Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
' 51
Afmæli
Pálmi Gunnarsson
Pálmi Gunnarsson, Skálanesi,
Vopnafirði, er fertugur í dag. Pálmi
er fæddur á Vopnaflrði og ólst þar
upp.
Starfsferill
Hann varð gagnfræðingur frá
Héraðsskólanum á Laugum í
Reykjadal 1965 og fór sextán ára í
Lýðháskólann í Rödding á Suður-
Jótlandi og lauk þar námi með leik-
fimikennaraprófl 1966. Hann var
aðgerðarmaður á Höfn í Hornaflrði
og var á síld á Seyðisflrði 1966-1968.
Pálmi byrjaði að spila í hljóm-
sveitum þrettán ára, fyrst á Vopna-
firðiogsíðaráHöfníHornaflrði.
Hann var bassaleikari með Hljóm-
sveit Magnúsar Ingimarssonar á
Röðli 1969-1971 og söng annað aðal-
hlutverkið í Jesús, Guð, dýrlingur
hjá LR1973. Pálmi var söngvari og
bassaleikari hjá hljómsveitinni Lísu
sem seinna varð að hljómsveitinni
Mannakorni í Rvík 1973 og síðan.
Hann hefur einnig leikið með hljóm-
sveitunum Friðriki, Celsíus, Bruna-
hðinu og Blús Kompaníinu.
Pálmi hefur tekið þátt í fjölda sýn-
inga á veitingahúsum, t.d. Staðan í
hálfleik á Sjallanum á Akureyri síð-
astliðinn vetur. Hann hefur einnig
leikið jass ogblús t.d. til langs tíma
með Guðmundi Ingólfssyni og fleiri.
Pálmi stjórnað upptöku á fyrstu
plötu Bjarkar Guðmundsdóttur í
Sykurmolunum og spilaði með
Bergþóru Árnadóttir þjóðlagasöng-
konu á tveimur hljómplötum. Hann
hefur spilað og sungið inn á tugi
hljómplatna og er að syngja inn á
sjöttu hljómplötuna með Manna-
korni. Pálmi var tónlistarkennari
og starfsmaður á Sólheimum í
Grímsnesi 1981-1982 og er nú for-
maður í nýstofnuðu Stangaveiðifé-
lagi Vopnafjaröar.
Fjölskylda
Pálmi kvæntist 1971 Þuríði Sig-
urðardóttur, f. 23. janúar 1949, söng-
konu ogflugfreyju. Þau skildu. For-
eldrar Þuríðar eru Sigurður Ólafs-
son, söngvari í Rvík, og kona hans,
ValgerðurEinarsdóttir. Sonur
Pálma og Þuríðar er Sigurður Helgi,
f. 9. október 1974. Pálmi kvæntist 19.
júní 1984 Önnu Ólafsdóttur, f. 25.
júlí 1955, skólastjóra Tónlistarskól-
ans á Vopnafirði. Foreldrar Önnu
voru Ólafur S. Kristjánsson, fulltrúi
hjá Samvinnutryggingum, og kona
hans, Jónína Kvaran, ritari í Fast-
eignamati ríkisins. Dóttir Pálma og
Önnu er Ragnheiður Helga, f. 16.
apríl 1985.
Systkini Pálma eru Kristbjörg, f.
22. október 1930, verslunarmaður á
Vopnafirði, gift Ágústi Jónssyni vél-
stjóra; Sigfmnur, f. 17. ágúst 1933,
útgerðarmaður á Höfn í Hornafirði,
kvæntur Sigurbjörgu Ragnarsdótt-
ur; Hreinn, f. 18. október 1934, sjó-
maður i Vestmannaeyjum, kvæntur
Ástu Sigurðardóttur; Jóna Guðný,
f. 18. nóvember 1937, ljósmóðir í
Rvík, og Aagot Gunnhildur, f. 6. maí
1942, húsmóðir í Rvík, sambýhs-
maður hennar er Sigurður Ingi
Óskarsson verkamaður. Bróðir
Pálma samfeðra er Sigvaldi, f. 5. jan-
úar 1928, verkamaður á Húsavík,
kvæntur Lilju Jónasdóttur.
Ætt
Foreldrar Pálma eru Gunnar Run-
ólfsson, f. 14. október 1901, d. 9. júní
1979, b. í Dallandi í Vopnafirði, og
kona hans, Hansína Sigfmnsdóttir,
f 5. janúar 1911. Gunnar var sonur
Runólfs, b. í Böðvarsdal, bróður
Magnúsar í Böðvarsdal, langafa
Haralds Johannessens, forstöðu-
manns Fangelsismálastofnunar rík-
isins. Runólfur var sonur Hannesar,
b. í Böðvarsdal, Magnússonar, b. í
Böðvarsdal, Hannessonar, sjá niðja-
tal hans. Móðir Gunnars var Krist-
björg Pétursdóttir, b. í Dalshúsum í
Skeggjastaðasókn, Sigurðssonar,
bróður Hólmfríöar, ömmu Gunnars
Gunnarssonar rithöfundar. Móðir
Runólfs var Guðrún Jónsdóttir, b. í
Syörivík, Einarssonar. Móðir Hann-
Pálmi Gunnarsson.
esar var Steinunn Runólfsdóttir, b.
í Svínafelli í Hjaltastaðarsókn,
Bjarnasonar.
Hansína er dóttir Sigfmns, verka-
manns á Vestdalseyri á Seyðisfirði,
Mikelssonar, b. á Hálsi í Hálsþing-
há, Gellissonar, b. og söguskrifara á
Berufjarðarströnd. Móðir Sigfmns
var Kristíana Pálsdóttir, systir
Guðnýjar, ömmu Sigfúsar Halldórs-
sonar tónskálds og Sigfúsar Ey-
mundar Einarssonar söngvara.
Móðir Hansínu var Jónína Krist-
björg Einarsdóttir.
Til hamingju með afmælið30. september
Kristín Sigurbjörnsdóttir,
Laufvangi 1. Hafnarilrði.
80 ára 60 ára
Ólöf Guðj ónsdóttir, Anna Ragnarsdóttir, ------
Vaharbraut 1, Akranesi. Tungubakka28,Reykjavik. 40 ára
Karl Jóhannesson, EinarB.Birnir, -------------------------
Ásgarði 17, Reykjavík. Silungakvísl 18, Reykjavík. Auðbjörg Erlingsdóttir,
IngigerðurEiríksdóttir, Guðmundur B. Gíslason, Haukanesi 1, Garðabæ.
Hjallaseh 55, Reykjavík. Vighólastíg UB, Kópavogi. Guðjón Öm Sverrisson,
-------------------------------- BrynhildurKristinsdóttir, Frostafold 131, Garðabæ.
Viðar Þorleifsson,
Nupasíðu 7. Akurevn.
Þorfinnur Kristj ánsson,
Stafnaseli 2, Rcykjavík.
Kristrún J. Sigurðardóttir,
Kökkvavogi 52, Roykjavík. Rjúpufelh46,Reykjavík. Ásholti, Árskógshreppi.
70 ára
Björgvin Guðmundsson,
Suðurgötuð, Sandgerði.
F.lísaheth Riehter.
Svöluhrauni 11, Hafnarfirði
50 ára
Edda Baldursdóttir.
Sigurður Steinþorsson
Sigurður Steinþórsson prófessor,
Kaplaskjólsvegi 53, Reykjavík, er
fimmtugurídag.
Starfsferill
Sigurður fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR1960, B.Sc. Honours í
jarðfræði við háskólann í St.
Andrews í Skotlandi 1964 og Ph.D.
í j aröfræði frá Princeton-háskóla í
New Jersey í Bandaríkjunum 1974.
Sigurður hefur verið sérfræðing-
ur á Raunvísindastofnun Háskól-
ans. Hann var kennari við jarð-
fræðiskor raunvísindadehdar skól-
ans frá 1970, dósent frá 1974 og hefur
verið prófessor frá 1983.
Sigurður var formaður Félags há-
skólakennara 1978-1979, var for-
maður Jarðfræðafélags íslands
1982-84 og hefur verið ritstjóri
Fréttabréfa HÍ frá 1979.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 5. mars 1966
Helgu Þórarinsdóttur, f. 3. nóvem-
ber 1943, BA í sagnfræði og þýð-
anda, dóttur Þórarins Þórarinsson-
ar, fyrrv. ritstjóra Tímans, og konu
hans, Ragnheiðar Vigfúsdóttur
Þormar.
Sonur Sigurðar og Helgu er Stein-
þór, f. 13. janúar 1966, nemi við Há-
skólann í Freiburg í Þýskalandi en
sambýhskona hans er Valgerður
Bragadótflr. Dóttir Sigurðar og
Helgu er Ragnheiður, f. 26. maí 1967,
efnafræðingur.
Systir Sigurðar er Gerður f. 17.
aprh 1944, cand. mag. í bókmennt-
um, nú íslenskulektor í Svíþjóð, áö-
ur borgarfuhtrúi í Reykjavík, gift
Gunnari Stefánssyni, fyrrv. dag-
skrárstjóra Ríkisútvarpsins, en
börn þeirra eru Ath, f. 1966; Svava,
f. 1970, og Auðunn, f. 1982.
Foreldrar Sigurðar eru: Steinþór
Sigurðsson, f. 11. janúar 1904, d. 2.
nóvember 1947, náttúrufræðingur
og framkvæmdastjóri Rannsóknar-
ráðs ríkisins frá stofnun þess og til
dánardags, og kona hans, Auður
Jónasdóttir, f. 1. apríl 1913, fyrrv.
húsmæðrakennari.
Ætt og frændgarður
Steinþór var sonur Sigurðar,
barnaskólastjóra, forseta bæjar-
stjórnar Reykjavíkur og stórtempl-
ars Jónssonar, b. í Lækjarkoti í
Mosfellssveit, Árnasonar, b. á
Minna-Mosfelli, Sigurðssonar. Móð-
ir Sigurðar var Sigríður Gísladóttir,
vinnumanns í Útey í Laugardal,
Sæmundssonar. Móðir Steinþórs
var Anna, kennari Magnúsdóttir,
dbrm. á Dysjum á Álftanesi, Brynj-
ólfssonar, b. í Geröiá Akranesi,
Teitssonar, vefara í Rvík, Sveins-
sonar, föður Arndísar, langömmu
Finnboga, föður Vigdísar forseta.
Móðir Ónnu var Karítas Einars-
dóttir, b. á Bjarnastöðum á Álfta-
nesi, Árnasonar.
Auður er dóttir Jónasar ráðherra,
bróður Kristjáns, fóður Jónasar for-
stöðumanns Árnasafns. Jónas var
sonur Jóns, b. í Hriflu, Kristjáns-
sonar, b. í Sýrnesi í Aðaldal, Jóns-
sonar, b. í Sýrnesi, bróður Jóhann-
esar á Laxamýri, ættfóður Laxa-
mýrarættarinnar, afa Jóhanns Sig-
urjónssonar skálds. Jón var sonur
Kristjáns, b. á Halldórsstöðum í
Reykjadal, Jósefssonar, b. í Ytra-
Tjamarkoti, bróður Jónsar, afa
Jónsar Hallgrímssonar, skálds og
náttúrufræðings. Jósef var sonur
Tómasar, b. á Hvassafelli, Tómas-
sonar, ættfóður Hvassafellsættar-
innar. Móðir Kristjáns var Ingibjörg
Hallgrímsdóttir, systir Gunnars, afa
Tryggva Gunnarssonar bankastjóra
Sigurður Steinþórsson.
og Kristjönu, móður Hannesar Haf-
steins. Móðir Auðar var Guðrún
Stefánsdóttir b. á Granastöðum í
Kinn, Sigurðssonar og konu hans,
Steinunnar Jónsdóttur.
Studioblóm
Þönglabakka 6, Mjódd,
noröan við Kaupstað,
sími 670760
F/3 RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða til
starfa tölvunarfræðing/forritara í tölvudeild. Æskilegt
er að umsækjandi hafi reynslu af VMS, UNIX og
DOS-stýrikerfum. Helstu verkefni: kerfisgreining og
forritun.
Upplýsingar um starfið veitir deildarstjóri tölvudeildar
í síma 686222.
Umsóknum skal skilað til starfsmannastjóra fyrir 12.
okt. nk.
Réttindaveitingar
í rafveituvirkjun
Með reglugerð nr. 102/1990 um löggiltar iðngrein-
ar, námssamninga, sveinspróf og meistararéttindi var
rafveituvirkjun löggilt sem iðngrein. Þeir sem hafa
unnið við dreifikerfi rafveitna geta sótt um réttindi í
iðninni. Umsóknareyðublöð ásamt upplýsingum fást
hjá menntamálaráðuneytinu, sími 609500, Rafiðnað-
arsambandi Islands, sími 681433 og Sambandi ís-
lenskra rafveitna, sími 621250.
Umsóknir sendist:
Menntamálafáðuneytinu
Sölvhólsgötu 4, 105 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið
JL
LANDSVIRKJUN
Útboð
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í fram-
leiðslu og afhendingu á leiðurum fyrir háspennulín-
ur, samkvæmt útboðsgögnum BLL-14,'„Transmissi-
on Line Conductors".
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum
2. október 1990 á skrifstofu Landsvirkjunar að Háa-
leitisbraut 68, Reykjavík, gegn óafturkræfu gjaldi að
upphæð 2.000,-.
Helstu magntölur eru:
Álblönduleiðari 57 km.
Stálstyrktur álblönduleiðari 56 km.
Afhendingardagur efnis er 1. maí 1991.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar, Háa-
leitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir kl. 12.00 mánu-
daginn 5. nóvember 1990, en þau verða opnuð þar
sama dag kl. 13.30 að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Reykjavík, 27. september 1990