Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1990, Síða 44
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022
Frjáist,óhá5 dagblað
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990.
Stjómlaus valtari:
Stjórnandinn
kastaðisérút
Malbikunarvaltari rann stjórnlaus
á töluvert mikilli ferð niður slakka í
götunni við Skólagerði í Kópavogi
um klukkan hálfíimm í gær. Lögregl-
an segir að mesta mildi sé að ekki
urðu stórslys á fólki.
Stjórnandinn hafði verið að vinna
í tækinu. Hann nam síðan staðar
fyrir framan hús númer 29 og drap
á vélinni. Stuttu síðar gaf hemlabún-
aðurinn sig. Gatan hallar til vesturs
ag rann valtarinn stjórnlaust niður
götuna á talsverðum hraða. Maður-
inn óttaðist að tækið myndi velta og
varð að grípa til þess ráðs að kasta
>ér út á ferð. Hann sakaði ekki.
Þegar valtarinn hafði runnið eftir
götunni að húsi númer 49 lenti hann
á kyrrstæðri mannlausri fólksbifreið
og stórskemmdi hana. Starfsmaður
vdnnueftirlits var kallaður á vett-
/ang og bannaði hann notkun á tæk-
nu.
Við Skólagerði eru börn oft að leik.
\ð sögn lögreglu er mesta mildi að
íkki hlaust stórslys af þessu atviki.
-ÓTT
Þúsundirteppa
tilJórdaníu
Ríkisstjórnin hefur falið samstarfs-
'ióp á vegum Rauða krossins, utan-
'íkisráöuneytisins og fjármálaráðu-
aeytis að vinna tillögur um hjálpar-
sendingar til flóttamanna vegna deii-
unnar við Persaflóa. í ráöi er að ís-
lensk stjórnvöld verji 140 milljónum
króna til hjálparstarfsins.
Samkvæmt heimildum DV fela til-
lögur hópsins rneðal annars í sér að‘
senda 4-5000 ullarteppi til flótta-
mannabúða í Jórdaníu Umrædd
teppi, sem getið er um í tillögunum,
eru nú í vörslu Almannavarna
Reykjavíkur. -ÓTT
D keima1'-
Fákafeni 11, s. 687244
leiga. . .
spurning!
BÍLALEIGA
v/Flugvallarveg
91-61-44-00
LOKI
Umhverfisráðuneytið er
sannkallað frestunar-
ráðuneyti!
Frestað í tvígang
Gildistöku reglna, sem takmarka
eiga mengun frá bílum, hefur verið
frestað í tvígang á árinu.
Nú er gert ráð fyrir að þær taki
gildi um næstu áramót.
Þessar reglur eiga að segja til tun
hámark á mengun frá útblæstri
bifreiða. Samkvæmt mengunar-
reglugerðinni áttu þær að taka gildi
um síöustu áramót en var þá frest-
aö til 15. júní. Þá tókst ekki heldur
að fylgja reglugerðinni úr hlaði og
þurfti þá umhverfisráðuneytið að
gefa út reglugerð til að fresta henni.
Ástæða fyrir þessari stöðugu
frestun er sú að ekki tókst að sam-
ræma vinnubrögð Bifreiðaeftirlits-
ins, dómsmálaráðuneytisins né
umhverfisráðuneytisins. Þessi tak-
mörkun var í sjálfu sér einföld og
fólst í ákveðnum reglum um still-
ingu bifreiða.
Reglur um þrívirka hvarfakúta
eiga hins vegar að taka gildi 1. jan-
úar 1992 en þá er gert ráð fyrir að
kolmónoxíðmengun (CO) frábilum
fari niður i 10% af þvi sem hún nú
er. Það er meðal annars sá út-
búnaður sem er á núverandi ráð-
herrajeppa Júlíusar Sólnes um-
hverfisráðherra. Allir bílar, sem
verða fluttir hm eftir l. janúar 1992,
verða að vera búrúr þessum út-
búnaði.
Slikur útbúnaður er í mörgum
gerðum bíla en samt mun vera erf-
itt að fá slíka bíla hér á landi. Einn
bílakaupandi, sem DV hafði sam-
band við, sagðist hafa sótt sérstak-
lega um slikan útbúnað á nýlegum
þýskum bíl en ekki fengið. Kom fyr-
ir ekki þótt viðkomandi hefði treyst
sér fil aö greiða meira fyrir það.
Samkvæmt upplýsingum frá Sig-
urbjörgu Sæmundsdóttur, deild-
arsérfræðingi í mengunarvörnum
hjá umhverfisráðuneytinu, er ver-
ið að skoða möguleika á þvi að flýta
slíkum aðgerðum til aö koma fyrir
mengunarvarnarbúnaði með því
að'veita fólki skattaívilnanir.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem DV hefur fengið, raeðal annars
frá Hollustuverndinni, er bíla-
mengun nokkuö mikil hér á landi,
sem rakið er til mikilar bílaeignar
landsmanna.
-SMJ
Verðlagsráö:
Bensínhækkun
varfrestað
Verðlagsráð frestaði í gær beiðni
olíufélaganna um að hækka verö á
bensíni um mánaðamótin úr 52 krón-
um í 60 krónur lítrann. Hins vegar
samþykkti ráðiö að hækka verð á
gasolíu um 40 prósent, úr 15 krónum
í 21 krónu lítrann. Þá samþykkti ráð-
ið að hækka verð á svartolíu um tæp
17 prósent, eða úr 11.300 krónum í
13.200 krónur tonnið.
Ef verð á gasolíu og svartolíu lækk-
ar ekki miðað við nýjustu skráningar
í Rotterdam er útlit fyrir frekari
hækkanir um næstu mánaðamót.
Georg Ólafsson verðlagsstjóri sagði
við DV í gær að Verðlagsráð kæmi
til fundar í næstu viku og fullvíst
mætti telja að nýtt bensínverð yrði
komiðíloknæstuviku. -JGH
Flugið hækkar
um
Starfsfólk í Viðey hefur fengið aðstöðu í Húsdýragarðinum í Laugardal þar sem þess verður freistað að bjarga
æðarkollum sem hafa blotnað í olíumengun á Sundunum. Eitthvað af kollum hefur þegar drepist af völdum olíunn-
ar. Á myndinni sjást Guðrún Arnórsdóttir, ráóskona í Viðey, Kristján Árnason, starfsmaður Reykjavikurborgar,
og Bjarni Sigurbjörnsson, ráðsmaður í Viðey, hlúa að olíublautum æðarfugli. Ekki er enn vitað hvort hægt er að
þvoolíuna úrfiðrifuglanna. DV-myndGVA
Eftir mánaðamótin verður dýrara
að fljúga innanlands. Verðlagsráð
ákvað á fundi sínum í gær að hækka
verð á far- og farmgjöldum innan-
lands um 6 prósent en fyrir lá um
það beiðni frá flugfélögunum.
-JGH
r
f
f
4
f
4
í
Veðurhorfur á sunnudag og mánudag:
Bjart og hlýtt veður á morgun
Á sunnudag er spáð hægri breytilegri átt. Dálítil él verða við norðausturströndina í fyrstu en annars þurrt og víða bjart veður og hiti 5 til 10
stig. Vestanlands þykknar upp meö vaxandi sunnanátt undir kvöldið.
Á mánudag er búist við austlægri átt og víða verður strekkingsvindur. Rigningu og súld er spáð um allt land en hitinn verður á bilinu 5 til 12 stig.