Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
39
LífsstQI
Mikill feröamannastraumur
Ingibjörg Hinriksdóttir, DV, Stykkishólmi:
í sumar hefur ferðamannastraum-
ur verið með mesta móti í Stykkis-
hólmi. Öll gistiaðstaða í bænum hef-
ur verið troðfull, hvort sem um er
að ræða hótelið, farfuglaheimilið,
gistiheimilið í Egilshúsi eða tjald-
stæðið.
Enginn, sem hefur komið í Stykkis-
hólm, furðar sig á þessum mikla
ferðamannastraumi. Staðurinn hef-
ur allt það að bjóða sem ferðamann-
inn þyrstir í á leið sinni um landið.
Ferðir
Stórbrotna náttúrufegurð, ijölskrúð-
ugt dýralíf og vinalegt bæjarlíf. En
hvemig láta heimamenn og þeir sem
standa fyrir öllum þessum ferða-
mannastraumi af sumrinu?
„Mér sýnist að við getum verið
mjög sátt við sumarið hér á hótelinu
í Stykkishólmi,“ sagði Gunnar
Kristjánsson hótelstjóri í samtali við
DV.
„Stærstur hluti þeirra sem hingað
koma eru í einhvers konar skipu-
lögðum hópferðum. Flestir hinna er-
lendu gesta koma hingað á vegum
þýsku ferðaskrifstofunnar Island to-
ur, sem er rekin af ungum íslend-
ingi, Ómari Benediktssyni. Mögu-
leikar Stykkishólms sem ferða-
mannastaðar eru nær ótakmarkaðir.
Bærinn er mjög vel staðsettur, héðan
er stutt að fara inn í dali, umhverfis
Snæfellsjökul og ekki síst út í hinar
ijölmörgu eyjar sem eru á Breiðafirð-
inum. Þetta allt saman gefur okkur
mikla möguleika og á hverju ári má
segja að eitthvað nýtt bætist inn í
ferðamannaþjónustuna. í vetur bjóð-
Frá og með 28. október mun
SAS fljúga fimm sinnum i viku
milli Prag og Kaupmannahafnar.
Flogið verður frá Kaupmanna-
höfn kl. 9.55 og frá Prag kl. 12.30.
Fullborgandi farþegar munu
greiða 42.400 krónur fyrir miðann
fram og tii baka. Jafhframt er
hægt að fá afsláttarmiöa á 20.150
krónur og frá og með 15. desemb-
er til 15. janúar verður boðið upp
á sérstaka afsláttarmiða á 16.000
krónur, báðar leiöir. Þess má svo
geta aö ódýrasta flugfar héðan til
Kaupmannahafnar fram og til
baka er á milli 30 og 31.000 krón-
ur.
Evrópuferðir
Evrópuferðir sendu nýlega frá
sér tilkynningu þar sem þær
bjóöa upp á vetrarferðir til Port-
úgal en gistikostnaður lækkar á
þessum slóðum þann fyrsta nóv-
ember.
Flogið er til London og þaðan
samdægurs til áfangastaöa í Port-
úgal, á eyjunni Madeira og Arnr-
eyjum.
Sem verðdæmi má nefna aö
þriggja vikna Portúgalsferð fyrir
hjón sem gista í stúdíóíbúö kostar
um 140 þúsund krónur. Innifalið
er flug, fararstjóm, akstur til og
frá flugvelli og gisting. Sex vikna
ferð kostai' fyrir hjón um 160 þús-
und og það sama er innifalið og
í fyrra dæminu.
% ^ ^ j
■ ■ ■
11111
DV-mynd Ingibjörg
um við til dæmis upp á svokallaða
sælkeraveislu í samvinnu við Eyja-
ferðir. Einnig eru sérstök tilboð í
gangi fyrir veiðimenn en hér í kring
eru mjög góð veiðilönd. Og fyrir þá
sem ekki vilja veiða neitt má nefna
að möguleiki er á að fá keypta villi-
bráð hjá Sumarliða Asgeirssyni yfir-
kokki,“ sagði Gunnar.
„Þá er Stykkishólmur tilvalinn
staður fyrir fundi og ráðstefnur svo
og fyrir hópa og stafsmannafélög sem
vilja skreppa í helgarferð. Við erum
aðeins 200 km frá Reykjavík og má
segja að ekki verði ófært hingað
nema í mesta lagi 4-5 daga á ári.“
Og Gunnar heldur áfram: „Rekstr-
arlega séð get ég ekki verið annað
en sáttur við útkomuna í sumar. Sig-
urður Skúli Bárðarson, forveri minn
í hótelstjórasfarfinu, lagði grunninn
að mjög góðu sumri. Við stöndum
nú í framkvæmdum sem koma hótel-
inu til góða. Við erum að setja sjón-
vörp og minibar í öll herbergi og lag-
færa móttökuna. Þannig ætti gestum
okkar að líða sem best því hér er
gott að vera.“
London:
I höfuðstöðvum Uoyd's
Höfuðstöðvarnar eru i glæslegri nútímabyggingu.
Það er margt sem kemur á óvart þegar komið er
heimsókn til Lloyd’s.
Breska tryggingarfélagiö Lloyd’s
er þekkt um allan heim. Höfuðstöðv-
ar þess eru í fjármálahverfinu City
í London. Þar er félagið til húsa í 93
metra hárri höll sem vekur athygli
ferðamanna sem eiga leið fram hjá
fyrir stærð og glæsileik. Það eru hins
vegar færri sem vita að hægt er að
skoða húsið að innan. Það eru því
flestir sem láta sér nægja að horfa á
það utanfrá.
Það kostar ekkert að heimsækja
höfuðstöðvar Lloyd’s. Þegar komið
er inn í anddyri hússins byrjið þá á
að spyrja dyraverðina hvar þið eigið
að taka lyftuna sem er ætluð gestum.
Hún ferjar svo forvitna ferðamenn
upp á fjórðu hæð en þar er lítið safn
þar sem sýndir eru ýmsir munir
tengdir fyrirtækinu, svo og skjöl og
ýmislegt fleira. Með því að labba
hring um safnið er á skjótan hátt
hægt aö lesa sig í gegnum sögu fyrir-
tækisins í áranna rás.
Kaffihús
Kaffihús spruttu upp eins og gor-
kúlur á haug í London í lok 16. ald-
ar. Kaffihúsin voru vinsæl af framm-
ámönnum í viðskiptalífinu. Með tím-
anum urðu nokkur þeirra nánast
lokaðir staðir sem sóttir voru af
ákveðnum hópum sem ræddu við-
skipti yfir kaffibollunum. Það er ein-
mitt á einn slíkan stað sem má rekja
upphaf Lloyd’s tryggingarfélagsins.
Hugmynd aö því að stofna trygg-
ingarfélag skaut upp árið 1688 á Ed-
ward Lloyd’s kaffihúsinu í Tower
Street. Þar hittust nokkrir skipaút-
gerðarmenn daglega tíl skrafs og
ráðagerða. Meðal þess sem þeir voru
að ræða var hvernig mætti minnka
áhættuna á skipatapi en hún var orð-
in veruleg á þessum tíma. Hættunum
á siglingaleiðunum fjölgaði stöðugt,
það var ekki nóg með að válynd veð-
ur gætu gert mönnum grikk heldur
fjölgaði mjög ránum á alþjóðlegum
skipaleiðum.
Fyrst voru þeir mjög fáir sem stóðu
að tryggingarfélaginu sem fékk nafn-
ið á kaffihúsinu sem það var stofnað
á en félaginu óx stöðugt fiskur um
hrygg. Þrátt fyrir að Edward Lloyd
væri kaffihúsaeigandi varð kaffihús-
ið hans brátt miðstöð tryggingarfé-
lagsins sem alUr helstu ijármála-
spekingar borgarinnar áttu hlut að
ásamt honum. Loks var svo komið
að ákveðiö var að flytja höfuöstöðvar
Lloyds í Lombartstræti á annað
kaffihús, en árið 1774 var umfang
félagsins var orðið svo mikið að það
flutti í eigið húsnæði. Verksvið trygg-
ingarfélagsins óx jafnframt og í staö
þess að tryggja eingöngu skip var
farið að tryggja hvað sem var og all-
ar götur síðan hefur verið hægt að
tryggja aUt undir sólinni hjá Lloyds.
Söngvarar hafa tryggt raddir sínar,
fagrar gyðjur hina ýmsu líkamshluta
sína og svo mætti halda áfram að
telja.
í lok áttunda áratugarins var
ákveðið að byggja nýtt hús fyrir fé-
lagið það var það var arkitektinn
Richard Roger sem var fenginn til
að teikna hús sem átti að sýna vel-
gengni félagsins í hnotskum og jafn-
framt átti það að vera það stórt að
ekki væri hætta á aö það yrði of lítið
næstu áratugina.
Húsið þykir mjög sérstakt bæði að
utan sem innan og því ekki úr vegi
fyrir ferðamenn sem eiga leið um
London að ganga þar inn og berja
dýrðina augum.