Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1990, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1990, Blaðsíða 34
46 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1990. LífsstQI Séð yfir hluta af garðinum hjá gistihúsinu. hraðferð og gistir aðeins eina eða tvær nætur. Fyrir þessa þjónustu höfum við tekið eftirfarandi: 80 dollara fyrir allt húsið, 70 dollara ef aðeins er gist í öðru herberginu og 40 dollara ef gist er á loftinu inni hjá okkur. Þá höfum við tekið 75 dollara fyrir að sækja fólk og koma því aftur út á flugvöU. í skoðunarferöunum höfum við tekiö um það bil 10 dollara á tím- ann fyrir leiðsögn og bíl. Núna er verð á dollaranum frekar Ferðir lágt svo að það kemur ágætlega út fyrir íslendinga að ferðast til Amer- íku. Margir hafa sagt að Ameríka sé allof fjarlæg til að ferðast þangað. Þetta er mesti misskilningur. Amer- íka er svo sannarlega fyrir alla og það fyrir alla aldursflokka. Það geta allír fengið eitthvað við sitt hæfi í Ameríku. Hjá okkur geta gestir notið góðs atlætis í ró og næði en einnig komist í glaum og gleði ef það kýs, því shkt er ekki langt undan. Við höfum gjaman bent fólki á að það getur verið gaman að skipta Flórídadvöl, vera hluta tímans hjá Fátt sem truflar okkur nema blíður fuglasöngur - segir AnnaBjamason „Okkar reynsla er sú að þeir sem hafa einna bestu not af þjónustu okk- ar eru til dæmis barnafólk eða eldri borgarar sem eru ekki alltof öruggir að ferðast einir,“ segir Anna Bjama- son, sem rekur gistiþjónustu á Flórída, í samtah við DV. Anna er stödd hér á landi um þessar mundir í stuttri heimsókn. „Barnafólkið sparar sér miklar fjárhæðir með því að matreiða flestar máltíðir heima við auk þess sem þannig er hægt að hafa mun hollari og betri mat en þegar alltaf er borðað á skyndbitastöðum. Eldri borgarar, sem vilja gjarnan sjá sig um í heimin- um, era velkomnir til okkar. Viö ökum fólki í skoöunarferðir og leggj- um á ráðin um hvað er skemmtileg- ast að skoða hverju sinni. Við ökum fólki gjaman í okkar eigin bílum og förum í skemmtigarðana ef fólk vill það. Svo hjálpum við fólki við að versla þar sem það er ódýrast hverju sinni. Við eram með gistiaðstöðu í 80 fer- metra einbýlishúsi sem er á lóðinni hjá okkur. í því eru tvö svefnher- bergi og að auki svefnsófi í stofunni. Húsið er meö setustofu og eldhúsi sem búið er öllum tækjum. Svo er góð aðstaða til þess að baka sig í sól- inni í garðinum okkar sem er afgirt- ur, með fallegum gróðri. Skammt frá okkur, í sömu götu, er glæsileg sund- laug sem er til afnota fyrir nágrenn- ið. Ef fólk vill fara á ströndina og baða sig í hafinu ökum við gjarnan með það þangað. Hjá okkur hafa til dæmis verið tvenn hjón með sex böm og það fór vel um alla. Einnig hafa verið tvenn hjón hjá okkur saman og hafa látið vel af sér. Og svo auðvitað bara ein hjón sem gjarna hafa viljað vera út af fyrir sig. Flestir koma hingað á bílaleigubílum en eins og ég gat um áður getum við boðið upp á akstur. Við höfum einnig boðið upp á gist- ingu inni í húsinu hjá okkur en það er þá aðallega fyrir fólk sem er á okkur í Mið-Flórída og svo einhvem hluta frísins á ströndinni, annað hvort við Mexíkóflóann eða á Atl- antshafsströndinni. Hægt er að hafa milligöngu um að útvega gistingu á báðum stöðunum." - Hvernig er svo fyrir íslendinga að búa þarna í eilífu sumri og sól á Flórída? „Það fer alveg ljómandi vel um okkur. Viö kunnum því vel að vakna í góðu veðri nánast hvern einasta morgun. Það era mikil viðbrigði frá því að lifa nærri heilan mannsaldur við íslenska veðráttu. Þarna sem við búum er ákaflega rólegt umhverfi, fátt sem truflar okkur nema blíður fuglasöngur. Mengun er ótrúlega lítil í Flórída og fuglalífið fjölskrúðugt." Heimilsfang þeirra Önnu og manns hennar, Atla Steinarssonar, er: 1703 Longleaf Dr., St. Cloud, Florida, 34769. Síminn er 407-957-3599. Fax- númerið er: 407-957-4068. -J.Mar AUKABLAÐ TÆKTÍI DV-Tækni er sérstakt aukablað sem fyrirhugað er miðvikudaginn 14. nóvember nk. í blaðinu verður Qallað um tækni og vísindi á breiðum grundvelli, sérstak- lega nýjustu tækni til daglegra nota í atvinnurekstri, á heimilum og til tómstunda og skemmtunar. Efnistök einkennast af stuttum, hnitmiðuð- um greinum á máli sem venjulegir notendur skiljajafnvel og tæknimenn. í ráði er að Qalla m.a. um tækni og búnað á íslenskum markaði, svo sem myndbandstökuvélar, gervihnattasjónvarp, myndbandstæki, sjónvörp, síma, farsíma, símsvara, þjófavarnakerfi og rafeindahljóðfæri, svo nokkuð sé nefnt. DV-Tækni leitar eftir samtarfi um upplýsingaöflun við þá aðila sem selja tæknibúnað á áðurnefndum sviðum. Auglýsingum í tækniblaðið þarf að skila í siðasta lagi fimmtudaginn 8. nóvember. ATH.I Símafaxnúmer okkar er 91-27079 og sími augiýsingadeildar 91-27022. „Mengun er ótrúlega lítil í Flórída og fuglalífið fjölskruðugt," segir Anna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.