Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Page 23
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
35
.'■v' ■ ■
■■;■ ;
1 1
&
p : J
p II -i
%m wÁÍjy
wSfJPl||mSi PPit.uir JL J tei
s / . - in- KÍFá. m
Ingi Helgason og Árný Arnþórsdóttir nýir eigendur Hollywood.
DV-myndir BG
það úr steinum. Steinana steypti
hann sjálfur í móti sem hann fann í
fjörunni. Til þess að hræra steypuna
keypti hann htla steypuhrærivél.
Kunningjar hans hlógu mikið að
þessu uppátæki og töldu þetta hinn
mesta óþarfa.
„Vélin kostaði 8.000 krónur,“ segir
Ingi. „Hún kom með skipi austur og
var varla komin á bryggjuna á Fá-
skrúðsfirði þegar hún var komin í
leigu og á einni viku tók ég inn fyrir
kaupverðinu. Þá hættu kunningjarn-
ir að hlæja.“
- Það er stundum sagt að menn fái
aldrei sigrað sinn fæðingarhrepp og
nái seint þeirri viðurkenningu sem
þeir telja sig eiga á heimaslóð. Sakna
þau Ingi og Árný Fáskrúðsfjarðar?
„Þetta er ekki eins erfitt og við
héldum . Við erum bæði hagvön hér
syðra og höfum verið hér meö annan
fótinn mjög lengi í tengslum við okk-
ar rekstur. Svo eru fiarlægðirnar
orðnar svo stuttar að þetta er ekkert
mál,“ segir Ingi og Árný er sammála.
„Ég held að þaö sé mjög algengt
úti á landi að menn eru svo lokaðir
og einangraðir í hugsun að enginn
þorir að gera neitt. Þarna er margt
hæfileikafólk en það er eins og kjark-
inn skorti. Það höfðu margir talað
og látið sig dreyma um að setja upp
matsölustað fyrir austan. Þegar við
létum svo verða af því þá voru menn
svona með úrtölur en þeir tóku
staðnum opnum örmum þegar til
kom og eru stoltir af honum í dag,“
segir Ingi.
„Við fundum að margir voru á
móti brottfór okkar. í plássi eins og
þessu þá munar um hvern mann sem
fer. Það trúði því enginn að við gæt-
um farið eða vildum fara.“
Ingi bendir á að margir séu bundn-
ir átthagafiötrum úr steinsteypu því
húseignir á landsbyggðinni séu ill-
eöa óseljanlegar.
- Hvernig taka kunningjarnir fyrir
austan nýjustu áætlunum þeirra?
„Ég held að þeir séu svo nýbúnir
að frétta þetta að þeir séu ekki enn
hættir að gapa,“ segir Ingi og hlær.
Þau hjón eru sammála um að til
þess að rekstur af þessu tagi gangi
þá þurfi að gera raunsæjar áætlanir
og reisa sér ekki hurðarás um öxl en
fyrst og fremst sé botnlaus vinna eig-
endanna að baki velheppnuðum
rekstri.
Ingi og Árný segjast alltaf munu
verða Austfirðingar þótt þau hafi nú
flutt sig um set. Þau bera greinilega
sterkar taugar til fiórðungsins sem
fóstraði þau. En það eru bæði kostir
og gallar á ýmsu þar eystra.
„Mér finnst kaupfélögin hafa alltof
sterk ítök víða á Austfiörðum. Þau
eru víða hurðarásar í atvinnulífi í
hverju byggðarlagi og margt gott
hægt að segja um það. En þau deila
og drottna og víða þrífst ekki sú fiöl-
breytni sem nauðsynleg er til þess
að skapa fiölbreytt mannlíf," segir
Ingi.
Austfirðir segir hann að séu að
mestu ónumin paradís fyrir ferða-
menn. Stöðugt vaxandi ásókn er í
hótelgistingu og ýmisskonar ferða-
mannaþjónustu.
„Ef við lítum á Fáskrúðsfiörð þá
er þar í fiarðarkjaftinum eyjan
Skrúöur sem er gullmoli sem adltof
fáir hafa kynnst nánar. Svo má
minna á þá miklu sögu og menjar
sem þar er að finna eftir veru
franskra skútusjómanna.
Hefð að Fáskrúðsfirð-
ingar reki skemmti-
staði í Reykjavík
„Það eru margir sem virðast líta á
að ég sé einhver sveitamaður sem sé
aö koma í fyrsta skipti í bæinn. Það
er aðalatriðið í öllum fréttum að sá
sem keypti Holly wood og ætli að reka
það sé Fáskrúðsfirðingur. Ég vil bara
rifia það upp fyrir fólki að þekktir
skemmtistaðir á fyrri tíð eins og
Vetrargarðurinn, Glaumbær, Klúbb-
urinn og Röðull áttu það sameigin-
legt að það voru Fáskrúðsfirðingar
sem sáu um reksturinn. Þannig er
ég bara að viðhalda hefðinni," segir
Ingi og glottir. „Það er bara verið að
yngja aðeins upp í þessum bransa."
„Okkur langaði til þess að breyta
aðeins til og finna okkur nýjan far-
veg. Þetta hefur verið óskapleg vinna
undanfarin ár og við vildum komast
frá þessu. Það var aldrei ætlun okkar
eða stefna að fara út í skemmtistaða-
rekstur í Reykjavík. Við höfum gam-
an af því að vera innan um fólk og
taka þátt í lífsbaráttunni eins og hún
horfir við fólki hér syðra. Við verð
um að standa og falla með þessu
uppátáeki. Ef við follum þá follum
við með sæmd en ef við stöndum þá
er það gott, segir Ingi að lokum.
-Pá
%