Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1990, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1990, Blaðsíða 13
Oetíi HMHM3VÓX i: Hli;)/,(I>!A.TJA-1 „. LAU.QARQ&QUElk.NCöíBMBSR J99Q., SI 13 Heimurinn og ég Shakespeare & stúlkurnar. Shakespeare Smáauglýsingamar Stúlkumar Shakespeare, svo aö segja sköll- óttur, í skrýtnu skyrtunni, meö stóra hvíta kraganum, horfir á mig, og aðra, utan viö bókabúðina í fimmta hverfi Parísarborgar, „Shakespeare og Co“, bókabúð með fortíð, þar sem bókmenntaáhuga- menn hafa keypt inn til heimihsins í áratugi og líka er mögulegt að skrifa smáauglýsingar á svarta töflu, hægra megin við hurðina, fyrir aðeins tíu franka, og biðja um aht annað en bækur. Saklaust Stöku auglýsing er dæmigerð smáauglýsing: Gamalt hús til leigu, til sölu hljómborð, sem gengur fyr- ir rafmagni, og þaðan af hvers- dagslegri hlutir. Svo æsist leikur. Stúlka óskast „Heimabruggari frá Kentucky óskar eftir... (óskiljanlegt orð) stúlku." (Trúlegast er átt við ein- hvers konar „heimspekilega þenkj- andi“ stúlku). „Ég skildi konuna mína eftir bundna við plóg. Þegar ég kom aftur voru vinnuvélarnar búnar aö éta hana. Nú þarfnast ég eiginkonu sem getur útvegað þrett- án börn til að vinna á bómullarökr- unum. Skrifið til herra Willingham Jojo á heimihsfang hans.“ Stúlka óskast „Bóksali í París leitar að útivist- arstúlku (hér er vafalítið óskað eft- ir stúlku sem ann útivist) tii að Umsjón: Þorsteinn J. Vilhjálmsson byggja með sér kofa í skóginum. Ef hún vill elda handa honum sil- ung á hverjum morgni ætlar hann að segja henni sögur af hundum á hveiju kvöldi." Stúlka óskast „Ekkjumaður leitar að stúlku eins og Amelíu í Vanity Fair. Fyrsta konan mín líktist Becky Sharp og þegar hún týndi fölsku tönnunum sínum talað hún eins og...“ (það sem á eftir kemur er illskiljanlegt, ekki fjarri lagi að viðkomandi sé að líkja tjáningu fyrrum konu sinnar við lekan krana). „Núna langar mig til að hitta hæverska stúlku sem vill leyfa mér að... (Almennt velsæmi leyflr ekki að lokið sé við þýðinguna). „Sylvanus Griswold Motley III.“ Saklaust? Hvers konar eiginlega, segi ég við sjálfan mig, og horfi ásökunaraug- um á Shakespeare, sem er í þessari helvítis hvítu skyrtu á öllum myndum, og gæti hæglega, ef hann kærði sig um, gengið aftur, og stöðvað ónáttúruna, sem viðgengst í hans nafni í heiminum, nema ef vera skyldi aö honum þætti þessi undarlegheit í stakasta lagi, og ég hugsa sem ég geng í átt til höfuð- stöðva hringjarans í Notre Dame: Ef til vhl eru allir karlmenn Rík- harður þriðji í hjarta sínu. Jólagjafahandbók 1990 Miðvikudaginn 5. desember nk. mun hin árlega Jólagjafahandbók DV koma út í 10. sinn. Jólagjafahandbók DV hefur i sívaxandi mæli orðið ríkari þáttur í jólaundirbúningi landsmanna enda er þar að finna hundruð hugmynda að gjöfum fyrir jólin. Skilafrestur auglýsinga er til 26. nóvember nk. en með tilliti til reynslu undanfarinna ára er auglýsend- um bent á að hafa samband við auglýsingadeild DV hið fyrsta í síma 27022 svo unnt reynist að veita öllum sem besta þjónustu. Ath.l Símafaxnúmer okkar er 27079. LISTASAFN REYKJAVÍKUR KJARVALSSTAÐIR Safnakennari Laust er til umsóknar starf safnakennara við Lista- söfn Reykjavíkur (Kjarvalsstaði og Ásmundarsafn). Listfræði-, kennara- eða myndlistarmenntun æskileg. Starfið felst í að leiðbeina hópum um sýningar að Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni og gerð sérstakra verkefna þar af lútandi. Nánari upplýsingar veittar í síma 26131. Umsóknum ásafnt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skila til Kjarvalsstaða v. Flókagötu, 105 Reykjavík, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. iiMiiififiismn h/f MEIRIHÁTTAR MICHELIN MARKAÐUR LAUSNARORDIÐ S-200. FLESTAR STÆRÐIR Bfi FYRIRLIGGJANDI. ■' MERKID TRYGGIR GÆDIN. f / MICHELIN. " il| HUÚDLÁT OG RÁSFÖST. HALLANDI GRIPSKURÐIR. MICHELIN TVÖFÚLD ENDING. STÓRKOSTLEGT GRIP FRÁBÆR ENDING Q8P*T0PPURINN Í DAG, MICHELIN.' HMlBÆMSTflM H/F SKEIFUNNI5. SlMAR 687517 OG 689660 HÚSGAGNASYNING Nýjar sendingar af Dico járnrúmum 925,02-596-325.02 - - 160x200, kr. 48.000,- stgr. m/svampdýnu. 90x200, kr. 24.800,- stgr. m/svampdýnu. Gott verð. Góð kjör. Opið í dag til kl. 16, sunnudag kl. 14-16. ORM Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 54100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.