow sérstætt því
hann hafði aðeins skrifað eitt hand-
rit sem kvikmynd hafði verið gerð
eftir en það var Pink Cadillac. En
hann átti auðvelt með að skrifa
hnyttnar samræður og það var það
sem reið baggamuninn. Einnig
lagði Eskow töluvert á sig til að
ræða við fyrrverandi CIA starfs-
menn sem höfðu unnið hjá Air
America.
Verkfall
En þegar allt var tilbúiö til kvik-
myndatöku í Thailandi kom verk-
fall handritahöfunda svo Eskow
var tímabundið úr leik. Við þetta
brast flótti í hðið og ákvað Rafelson
að taka að sér að leikstýra Moun-
tains of the Moon. Því þurfti enn
einu sinni að leita að nýjum leik-
stjóra og í þetta sinn var valinn
Roger Spottiswoode sem m.a. gerði
myndirnar Under Fire, Turner &
Hooch og Shoot To Kill.
Þegar verkfallið leystist var hægt
að hefjast handa og árangurinn
mátti síðan sjá í þeirri mynd sem
var frumsýnd í ágúst sl. Aðstand-
endur myndarinnar voru að von-
um orðnir langþreyttir á allri þess-
ari bið og þegar Good Morning,
Vietnam var frumsýnd fengu þeir
á tilfinninguna að hafa misst af
lestinni. Good Morning, Vietnam
reyndist gífurlega vinsæl, enda
með Robert William í aðalhlut-
verki. Þetta styrkti þá félaga að
þeir væru á réttri leið.
Mel Gibson
Mel Gibson virðist vera að gera
Air America:
Flugfélag á vegum CIA
var svo frumsýnd í Bandaríkjun-
um enn ein stríðsmyndin en í þetta
sinn er ekki veriö að ræða beint
um Víetnamstríðið heldur hem-
aðaraðgerðir Bandaríkjanna í Laos
á þessum tíma.
Myndin hefur valdið hörðum
deilum og saka kvikmyndagagn-
rýnendur bæði WaU Street Journal
og Times aðstandendur myndar-
innar um að fara með rangt mál
og mjög frjálslega með staðreyndir.
Myndin heitir Air America með
ástralska hjartaknúsaranum Mel
Gibson í aðalhlutverki.
Eiturlyf
Það sem veldur einna mestum
deilum er sú fullyrðing, sem sett
er fram í myndinni, að CIA og
Bandaríkjaher hafi tekið þátt í
umtalsverðu eiturlyíjasmygli frá
Laos og notað m.a. tekjurnar til að
fjármagna að hluta stríðsrekstur-
inn í Víetnam.
Heiti myndarinnar, Air America,
er nafn á flugfélagi sem CIA kom
á legg til að auövelda starfsemi sína
í Laos. Flugfélagið flaug með vopn,
birgðir og hjálpargögn til vin-
veittra þjóðarbrota sem notuðu þau
til skæruhemaðar á Víetnama,
m.a. á hinni frægu Ho Chi Minh
slóð. Um þetta eru flestir sammála
en hins vegar ekki þá fullyrðingu,
sem Christopher Robbins setti
fram í bók sinni, sem myndin er
byggð á, að Air America hafi notaö
ílugvélar sínar til að fljúga með
ópíum til baka. Raunar hafi Air
America gengið undir gælunafninu
„eiturlyíjaílugfélagið". í myndinni
er Mel Gibson meira að segja látinn
réttlæta þessa aðgerð.
Efnisþráóur
En lítum nánar á efnisþráðinn.
Söguhetjan er lífsreyndur flugmað-
ur að nafni Gene Ryack (Mel Gib-
son). Myndin hefst árið 1969 þegar
Ryack er að vinna sem ofurhugi
við gerð kvikmyndar í L.A. þar sem
hann átti að lenda þyrilvængju á
einni af hraðbrautunum til borgar-
innar. CIA viröist hafa hrifist svo
af hæfileikum og dirfsku Ryack að
Umsjón:
Baldur Hjaltason
honum er boðið starf við Air Amer-
ica sem hann þiggur. Þar lendir
hann í ýmsum ævintýrum og svað-
ilförum.
í myndinni koma fram margir
skrautlegir persónuleikar, eins og
Major Donald Lemond, sem réð sig
sem yfirnann hjá Air America eftir
að hafa farið á eftirlaun hjá hern-
um. Hann sér einnig um að útvega
og vinna allt ópíum sem til boða
stendur. Hvíta húsið fær einnig
einn fulltrúa í Air America sem er
Lane Smith þingmaður sem sendur
er til Laos til að kynna sér hvort
þær sögusagnir, sem eru farnar aö
heyrast í Washington þess efnis að
Air America stundi eiturlyfja-
smygl, séu réttar.
Myndin er talin vera spennandi
og vel gerð. Air America var að
mestu leyti tekin í Thailandi í
grennd vi Chang Mai. Það gekk
mikið á meðan á kvikmyndatök-
unni stóð því aðstandendur mynd-
arinnar upplifðu tvo jarðskjálfta
og hvirfilvind, fyrir utan að litlu
munaði að alvarlegt flugslys yrði
þegar eitt ofurmannaatriði var
kvikmyndað.
Erfið fæðing
Aðdragandinn að gerð Air Amer-
ica er iangur eins og með flestar
Hollywoodmyndir. Það var strax
um 1978 að Lorimar kvikmynda-
verið keypti réttinn til að gera
kvikmynd eftir samnefndri bók
breska blaðamannsins Christopher
Robbins. Hann var fenginn til að
gera handritið en vegna endur-
skipulagningar á starfsemi Lorim-
ar lenti þetta verkefnið í nokkurs
konar tómarúmi. Þar kom þó að
því að leikstjórinn Richard Rush
tók verkefnið upp á sína arma og
skrifaði nýtt handrit. Rush er lík-
lega þekktastur hérlendis fyrir
mynd sína Stunt Man.
Leikarinn Sean Connery fékk
þaö gott þessa dagana. Eins og hans
var von og vísa skilar Gibson hlut-
verki sínu í Air America mjög vel.
Nýlega var frumsýnd myndin Bird
on a Wire, sem John Badham leik-
stýrði, með þeim Gibson og Goldie
Hawn í aðalhlutverkum. Þetta er
gamanmynd og verður án efa gam-
an að sjá hvernig Gibson tekst upp
í hlutverki gamanleikarans. Að
vísu er Air America skilgreind sem
gamanmynd með alvarlegum und-
irtóni en í þessum myndum leikur
Gibson mjög óhk hlutverk. Þar að
auki er Gibson búinn að taka að
sér að leika Hamlet í samnefndri
mynd eftir Franco Zeffirelli.
Vinsældir þessara mynda munu
því ráða úrslitum um hvort Gibson
tekst aö festa sig í sessi sem leikari
í þungavigtarflokki, líkt og Robert
Redford, Dustin Hoffman og Kevin
Costner.
-B.H.