Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Qupperneq 24
36
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
Knattspyma unglinga
Anton B. Markússon var leynivopn Framara gegn Djurgárden. Hann er
einnig leikmaður með 2. flokki og 21 árs landsliðinu.
,,Þad hlýtur að
vera Markússon'
AUt var á móti Waas í þessari
íslandsferð. Það var eins og ekkert
gæti gengið upp. Fyrst kemur hann
til að fylgjast með Fram gegn Val
og fannst lítið til um. Síðan kom í
ljós að Framarar voru mun betri
en þeir létu uppi og ekki nóg með
það, hann þekkti ekki eina lands-
liðsmanninn í því ágæta liði. Já,
Framarar eru erfiðir viðureignar
og ekki allir þar sem þeir eru séðir
því þeir hafa gabbað Waas í tvenn-
um skilningi. Haldi Framarar upp-
teknum hætti er útlitið gott í Evr-
ópukeppninni.
Waas má aftur á móti fara að
passa sig því þjálfarar hafa oft feng-
ið sparkið fyrir minni afglöp en
þessi.
-Hson
Eftir leik Framara gegn Djur-
gárden í Evrópukeppni bikarhafa á
dögunum, sem Framarar unnu svo
eftirminnilega, 3-0, var Waas, þjálf-
ari sænska liðsins, mjög ringlaður
og botnaði hvorki upp né niður í
þessum mjög svo „óvæntu" úrslit-
um. Hann hitti að máli þjálfara ís-
lenska landsliðsins, Bo Johansson,
sem er landi hans, og spurði hversu
margir landsliðsmenn léku eigin-
lega með Fram. Bo Joh'ansson svar-
aöi réttilega að aðeins einn leik-
manna Framara skipaði landsliðs-
hóp íslands. Waas varð alveg dol-
fallinn og eftir langa umhugsun
svaraði hann: „Ja, héma og það er
að sjálfsögöu Markússon?" „Nei.
Ekki aldefiis. Það er Pétur
Ormslev," svaraði Bo.
„Vilji innan KSÍ að
fylgja þessu vel eftir"
segir Jón Gunnlaugsson
Formaður drengjalandsliðsnefnd-
ar, Jón Gunnlaugsson, var að vonum
hress yfir úrslitunum í leiknum gegn
Wales:
„Það er góður vilji innan KSÍ að
fylgja þessu starfi kringum drengja-
landsliðið vel eftir. í vetur er til að
mynda nauðsynlegt að drengirnir
stundi þrekæfingar. Þjálfarar félag-
anna þurfa líka að koma tfi liðs við
okkur hvað þetta áhrærir. Við höfum
ekki fylgt þessu nógu vel eftir undan-
farin ár og hafa leikmenn því tapað
dýrmætum tíma í uppbyggingunni.
Annað sem vert er að minnast á
er að strákarnir hafa oftlega kvartað
yfir skorti á Jeikreynslu og verðum
við að taka það til athugunar. Það
er á okkar stefnuskrá að drengirnir
fái stíft æfingaprógramm í vetur, taki
frí kringum jólin. Síðan verði byrjað
af fullum krafti eftir áramót og æft
og spilað eins mikið og mögulegt er
og farið í keppnisferðir.
Mótafyrirkomu-
lagið gallað
Við verðum í raun að skoða ungl-
ingamálin í nýju ljósi. Þaö eru til að
mynda gallar á núverandi mótafyrir-
komulagi íslandsmótsins. Ég er
hlynntur því að frá 4. flokki og upp
úr verði komiö á svokallaðri defidar-
keppni og leikið heima og heiman.
Bestu liðin yrðu í A-riðli, eins og
gerist með 2. flokk. Með þannig fyrir-
Jón Gunnlaugsson,
drengjalandsliðsnefndar.
formaður
komulagi yrðu þeir sterkustu ávallt
að etja kappi saman. Þetta myndi
leiða af sér heilsteyptari kjarna.
Bo Johansson með
Á síðustu æfingunum fyrir leikinn
gegn Wales kom Bo Johansson
landsliðsþjálfari í heimsókn og að-
stoðaði okkur við undirbúning liðs-
ins. Það kom mjög vel út og varð ég
var við mikla ánægju hjá strákunum
vegna þessa. Auðvitað finna dreng-
irnir til meiri metnaðar þegar þjálf-
ari A-landsliösins mætir á staðinn.
Sterkurriðill
Ljóst er að undirbúningur liðsins
fyrir úrshtakeppnina í Sviss á næsta
ári þarf að vera markviss. Það er
nokkuð víst að við lendum í ákaflega
sterkum riðh. Andstæðingar okkar
verða að öllum líkindum V-Þýska-
land, Spánn og Rússland. Það verður
því viö ramman reip að draga. En
ég er bjartsýnn og kannski kemur
okkar lið á óvart, hver veit.
Gott lió
Drengjalandsliðið er skipaö mjög
góðum einstaklingum og greinilegt
að við höfum hitt á góðan árgang að
þessu sinni. Það er búið að skoða
þennan aldurshóp mjög vel og var
yngri hópurinn, 14 ára landshðið,
hafður tfi hliðsjónar við valið.
Við lögðum fram strax í upphafi
að allir væru við sama borð, við sem
leikmennirnir, og er mjög góður fé-
lagsandi ríkjandi innan hópsins og
samtakamátturinn því fyrir hendi.
Þetta eru allt mjög prúðir strákar,
utan vallar sem innan, og hafa mikla
ánægju af aö stunda knattspymu.
Ég vil svona í lokin lýsa ánægju
minni með þjálfarana sem hafa stað-
ið sig mjög vel. Þeim hefur tekist að
laða fram þann keppnisanda sem
þarf til að sigra, eins og berlega kom
í ljós gegn Wales," sagði Jón Gunn-
laugsson að lokum.
-Hson
ROPUKEPPNI BIKARHAFA
í HANDBOLTA í
LAUGARDALSHÖLL
SUNNUDAGINN 30. SEPT. KL. 20.30
VALUR - SANDEFJORD
Mætum öll og styðjum Valsmenn til sigurs.
Valur er
liðið
I
POLAR
RAFGEYMAR
jW / Skilta RÍLA.
þjónustan %Hl
ANKINN HF.
®
V/SA
BÓN OG BÍLAþVOTTSTöÐIN