Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Blaðsíða 38
50
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
Afrnæli
Til hamingju með afmælið 29. september
85 ára 50 ára
Sigrún Jónsdóttir, Ölvaldsstöðum I, Borgarhreppi. Helga Jónsdóttir, Eyrargötu 16B, Eyrarbakka. Elín Jóhannesdóttir, Skagfirðingabraut 6, Sauöárkróki. Sigríður Stefánsdóttir, Fögruhlíö, Sauðárkróki. Jónína Kjartansdóttir, Völusteinsstræti 14, Bolungarvík. Þórunn Vilhjálmsdóttir, Strandgötu 92, Eskifirði. Guðný Helga Geirsdóttir, Smáratúni, Fljótshlíðarhreppi. Svavar Borgarsson, Holtsgötu 27, Njarðvíkum. Elísabet Valgeirsdóttir, Heiðvangi 56, Hafnarfirði, ívar Magnússon,
80 ára
Kristin I. Eiíasdóttir, Sogavegi 164, Reykjavik. Steingrímur Skúiason, Mörtungu D, Skaftárhreppi. Vesturbergi 134, Reykjavík.
40ára
75 ára Jónas Hörðdal Jónsson, Breiðuvik, Rauðasandshreppi. Anna Jóna Lárusdóttir, Ofanleiti 21, Reykjavik. Karlina Friðbjörg Hólm, Njörvasundi 26, Reykjavik. Rafn Torfason,
Ársæll Eiríksson, Mel við Nýbýlaveg, Kópavogi.
70 ára
Ásgerður Kristjánsdóttir, Miðvangi 41, Hafnarfirði. Ólafur Olafsson, Dvalarheimilinu Fellaskjóli, Grundarfirði. Dagný Þorgrímsdóttir, Miðhlíð ytri, Barðastrandarhreppi. Valbraut ll, Geröahreppi. Torfl Magnússon, Sörlaskjóli 11, Reykjavík. EyþórKarlsson, SeljahUð 5B, Akureyri. Kolbrún Ósk Óskarsdóttir, IUugagötu 38, Vestmannaeyjum. RudolfNielsen, Álftamýri 6, Reykjavík. Rann veig Guðmundsdóttir, Digranesvegi69, Kópavogi. Laufey Kolbrún Snorradóttir, Holtsgötu 25, Sandgerði. Sigurlína Benediktsdóttir, Háagerði 2, Húsavík. Gunnsteinn Sigurðsson, Nesbala58, Selljamamesi.
60 ára
Garðar Eyjólfsson, Bjarmalandi 6, Miðneshreppi. Ásthildur Öfjörð Magnúsdóttir, Sólgörðum, FþótahreppL ÓlöfF.Þór, Hjallalandi 7, Reykjavik.
NÝR BOKAFLOKKUR-NY BÓK i HVERJUM MÁNUÐI
FYRSTA BÓKIN
ER KOMIN í VERSLANIR
í hverjum mánuði kemur út
ný Úrvalsbók
eftir þekktan höfund.
Fyrsta bókin er Flugan á veggnum
eftir Tony Hillerman.
Úrvalsbækur eru vandað lesefni á lágu verði.
URVALSBÆKUR MANAÐARLEGA
Þær fást á bóka- og blaðsölustöðum.
Nývarð Ólí]örð Jónsson, Skarðs-
hlíð 4D, Akureyri, verður áttræður
á morgun. Nývarð er fæddur í Garði
í Ólafsfiröi og ólst upp hjá afa sínum
og ömmuíGarði.
Starfsferill
Á þeim tíma sem hann ólst upp
fóru börn ekki í barnaskóla fyrr en
tíu ára. Skólinn var lítill og rúmaði
ekki alla krakkana. Var honum því
skipt í tvær deildir og mætti hvor
deild annan hvern dag. Þegar
krakkarnir komu í skólann áttu
þeir að vera vel læsir, sendibréfs-
færir og sæmilega færir í reikningi,
samlagningu, frádrætti, margföldun
og deilingu. Nývarð var í bænda-
deild Hólaskóla í Hjaltadal 1937-
1938, var b. í Garði 1939-1974 og vann
hjá verksmiðjum Sambandsins
1974-1980. Hann var stofnandi ung-
mennafélagsins Vísis í sveitinni og
var fyrsti formaður þess. Nývarð
var í stjórn ræktunar- og búnaöar-
félgs Ólafsfiarðar í 35 ár og lengst
af formaður. Hann var formaður
Mjólkursamlags Ólafsfjarðar frá
byrjun til 1973 og formaður Naut-
griparæktarfélagsins og sá um
skýrsluhald þess.
Fjölskyida
Nývarð kvæntist 14. maí 1939
Kristínu Sigurjónsdóttur, f. 5. sept-
ember 1906. Foreldrar Kristínar:
Sigurjón Jónsson, b. og sjómaður á
Móafelli í Sléttuhlíð, og kona hans,
Helga Jónsdóttir. Börn Nývarðs og
Kristínar eru: Kári Ólfjörð, f. 6. okt-
óber 1940, kennari í Ólafsfirði,
kvæntur Sigrúnu Ingólfsdóttur og
eiga þau þrjú börn og Guðfinna ÓI-
fjörð, f. 7. október 1950, hjúkrunar-
fræðingur á Þórustöðum 5 í Önguls-
staðahreppi við Akureyri, gift ðla
Þór Ástvaldssyni, framkvæmda-
stjóra Smábátatrygginga Norður-
lands, og eiga þau þrjú börn. Stjúp-
sonur Nývarðs, frá fyrra hjóna-
bandi Kristínar, er Hreinn Bern-
harðsson, f. 5. júní 1930, kennari viö
framhaldsskóla Ólafsíjarðar,
kvæntur Guðrúnu Þorvaldsdóttur
og eiga þau þrjú börn. Systur Ný-
varðs voru fjórar og eru þær allar
látnar nema Sigrún. Þær eru: Ann-
ey, f. 1912, bjó á Siglufirði, gift
Nývarð Ólfjörð Jónsson.
Óskari Garibaldasyni; Sigrún, f.
1915, býr á Ólafsfirði, Klara, f. 1918,
bjó á Ólafsfirði, gift Áðalsteini Frið-
björnssyni, og Alda, f. 1920, bjó á
Ólafsfirði, gift Jóhanni Sigurðssyni.
Foreldrar Nývarðs yoru Jón Árni
Hansson, sjómaöur í Ólafsfirði, og
kona hans, Svava Guðvarðardóttir
verkakona.
Jörína Guðríður Jónsdóttir hús-
móðir, Hjallaseli 55, Seljahlíö,
Reykjavík, verður níræð á morgun.
Jörína fæddist í Blönduholti í Kjós
og ólst upp í Kjósinni. Hún lauk
kennaraprófi 1922, stundaði
kennslu við Barnaskóla Ólafsvíkur
1925-32 og síðan einn vetur við Mið-
bæjarbarnaskólann í Reykjavík. Að
öðru leyti stundaði Jörína húsmóð-
urstörf og var jafnframt bóndakona
í Saurbæ á Rauðasandi.
Jörína starfaði í Ungmennafélag-
inu Dreng í Kjós þar til hún flutti
til Reykjavíkur. Hún starfaði með
stúkunni Freyju í Reykjavík og var
í allmörg ár ritari hennar. Þá starf-
aði hún með Félagi Framsóknar-
kvenna og er ein af fjórum fyrstu
heiðursfélögum þess. Hún starfaði
einnig með Kverifélagi Hallgríms-
kirkju, Barðstrendingafélaginu og
Átthagafélagi Kjósverja.
Fjöldskylda
Jörína giftist 27.9.1923 Sigurvin
Einarssyni, f. 30.10.1899, d. 23.3.
1989, alþingismanni, en hann var
sonur Einars Sigfreðssonar, bónda
í Stakkadal í Rauðasandshreppi, og
konu hans, Elínar Ólafsdóttur hús-
freyju.
Börn Jörínu og Sigurvins: Rafn,
f. 14.3.1924, loftsiglingafræðingur í
Reykjavík, kvæntur Sólveigu
Sveinsdóttur og eiga þau þrjú börn;
Einar, f. 6.7.1927, flugvélstjóri í
Garðabæ, kvæntur Sigrúnu Lárus-
dóttur og eiga þau sex börn; Sigurð-
ur Jón, f. 16.8.1931, d. 1946; Ólafur,
f. 5.7.1935, var kvæntur Þórunni
Aðalsteinsdóttur og eignuðust þau
átta börn; Elín, f. 21.10.1937, söng-
kona og íþróttakennari í Reykjavík,
gift Sigurði Eggertssyni og eiga þau
þrjú börn; Björg Steinunn, f. 31.5.
1939, skrifstofustjóri í Reykjavík,
var gift Kristjáni S. Kristjánssyni
og eignuðust þau þrjú börn og Kol-
finna, f. 25.4.1944, íþróttakennari í
Reykjavík, gift Sverri Má Sverris-
syni og eiga þau þijú börn.
Langömmubörn Jörínu eru nú þijá-
tíu og fjögur talsins.
Bróðir Jörínu var Bjarni, f. 27.11.
1892, bóndi í Dalsmynni á Kjalar-
nesi, var fyrst kvæntur Álfdísi Jóns-
dóttur, sem er látin, og eignuðust
þau átta börn en seinni kona Bjarna
var Jensína Guðlaugsdóttir. Systir
Jörína Guöríður Jónsdóttir.
Jörínu var Birgitta, f. 22.8.1895, en
hún er látin, var klæðskeri í Reykja-
vík.
Foreldrar Jörínu voru Jón Stef-
ánsson, bóndi að Blönduholti í Kjós,
og Sigríður Ingimundardóttir.
Jörína tekur á móti gestum á
heimili dóttur sinnar og tengdason-
ar að Goöalandi 16, Reykjavík, síð-
degis á afmæhsdaginn.
Vera Sigurðardóttir
Vera Sigurðardóttir, sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Hríseyjar, til heim-
ilis að Selaklöpp í Hrísey, er fimm-
tugídag.
Starfsferill
Vera fæddist að Oddsstöðum á
Melrakkasléttu og ólst þar upp. Hún
lauk gagnfræðaprófi frá Laugum í
Reykjadal 1958 en gifti sig og flutti
til Hríseyjar 1961 og hefur haft
heimilisstörfin að aðalstarfi þar til
hún varð sparisjóðsstjóri við Spari-
sjóð Hríseyjar 1.8.1980.
Fjölskylda
Maður Veru er Óli Björnsson, f.
28.4.1941, verkstjóri, sonur Björns
Ólasonar og Sigfríðar Jónsdóttur í
Hrísey.
Vera og Óli eiga þijú börn. Þau eru
Sigurbjöm, f.29.9.1962, sjómaður í
Vogum á Vatnsleysuströnd, kvænt-
ur Þuríði Klemensdóttur og eiga þau
þijú börn, Aron Trausta, Bylgju
Dögg og Tinnu Lind; Viöar, f. 12.5.
1966, nemi; Heiöar, f. 22.1.1974,
nemi.
Systkini Veru: Þorbjörg, f. 10.7.
1942, kennari á Akureyri og á hún
eina dóttur, Pálínu; Guðrún, f. 10.10.
1948, kennari við Hafralækjarskóla
í Suður-Þingeyjarsýslu en sonur
hennar er Stefán; Finnbogi, f. 12.6.
1951, kennari í Reykjavík, kvæntur
Björgu Gunnarsdóttur og eru börn
þeirra Klara, Súsanna, Sigríöur og
Sigurður; Borghildur, f. 12.1.1954,
kennari í Reykjavík, en dóttir henn-
ar erVeraGuðrún.
Foreldrar Veru: Sigurður Finn-
bogason, f. 21.9.1916, d. 14.6.1981,
bóndi á Oddsstöðum á Melrakka-
sléttu, og kona hans, Borghildur
Vera Sigurðardóttir.
Pétursdóttir, f. 12.6.1917, húsfreyja,
en þau Sigurður og Borghildur
íluttu til Hríseyjar 1963.
ersmAau^'2^
biað®p702Z
SÍMINN ER *