Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1990, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1990, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1990. Hið fræga einvígi Fischers og Spassky í Reykjavik. Skáksagan geymir mörg dæmi um óskiljanlegar yfirsjónir snjöllustu skákmanna. Jafnvel þessir snillingar hafa átt sína döpru daga. Yfirsjónir Karpovs og Kasparovs í New York: Afleikir eru engin nýlunda í heims- meistaraeinvigjum - Fischer var heldur ekki óskeikull „Versta skák sem þeir hafa teflt í tíu ár,“ eða „ég trúi þessu ekki - enginn trúir þessu,“ eru tilsvör sem heyrst hafa í Hudson-leik- húsinu á Broadway síðustu daga. Taflmennska Karpovs og Kasp- arovs hefur farið svo fyrir brjóstið á „sérfræðingunum" að þeir eiga vart orð til að lýsa vanþóknun sinni. Vissulega hefur komið á óvart að snillingarnir tveir skuli eiga það til að leika af sér eins og nýgræðingar en um leið er það fagnaðarefni fyr- ir okkur hin þar sem það sýnir okkur að enginn er óskeikull. Leggja sálina að veði Þetta er fimmta einvígi Karpovs og Kasparovs um heimsmeistara- titilinn. Þeir viðhöfðu stór orð í viðtölum fyrir slaginn - báðir töldu sig fullvissan um sigur. Kasparov þóttist finna blóðbragð að bráðinni og víst er að Karpov þráir ekkert heitar en að endurheimta heims- meistaratitilinn úr klóm erkifjand- ans. Sérfræðingar spáðu því að þetta yrði fjörlegasta einvígið og fram að þessu hefur það gengið eft- ir. í níu skákum hefur aðeins ein (fimmta skákin) verið gleðisnauð jafnteflisskák. í öðrum skákum hefur baráttan verið í algleymingi og allt sem henni fylgir: glæsilegar fómir, nýjungar í byrjunum, óað- fmnanleg tækni - og afleikir. Það er lítill vandi fyrir tvo jafn- sterka skákmenn að setjast niður og gera jafntefli ef hvorugur vill taka áhættu. En þegar teflt er eins og á að tefla - með skapandi krafti og hugarflugi - verður ekki hjá því komist að einn og einn afleikur læðist fram á borðið. Þetta er ein- faidlega skýringin á fingurbrjótun- um í New York: Þeir leggja sálina að veði til aö klekkja á andstæö- ingnum! Gléfsur úr„einvígi aldarinnar" Taugaspenna setur gjaman meiri svip á einvígi en hefðbundin mót og heimsmeistaraeinvígi eru þar í sérflokki. Skáksagan geymir mörg dæmi um óskiljanlegar yfirsjónir snjöllustu skákmanna. Karpov og Kasparov hafa svo sem verið upp- vísir aö því fyrr að leika illa í ein- vígjum sínum en fyrirrennarar þeirra voru engu skárri. Einvígi Fischers og Spasskys í Laugardalshölhnni 1972 var án efa allra besta og viðburðaríkasta heimsmeistaraeinvígi sögunnar. Kapparnir komu sífellt á óvart, innan skákborðsins sem utan, og var Fischer iðnari við kolann, eins og frægt er orðiö. Frumlegar og óvæntar hugdettur hans á skák- borðinu urðu þess oftar en ekki valdandi að kliður fór um salinn. Spassky þótti tefla lakar í einvíginu en hann átti að sér og var dyntum Fischers gjarnan kennt um. En Fischer lék líka af sér - jafnvel eins og byrjandi. Lítiö á þetta brot úr 14. skákinni. Fischer hafði hvitt og átti leik: 21. Bb5? Dxb2 22. Bxc6 Fischer hefur líklega aöeins reiknað með 22. - bxc6 23. Dxc6 en yflrsést millileikur Spasskys. 22. - Rc3! Nú missir hvíta drottningin vald á c6 og svartur vinnur einfaldlega peð. En ekki er allt búið... 23. Db4 Dxb4 24. axb4 bxc6 25. Be5 Rb5 26. Hcl Hc8 27. Rd4 66?? Eftir 27. - Rxd4, eða 27. - Bxd4, á svartur peði meira og ætti að vinna skákina. En Spassky endurgeldur greiða Fischers í 21. leik. Þetta er furðuleg yfirsjón. 28. Bíffi! y' Ekki seinn á sér, því að ef 28. - gxf6 29. Rxb5 hefur hvítur unnið peðið til baka og á betri stöðu. Eftir 28. - Bxd4 29. Bxd4 Rxd4 30. exd4 Hb8 31. Kfl Hxb4 32. Hxc6 Hxd4 33. Ha6 .. .koðnaði skákin niður í jafn- tefli. Annað dæmi úr einvígi Fischers og Spassky er að fmna í sjöundu skákinni. Þar virtist Spassky, sem stýrði svörtu mönnunum, algjör- lega missa jarðsamband. Við gríp- um niður í taflið eftir 16. leik Fischers, Bg5-e3: £ I ii Á llil Á m A A £& ■ & A ÍAAáá S n* ABCDEFGH 15. - b5? 16. Ba7 Nú er skiptamunur fallinn og Spassky hefur ekki nægileg mót- færi. Ef fimmtándi leikur hans var fóm þá er hún byggð á misskiln- ingi. 16. - bxc4 17. Bxb8 Hxb8 18. bxc4 Bxc4 19. Hfdl Rd7?? En þetta er fingurbrjótur af versta tagi. 20. Rd5! Dxd2 21. Rxe7+ Kf8 22. Hxd2 Kxe7 23. Hxc4 Og hvítur á vinningsstöðu. Sjaldan er ein báran stök Oft er það svo aö er annar leikur af sér heldur hann því áfram síðar í skákinni, eöa „smitar" andstæð- inginn sem fer einnig að tefla veikt. Sjöunda skák Karpovs og Ka- sparovs frá New York er gott dæmi um þetta en svo virðist sem skák- skýrendur hafi almennt misskilið stöðuna eftir drottningarleik Ka- sparovs. Rifjum þetta upp, Kasp- arov, sem hafði svart, lék síðast 27. - Dd8-a5, eftir aöeins sex mínútna umhugsun: 28. Rd5! Getur hugsast að heimsmeistar- inn hafi ekki séð svo einfalt svar? Karpov ætlaði ekki að trúa sínum eigin augum og hann var 25 mínút- ur að velta þessum sjálfsagða ridd- araleik fyrir sér. 28. - Dc5+ 29. Khl?! Flestir skákskýrendur töldu þetta bráðsnjallan leik af Karpovs hálfu en trúlega er 29. Be3 betra. Þá er 29. - Bg5 þvingaö og eftir 30. Rf6+ á svartur tvo kosti: a) 30. - Kg7 31. Bxc5 Bxd2 32. Bd4! (ekki 32. Rxd7 dxc5! 33. Hcdl Be3+ 34. Khl Bd4 og riddarinn lok- ast inni) c5 33. Hcdl! cxd4 34. Hxd4 Hf7 35. Rd5 Bxd5 36. exd5 Hxfl + 37. Kxfl HÍ8+ 38. Ke2 Hf4 39. g3 He4+ 40. Kf3 He3+ 41. Kf4 og hvít- ur vinnur peð með góðum vinn- ingsmöguleikum. b) 30. - Kh6 31. Bxc5 Bxd2 32. Rxd7 og þar eð 32. - dxc5? 33. Hcdl Be3+ 34. Khl Bd4 strandar nú á 35. Hxd4! cxd4 36. Rc5 Bc8 37. HfB b6 38. Re6! (með máthótun), verður svartur að sætta sig við 32. - Bxcl 33. Hxcl Bxd7 34. Bxd6 He8 og rétt er það, þökk sé mislitum biskup- um, að hann á mjög góða jafnteflis- möguleika. 29. - Bxd5 30. cxd5 Dd4?? Þetta er versti cifleikurinn í skák- inni. Eftir 30. - Db5! kemst svartur hjá peðstapi og gæti vel sloppið með Skák Jón L. Árnason skrekkinn. Sjáið t.d. 31. dxc6 bxc6 32. a4!? Dxb3 33. e5 Bg7 34. Hxc6 Dxa4 35. Hxd6 Had8, eöa 35. Dd5?! HfB og svara má 36. Hc4 með 36. - dxe5! með árangri. 31. dxc6 bxc6 32. Hxc6 Hae8 33. Hc4 Dxd2 34. Bxd2 Svartur hefur tapað peði og Karpov varð ekki skotaskuld úr því að vinna tafliö. 34. - Be5 35. Be3 Bg3 36. Hf3 h4 37. Bf2 Bxf2 38. Hxf2 Hde7 39. Hf4 g5 40. Hf6 Hxe4 41. Hxe4 Hxe4 42. Hxd6 He7 43. Ha6 Kg7 44. Kgl Og Kasparov gafst upp. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.