Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1990, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1990.
Veiðivon
Hnm í sjóbirtingsveiði:
- segir Magnús Jóhannsson
„Þaö er mjög erfitt að spá í
þessa miklu niöursveiflu í sjó-
birtingnum á þessari stundu,
margt getur spilað þama inn í.
Þetta getur verið ofveiði, lenging
veiðitínians, vorveiöin eða nátt-
úrulegar sveiflur," sagði Magnús
Jóhannsson á Veiðimálastofnun-
inni á Selfossi en hann hefur tölu-
vert íylgst með þessum fiski síð-
ustu árin. Hann hefur m.a. ásamt
fleirum staðið fyrir tilraunum
með sjóbirting og bleikju í Dyr-
hólaósi. Þar skilaöi fiskurinn sér
vel á fyrsta ári en mjög lítið núna
á öðru ári.
„Þetta gerist ekki bara austur
undir Klaustri, í Geirlandsá,
Vatnamótum og Grenlæk, að
veiöin hrynur heldur á öllu svæö-
inu. Þaö mætti rannsaka þetta
miklu betur en gert hefur verið.
Þaö varð hrun í sjóbirtingnum á
írlandi og þar hafa verið settar
milijónir í að Ðnna ástæðuna en
hún hefur ekki fúndist ennþá,“
sagöi Magnús í lokin.
„Þetta er rosalegt hnm, eins og
1 Vatnamótunum, aðeins skárra
í Geirlandsá en alls ekki gott,“
sagði Þórhailur Guðjónsson, for-
maður Stangaveiöifélags Kefla-
víkur, er lokatölurnar voru bom-
ar undir hann.
„Stoftúnn endumýjar sig
kannski ekki nógu hratt og þaö
þarf að sleppa sjóbirtingsseiðum
í meira mæh,“ sagði Lúðvík Giz-
urarson en hann er mikiR áhuga-
maður um sjóbirtinginn og hefur
skrifað margar greinar um hann
í blöð og timarit.
„Við fengum nokkra stóra sjó-
birtinga hjá okkur i Rangá í lok-
in,“ sagði Lúðvík ennfremur.
-G.Bender
Stjórn Landssambands stangaveiðifélaga: Grettir Gunnlaugsson formaður, Hjörleifur Gunnarsson, Rafn Hafnfjörð,
Guðmundur Halldórsson, Sigurður Sveinsson, Matthias Einarsson og Jón Bjarnason.
Myndbrot
- frá aðalfundi Landssambands stangaveiðifélaga
„Þessi fertugasti aðalfundur lands-
sambandsins var mjög gagnlegur og
mál veiðimanna rædd frá ýmsum
hliðum,“ sagði Grettir Gunnlaugs-
son, formaður LS, að fundi loknun í
Veiðimenn, sem kunna að fara með
öngul, fara iétt með aö skera sér
eina tertusneið.
Munaðamesi í Borgarfirði.
„Veiðin síðasta sumar var rædd,
ólöglegar netaveiðar í sjó, Rangárn-
ar, kvótakaupin, niðurskurður til
rannsókna, ástandið í hafinu og
margt fleira," sagði Grettir formað-
ur.
Við vorum á staðnum og festum
atburðina á filmu.
-G.Bender
Mörg mál voru rædd á þinginu og hér eru þeir Jón G. Baldvinsson og
Aðalsteinn Pétursson í þungum þönkum.
DV-myndir G.Bender
Finnur þú fimm breytingar? 79
ÞjóðarspaugDV
Verkstjórinn
Maður nokkur, sem þótti frekar
lélcgur til verka, ■ fékk eitt sinn
vinnu ftjá stóru skipafélagi i
Reykjavík. Hann snerti varla á
verki allan daginn, heldur gekk
bara á milli vinnufélaga sinna og
reyndi hvað hann gat til að fá þá
í samræður. Er hatm haiði verið
á launaskrá fyrirtækisins í heilan
mánuð, kom forstjórinn iil hans
og sagði honum að taka allt sitt
hafurtask og snauta heim þvi
hann væri rekinn. Er maðurinn
spurði um ástæður fyrir brot-
tresktrinun, svaraðí forstjórinn:
„Ég veit ekki hver réði þig en eitt
er víst að ég hefði rekið þig miklu
fyrr ef ég hefði ekki staðiö í þeirri
trú að þú værir verkstjórinn
héma á bryggjunni.*'
Veðra-
hönnuðurimi
Skömmu eftir aö sjónvarpið hóf
útsendíngar á veöurfréttum
hringdi kona þangað. Er hún var
spurð hvern hún vildi tala við
svaraði hún: „Æ, ég veit nú ekk-
ert hvað hann heitir en þaö er sá
sem býr til veðrið."
Uppistaða
þvagsins
Skólapiltur einn var eitt sinn
spuröur að því, af kennara sin-
um, hver væri aöaluppistaðan í
þvaginu. „Ætli það sé ekki bara
hlandið," svaraði strákurinn án
þess að roðna.
Mikil vinna
Tveir lögfræðingar unnu eitt
sinn saman á skrifstofu hjá þvi
opinbera. Dag einn vildi það svo
til að annar þeirra féll í sætan
svefn, rétt fyrir hádegismat. Ná-
kvæmlega klukkan tólf gekk fé-
lagi hans að honum, klappaði létt
á öxl hans og sagði: „Vaknaðu
maður, það er kominn tími til að
snæða hádegismatinn." Hinn
hreyföí sig aöeins en umlaöi síð-
an: „Ég má ekkert vera aö þvi að
borða núna. Ég vinn í allan dag.“
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum þirtum
við nöfn sigurvegara.
1) Hitateppi fyrir bak og
hnakka, kr. 3.900,-
2) Svissneska heilsupannan,
kr. 2.990,-
Vinningamir koma frá Póst-
versluninni Príma, Hafnar-
firði.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 79
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir sjötu-
gustu og sjöundu getraun
reyndust vera:
1. Margrét Ásgeirsdóttir
Bláhömrum 24-3,
112 Reykjavík.
2. Ingibjörg Jósefsdóttir
Ofanleiti 11,103
Reykjavík.
Vinningamir verða
sendir heim.
Heimilisfang: