Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
21
Bridge
HM í Sviss:
Trompbragðið
dugði ekki í úrslitin
Margir landsliðsmanna okkar
munu kannast við Frakkann Patrick
Sussel, en hann hefur átt sæti í lands-
liði Frakka af og til á undanförnum
árum.
í tvímenningskeppni heimsmeist-
aramótsins spilaði hann við minna
þekktan spilara að nafni Tranchet.
Ekki náðu þeir félagar í úrslitin,
þrátt fyrir meistaratakta Sussel en
hugsanlega gæti hann fengið verð-
laun fyrir bestu spilamensku móts-
ins i eftirfarandi spili.
A/A-V
Sviðsljós
Gerum ekki margt í einu
við stýrið..
Wp
k> -
yUMFERÐAR
RÁÐ
♦ 8 6 3
V 9
♦ G 8 6 4 3
4. 10 7 6 4
* ÁKDG4
¥ Á G 10 5 4
♦ -
+ ÁKG
N
V A
S
♦ -
V K2
♦ KD 9 7 5 2
+ D 9 5 3 2
Imelda Marcos fyrir utan dómshús-
ið.
Imelda enn
fyrir rétti
Imelda Marcos, ekkja Marcosar
fyrrum einvalds á Filippseyjum,
mætti fyrir rétt í Pittsburgh á dögun-
um þegar vitnaleiðslur fóru fram
máli sem snýst um meinta mútu-
þægni Marcosar heitins og fulltrúa
hans. Því er haldið fram að banda-
ríska fyrirtækið Westinghouse Elec-
tric hafi greitt fulltrúa stjórnar
Marcosar 17 milljónir dollara til þess
að greiða fyrir byggingu kjarnorku-
vers. Verið reis og var smiði þess
lokið 1985 en hefur aldrei verið notað.
Frú Marcos, eða Jámfiðrildið eins
og hún hefur stundum verið nefnd,
sagði við fréttamenn að loknum rétt-
arhöldunum að þau hefðu veriö
hræðileg lífsreynsla. „Bandarísk og
filippseysk dómsvöld leggja mig í
sameiningu í einelti og reyna að
flækja mig í mál sem ég veit ekkert
um,“ sagöi ekkjan grátklökk við
pressuna. Lögfræðingur frúarinnar
lýsti megnri vanþóknun sinni á
vinnubrögðum dómsvalda sem hann
sagði hafa meiri áhuga á fataeign og
lífsstíl forsetahjónanna fyrrverandi
en að komast til botns í þvi máli sem
væri fyrir rétti.
Imelda hefur, aUt frá því að þau
hjón hrökkluðust frá völdum á
Filippseyjum, staðið í málaferlum
um meint misferli. Engar sakir hafa
þó verið sannaðar á hana og í júlí
síðastliðnum var hún ásamt araban-
um Kashoggi sýknuð af ákærum um
að hafa stolið 220 miUjónum dollara
úr ríkiskassa FUippseyja.
♦ 10 9 7 5 2
V D 8 7 6 3
♦ Á 10
+ 8
Með Sussel og Tranchet a-v gengu
sagnir á þessa leið:
Austur Suöur Vestur Norður
ltígull 2tíglar* dobl 2spaðar
3 lauf pass 3 spaðar pass
4 lauf pass 7 lauf pass
pass dobl pass pass
Pass * hálitir
Óneitanlega á vestur góð spU á
móti opnun austur þó í veikara lagi
væri. Það er hins vegar ljóst að
tveggja tígla sögn suðurs verkar sem
aðvörunarskilti um vondar legur en
samt sem áður er ekki hægt að áfell-
ast vestur fyrir að fara alla leið.
Reyndar réttlætti Sussel það með
glæsilegri spilamennsku.
Suður spilaöi út tígulás. Sussel
varð aö trompa í blindum og hann
spilaði strax öðru trompi. Þegar átt-
an kom frá suðri, tók hann sér góðan
umhugsunartíma. Tveggja tígla sögn
suðurs varð að lokum til þess að
Sussel fann leið sem vörnin átti ekk-
ert svar við. Hann tók hjartaás og
byrjaði síðan að spila spöðunum.
Þetta var staðan þegar fjórða spaðan-
um var spilað:
♦ -
* -
♦ G864
+ 10 7 6
♦ G 4
V G 10 5 4
♦ -
+ G
N
V A
S
* -
¥ K
♦ K D
+ D 9 5 3
* 10 9
V D 8 7 6
♦ 10
+ -
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Norður gerði sitt besta með því að
kasta tígh en Sussel kastaði þá
hjartakóng. Hann trompaði síðan
hjarta, tók tígulhjón, fór heim á
trompgosa og þar með var norður
fastur í trompbragði.
Sannkallaðir meistarataktar hjá
Sussel.
Stefán Guðjohnsen
• •
SJALFSVORN
BMB IhBVbI
KARLAR
Tíu tíma námskeið í sjálfsvörn eru að heQast.
nnt verður tvisvar í viku. Lágmarksaldur 15 ár.
X
Skipt verður í kvennaflokka, karla-
flokka og flokka 35 ára og eldri.
í boði eru dagtímar, kvöldtímar og
helgartímar.
Kennarar:
Unni Hoiby. Hún er 3. dan í shotokan karate
og hefur margsinnis orðið Noregsmeistari í
karate.
Lars Persson. Hann er 3. dan og var Evrópu-
meistari í karate 1986.
Upplýsingar og skráning
í síma 4003
frá kl. 12.00-20.00 á
laugardag og sunnudag
og 16-22 á virkum dögum.
Skipholti 3
Sími 14003