Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Side 25
37
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
dv____________________________________________________________________Knattspyma unglinga
íslenska drengjalandsliðið undir
16 ára átti stórleik á Selfossi gegn
sterku liði Wales í Evrópukeppninni
sl. mánudag. Lokatölur urðu 6-0 fyr-
ir ísland, sem er stærsti sigur ís-
lensks liðs í Evrópukeppni til þessa.
Lið Wales er skipað góðum leik-
mönnum sem léku mjög fast og
ákveðið, en okkar menn voru bara
einfaldlega betri á öllum sviðum
knattspymunnar og áttu gestirnir
ekkert svar við stórleik íslenska liðs-
ins. Með þessum sigri sínum hafa
íslensku strákarnir unnið sér þátt-
tökurétt í úrslitakeppninni sem fer
fram í Svisslandi 6.-19. maí á næsta
ári. Það var kominn tími til því það
er sennilega um átta ár síðan íslenskt
drengjalandslið hefur náð svo langt.
Gangur leiksins
Það var á 17. mínútu sem Helgi
Sigurðsson gaf tóninn með laglegu
marki eftir frábæra sendingu frá
Guðmundi Benediktssyni. Sókn ís-
lenska liðsins efldist mjög og á 30.
mínútu bætti Þorvaldur Asgeirsson
við öðm markinu með glæsilegu
skoti í bláhornið efst eftir mjög
öfluga sókn (Þorvaldur er sonur As-
geirs Elíassonar, þjálfara 1. deildar
íslenska drengjalandsliðið vann stórsigur á Selfossi og farseðil til Sviss að ári
p Evrópukeppni drengjalandsliða:
Island burstaði Wales
liðs Fram). Guðmundur Benedikts-
son kom Islandi í 3-0 með þrumu-
skoti eftir skemmtilegt upphlaup.
Þetta er 11. mark Guðmundar með
drengjalandsliðinu og bætti hann
markamet Rúnars Kristinssonar um
eitt mark.
í síðari hálfleik var hart barist
lengst af en íslenska liöið var þó
betra og átti til að mynda Guðmund-
ur Benediktsson þrumuskot í þverslá
úr aukaspyrnu rétt utan teigs. Á 60.
mínútu leiks kom svo fjórða mark
íslands sem ekki var síðra hinum.
Stefán Þórðarson, sem kom inn á i
síðari hálfleik, afgreiddi góða send-
ingu með þrumufleyg af um 25 metra
færi allsendis óverjandi fyrir mark-
vörð Wales. Fimmta markið gerði
Einar Baldvin Ámason með fostu
skoti af stuttu færi, eftir mikinn sókn-
arþunga íslenska liðsins. Það var svo
Helgi Sigurðsson sem innsiglaði
stórglæsilegan 6-0 sigur íslands með
marki úr þröngri stöðu og var það-
annað mark hans í leiknum.
íslenska liðið lék mjög vel saman
sem ein liðsheild og baráttan afburða
góð. Það haföi einnig talsverða yflr-
burði tæknilega - sem ekki síst réð
úrslitum þessa leiks.
Leikmenn'Wales voru fastir fyrir
en áttu mjög erfitt uppdráttar gegn
sterkum leik okkar manna. Þeir sem
helst stóðu upp úr voru þeir Allan
Owen í framlíriunni og Robert Page
í vörninni. Á miöjunni var Philip
James atkvæðamestur.
Wales átti ekkert svar
Walesliðið er skipað góðum ein-
staklingum - en íslensku strákarnir
voru einfaldlega allt of góðir fyrir þá
og knattspyrna þeirra af allt öðrum
gæðaflokki. Gestirnir áttu einfald-
lega ekkert svar gegn vel útfærðum
leik okkar manna sem fóru á kostum
og er 6-0 sigur síst of stór.
Ljóst er að þjálfarar liðsins, þeir
Kristinn Björnsson og Þóröur Lárus-
son, eru að gera góða hluti. Liðið kom
greinilega mjög vel undirbúið til
leiks og strákarnir ákveðnir í að
leggja sig alla fram. Sá þáttur skiptir
að sjálfsögðu afar miklu máh. Eitt-
hvað sem hefur ef til vih vantað ögn
upp á undanfarin ár.
Gott lið
íslenska drengjalandshðið er vel
skipað þessa stundina og í þessum
leik var erfitt að flnna veikan hlekk.
Vörnin var mjög traust og var Alfreð
Karlsson erfið hindrun fyrir fram-
herja Wales og Árni Arason öryggið
uppmálaö í markinu og í framlinunni
lék Helgi Sigurðsson á alsoddi ásamt
Guðmundi Benediktssyni sem sann-
aöi enn á ný leikni sína.
Þorvaldur Ásgeirsson komst einnig
mjög vel frá leiknum og sömuleiðis
Einar Baldvin Árnason sem var allt
í öllu bæði í sókn og vörn. FyrirUð-
inn, Pálmi Haraldsson, sýndi og fé-
lögum sínum gott fordæmi með út-
sjónarsömum og traustum leik.
Einnig sannaði Hrafnkell Kristjáns-
son hversu sterkur leikmaöur hann
er.
í heild má segja að íslenska liðið
sé skipað nokkuð jöfnum strákum
og alUr skiluðu hlutverki sínu vel að
þessu sinni.
Væntingar eru því þó nokkrar með
liðið í úrslitakeppninni í Svisslandi
á næsta ári. Vonandi tekst undirbún-
ingur vel því strákarnir eiga það
sannarlega skilið eftir hina glæsilegu
frammistöðu.
Dómari leiksins, John P. Nielsen
frá Danmörku, slapp þokkalega frá
leiknum en leyfði þó of mikla hörku.
„Frábært"
„Eigum við bara ekki að segja að ís-
lensk knattspyrna sé á uppleiö,"
sagði Pálmi Haraldsson, fyrirliði ís-
lenska drengjalandsliðsins, eftir leik-
inn. „Liðið sýndi mjög góða baráttu
að mínu mati og gáfu sig alUr hundr-
að prósent í leikinn. í leiknum úti,
sem við töpuðum 1-0, var mikil
þreyta í okkur eftir úrsUtakeppni ís-
landsmótsins og komumst við aldrei
verulega í gang. Ég er mjög ánægður
með úrsUtin hér á Selfossi en bjóst
þó ekki við svona stórum sigri. Við
komum hingað með þvi hugarfari að
sigra 2-0 en reyndin varð önnur,“
sagði Pálmi.
Alltgekk upp
Þjálfarar drengjalandsliðsins,
Kristinn Björnsson og Þórður Lárus-
son, voru að vonum ánægðir með
Pálmi Haraldsson, fyrirliði islenska
drengjalandsliðsins.
frammistöðu liðsins: „Strákarnir
fóru í einu og öllu eftir því sem fyrir
þá var lagt. í leiknum úti spilaði
Walesliðið mjög fast og ákveðið og
nýtti vel kantana. Það sem við lögð-
um höfuðáherslu á í þessum leik var
að mæta þeim með ákveðni og koma
í veg fyrir gegnumbrotin upp væng-
ina - einnig það að mæta þeim fram-
ar á vellinum. Þetta tókst mjög vel
og eiga strákarnir hrós skilið fyrir
hina góðu frammistöðu,“ sögðu þeir
félagareftirleikinn. -Hson
Haustmót KRR:
Framarar meistarar í 5. flokki
Þaö voru Uð Fram og Fylkis sem léku
tU úrslita í haustmóti 5. flokks, en
keppnin um sæti fór fram sl. sunnu-
dag. Framarar sigruðu í B-liði 3-0 en
jafntefli, 0-0, varð hjá A-Uðunum.
Leikirnir voru mjög vel spUaðir af
báðum liðum og var leikur Á-liðanna
í ofanálag mjög spennandi.
Það sem vakti sérstaka athygli hjá
Framliðunum að þessu sinni var
hversu markvarslan hjá báðum lið-
unum var góð. Markverðirnir, þeir
Gunnar S. Magnússon í A-liði og
Tómas Ingason, áttu mjög góða leiki
allt mótið og það var ekki síst góð
frammistaða þeirra sem fleytti
Framliðinu í leikinn um meistaratit-
iUnn.
í úrslitaleikjunum voru yfirburðir
Framara talsverðir í B-liðinu sem
Fram vann 3-0. Mörk Framara gerðu
þeir Jón Baldur Valdimarsson, Hösk-
uldur Borgþórsson og Hreinn Sig-
urðsson. - Jafnræði var aftur á móti
í leik A-liðanna sem endaði með
markalausu jafntefli. Fylkisstrák-
arnir sóttu meir en Gunnar var eins
og áður segir í banastuði og vörnin
þétt. Framliðiö lék samt sem áður
mjög vel og lét boltann ganga mjög
skemmtilega á milli sín. Urslit leiks-
ins verða að teljast sanngjörn.
Keppnin um sæti
1.-2. sæti: Fram-Fylkir.A 0-0 B 3-0
3.^4. sæti: KR-Víkingur.A 2-1B1-3
5.-6. sæti: ÍR-Leiknir..A 2-2 B1-1
7.-8. sæti: Valur-Fjölnir ....A 5-2 B 2-0
KR miðsumarsmeist-
arar í 4. flokki
4. flokkur KR hefndi ófaranna gegn
Val í haustmótinu með 4-1 sigri á
ValsveUi í úrsUtaleik miðsumars-
mótsins. Mörk KR: Stefán Rúnars-
son, Bjarni Jónsson, Bjarni Þor-
steinsson og Andri Sigþórsson. Mark
Vals gerði Benedikt Emilsson.
A-lið 4. flokks Vals sigraði KR 4-1 i úrslitaleik í haustmóti KRR um sl.
helgi. Leikið var á gervigrasinu. Benedikt Emilsson skoraði þrennu fyrir
Val og Halldór Hilmisson 1. Mark KR gerði Vilhjálmur Vilhjálmsson. Valslið-
ið er þannig skipað: ögmundur Rúnarsson, Árni Guðmundsson, Páll Jak-
obsson, Ásmundur Ólason, Pétur Asgeirsson, Árni Vigfússon, Ingvi Snær
Einarsson, Halldór Hilmisson, Gunnar Einarsson, Benedikt Emilsson, Ólaf-
ur Ingason, Agnar Stefánsson, Rúnar Bjarnason, Sigurður Hjartarson, Skúli
K. Þorvaldsson. Þjálfari þeirra er Róbert Jónsson og liðsstjóri Einar Óskars-
son. DV-myndir Hson
Haustmótsmeistarar Fram i 5. flokki 1990. A-liö: Gunnar Magnússon, Andri
Gíslason, Bjarni Hinriksson, Hjörleifur Björnsson, Sigurður Kristjánsson,
Friðgeir Eiríksson, Haukur Hauksson, Kolbeinn Guðmundsson, Einar Jóns-
son og Andrés Jónsson. B-lið: Tómas Ingason, Hreinn Sigurðsson, Baldur
Karlsson, Garðar Hannesson, Freyr Karlsson, Vilhelm Sigurðsson, Sigurð-
ur Óli Kristjánsson, Eggert Stefánsson, Jón Baldur Valdimarsson, Daníel
Traustason, Haraldur Guðmundsson og Höskuldur Borgþórsson. Þjálfari
þeirra er Eiríkur Björgvinsson og liðsstjóri Ragnar Ingólfsson.