Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1990, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1990.
Fréttir
Rúmlega tvítugur maöur handtekinn á flótta í Austurveri 1 gær:
Reyndi að svíkja peninga
út í þremur bankaútibúum
Lögreglan handtók rúmlega tví-
tugan mann á flótta í Austurveri en
hann hafði reynt að svíkja út peninga
í þremur útibúum Samvinnubank-
ans í gær. Maðurinn komst yfir ávís-
anahefti á fimmtudagskvöldiö. Hann
hafði orðið sér úti um upplýsingar
og gögn eigandans. Hann vissi einnig
að eigandinn átti geymda bankabók
með ákveðnu númeri í Samvinnu-
bankanum í Háaleiti.
Maðurinn fór fyrst í Aðalútibú
Samvinnubankans í Bankastræti.
Þar óskaði hann eftir milhfærslu af
bankabókinni yfir á ávísanareikn-
inginn sem hann haföi orðið sér úti
um eyðublaðahefti að. Ósk hans um
yfirfærslu var hafnað en starfsstúlka
lét vita af manninum til öryggis.
Síðar um daginn skrifaði hinn ungi
maður út ávísun að upphæð 100 þús-
und krónur og reyndi að fá henni
skipt í Höfðabakkaútibúi. Var mað-
urinn beðinn um að framvísa banka-
korti. Sagðist hann þá þurfa að
bregða sér frá til að ná í það en skildi
ávísunina eftir. Nokkru síðar hringdi
hann í bankann og spurði hverju
þetta sætti. Var honum þá vísað á
Háaleitisútibú í Austurveri.
„Við áttum von á honum hingað.
Aö vísu þekktum við hann ekki í
sjón. Síöan sást torkennilegur maður
hér inni sem hafði komið í leigubíl
sagði Þór Símon Ragnarsson, útibús-
stjóri í Háaleitisútibúi, við DV.
Maðurinn svipaðist um í bankan-
um en fór svo í röðina. Á meðan var
hringt á lögreglu. Áöur en kom að
honum þar kom lögreglan á vett-
vang. Hljóp þá maðurinn út en lög-
reglan náði honum á harðahlaupum
á móts við verslun skósmiðsins í
Austurveri.
Rannsóknarlögregla ríkisins tók
við manninum í gær og hafði hann
í sinni vörslu. Eftir því sem DV kemst
flæst hafði umræddur maður skrifað
út nokkrar ávísanir úr hinu illa
fengna hefti. Talið er fullvíst að það
hafi ekki veriö i bönkum.
-ÓTT
Eldur varð laus í mannlausri íbúð í Krummahólum 2 um hádegisbilið í
gær. Rafmagnshella hafði verið skilin eftir með straumi á. Hitinn náði að
svíða hluta úr eldhúsinnréttingu og varð af mikill reykur. Töluverðar
skemmdir urðu í íbúðinni af völdum reyksins. Myndin er tekin þegar slökkvi-
liðsmaður var að fara inn i íbúðina frá svölunum. DV-mynd JAK
Fiskiþing:
Haf nar og haf nar
ekki hugmyndum
ráðherra
- varðandistofnunFiskveiðistofnunar
Flokksráðsfundur Sjálfstæöisflokksins:
Kanna ber hvort kostur
sé að ísland tengist
evrópska myntbandalaginu
- sagði Þorsteinn Pálsson, formaður flokksins, 1 setningarræðu sinni
„Við eigum aö hefja athugun á því
hvort kostur sé fyrir ísland að tengj-
ast á næstu árum evrópska mynt-
bandalaginu. Þær nýju aðstæður,
sem við stöndum frammi fyrir, kalla
á endurmat á afstöðu íslands. Ég hef
áður lýst þeirri skoðun að í því efni
eigum við ekki fyrirfram að útiloka
nokkurn kost...,“ sagði Þorsteinn
Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, meöal annars í setningarræðu
sinni við upphaf flokksráðsfundar
Sjálfstæðisflokksins sem hófst í gær.
Þorsteinn sagði aö tengsl okkar við
nýskipan efnahagssamstarfs Evr-
ópuþjóðanna muni ráða miklu um
framþróun í þjóðarbúskapnum á
næsta áratug. Hann sagði það geta
skipt sköpum fyrir íslendinga hvort
þeir einangruðust frá þessu mikil-
væga markaðssvæði eða tækju virk-
an þátt í þeirri nýju skipan efnahags-
samstarfs sem ætla má að leiði aðrar
þjóðir til stóraukins hagvaxtar og
bættra lífskjara á næstu árum.
Þorsteinn benti á að sérhvert skref
í þessu efni væri viðkvæmt og vanda-
samt, enda ættum við ríkari eigin-
hagsmuna að gæta en nokkur önnur
þjóð. Hann taldi að hugmyndin um
tveggja stoða evrópskt efnahags-
svæði EFTA og Evrópubandalagsins
væri hrunin. I besta falli gæti hún
orðið stökkpallur fyrir stærri þjóðir
EFTA inn í Evrópubandalagið. Hann
sagði að það myndi þrengja stöðu
íslendinga og að ríkisstjórnin virtist
ekki gera sér grein fyrir þessu.
Þorsteinn sagði að meginmarkmið
okkar væri að tryggja hindrunar-
lausan útflutning á íslenskum afurð-
um inn á þennan mikilvæga markaö.
í þeim efnum yrði aldrei jafnstaða
nema Evrópubandalagið viður-
kenndi sjávarafurðir sem jafngildar
öðrum iðnvarningi. Hann sagði það
höfuðmarkmið okkar að varðveita
full og óskoruð yfirráð yfir fiskveiði-
lögsögunni. Engir samningar yrðu
gerðir sem skertu þann rétt.
Þorsteinn Pálsson réðst af hörku á
Framsóknarflokkinn sem hann sagði
hafa, með því að spila ýmist til hægri
eða vinstri, tekist að sitja í ríkisstjórn
í 20 ár. Hann minnti á að lýðveldisár-
ið hefði 17 ára valdaeinokun Fram-
sóknarflokksins verið brotin upp
með þeirri djörfu ákvörðun að
mynda nýsköpunarstjórnina með
kommúnistum.
„Það er óheilbrigt að flokkur með
15 til 20 prósent atkvæða geti í 20 ár
setið án ábyrgðar í ríkisstjórn," sagði
Þorsteinn og ennfremur að það væri
óheilbrigt að lítill minnihlutaflokkur
kæmist í þá aðstöðu að völd hans
væru trygg, burtséð frá úrslitum
kosninga.
Að lokum lýsti hann því yfir að
málefnaumræða kosningarbarátt-
unnar hæfist á þessum flokksráðs-
fundi. -S.dór
Áofsahraðaá
torfæruhjóli
17 ára piltur reyndi að stinga lög-
regluna af á 150 kílómetra hraða á
Grindavíkurvegi í gær. Pilturinn
reyndi fyrst að komast undan þegar
lögreglan kom auga á hann við fjalliö
Þorbjörn. Fór hann síöan að landi
Skógræktarinnar en varö að snúa
við. Barst síöan leikurinn um
Grindavíkurveg og að hrauninu við
Svartsengi. Pilturinn reyndi allt
hvað hann gat að komast undan lög-
reglunni. Hann ók nokkrum sinnum
yfir Grindavíkurveg og út í hraun
aftur. Á endanum tókst lögreglu að
stöðva piltinn. -ÓTT
Landsfundur
Kvennalista
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Landsfundur Samtaka um
Kvennalista, hinn 8. í röðinni, verður
haldinn um helgina í Hrafnagili í
Eyjafirði undir yfirskriftinni „Konur
eiga næsta leik.“
Tæplega 100 fulltrúar úr öllum
kjördæmum landsins munu sækja
fundinn en helstu mál hans verða
endurskoðun stefnuskrár, skipu-
lagning kosningabaráttunnar og
umræða um „útskiptingar" þing-
manna listans á Alþingi.
Eftir mjög harðar umræður og
deilur um þá hugmynd Halldórs Ás-
gríinssonar sjávarútvegsráðherra að
koma hér á sérstakri Fiskveiðistofn-
un, sem hann setti fram í ræðu sinni
viö setningu Fiskiþings, var sæst á
ályktun á Fiskiþingi sem hafnar og
hafnar þó ekki hugmynd Halldórs.
í samþykktinni segir:„49. Fiskiþing
telur ekki tímabært að taka endan-
lega afstöðu til hugmynda sjávarút-
vegsráðherra um Fiskveiðistofnun.
Mikils er um vert að vel takist til á
öllum sviðum um hagræðingu í
stjórnsýslu sjávarútvegsins og ný
skipan leiði ekki til aukinna útgjalda.
Hvað hugmyndir ráðuneytisins
varðar, að Fiskveiöistofnun þessi
taki við allri skýrslusöfnun og úr-
vinnslu Fiskifélagsins, getur Fiski-
þing ekki fallist á. Lýsir þingið sig
°Pið fyrir áframhaldandi viðræðum,
sem rétt var byijað á milli Milli-
þinganefndar Fiskiþings og ráðu-
neytisins um framtíö skýrslusöfnun-
ar, sem allir eru sammála um að sé
hagkvæmast að hafa á einni hendi.
Tekur 49. Fiskiþing undir ummæli
sj ávarútvegsráðherra í ræðu hans á
þessu Fiskiþingi, þar sem hann segir:
„Að sjálfsögöu verður ekki ráðist í
svo viðamiklar breytingar.á stjórn-
kerfi sjávarútvegsins án víðtækrar
umræðu og rækilegs undirbúnings."
Til stóö að koma fram með mun
harðorðari ályktun og hafna alfarið
hugmynd Halldórs Ásgrímssonar en
hofsamir menn komu í veg fyrir það
og sömdu þessa tvíeggja ályktun.
-S.dór
Guðmundur J. Guðmundsson:
Skil ekki afstöðu
félaga minna í ASÍ
„Okkur er full alvara með að febrúar hafa vextir á verðtryggð-
berjast gegn verðhækkunum. Við um skuldabréfum hækkað að með-
höfum lagt í það tjármuni og mikla altali úr 7,9 í 8,2 prósent Hjá ís-
vinnu. Við álítum vextina vera landsbanka eru vextimir nú 8,75
undirrót verðlagsins og því hljót- prósent meöan Landsbankinn tek-
um við að bregðast mjög harkalega ur 7,75 prósent og Láfeyrissjóður
við ákvörðun islandsbanka um aö Dagsbrúnar einungis 7 prósent."
hækka vextina," segir Guömundur Aðspurður segir Guðmundur aö
J. Guðmundsson, formaður Dags- hann skilji ekki afstöðu þeirra Ás-
brúnar en eins og fram hefur kom- mundar Stefánssonr, forseta ASÍ,
ið íhugar stjóm félagsins að hætta og Magnúsar Geirssonar, for-
viðskiptum víð bankann og endur- manns Rafíðnaðarsambandsins, en
skoða eignaraöild sína að honutn. þeir eiga báðir sæti í bankaráöi ís-
Að sögn Guömundar hefur ís- landsbanka og voru fylgjandi
landsbanki verið með hæstu vext- ákvörðuninni. Hann segist hins-
ina að undanfórnu og því hafi vegar ekki vilja rífast á opinberum
mönnum brugðið við þegar hann vettvangi við þessa félaga sína í
hækkaði vextina einn viðskipta- ASÍ.
bankanna vegna væntatilegrar „Dagsbrún á mikið fé í bankan-
verðbólgu. umendaerhannokkarstærstivið-
„islandsbanki hefur alltaf verið skiptabanki. Ætli viö séum ekki
seinn til að lækka vextina þegar næstöflugasta verkalýðsfélagið
verðbólgan hefur minnkaö en er fjárhagslega. Ef okkar sjónarmið
alltaf fyrstur til að hækka. Okkur skipta bankann ekki máli þá fæ ég
fannst nóg um þetta þó hann færi ekki séö að bankinn skipti okkur
nú ekki að ryöjast fyrstur fram. miklu máli. Ætli við tökum ekki
Menn skulu athuga það aö frá 1. baraokkarpoka.“ -kaa